Morgunblaðið - 23.01.1983, Síða 37

Morgunblaðið - 23.01.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1983 37 Vörubílasýning! Laugardag og sunnudag frá kl. 1 — 6 Sýnt verður allt það nýjasta frá Mazda, Hino og DAF. BÍLABORG HF. Smióshöföa 23 Viðar Þór Haf- þórsson — Minning Fæddur 15. desember 1978 Dáinn 14. janúar 1983 „I>ú (auð mín.s lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum röóurörmum þínum og hvíli sa*U, þótt hverfi sólin bjarta ég halla mér ad þínu föóurhjarta. (M. Jochums.son) Vegir Guðs eru órannsakanlegir var það fyrsta sem okkur kom í hug er við heyrðum um andlát litla elskulega frænda okkar. Hann sem var svo skýr og yndis- legur og brosið hans bjarta og hreina er eitt af því sem maður aldrei gleymir. Því fannst okkur við verða að setjast niður og skrifa nokkur kveðjuorð og þakka fyrir allar yndislegu samverustundirn- ar sem við áttum með honum. Þær voru ekki fáar og eru nú sem perl- ur í minningunni. Síðastliðið ár var honum erfitt þar sem hann þurfti að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi en aldrei heyrðist æðruorð frá litla frænda og alltaf hitti maður hann með bros á vör. En hann var heldur ekki einn því við hlið hans stóðu foreldrarnir sem dvöldust öllum stundum hjá honum og studdu hann og styrktu. Elsku Daddi minn og Lilja, Tommi og Þórunn, þið hafið misst mikið, en minnumst þess að traustið á Hann sem öllu ræður er það sem öll sár læknar að lokum. Guð styrki ykkur og styðji alla tíð. Að lokum langar okkur að þakka öllu starfsliði og læknum á barna- deild Hringsins 7-C og D fyrir allt það sem þau gerðu fyrir hann litla frænda okkar. Jafnframt þakkir til starfsfólksins á sérdeild Múla- borgar fyrir þann tíma sem hann dvaldi þar og naut æfinga. Guð blessi þessu fólki störf þess og vilja. Ó sólarfaðir aigndu nú hvert auga en sér í lagi þau sem tárin lauga og sýndu miskunn öllu því sem andar en einkum því sem böl og voði grandar. (M. Jorhumsson) Dæja og Dóra Viðar Þór er dáinn. Þessi litli frændi okkar fæddist 15. desem- ber 1978 og er því aðeins fjögurra ára þegar hann hverfur okkur úr jarðnesku lífi. Við dánarbeð lítiis barns vakna svo margar spurn- ingar, sem erfitt verður að fá svör við. Af hverju fékk hann ekki að lifa. Af hverju hjálpaði Drottinn honum ekki að yfirbuga sjúkdóm- inn sem hann barðist við frá fæð- ingu, og þó sérstaklega allt síð- astliðið ár. Á slíkri stundu finnum við vanmátt okkar betur en nokkru sinni áður. Þetta síðasta ár dvaldi hann að mestu á barna- deild Hringsins á Landspítalanum í umsjá einstaks hjúkrunarfólks og lækna og það eitt er víst að þar er valinn maður í hverju rúmi. Starfsliði öllu færum við bestu þakkir fyrir þá alúð og umönnun sem þau veittu honum. Alla daga, sem Viðar Þór var á spítalanum gat hann treyst því, að mamma og eða pabbi, kæmu til að auðvelda honum dvölina þar. Samt var það tilhlökkunarefni að geta sagt mömmu að Björn læknir hefði gef- ið honum helgarleyfi, hann mætti fara heim. Foreldrar hans eru Lilja Hjördís Halldórsdóttir og Hafþór Jónsson sem ásamt bróður og systur sjá á bak hugljúfum syni og bróður. Já, mikil er sorg ykkar, en