Morgunblaðið - 30.04.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1983
15
Elín Osk Oskarsdóttir
er 21 árs og fædd og uppalin í
Rangárvallasýslu. Hún hóf nám
við söngskóla Reykjavíkur vetur-
inn 1979—1980 og hefur Þuríður
Pálsdóttir verið söngkennari
hennar frá byrjun. Elín söng á
óperutónleikum Söngskólans í
Reykjavík í tilefni af 10 ára af-
mæli skólans í janúar síðastliðn-
um. Hún lýkur 8. stigi í vor og
hyggst fara í framhaldsnám. Elín
hefur komið fram sem einsöngvari
við ýmis tækifæri.
|
Sigrún Valgerður Gestsdóttir
er Hvergerðingur og hlaut þar
sína fyrstu tónlistarmenntun. Ár-
ið 1971 lauk hún tónmenntakenn-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Næstu 4 árin stundaði
Sigrún söngnám í Englandi og
Bandaríkjunum. Síðan hún kom
heim frá námi, hefur hún kennt
við Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar, jafnframt komið fram
sem einsöngvari, aðallega í Ijóða-
söng og óratoríu.
Júlíus Vífill Ingvarsson
er Reykvíkingur. Hann nam söng
við Tónlistarskólann og Söngskól-
ann í Reykjavík. Voru kennarar
hans Sigurður Björnsson og
Magnús Jónsson. Um skeið nam
Júlíus Vífill við Tónlistarháskól-
ann í Vínarborg. Síðan lá leið hans
til Ítalíu þar sem hann nam söng
við Tónlistarháskólann í Bologna.
Kennarar hans á Ítalíu voru þeir
Arrigo Pola og Mario Del Monaco.
Júlíus Vífill vann önnur verðlaun í
alþjóðlegri söngkeppni, sem hald-
in var í Bologna 1980, og kennd er
við tenórinn Aureliano Pertile.
Hann kom heim til íslands
snemma á síðasta ári. Hér heima
hefur hann sungið hlutverk Frans
von Schober baróns í uppfærslu
Þjóðleikhússins á Meyjarskemm-
unni. Hann söng hlutverk Man-
ostatosar í uppfærslu íslensku
Óperunnar á Töfraflautunni, og
hlutverk Nauku-Pús í uppfærslu
íslensku óperunnar á Míkadó. Þá
hefur hann einnig sungið í útvarpi
og sjónvarpi.
Sigríður l'. Gröndal
er fædd í Reykjavík. Hún hóf
söngnám í Tónlistarskóla Kópa-
vogs árið 1972 og naut þar leið-
sagnar Elísabetar Erlingsdóttur
um tveggja ára skeið. Þá gerði
hún hlé á námi, en hóf nám að
nýju haustið 1979 hjá Sieglinde
Kahmann í Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Hún mun Ijúka þaðan
prófi í vor. Sigríður hefur í vetur
sungið hlutverk Erste Knabe í
Töfraflautunni eftir W.A. Mozart
og einnig komið fram með kór
Menntaskólans í Kópavogi.
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir
er Keflvíkingur og stundar nú
nám við kennaradeild Söngskól-
ans í Reykjavík. Fyrsti söngkenn-
ari hennar var Guðrún Á. Símon-
ar en undanfarin ár hefur söng-
kennari hennar verið Þuríður
Pálsdóttir. Kristín hefur sótt
námskeið hjá prófessor Helene
Karusso í tvö sumur, 1981 og 1982.
Hún hefur sungið í Þjóðleikhús-
kórnum frá 1977 og í kór Söng-
skólans í Reykjavík frá 1974. Vor-
ið 1982 söng hún hlutverk Hildu í
Meyjarskemmunni eftir Schubert
og haustið 1982 söng hún hlutverk
eins andans í Töfraflautunni eftir
Mozart í uppsetningu íslensku
Óperunnar.
Má bjóða þér
að reynsluaka
Lúxusbílá ,rábæru verði?
Við kynnum
ídag
13.00—17.00
CAMRY
FRAMHJÓLADRIFINN
Venjulegur útbúnaður
í bílnum er:
• Framdrif
• Vökvastýri
• Steríó útvarp
• Steríó kasettutæki
• Tveir fjarstýrðir
hliðarspeglar
• Lituð gler
• Bílstjórasæti með sjö
mismunandi stillingum
• o.fl.o.fl.
Sjón er sögu ríkari
Reynsluakstur er
enn betri.
TOYOTA
Komið og lítið á nýja og notaða
TOYOTA bíla
UMBOÐIÐ
NYBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI 44144
P. SAMUELSSON & CO. HF.