Morgunblaðið - 04.05.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ1983
3
Peugeot-bifreiðin við barnaleikvöllinn í gær.
Stjórnlaus bifreið
hafnaði við leikvöll
MANNLAUS bifreið, sem lagt hafði verið við Nýbýlaveg, rann í hádeg-
inu í gær stjórnlaust niður grasbala og fór fram af tæplega tveggja
metra háum kanti og hafnaði við róluvöil barna. Mikil mildi er að börn
voru ekki að leik þarna eins og sakir stóðu, en nokkrir drengir voru í
fótbolta skammt frá. Ökumaður hafði gleymt að setja bifreið sína í gír
og handbremsu með fyrrgreindum afleiðingum.
„Ég var í fótbolta ásamt félögum
mínum þegar mér varð litið upp
á Nýbýlaveg og sá þá hvar bíll-
inn rann aftur á bak. Fyrst hélt
ég að einhver væri í bílnum en
svo var ekki og bíllinn rann
stjórnlaust niður brekkuna, lenti
á grindverkinu og mölbraut það
og fór síðan fram af kantinum,"
sagði Einar Eiríksson, 10 ára
gamall, í samtali við Mbl.
„Við strákarnir vorum í um 20
metra fjarlægð og sem betur fer
var enginn krakki nálægur þar
sem bíllinn lenti. Siðar komu
þeir með kranabíl og drógu bíl-
inn upp,“ sagði Einar ennfrem-
ur.
Ljósm.: Ólafur K. Magnússon.
Sovéski sjómaðurinn gengur frá þyrlunni til Borgarspítalans í fylgd sjúkra-
flutningamanna og bandarískra þyrluflugmanna. Eins og sjá má er Sovét-
maðurinn bólginn á kinn eftir höfuðhögg er hann hafði hlotið.
Varnarliðsþyrla sótti
slasaðan sovéskan sjómann
Þyrla frá bandaríska varnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli sótti í gær slas-
aðan skipverja um borð f sovéska
verksmiðjutogarann Viborgskaya
Storona. Skipverjinn hafði hlotið
höfuðhögg og ígerð hlaupið í meiðsl-
in, og var ákveðið að flytja hann á
sjúkrahús í Reykjavík, eftir að sov-
éskur læknir á miðunum og banda-
rískur sjúkrahúslæknir í Keflavík
höfðu borið saman bækur sínar, að
því er Hannes Þ. Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnarfélags ís-
Ásmundarsalur:
Forstöðumað-
ur ráðinn
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
ráða Gunnar Kvaran listfræðing í
stöðu forstöðumanns Ásmundarsals.
Samþykkt þessi var gerð á fundi
borgarráðs í gær. Gunnar Kvaran
er listfræðingur að mennt, en hef-
ur auk þess skrifað ritgerð um
Ásmund Sveinsson. Sextán manns
sóttu um stöðu þessa.
lands, tjáði blaðamanni Morgun-
blaðsins í gær.
Sovéski togarinn var að veiðum
um 200 mílur suðvestur af Reykja-
nesi ásamt fleiri sovéskum skip-
um, en Viborgskaya er milli 2.500
og 3.000 tonn að stærð.
Varnarliðsþyrlan fór af stað um
klukkan 7 í gærmorgun, en kall
um aðstoð hafði borist um klukk-
an 5 um morguninn. Flugið gekk
vel, en þegar þyrlan var að byrja
aðflug að togaranum kom i ljós að
annar hreyfill hennar virkaði ekki
rétt. Var þá ákveðið að snúa við,
og kom önnur þyrla til móts við
biluðu þyrluna. Sú fylgdi henni til
Keflavíkur, en fór síðan aftur að
togaranum í fylgd Hercules-flug-
vélar, sem flutti eldsneyti.
