Morgunblaðið - 10.03.1983, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1983
MARLIN-TÓG
LÍNUEFNI
BLÝ-TEINATÓG
FLOTTEINN
NÆLON-TÓG
LANDFESTAR
•
BAUJUSTENGUR
ÁL, PLAST, BAMBUS
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
LÍNUBELGIR
NETABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
MÖRE-
NETAHRINGIR
LÓÐADREKAR
NETADREKAR
NETAKEÐJA
NETALÁSAR
NETAKÓSSAR
BAUJUFLÖGG
NETAFLÖGG
PLASTKÖRFUR
VÍRKÖRFUR
FISKGOGGAR
FISKSTINGIR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
KÚLUHNÍFAR
SVEÐJUR
STÁLBRÝNI
HVERFISTEINAR
í KASSA OG LAUSIR
TROLLLASAR
DURCO PATENTLÁSAR
1/»“, V.“, %“
f!B5
VIR- OG
BOLTAKLIPPUR
GUMMISLONGUR
PLASTSLÖNGUR
GLÆRAR MEÐ
OG ÁN INNLEGGS
ABA
SLÖNGU-
KLEMMUR
VELATVISTUR
í 25 KG BÖLLUM
HVÍTUR OG MISL.
Þeir koma við sögu
Þeir eru fáir dagarnir sem eftir lifa af starfstíma 105. löggjafarþings íslendinga. Þar er nú unnið nótt sem nýtan dag
— og vafasamt, að hvfldarákvæði laga séu að fullu virt. Þessi mynd sýnir fjóra af þeim, sem koma við sögu þingmála
á líðandi stund: Vilmund Gylfason (BJ), Ólaf G. Einarsson (S), Albert Guðmundsson (S) og Ólaf Ragnar Grímsson
(Abl.).
Kjördæmamálið komið til efrí deildar:
Gengur of skammt en réttar-
bót, sem rangt er að stöðva
Fimm lagafrumvörp
samþykkt:
Sérstakur
skattur á
verslunar-
og skrifstofu-
húsnæði
samþykktur
FIMM lagafrumvörp voru samþykkt
sem lög frá Alþingi í gær, en þau eru:
Lög um sérstakan skatt á verslunar-
og skrifstofuhúsnæði, lög um breyt-
ingu á lögum um almannatryggingar,
lög um breytingu á lögum um tekju-
skatt og eignarskatt, lög um breytingu
á lögum um happdrætti Dvalarheimil-
is aldraðra sjómanna og lög um mál-
efni fatlaðra.
Frumvörpin um sérstakan skatt á
verslunar- og skrifstofuhúsnæði
voru samþykkt f neðri deild með 19
atkvæðum gegn 15, en þau kveða á
um sérstakar skattaálögur á slíkt
húsnæði. Þetta eru lög sem sett
hafa verið árlega undanfarin ár.
Hin frumvörpin fjögur voru sam-
þykkt í efri deild Alþingis með sam-
hljóða atkvæðum. Nefna má að
frumvarpið um breytingu á lögum
um happdrætti DAS felur í sér að
heimild DAS til reksturs happ-
drættis er framlengd til ársins
1994, en hún átti að falla úr gildi
samkvæmt síðustu lögum í árslok
1984.
sagði Pétur Sigurðsson
Frumvarp flokksformanna um kjördæmamál var afgreitt frá neðri til efrí
deildar í gær með 27:7 atkvæðum, 5 sátu hjá en 1 var fjarverandi. Breyt-
ingartillögur vóru felldar. Málið kom til fyrstu umræðu í efri deild síðdegis í
gær — og ráð var fyrir gert, að málið gengi þar til nefndar síðla dags eða
kvelds. Hugsanlegt er að málið komi til lokaafgreiðslu í dag eða á morgun.
Þjóðkjörinn
forsætisráðherra
Breytingarttillaga Vilmundar
Gylfasonar um þingkjörinn forsæt-
isráðherra fékk aðeins 1 atkvæði
flutningsmanns, 36 mótatkvæði, 2
sátu hjá, 1 var fjarverandi.
Jósep H. Þorgeirsson (S) gerði
grein fyrir afstöðu þingflokks
sjálfstæðismanna til breytingartil-
lagna Vilmundar Gylfasonar í
heild, þess efnis, að sumar þeirra
kæmu vel til athugunar við heildar-
athugun stjórnarskrárinnar, en
ótímabært væri að taka þær inn í
þann afmarkaða þátt hennar, sem
nú væri afgreiddur. Vilmundur
Gylfason (BJ) sagði hinsvegar, efn-
islega, að hér væri um að ræða lyk-
ilatriði í stefnumörkun Bandalags
jafnaðarmanna í stjórnarskrármál-
inu. Árni Gunnarsson (A) taldi
rangt að slíta kjördæmamálið úr
tengslum við aðra þætti stjórn-
arskrármála og kvaðst sitja hjá við
atkvæðagreiðsluna í heild.
