Morgunblaðið - 12.06.1983, Blaðsíða 24
72
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983
Af starfi
Kristilegs stúdentafélags
Um þessar mundir, nánar tiltekið
17. júní, verða liðin 47 ár frá því
nokkrir nemendur við Háskóla ís-
lands tóku sig til og stofnuðu Kristi-
legt stúdentafélag. Tilgangurinn var
að breiða út kristindóminn meðal
stúdenta. Félagið byggði tilvist sína á
trúfesti við boðskapinn um hinn upp-
risna Jesúm Krist, verk hans og per-
sónu, eins og Biblían flytur hann og
staðfestur er í játningarritum evang-
elisk-lútherskrar kirkju.
Félagið hefur ætíð starfað undir
þessum formerkjum, haldið fundi
og samverustundir vikulega og
staðið fyrir opinberum fyrirlestr-
um og umræðum í Háskólanum og
Norræna húsinu. Innan félagsins
eru nokkrir biblíu- og samfélags-
hópar, sem hittast reglulega í
heimahúsum og lesa saman, ræða
og íhuga eitthvert rit Biblíunnar.
Fundir á F-27
Vikulega eru fundir félagsins
haldnir í félagsheimili þess að
Freyjugötu 27, sem venjulega geng-
ur undir nafninu F-27. Þeir eru á
föstudagskvöldum á veturna, en á
miðvikudagskvöldum á sumrin. Þar
eru tekin til umfjöllunar málefni
kristninnar, oft með umræðum eft-
ir framsögu jafnt leikra sem
lærðra.
Mót KSF
Hápunkturinn í starfi KSF eru
tvenn helgarmót, sem eru á haustin
og vorin í sumarbúðum KFUM og
K í nágrenni Reykjavíkur. Þar eiga
menn góðar stundir um Guðs orð
fjarri ys og þys borgarinnar. Á
mótunum eru flutt uppbyggileg er-
indi um kristna trú og fjallað um
efnið í samræðuhópum. Auðvitað
er svo fagurs umhverfis notið í rík-
um mæli með útiveru.
Skólaprestur
í samvinnu við Kristileg skóla-
samtök hefur KSF einn mann á
launaskrá, skólaprestinn Ólaf Jó-
hannsson. Hann sér um daglegan
rekstur skrifstofu félaganna og að-
stoðar við skipulagningu funda og
hring. Til þess hefur sr. Ólafur
fasta viðtalstíma í Háskólanum á
veturna og ennfremur á skrifstof-
unni í félagsheimilinu, Freyjugötu
27. Sr. ólafur messar af og til í
kirkjum á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Salt-blaðið
Allt frá stofnun félagsins hefur
það gefið út Kristilegt stúd-
entablað, Salt. Flytur það fréttir af
starfi KSF og ýmsar greinar um
kristna trú. Blaðið kemur út einu
sinni til tvisvar á ári og er dreift til
allra nemenda í HÍ, svo og til ann-
arra framhaldsskólanema.
I láskólafullt rúí
Svokallaður háskólafulltrúi KSF
sér um starfsemina í Háskóla ís-
lands og hefur hin síðari árin verið
ritstjóri málgagnsins Salts. Hl-
fulltrúinn skipuleggur fundi og
samkomur félagsins í skólanum og
annað það sem til fellur. Ekki er
vanþörf á slíkum starfskrafti í um
3000 manna skóla og helst þyrfti
fleiri en einn starfsmann.
Reksturinn
Árlega er kosin stjórn KSF. Hún
skipuleggur starfsemi félagsins og
annast fjárhag þess. Allt starfið er
Sr. Sigurbjörn Einarsson, biskup,
flytur hugleiðingu á KSF-fundi.
byggt upp með frjálsum framlögum
félagsmanna, einnig laun skóla-
prestsins. Félagið nýtur góðs af
stuðningi dyggra félagsmanna af
„eldri“ kynslóðinni og ekki aðeins
fjárhagslega, heldur og með fyrir-
bæn og öðrum stuðningi.
Bókaútgáfan Salt hf.
Kristilegt stúdentafélag hafði á
sínum tima forgöngu um stofnun
bókaútgáfu, sem hefði það að
markmiði að gefa út bækur tengdar
kristilegum málefnum. Hlaut hún
nafnið Salt.