Gekk síðari flugferðin vel, og
var komið með hinn slasaða skip-
verja til Reykjavíkur um klukkan
14 í gær. Varnarliðið hefur að
undanförnu farið allmargar ferðir
til aðstoðar sovéskum sjómönnum,
eftir slys á miðunum. Tugir sov-
éskra skipa eru að karfaveiðum
rétt við íslensku fiskveiði-
lögsöguna, og um borð eru hundr-
uð ef ekki þúsundir sovéskra sjó-
manna.
Þrennir tónleikar hjá
Mezzoforte í Hollandi
Nú er Ijóst, að hljómsveitin Mezzo-
forte heldur til Hollands til tónleika-
halds f lok þessa mánaðar, áður en
hljómsveitin leggur upp i 7 vikna tón-
leikaferðalag sitt um Bretlandseyjar í
byrjun júní.
Áð sögn Steinars Berg ísleifsson-
ar, forstjóra Steina hf., heldur
Mezzoforte þrenna tónleika í Hol-
landi nú í mánaðarlok og verða þeir
fyrstu 25. maí. Mbl. tókst ekki að
afla nánari upplýsinga í gær um
hvar tónleikarnir verða haldnir.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær, komst hljómsveitin
með báðar plötur sínar inn á „topp-
tíu“-vinsældalistana er þeir voru
kunngjörðir á sunnudagskvöld.
Vinsældir hljómsveitarinnar hafa
aukist jafnt og þétt á undanförnum
vikum í Hollandi og stutt er síðan
tveir meðlimir hennar héldu til Hol-
lands til að sitja fyrir svörum fjöl-
miðla.
I I I I I I I I I I I
Við bjóðum góða gesti frá Akureyri
velkomna á rokkhátíð í
BccAimy
^KK-HATIÐIN
Ingimar Eydal, Finnur Eydal og Helena Eyj-
ólfsdóttir koma nú til borgarinnar og
skemmta Reykvikingum á rokkhátíð af sinni
alkunnu og landsþekktu smekkvísi.
12. Rokkhátíðin fer nú fram laugardagskvöldiö 7. maí nk.
kl. 18 og TAKIO EFTIR AUKASÝNING fer fram fyrir þá
fjölmörgu sem ekki sjá sér fært að mæta á föstudögum og
laugardögum, sunnudagskvöldiö 8. maí kl. 19. Ótrúlegt —
en satt á öllum Rokkkvöldunum hefur vægast sagt verið
æðisgengin stemmning enda hér á feröinni eitt hressasta
stuðlið allra tíma i rokkinu hérna megin Alpafjalla. Rúm-
lega 2ja tíma stanslaust stuö og nú meö Akureyringunum
eldhressu Ingimar, Finni og Helenu ásamt eftirtöldum
stuöurum:
Harald Q. Haralds, Guöbergi Auö-
unssyni, Þorsteini Eggertssyni, Astrid
Jenssen, Berta Möller, Önnu Vil-
hjálms, Mjöll Hólm, Sigurdór Sigur-
dórssyni, Garöari Guömundssyni.
Stefáni Jónssyni, Einari Júliussyni,
Siguröi Johnny og Ómari Ragnars-
syni. Hver man ekki eftir þessum
kempum?
Hljómsveit Björgvins Halldórssonar
leikur rokktónlist. Hljómsveitina
skipa: Björn Thoroddsen, Hjörtur
Howser, Rafn Jónsson, Pótur Hjalte-
sted, Haraldur Þorsteinsson, Rúnar
Georgsson og Þorleifur Gíslason.
S/EMI OG DIDDA ROKKA.
SYRPUSTJÓRARNIR ÞORGEIR
ÁSTVALDSSON OG PÁLL ÞOR-
STEINSSON KYNNA.
Auk þess aö leika
gömlu góðu rokklögin
þá stjórnar Gísli
Sveinn Loftsson frá-
bærum Ijósabúnaði
Broadway og Gunnar
Smári Helgason leikur
á hvern sinn fingur við
hljóðstjórnina.
Ath.: Akureyringarnir
koma aðeins fram á
þessum tveimur
skemmtunum.
WAT