við vitum að trúin á algóðan Guð auðveldar ykkur að ganga í gegnum þá þraut sem ykkur hefur verið lögð á herðar. Lilja mín og Daddi. Við eigum ásamt ykkur, afa og ömmu, ljúfar minningar, sem aldrei gleymast, minningar um lítinn dreng sem nú verður lagður í hinstu hvílu milli afa og ömmu sem þegar hafa tekið hann í arma sína. Guð styrki þá og styðji sem nú eiga um sárt að binda. Kveðja frá starfsfólki og börnum á Hvolpadeild, Múlaborg Viðar Þór Hafþórsson fæddist þann 15. desember 1978 og andað- ist 14. janúar 1983. Foreldrar hans voru þau Lilja Hjördís Halldórs- dóttir og Hafþór Jónsson, stýri- maður, og eftirlifandi systkini Þórunn Jónína, sem verður 7 ára í þessum mánuði, og Tómas Bolli, 15 ára. Á Hvolpadeildina í Múla- borg kom Viðar seint í marsmán- uði 1980 og var síðan hjá okkur meira eða minna, á milli þess sem hann þurfti að dveljast á sjúkra- húsi vegna langvarandi og erfiðs lungnasjúkdóms, sem dró hann að lokum til dauða. Þrátt fyrir að líkamleg fötlun setti sitt mark á Viðar Þór, var hann einstaklega skemmtilegur og skýr drengur. Átti hann auðvelt með að „sjarmera" starfsfólkið hérna alveg upp úr skónum, svo oft reyndist erfitt að neita honum um nokkurn hlut. Huggun er það foreldrum Viðars Þórs og systkin- um að síðustu jól og áramót og síðustu helgarnar sem hann lifði, fékk hann að koma heim af sjúkrahúsinu og vera hjá þeim og var vonum framar hress og kátur. Margar skemmtilegar minningar eigum við á Hvolpadeild um Viðar Þór, þó að vera hans hér væri í heild ekki löng, vegna tíðrar sjúkrahúsvistar hans. Þau Lilja og Hafþór, foreldrar Viðars, voru mjög áhugasöm og virk í foreldra- félaginu hér og var Hafþór lengi formaður þess. Við dáðumst að styrk þeirra, bjartsýni og dugnaði í veikindum Viðars og allt fram til síðustu stundar. Nú eftir mikil og erfið veikindi, sem virtust ekki eiga nema einn Móðursystkini hljóma gegnum dauúans nilt þai er kveijan: Kom lil mín! Krislur tók þig heim til sín. Þú ert blessuö hans í hóndum, hólpin sál meö Ijóssins óndum." (SB 1886 — B. Halld.) endi, þó að rofaði til á milli, er gott fyrir lítinn ljúfan dreng að fá hvíld „uppi hjá Guði“ eins og blessuð börnin segja. Við, starfsfólkið á Hvolpadeild og börnin hér, sendum Lilju og Hafþóri, Þórunni og Tomma okkar innilegustu samúðarkveðjur. „lA*gg ég nú bæöi líf og önd Ijufi Jesú í þína hönd síöasl þegar ég sofna fer sitji (>uös englar yfir mér.“ (llallgr. Pétursson) wá■— xVskriftar- síminn er 830 33 Utgerðarmenn — fiskverkendur Éigum nú fyrirliggjandi — Karfahreistrara (minni gerö) — Löndunarmál úr áli. — Haröfiskvals. — Fiskþvottavél. Viö minnum einnig á okkar framleiöslu á frystitækj- um, færiböndum og ýmsum sérútfærslum fyrir útgerö og fiskvinnslu. Ávallt viöbúnir. 'Dclémiðfan ‘Kteiiur /. Hfcl LIJHRAUNI 16 18 — PÓSTHÓLF 220 — 222 HAFNARFIRÐI - SÍMAR: 50139 - 50539 Kúplingar í f lesta bíla Höfum einnig kúplingsbarka, kúplingsiegur og kúplingskol. Viógeröarsett í kúplingsdælur og ust n.r hjörulióskrossar. The Gomplete Glutch. na Síöumúla 7-9, sími 82722. „Hví var þesHÍ beður búinn, barnið ka*ra þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.