Morgunblaðið - 04.05.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
21
Myndir MBl. KÖE
gekk berserks-
?kólavörðustíg
inum úr fjarlægö er hann vafraði upp
Skólavörðustíg.
Hann gerði atlögu að rúðu í veit-
ingahúsinu Rán, en tókst ekki að
brjóta hana. Hann tók þá upp mikið
grjót og kastaði í stóra rúðu sem möl-
brotnaði. Enginn freistaði þess að
stöðva manninn er'"hann hélt áfram
göngu sinni upp Skólavörðustíginn.
Fólk lét sér nægja að fylgjast með
honum úr fjarlægð. Maðurinn reyndi
að brjóta rúðu í verzluninni Bikarn-
um, en tókst ekki. Hann löðrungaði
starfsstúlku á Rán er hún reyndi að
koma vitinu fyrir hann. Skömmu síð-
ar var maðurinn yfirbugaður, lögregl-
an kom á vettvang og færði manninn
í fangageymslu.
; lögreglan komin á
Starfsstúlkur á Rán í senn undrandi og reiðar yfir aðförum
mannsins.
ið í Setbergslandi
52. Sigurður Tryggvi Sigurðsson,
Suðurgötu 8.
53. Sissel Einarsson og
Guðbjartur Einarsson,
Hjallabraut 35.
54. Stefán Sveinsson,
Norðurvangi 3.
55. Sumarliði Guðbjörnsson,
Sléttahrauni 21.
56. Sverrir Bjarnason,
Hjallabraut 3.
57. Trausti Sveinbjörnsson,
Fögrukinn 23.
58. Vigdís Magnúsdóttir,
Álfaskeiði 92.
59. Þórhildur Brynjólfsdóttir,
Breiðvangi 14.
60. Ægir Ellertsson,
Breiðvangi 7.
61. Örn Sveinbjörnsson,
Móabarði 4.
62. Erlendur Erlendsson,
Sólbergi, lóð nr. 50
við Fagraberg.
Varamenn, sem ganga fyrir úthlutun
í þessari röð:
1. Helgi Guðmundsson,
Tjarnarbraut 11.
2. Hans Þorvaldsson,
Ásgarði 39, Reykjavík.
3. Bjarni Sigurðsson,
Suðurbraut 14.
4. Herdís M. Guðmundsdóttir og
Árni Brynjólfsson,
Öldugötu 25.
5. Halldór Magnússon,
Suðurvangi 8.
6. Jóhann Baldursson,
Herjólfsgötu 22.
Eftirtaldir hlutu lóð fyrir raðhús í 1.
áfanga í Setbergi:
Guðjón Grétarsson,
Álfaskeiði 100.
Guðný Hálfdánardóttir,
Suðurvangi 6.
Ingibjörg G. Brynjólfsdóttir,
Engjavegi 9, Isafirði.
Ingibjörg P. Harðardóttir,
Reykjavíkurvegi 50.
Jón P. Kristjánsson,
Suðurvangi 2.
Pétur Svavarsson,
Laufvangi 1.
Eftirtaldir hlutu lóð fyrir parhús í
Setbergi:
Anna Þórný Annesdóttir,
Engihjalla 9, Kópavogi og
Annes Svavar Þorláksson,
Ölduslóð 5, (2 íbúðir).
Árni Baldursson,
Smyrlahrauni 14.
Júlís Karlsson og
Þóra Vilbergsdóttir,
Laufvangi 6.
Sigurður Jónsson,
Birkigrund 33, Kópavogi.
Stefán Árnason,
Víðivangi 20.
Úlfar Guðjónsson,
Suðurbraut 14.
