Morgunblaðið - 12.06.1983, Page 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983
HEIMSENDI SPAÐ 1995
Spádómar Nostradamusar
frá 16. öld enn til umræðu
Spádómar Nostradamusar frá
Endurreisnartímabilinu eru nú
lesnir vítt og breitt um Evrópu
með allt að því ógnvekjandi
áhuga. Orð spámannsins um
dómsdag árið 1999 (sem síðan
var leiðrétt og breytt í 1995 af
erkibiskupi nokkrum sem hafði
meiri biblíuþekkingu en Nostra-
damus) eru rædd alvariega sem
hugsanlegur möguleiki. Þeir sem
trúa segja ekki ástæðu til annars
en taka mark á þessum spádóm-
um, þar sem Nostradamus hafi
ávallt reynst sannspár.
Sovéska dagblaðið Isvestija
hefur ljáð hugmyndum hans
nokkra dálka. f Þýskalandi er rit
hans rifið út í bókaverslunum og
í Frakklandi hefur það selst í
600.000 eintökum. í Noregi hefur
einnig verið mikil sala á papp-
írskilju með spádómum hans.
Nostradamus gaf út bók sína
„Prophéties" í Lyon árið 1555,
eftir að hann gerði sér fyllilega
grein fyrir spádómsgáfu sinni
árið 1547. Samkvæmt hefð rað-
aði hann spádómum sínum upp í
942 fjögurra lína vers sem ríma.
Þessum spádómum er síðan
skipt niður á tíu aldir. Nostra-
damus notaði nokkurs konar
Ieyniskrift eða óskýrt mál þann-
ig að lesendur yrðu ekki frávita
af hræðslu við að lesa boðskap-
inn.
Það eru nefnilega ekki neinir
smámunir sem Nostradamus er
að fást við í spádómum sínum:
Dauði Hinriks II, valdataka
Napóleons, stórbruninn í Lund-
únum árið 1666, valdataka Hitl-
ers og nasista, tengsl munksins
Raspútíns við fjölskyldu Rússa-
keisara og rússneska byltingin.
Nostradamus sá ekkj einungis
fyrir báðar heimsstyrjaldirnar
heldur einnig að kafbátum yrði
beitt síðar meir. Hann spáði
einnig tveimur kjarnorku-
sprengingum í tveimur „bæjum“
(Nagasaki og Hiroshima).
Franska byltingin fékk eðli-
lega mikið rúm í spádómum
Nostradamusar, en svo var einn-
ig um stofnun Bandaríkjanna,
afsögn hertogans af Windsor og
gifting þeirra Wallis Simpson,
gervihnettina, tunglferðir
Bandaríkjamanna — og sitt eig-
ið andlát.
Trond Berg Eriksen, dr. phil-
os. og lektor í hugmyndasögu við
háskólann í Osló, var nýlega
spurður hvort engin von væri til
þess að hægt verði að komast hjá
heimsendi árið 1995? Kannski
Nostradamus hafi verið svika-
hrappur og skrumari þegar allt
kemur til alls?
— Læknirinn og stjörnuspek-
ingurinn Michel de Notredame
var án efa ekki svikari sem sat
um heldrafólk og konunga. Hann
var mun iðnari en flestir þeirra
sem höfðu sömu viðfangsefni á
þessum tíma. Hann las meðal
annars til læknis við einn virt-
asta háskólann f Montpellier.
Nostradamus var upphaflega
einn fjölmargra skottulækna,
spámanna, stjörnuspámanna og
höfunda almanaka en hann var
ávallt talinn þeirra alþýðlegast-
ur. En áður fyrr, eins og nú, var
það bann sem fékk fólk til að
kaupa bækur hans: 1780 voru
spádómar Nostradamusar settir
á lista páfa yfir bannaðar bæk-
ur.
Berg Eriksen leggur áherslu á
að Nostradamus hafi verið hluti
af sinni samtíð: Læknismennt
hans gerði hann sjálfkrafa að
stjörnuspekingi — enginn lækn-
ir gat skrifað upp á lyfseðil án
þess að kunna skil á réttu stund-
inni! Stjörnuspekingarnir voru
ákaflega mikilvægir hvað varðar
stjórnmál, þeir höfðu trúnað
fólksins meðan höfðingjarnir
styrktu stöðu sína með hagstæð-
um stjörnuspám. Þeir réðu til
sín stjörnuspekinga með já-
kvæðu hugarfari — og hugsanl-
egir keppinautar réðu til sín
stjörnuspekinga sem sáu við
spekingum höfðingjanna.
— Spámennirnir mótuðu spár
sínar eftir persónum valda-
mannanna. Allar áttu spárnar
að færa gull í mund og vera
þannig gerðar að stórmennin
gætu byggt sína framtíð á þeim.
