Morgunblaðið - 26.06.1983, Blaðsíða 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
Sönghátíð í Reykjavík
Sönghátíð ’83 er nú að renna upp og mun hún standa út þessa viku fram til
föstudagsins 1. júlí nk. Að hátíðinni standa Tónlistarskólinn í Reykjavík,
Tónlistarfélagið í Reykjavík, Flugleiðir og Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis en helstu hvatamenn að því að hátíðin er haldin eru þau Rut
Magnússon söngkona og Halldór Hansen læknir. Hugmyndina að hátíðinni
fengu þau fyrir tveimur árum er þau voru stödd á svipaðri sönghátíð í
Bandaríkjunum og má segja að síðan hafi verið unnið að því að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd.
Gestir á hátíðinni eru Elly Ameling, Glenda Maurice, Gérard Souzay og
Dalton Baldwin, sem öll eru vel þekkt í heimi sígildrar tónlistar. Þau munu
halda hér tónleika og námskeið fyrir íslenska og erlenda söngvara og
píanóleikara og er ekki oft sem svo margir frægir listamenn eru hér á landi
samtímis, ekki bara til tónleikahalds heldur einnig til að miðla kunnáttu
sinni og reynslu til ungra listamanna. Má því segja að hér sé um einstakt
tækifæri að ræða, bæði fyrir söngvara svo og alla aðra áhugamenn um
sönglist, til að njóta eins hins besta, sem heimurinn hefur upp á að bjóða í
Ijóðasöng og ekki ólíklegt að þessi vika eigi eftir að lifa lengi í hugum þeirra
sem þátt taka.
Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæjarbíói mánudags-, þriðjudags- og
fimmtudagskvöld en námskeiðið verður daglega frá mánudegi til föstudags
og fer kennsla fram í Hagaskóla í Reykjavík að viðstöddum takmörkuðum
fjölda áheyrenda. Fyrirhugaðir eru tvennir þátttakendatónleikar í vikunni.
Hér á eftir fer kynning á hinum erlendu gestum hátíðarinnar í samantekt
Halldórs Hansen.
Elly Ameling
Klly Ameling fæddist í Rotter-
dam og hóf þar söngnám sitt hjá
Jo Bollcnkamp. Síðar kenndu
henni Jacoba og Sam Dresden í
Scheveningen, Bodil Rapp í Amst-
crdam og Pierre Bernac, barítón-
söngvarinn frægi, í París. Frægðar-
ferill hennar hófst með því að hún
vann til fyrstu verðlauna í Conc-
ours Intcrnational de Musique í
Genf og eftir það stóðu henni allar
dyr opnar.
Elly Ameling hefur haldið
tónleika um víða veröld: í Evr-
ópu, Norður- og Suður-Ameríku,
Afríku, Japan og Ástralíu. Og
þótt hún hafi mestar mætur á
ljóðasöng, einkum þýzkum og
frönskum, þá hefur hún sungið
með fjölmörgum hljómsveitum
og kórum bæði kirkjulega og
veraldlega tónlist og í óperum
jafnt vestan hafs og austan.
Fyrsta óperuhlutverk hennar,
bæði við hollenzku óperuna og í
Kennedy Center í Washington
var Ilia í „Idomeneo" eftir Moz-
art.
Hljómplötur Elly Ameling eru
nú orðnar fleiri en flestra ann-
arra söngvara og hefur hún unn-
Klly Ameling
ið til hinna eftirsóttustu viður-
kenninga fyrir plötur sínar, svo
sem Grand Prix du Disque, Edi-
son Prize, Stereo Review Record
of the Year Award og Preis der
deutschen Schallplattenkritik.
.Hollenzka ríkið hefur líka sæmt
hana riddaratign fyrir list henn-
ar.
Dalton Baldwin
Dalton Baldwin er löngu
þekktur og viðurkenndur sem
einn af færustu undirleikurum
þessa heims. Hann er búsettur í
Frakklandi en er oftast á tón-
leikaferðum um allan heim.
Dalton Baldwin fæddist í
Summit, New Jersey, í Banda-
ríkjunum og hóf ævistarf sitt á
því að leika undir fyrir einn af
nemendur Jean de Rezke, þeg-
ar hann var einungis 10 ára
gamall. Hann stundaði nám
við „The Juilliard School of
Music" í New York og við
„Oberlin College" í Ohio áður
en hann lagði land undir fót og
hélt til Parísar til að leggja
stund á nám undir handleiðslu
Nadiu Boulanger og Madeleine
Lipatti. Auk þess naut hann
leiðbeininga Pierre Bernac og
Francis Poulenc.
Dalton Baldwin hefur ferð-
ast um allan heim með mörg-
um frægum söngvurum og
leikið inn á ógrynni af
hljómplötum.