Aðrar breytingar-
tillögur
Breytingartillaga Vilmundar
Gylfasonar, þess efnis, að löggjaf-
arvald og framkvæmdavald skuli
aðskilið, „alþingismenn setji lög og
hafi eftirlit með framkvæmd
þeirra, en er óheimilt að vinna um-
boðsstörf hjá framkvæmdavaldinu
og stofnunum þess“ var felld með 28
mótatkvæðum gegn 1 meðatkvæði,
9 sátu hjá, 2 vóru fjarverarndi. Jón
Leiðrétting
NAFNABRENGL varð i birtingu
dóms um kvikmyndina „Einfaldi
morðinginn" í Mbl. í gær. Höfundur
hans var Sæbjörn Valdimarsson.
Mbl. biðst velvirðingar á þessu.
væinmadælur | Leiðrétting
Ananaustum
Sími 28855
Opiö laugardaga 9—12
I----------------
I FRÁSÖGN Morgunblaðsins af
leigu fræðsluefnis á myndböndum í
Bókaverslun Snæbjarnar í Hafnar-
stræti 4, var rangt farið með föður-
nafn framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins. Hann heitir Benedikt Krist-
jánsson. Velvirðingar er beðist á
þessum mistökum.
Baldvin Hannibalsson (A) sagði
formgalla á tillögunni. Árni Gunn-
arsson (A) kvað tillöguna hættu-
lega, hún kallaði á hinn „sterka
mann“ og líkti henni við kerfi sem
gengi í þeim iöndum sem forsætis-
ráðherrar styddust við hervald.
Breytingartillaga hans þess efnis
að kjósandi hafi rétt til þess að
„merkja við listabókstaf eða ein-
stakling eða einstaklinga á listum
allt upp í tölu kjörinna alþing-
ismanna í viðkomandi kjördæmi"
var felld með 27 mótatkvæðum
gegn 2 meðatkvæðum, 9 sátu hjá en
2 vóru fjarverandi.
Breytingartillaga sama þing-
manns þess efnis að „forsætisráð-
herra geti efnt til þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvaða mál sem vera
skal“ féll með 30 mótatkvæðum
gegn 1 meðatkvæði, 8 sátu hjá en 1
var fjarverandi.
Breytingartillaga Vilmundar
þess efnis að fastanefndir þings
geti „heimtað hvers konar skýrslur,
bæði af embættismönnum og ein-
stökum mönnum" og að „fundir
nefnda Alþingis skuli haldnir í
heyranda hljóði" var felld með 29
mótatkvæðum gegn 1 meðatkvæði,
8 sátu hjá, 2 vóru fjarverandi.
Þá vóru felldar með 29 til 30
mótatkvæðum tillögur sama þing-
manns þess efnis, „að ráðherrar
megi ekki vera alþingismenn"
(varamenn tilkallaðir ef þingmaður
verður ráðherra), og um niðurfell-
ingu 24. greinar (þingrof) og 28. gr.
(bráðabirgðalög). Þingrofstillagan
fékk 3 stuðningsatkvæði.
Breytingartillaga Stefáns Val-
geirssonar (F) og Ólafs Þ. Þórðar-
sonar (F), þess efnis, að „við
ákvörðun skatta á tekjur og eignir
skuli gætt jafnræðis þegnanna,
þannig að til lækkunar komi sér-
stakur kostnaður vegna búsetu, eft-
ir þvi sem nánar verður ákveðið í
lögum", var felld með 21 mótat-
kvæði gegn 10 meðatkvæðum, 7
sátu hjá, 2 vóru fjarverandi.
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins,
sagði m.a., er hann gerði grein fyrir
atkvæðum sínum um tillögur Vil-
mundar, að ýmsar tillögur hans,
sem hér væri um fjallað, væru að
meginefni áður fluttar af fulltrúum
Alþýðuflokks i stjórnarskrárnefnd,
og eðlilegt að þær hlytu umfjöllun
samhliða öðrum slíkum, er heildar-
endurskoðun stjórnarskrárinnar
kæmi til umfjöllunar og afgreiðslu.
Greinargerðir við loka-
atkvæðagreiðslu
Pétur Sigurðsson (S) sagði
stjórnskipunarfrumvarpið, sem
fjallaði að meginefni um kjör-
dæmamál, vera samkomulagsmál.