Ályktun aðalfundar Vinnuveitendasambands íslands:
Rekstrarstöðvun blasir
við fjölmörgum fyrirtækj
um verði ekkert að gert
FRÁ ÞVÍ að almennir kjarasamningar voru gerðir á síðastliðnu sumri hafa
orðið umskipti til hins verra í íslensku efnahagslífí. Þau teikn, er um mitt ár
1982 bentu til minnkandi þjóðarframleiðslu og þjóðartekna, reyndust eiga
við rök að styðjast. Og enn eru horfur á samdrætti þjóðarframleiðslu á þessu
ári, m.a. vegna lögboðinnar lengingar orlofs segir m.a. í ályktun aðalfundar
Vinnuveitendasambands íslands. Þar segir ennfremur:
Aðalfundur Vinnuveitendasam-
bandsins harmar, að verkalýðs-
hreyfingin skyldi við gerð síðustu
kjarasamninga hafna því, að aðil-
ar vinnumarkaðarins tækju sjálfir
í samningum sínum á þeim vanda
sem leitt hefur af minnkun þjóð-
artekna og fyrirsjáanlegur var.
Vandi þjóðarbús og fyrirtækja
hefði orðið stórum minni, ef sam-
ist hefði um verðbótakerfi, sem
endurspeglar breytingar á þjóðar-
tekjum.
Samdráttur þjóðartekna og
sjálfvirkt víxlgengi verðlags og
launa hefur leitt af sér meiri verð-
bólgu en dæmi eru um. Verðlags-
þróun er nú komin á það stig, að
við blasir rekstrarstöðvun fjöl-
margra fyrirtækja ef ekki verður
að gert. Jafnframt hefur kaup-
máttur ráðstöfunartekna farið
minnkandi . Atvinnuöryggi og af-
komu launþega er stefnt í voða.
Lækkun verðbólgu er því raun-
veruleg kjarabót launþegum til
handa og ein til þess fallin að
treysta atvinnuöryggi lands-
manna.
Við þessar aðstæður er ljóst að
atvinnulífið getur ekki tekið á sig
frekari útgjöld við gerð kjara-
samninga næsta haust. Hækkun
launa væri ávisun án innistæðu,
sem eingöngu leiddi til enn auk-
innar óðaverðbólgu og fækkunar
atvinnutækifæra. Þá þróun verður
að stöðva.
Þessar staðreyndir valda því, að
kaupgetu almennings verður að-
eins haldið uppi með samdrætti
ríkisútgjalda, þannig að einstakl-
ingar fái aukin ráð á aflafé sínu.
Lækkun skatta er þvi einasta færa
leiðin til að hamla gegn rýrnandi
kaupmætti. Allt annað, og þó sér-
staklega áframhaldandi söfnun
erlendra eyðsluskulda, gerir efna-
hagsvandann torleystari og eykur
hættu á varanlegum samdrætti í
atvinnulífinu.
Aðalfundur Vinnuveitendasam-
bandsins leggur á það ríka
áherslu, að stjórnvöld tryggi með
almennum aðgerðum rekstrarskil-
yrði atvinnuveganna og láti af sí-
vaxandi beinum afskiptum af at-
vinnu- og kjaramálum. Mikilvæg-
ast er, að gengi íslensku krónunn-
ar endurspegli á hverjum tíma
raunverulega stöðu þjóðarbúsins
gagnvart viðskiptalöndum okkar
og að horfið verði frá forsjár- og
styrkjakerfi því, er stjórnarstefna
liðinna ára hefur leitt af sér. Auka
verður svigrúm atvinnufyrirtækj-
anna til endurnýjunar og upp-
byggingar og það í krafti hagnað-
ar af vel reknum fyrirtækjum.
Taprekstur og hallærislán leggja
ekki grundvöll að efnalegri upp-
byggingu og nýsköpun atvinnulífs,
en varða veg samdráttar og at-
vinnuleysis.
Verði atvinnulífinu búin eðlileg
rekstrarskilyrði og fyrirtækjunum
gert kleift að standa sjálf að upp-
byggingu á eigin ábyrgð, mun þess
skammt að bíða, að úr rætist í ís-
lensku efnahags- og atvinnulífi.