Nostradamus spáir þvf til að
mynda, að þúsundáraríkið verði
stofnað af höfðingja, að öllum
líkindum af frönskum ættum. (í
frásögn hans stendur einnig að I
Frakklandi verði árið 1999
vinstristjórn, sem geri kaþólska
menn brottræka úr landinu.
Sagt er að sala bókarinnar í
Frakklandi hafi aukist til muna
eftir að Mitterrand kom til valda
...) En spádómarnir voru not-
aðir mörgum sinnum, af mörg-
um valdhöfum á mismunandi
tímum.
— En margt hefur nú þegar
ræst af spádómum Nostradam-
usar?
— Leyndarmálið á bak við
velgengnina var að skrifa tví-
Spámaðurinn Nostradamus, eða Michel de Notredame lést
áríð 1566.
rætt og óskýrt, þannig að auð-
velt er að láta spádóma hans
falla að hinum ýmsu atburðum
og tímum. En hann gerði þetta
ekki f neinum sviksamlegum tii-
gangi, hann trúði á hæfileika sí-
na og var virtur maður, jafnt við
hirðina sem af fólki sem leitaði
til hans sem læknis.
— Voru það einungis látalæti
þegar hann sat á litlum palli á
þaki húss sfns og féll í dásvefn
við bjarmann frá vaxkerti? Af
hverju einmitt þessi athöfn?
— Þetta var hans leið til að
falla f dásvefn. Allt bendir til
þess að Nostradamus hafi byggt
spádóma sína á fjórum grunn-
þáttum: Stjörnuspeki (með hlið-
sjón af læknismenntun sinni),
Kabbala (talna- og bókstafs-
leyndardómum gyðinga), Chili-
Nostradamus var ekki í vandræð-
um með að sjá fyrir ferðir til
tunglsins, valdatöku nasista undir
forystu Hitlers eða komu Napó-
leons til valda f Frakklandi, ef
marka má síðari tfma túlkanir á
spádómum hans ...
asma (draumnum um þúsund-
áraríkið) og á afhjúpununum f
Opinberunarbók Jóhannesar.
Berg Eriksen leggur áherslu á
að á tfmum Nostradamusar hafi
það einmitt verið hinir lærðustu
sem trúðu á stjörnuspáfræði,
það sem við kom alheimnum og
náttúrulögmálin. Stjörnuspek-
ingar, læknar og menntamenn
trúðu á mál stjarnanna — með-
an prestar og ólærðir menn voru
fullir efasemda.
— Sterk aðstaða stjörnuspe-
kinganna var einn hluti nýupp-
götvaðs arfs Endurreisnartím-
ans frá fornöld — ekki einungis
hvað viðkom verðgildi heldur
einnig dularfullum spádómum af
öllu tagi. Stríð, sjúkdómar,
merki frá sól og tungli, klofning-
ur kirkjunnar, eyðilegging Róm-
ar 1527 — allt voru þetta merki
þess að sfðustu dagarnir væru i
nánd. Með öðrum orðum: Á þess-
um ótryggu tímum gat fólk
hreinlega ekki beðið eftir því
sem var fyrirfram ákveðið. Fólk
vildi að spádómarnir „afhjúp-
uðu“ eitthvað af því sem Guð
hafði geymt í handraðanum!
— En urðu Nostradamusi
aldrei á mistök í spádómum sín-
um?
— Karl níundi (sá sem var
ábyrgur fyrir Bartholomeus-
nóttinni) útnefndi hann sem
lækni sinn fyrir lífstíð 1564.
Nostradamus hafði spáð honum
90 ára ævi. Karl nfundi varð ein-
ungis 24 ára gamall ... En þetta
þýðir ekki að Nostradamus hafi
verið svikari: Stjörnuspeki gat
líka verið lífsviðurværi. Þrjátíu
þúsund stjörnuspekingar gerðu
stjörnuspár fyrir almenning
fyrir einn skilding á sextándu
öld. Nostradamus gaf á stundum
einnig út lyfseðla, en á okkar
tímum er bara þekkt eitt slíkt
lyf. Það er nokkurs konar and-
litskrem, sem skrifað var upp á
1556 í Lyon.
Það er nauðsynlegt að hafa
það í huga að margar túlkanir á
spádómum Nostradamusar urðu
til sfðar; sömu spárnar hafa ver-
ið túlkaðar þannig að þær eigi
við mismunandi aðstæður og at-
burði. Það er sagt að Nostra-
damus hafi spáð rétt fyrir um
sitt eigið dánardægur milli
„borðs og rúms“ — en þannig
fannst hann einmitt eftir asma-
kast að því er sagt er, 14. des-
ember 1566.
(Heimild: Aftenposten.)