STÚM
Stúdentamót eru fastur liður I
starfi Norrænu kristilegu stúd-
entahreyfinganna, en KSF hefur
náið samstarf við þær, einkum þá
norsku. Margir munu minnast yfir
1000 manna kristilegs stúdenta-
móts, sem haldið var í Laugardals-
hollinni í Reykjavík sumarið 1975
og e.t.v. minnast einhverjir móts-
ins, sem haldð var hér 1950.
Þetta árið verður stúdentamótið
haldið í Tromso í N-Noregi og
þangað fara nokkrir KSF-ingar.
Mót þessi hafa verið mikilvæg stoð
starfinu hér á landi. Þau eru vett-
vangur gleði og endurnýjunar f
trúnni og hafa skapað varanleg
vináttutengsl við frændurna hand-
an hafsins.
Til gamans má geta þess, að
sumarið 1985 verður Norræna
kristilega stúdentamótið enn á ný
haldið hér á landi og er það í senn
tilhlökkunar- og fyrirbænaefni.
Alþjóðleg, kristi-
leg stúdentasamtök
Ekki má gleyma því, að KSF er
aðili að „Alþjóðlegum kristilegum
stúdentasamtökum" (IFES), sem
stofnuð voru skömmu eftir lok síð-
ari heimsstyrjaldar. Megintilgang-
ur þeirra samtaka er að styðja við
bakið á þeim hreyfingum sem eiga
erfitt með að starfa af einhverjum
ástæðum, t.d. fjárhagsörðugleikum
eða vegna reynsluleysis í kristilegu
starfi meðal stúdenta. Aðildarfélög
IFES eru um 50 talsins og standa
að kristilegu stúdentastarfi í um 70
löndum og styðja við starf í 35 öðr-
um löndum.
Aðildarfélög I.F.E.S. safna sam-
an kristnum stúdentum til samfé-
Iags, kynna kristna trú, innihald
hennar, áhrif hennar í sögunni, er-
indi hennar til samtímans o.fl.
Starfið felst í fundahöldum, fyrir-
lestrum, myndasýningum, ráð-
stefnum og mótum ýmiss konar.
Víða hefur orðið mikil vakning
meðal stúdenta og kristileg stúd-
entafélög farið ört vaxandi, einkum
þar sem starfandi hafa verið marg-
ir litlir biblíu- og bænahópar sem
koma saman til samfélags. Þetta
sýnir glöggt, að kristindómurinn á
ekki síður erindi til stúdenta sam-
tímans en til annarra manna.
Hann hefur mætt þörfum þeirra,
svarað spurningum þeirra, gefið
þeim nýtt og innihaldsríkara líf í
samfélagi við Jesúm Krist.
Kaffisala KSF 17. júní
Á afmælisdegi KSF þann 17. júní
nk. verður kaffisala I félagsheimil-
inu, Freyjugötu 27,3. hæð. Þar mun
sr. Sigurbjörn Einarsson, biskup,
flytja hugleiðingu sem hefst klukk-
an 14.30. Félagsmenn KSF vænta
þess, að sem flestir sjái sér fært að
líta við á Freyjugötunni og þiggja
þar veitingar til styrktar starf-
seminni sem er mikil og blómleg og
alltaf er þörfin fyrir aukið starf
meðal stúdenta brýn. „Eldri"
KSF-ingar eru sérstaklega boðnir
velkomnir til að rifja upp gamlar
og góðar minningar tengdar félag-
inu.
Til lesenda
Frá og með sunnudeginum
kemur, 19. júní, tekur sr. Sólveig
Lára Guðmundsdóttir við af mér
sem einn umsjónarmanna síð-
unnar Á DROTTINSDEGI. Ég
óska henni velfarnaðar í því
starfi og þakka sr. Auði Eir,
Gunnari Hauki og lesendum
samfylgdina undanfarna mán-
Sr. Olafur Jóhannsson
Um ferdabæn
Nú er kominn sá árstími þegar mest er um ferðalög hérlend-
is. Því miður komast ekki allir heilir heim úr ferðum sínum.
Slys og óhöpp verða vegna erfiðra aðstæðna, bilana í farar-
tækjum og skyndilegra veikinda ökumanna. En því miður má
rekja orsakir flestra umferðarslysa til óaðgæslu og ölvunar.