Vinnuveitendasambandið lýsir
sig nú sem fyrr reiðubúið til sam-
starfs við stjórnvöld og samtök
launþega um lausn þess vanda,
sem við er að etja á sviðum efna-
hags- og atvinnumála. Ennfremur
samþykkir fundurinn, að fela
framkvæmdastjórn að standa
fyrir kjaramálaráðstefnu síðla
sumars, er marki nánar afstöðu
sambandsins til endurnýjunar
kjarasamninga á hausti komanda,
verði þeim sagt upp.
Páll Sigurjóns-
son endurkjörinn
formaður VSÍ
PÁLL Sigurjónsson var endurkjör-
inn formadur Vinnuveitendasam-
bands fslands á adalfundi sam-
bandsins, sem haldinn var í gær-
dag á Hótel Loftleiðum.
Aðrir í framkvæmdastjórn
VSÍ voru kjörnir þeir Ágúst
Hafberg, Árni Brynjólfsson,
Davíð Sch. Thorsteinsson, Gísli
Ólafsson, Guðlaugur Björgvins-
son, Gunnar Ragnars, Gunnar
Snorrason, Haraldur Sveinsson,
Hjalti Einarsson, Hörður Sigur-
gestsson, Jón Páll Halldórsson,
Jón Ingvarsson, Kristján Ragn-
arsson, Sigurður Helgason, Víg-
lundur Þorsteinsson.
Páll Sigurjónsson, formaöur VSÍ.
Ljósmynd Mbl. Emilía.
„Verðbætur tryggja fyrst
og fremst verðbólguna"
— sagði Páll Sigurjónsson, formaður VSÍ, á aðalfundi sambandsins
„ÞRÓUN verðbólgu og launa und-
anfarna mánuði sýnir glöggt, aö
verðbæturnar tryggja fyrst og fremst
verðbólguna, en ekki kaupmáttinn,"
sagði Páll Sigurjónsson, formaður
Vinnuveitendasambands íslands,
m.a. í ræðu sinni á aðalfundi sam-
bandsins, sem haldinn var í gærdag.
„Laun hækkuðu um 15% hinn 1.
marz síðastliðinn, en þjóðartekjur
hækkuðu ekki að sama skapi. Ekki
var heldur dregið úr skattheimtu.
Stjórnvöld voru ekki heldur reiðu-
búin til að fjármagna kauphækk-
unina með hallærislánum erlend-
is. Kaupmáttur launa hækkaði því
ekki 1. marz, þvert á móti. Á tíma-
bilinu marz til maí í ár verður
kaupmátturinn 4% lægri en mán-
uðina þrjá fyrir 1. rnarz," sagði
Páll ennfremur.
„Horfur eru á að verðbæturnar
valdi um 20% krónukaupshækkun
hinn 1. júní. Ljóst er að þjóðar-
tekjurnar munu ekki hækka að
sama skapi 1. júní frekar en 1.
marz. Skuldasöfnun erlendis verð-
ur ekki aukin, enda orðin svo mik-
il, að háskalegt væri að halda
lengra áfram á þeirri viðsjárverðu
braut. Öllum má vera ljóst, að
verði þessi kauphækkun 1. júní
mun hún fara beint út í verðlagið
og líkur eru til að kaupmáttur í
júní til ágúst í ár verði allt að
2,5% lægri en þrjá mánuðina á
undan. Vísitölukerfið er svika-
mylla, það tryggir ekki kaupmátt,
það skerðir kaupmátt," sagði Páll.
Páll sagði að komandi ríkis-
stjórn væri ekki öfundsverð af því
verkefni, sem henni bæri að leysa.
„En þeir geta ekki leyst það einir,
til þess verða þeir að fá aðstoð,
m.a. frá aðilum vinnumarkaðar-
ins, sem bera mikla ábyrgð, og frá
landsmönnum öllum. Við erum öll
í sama bát og ef hann sekkur eru
ekki margir björgunarbátar um
borð ef nokkrir. Ég er viss um að
ég tala fyrir munn okkar allra
þegar ég segi, að Vinnuveitenda-
sambandið mun af öllum mætti
styðja hverja raunhæfa tilraun
stjórnvalda til að takast á við
vandamálin," sagði Páll Sigur-
jónsson að síðustu.