Morgunblaðið - 26.06.1983, Page 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
„Sá fyrir mér jökla
og ísbirni á íslandi“
— segir Sandra Martinez skiptinemi frá Ecuador
Á hverju ári koma þó nokkuð
margir erlendir skiptinemar hingað
til lands og dvelja hjá íslenskum
Tjölskyldum sem einn af fjölskyldu-
meðlimum. Samtökin AFS tóku á
móti tólf ársnemum þetta árið og sá
sem lengst að er kominn er Sandra
Martinez. Hún kemur frá Kcuador
og dvelur nú á heimili hjónanna
Margrétar Tómasdóttur og Guð-
mundar Magnússonar í Reykjavík.
Sandra talar og skilur orðið
ágætlega íslenskuna, en til að
fyrirbyggja misskilning, fór við-
talið jöfnum höndum fram á
ensku og íslensku. Fyrsta spurn-
ingin sem við lögðum fyrir Söndru
var sú, hvernig það atvikaðist að
hún kom hingað til íslands sem
skiptinemi?
„ísland var fjarri
huga mínum“
„Ég sótti um hjá AFS í Ecuador
að komast sem skiptinemi til Evr-
ópu, en þegar sótt er um, getur
maður ekki valið land heldur ein-
ungis heimsálfu. Það var fjarri
huga mínum að koma til íslands
því landið var svo fjarlægt huga
mínum og langt í burtu. Helst var
ég með Frakkland eða Þýskaland í
sigtinu, en svo var mér tilkynnt að
eyðublöðin mín væru á íslandi og
þangað gæti ég farið ef ég vildi.
„Guð minn góður," hugsaði ég og
sá fyrir mér jökla og ísbirni og
bað um umhugsunarfrest. Eftir að
hafa lesið mér til um landið, sem
var frekar erfitt sökum lítilla upp-
lýsinga um ísland á bókasöfnum,
ákvað ég að slá til og hér er ég nú.“
Landið við miðbaug
Geturðu sagt okkur eitthvað um
land þitt og þjóð?
„Ecuador er á norðvesturströnd
S-Ameríku og er um 303.000 km2
að stærð. Nafnið Ecuador er dreg-
ið af orðunum Ecuvator, sem er
miðbaugur og þýðir því landið sem
liggur við miðbaug, enda liggur
miðbaugur þvert í gegnum það.
íbúar Ecuador eru u.þ.b. átta
milljónir, þar af búa ein og hálf í
höfuðborginni Quito. Þeir eru
langflestir afkomendur spænskra
landnema og Indíánafrumbyggj-
anna.
Ecuador flytur út meira af ban-
önum en nokkurt annað land, en
einnig flytur það út kakó, kaffi og
hrísgrjón. Þó nokkur olíuvinnsla
er í landinu og er olían nú orðin
mikilvægasta útflutningsvara
landsins. landið var spænsk ný-
lenda eins og flest önnur lönd
S-Ameríku, en varð sjálfstætt árið
1830.“
Gagnrýni og mótmæli
Hvernig er stjórnarfarið?
„Nú er lýðræði í Ecuador og hef-
ur verið síðustu tvö ár. Miðað við
mörg önnur lönd latnesku Amer-
íku hefur stjórnarfarið verið
fremur stöðugt, en þó hefur verið
fremur órólegt síðustu árin. Þó að
það séu tvö ár síðan herinn lét af
völdum, hefur ekki breyst mikið í
landinu þó að frelsið sé meira. Það
má segja að algert „kaos“ ríki í
landinu núna. Fólk gagnrýnir og
mótmælir eins mikið og það getur,
á meðan það hefur tækifæri til
þess. Annars finnst mér það best
við ísland að hér er enginn her, en
samt er röð og regla á hlutunum."
Gætirðu skýrt þetta örlítið nán-
ar?
„Ég meina að t.d. heima í Ecua-
dor bíður maður stundum tímun-
um saman eftir strætó og aldrei
kemur neinn vagn. Hér eru þeir þó
eftir áætiun, a.m.k. meðan veðrið
kemur ekki í veg fyrir það.“
Þú minnist þarna á veðrið.
Hvernig var það að koma úr hit-
anum heima hingað norður í höf?
„Ekki minnast á það,“ sagði
Sandra og dæsti. „Það liggur við
að miðbaugur liggi í gegnum garð-
Síml 44566
RAFLAGNIR