Sitt mat væri að ekki hefði nægi-
lega þokast í átt til jafns vægis at-
kvæða, án tillits til búsetu, sem
væri sanngirnismál þess fólks, sem
kosið hefði hann á Alþingi. Hitt
væri rétt, að hér væri breyting til
bóta, sem varhugavert væri að
koma í veg fyrir. Þar af leiddi að
hann segði já.
Stefán Valgeirsson (F) og ólafur
Þ. Þórðarson (F) töldu frumvarpið
ganga á hlut strjálbýlis og að felldri
breytingartillögu þeirra greiddu
þeir atkvæði gegn frumvarpinu í
heild, sem höndum hefði verið kast-
að til.
Vilmundur Gylfason (BJ) sagði
lítið hafa komið út úr 5 ára starfi
stjórnarskrárnefndar, þegar út-
koman væri ekki önnur en fjölgun
þingmanna um þrjá.
Sighvatur Björgvinsson (A)
kvaðst vilja bera hönd fyrir höfuð
formanns Framsóknarflokksins,
sem væri einn af flutningsmönnum
frumvarpsins. Rangt væri að þar
hefði verið kastað til höndum, held-
ur hefði verið vandað til mála-
tilbúnaðar, sem samstaða um frum-
varpið bæri vitni um.
Þingrof og þinglausnir
þurfa ekki að fara
saman
Frumvarpið kom síðan til fyrstu
umræðu í efri deild síðdegis í gær.
Kjartan Jóhannsson (A) gerði grein
fyrir efnisatriðum þess og benti á
að þingrof og þinglausnir þyrftu
ekki endilega að fara saman. Þar
um væri dæmi frá 1923. Kunngera
mætti þingrof og halda áfram þing-
störfum til að ljúka brýnustu verk-
efnum. Egill Jónsson (S) gagnrýndi
ýmislegt í aðdraganda og efnis-
atriðum frumvarpsins. Gert var ráð
fyrir að fyrstu umræðu myndi ljúka
síðkvelds í gær og málið þá ganga
til þingnefndar. Þar sem nefndir
beggja deilda unnu saman að at-
hugun málsins má gera ráð fyrir að
nefndarálit kunni að liggja fyrir í
efri deild í dag.
____I nunoiir.
Þingsálykt-
unartillaga
um landvörn
við Markar-
fljót
LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi
þingsályktunartillaga um landvörn við
Markarfljót og er Þórarinn Sigurjóns-
son fyrsti flutningsmaður tillögunnar,
en meðflutningsmenn eru þeir Stein-
þór Gestsson, Jón Helgason, Eggert
Haukdal, Garðar Sigurðsson, Magnús
H. Magnússon og Guðmundur Karls-
son.
Efni tillögunnar er það að fram
skuli fara ítarleg rannsókn á því,
með hvaða hætti sé hagkvæmast að
koma í veg fyrir áframhaldandi
landbrot Markarfljóts sunnan varn-
argarða beggja vegna fljótsins, en þó
sérstaklega á vesturbakka þess, frá
Dalseli til sjávar. Þar eru í stór-
hættu, að því er í tillögunni segir,
vatns- og rafmagnsveitur Vest-
manneyinga, auk annarra veitu-
mannvirkja.
í greinargerð með tillögunni kem-
ur m.a. fram, að tilgangur tillögunn-
ar sé sá að vekja athygli á máli sem
ekki þoli langa bið, þar sem veruleg
hætta sé á að fljótið valdi enn meiri
skemmdum en orðið er, verði ekki
brugðið skjótt við. Segir einnig að
allt frá því brú yfir Markarfljót og
varnargarðar hafi verið gerðir, hafi
fljótið brotið land beggja vegna ár-
innar neðan brúar, einkum þó á vest-
urbakkanum. Flutningsmenn segja
mjög erfitt að áætla með nákvæmni
hve mikið af grónu landi hafi horfið
vegna vatnságangs, en lauslegir út-
reikningar sýni að það land sé á bil-
inu 300-400 hektarar að stærð.
Kötlufellsmálið
— leiðrétting
SLÆM misritun varð í frásögn af
málflutningi í Kötlufellsmálinu í
Hæstarétti í blaðinu í gær. Sagt var
á einum stað, að sértrúarsöfnuður
sá, er Björg Benjamínsdóttir og Sig-
fús Steingrímsson voru í, hafi ekki
viðurkennt hjónabönd, en á að sjálf-
sögðu að vera hjónaskilnaði, þ.e.
söfnuðurinn viðurkennir ekki hjóna-
skilnaði. Beðið er velvirðingar á
þessum mistökum.