Minnumst þess, að hver og einn ber ekki einungis ábyrgð á
sjálfum sér og farþegum sínum, heldur einnig öðrum sem
ferðast um sömu slóðir á sama tíma. Sameinumst um, að tefla
ekki í neina tvísýnu á vegum úti og sýna ekkert kæruleysi í
sumar. Það gæti orðið til þess að forða okkur og samferða-
mönnum okkar frá óbætanlegu tjóni.
Gott er að hugsa til þess, að Drottinn Guð okkar vill varð-
veita okkur á allri vegferð okkar. í því felst öryggi að geta lagt
ferðina framundan í hendur hans, beðið hann um vernd og
varðveislu. En þeirri bæn fylgir sú ábyrgð, að breyta ekki
sjálf(ur) gegn því, sem um er beðið.
Orð dagsins á Akureyri hefur gefið út límmiða með bílabæn,
sem vel má líma nálægt mælaborði bifreiðar. Hún minnir
okkur á, að leggja ferðina í hendur Guðs og sýna ábyrgð og
tillitssemi í akstri. Þessi bílabæn fæst í Kirkjuhúsinu í
Reykjavík og Hljómveri á Akureyri. Hjá Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni starfsmanni þar er væntanlega einnig unnt að
panta hana fyrir þá, sem kynnu að vilja dreifa henni víðar.
Af fjölmennum fundi f Norræna húsinu sl. haust.
Girnilegar kökur á kaffisöhi.
Valið og hafnað
Hörð eru orð Jesú er hann segir engan geta verið lærisvein
hans nema segja skilið við allar eignir. En sönn eru þau engu
að síður. Ekki þannig, að kristinn maður þurfi alltaf að fara
frá fjölskyldu og eignum til þess að geta þjónað Kristi. En
spurningin er: Hvað á mest ítök í lífi okkar? Er eitthvað þar
sem ræður svo miklu, að það skyggi á Drottin?
Á öllum öldum hafa kristnir menn orðið að velja — vildu
þeir halda í efnisleg gæði, vináttu manna og þægilegt líf — eða
voru þeir reiðubúnir að sleppa öllu til þess að halda Jesú Kristi
einum?
Til þess voru þeir reiðubúnir er þeir þekktu þörf sína fyrir
óverðskuldaðan kærleika hans, sáu vonleysi sitt án frelsarans.
Þeir vissu, að hann einn gat gefið eilíft líf — þess vegna var
öllu fórnandi til þess að eiga hlutdeild í honum.
En líklega þurfum við að setjast niður og reikna kostnaðinn.
Við okkar aðstæður er ótrúlega auðvelt að vera kristinn án
þess að þurfa að gera upp við sig, hverju er fórnandi fyrir
Krist einan. Ef við stæðum hins vegar frammi fyrir valinu
milli Krists og alls hins — hvað yrði þá valið og hverju sleppt?
Biblíulestur
vikuna 12.—18. júní. Lúk. U:15—25
Sunnud. 12. júní: Lúk. 14:16—24.
a) S.hl.v.17: Gud hefur gert allt í Jesú Kristi manninum
til hjálprœdis.
b) V.21—23: Gud vill aö allir menn njóti verka Krists.
c) V.21 og 21: Frammi fyrir boÖi Guös gilda engar
afsakanir!
Mánud. 13. júní: /. Mós. 31:2—24.
Jakob leikur á Laban ogflíjrfrá honum meö eigur sínar
oy fjölskyldu.
Þriðjud. 14. júní: 1. Mós. 31:25—55.
Jakob og Laban gera meö sér sáttmála og játa GuÖ sem
dómara.
Miðvikud. 15. júní: /. Mós. 32:1—32.
Jakob glímir viö Guö og hlýtur blessun hans.
Fimmtud. lfí.júní: /. Mós. 33:1—20.
Esaú og Jakob sættast heilum sáttum fyrir augliti Guös.
Föstud. 17. júní: /. Mós. 35:1—20.
Guö birtist Jakob enn og endurnýjar fyrirheitiÖ til
hans.
Laugard. lH.júnt: Davíðssálmur 106.
a) I hverju birtist sú miskunn guÖs sem talaö er um í
v.l?
b) Lýöurinn hefur brugöist Guöi — GuÖ hefur staöiö viö
sitt. Um þaöfjallar meginhluti sálmsins.
c) V.4.8: Getum viö tekiö af hjarta undir þessa lofgjörö?