Dalton Baldwin dreymir um
að koma á stofn alþjóðlegri
söngakademiu, þar sem ungir
söngvarar hvaðanæva úr
heiminum, gætu lært til verka
undir handleiðslu mikilla
söngvara, sem væru sjálfir
hættir að koma fram.
Sjálfur hefur Dalton Bald-
win orð á sér fyrir að leggja
sig sérlega fram við að leið-
beina ungum söngvurum og pí-
anistum og hefur haldið nám-
skeið fyrir þá um gjörvöll
Bandaríkin, Kanada sem og í
Genf í Sviss og Aix-en-Pro-
vence í Frakklandi, þar sem
hann hefur tekið fyrir sér-
staklega ljóð Fauré, Debussy
og Ravels.
Það sem mestu máli skiptir
er, að Dalton Baldwin er
gæddur því sérstaka næmi,
sem nauðsynlegt er til að
Dalton Baldwin
skyggnast djúpt inn í ljóð, lag
og sálarlíf túlkandans.
Við eigum það honum að
þakka, að þessir Söngdagar ’83
hafa getað orðið að raunveru-
leika.
Gérard Souzay
Gérard Souzay er fæddur í
Angers í Frakklandi. Hann er í
röð allra fremstu söngvara í
heimi og er viðurkenndur og virt-
ur, hvar sem er í heiminum og á
öllum þekktustu tónleikasviðum,
sem til eru. Hann er fyrst og
fremst þekktur og dáður sem
Ijóðasöngvari en hefur einnig
komið fram í óperum. Gérard
Souzay er gæddur frábærum
tónlistarhæfileikum, en hæfileik-
ar hans ná langt út fyrir það eins
og fram kemur í óvcnjulegu
næmi, tilfinningadýpt, hæfileik-
anum til að ná til áheyrandans,
skörpu gáfnafari og lýtalausu
valdi á fjölda tungumála.
List hans hefur vakið verð-
skuldaða athygli og aðdáun á
tónlistarhátíðum í Vín, Salz-
burg, Edinborg, Helsinki, Aix-
en-Provence sem og á tónlist-
arhátíðinni sem kennd er við
sellóleikarann Pablo Casals.
Hann hefur komið fram sem
einsöngvari með sinfóníu-
hljómsveitunum í Boston, New
York, Philadelphiu, Chicago,
Maggio Musicale í Florens sem
og flestum öðrum. Hann hefur
sungið óperur við Metro-
politan-óperuna í New York,
City Center-óperuna í sömu
borg, Parísar-óperuna, Glynd-
bourne-óperuna og óperurnar í
Vín og Múnchen. Hann hefur
farið í hljómleikaferðir um all-
an heim þar á meðal um Rúss-
land, Japan, Indland og Ástral-
íu.
Gérard Souzay hefur sungið
manna mest inn á hljómplötur
og hlotið mörg verðlaun fyrir
hljóðritanir sínar.
Einkunnarorð hans eru sögð
vera eitthvað á þá leið, að
Gérald Souzay
„söngvarinn eigi ekki að spegla
sjálfan sig í tónlistinni, sem
hann túlkar, heldur beri honum
sjálfum að vera sá spegill sem
hún birtist í“.
Glenda Maurice
l>egar Glenda Maurice hélt
fyrstu einsöngstónleika sína í New
York í febrúarmánuði 1981 var
þess beðið með eftirvæntingu.
Tónleikarnir tókust svo glæsilega,
að gagnrýnendur urðu að fara aö
leita sér að nýjum lofsyrðum. „Dai-
ly News“ sagði: „Hún er mikil
söngkona á hátindi getu sinnar ...
röddin er gædd nær óþrjótandi
hljómmagni ... þróttur og tækni-
leg fullkomnun eru aðalsmerki
hennar ... hún er sérstæður túlk-
andi.“
„New York Times" sagði „að
röddin væri feiknarlega
litbrigðarík og vel undirbyggð á
öllum sviðum ... Glenda Maur-
ice er í einu orði sagt gædd frá-
bærum hæfileikum."
í Evrópu kom Glenda Maurice
fyrst fram á vegum Concertge-
bouw-hljómsveitarinnar í Amst-
erdam árið 1980 og var umsvifa-
laust endurráðin til að taka að
sér einsöngshlutverk í þriðju sin-
fóniu Gustav Mahlers með
hljómsveitinni undir stjórn
Bernard Heitinks. Og i lok tón-
leikaársins kom svo Glenda
Maurice fram með hljómsveit-
inni á nýjan leik sem einsöngvari
í „Les Nuits d’Été" eftir Berlioz.
Á Tanglewood-hátíðinni var
hún einsöngvari í fyrsta sinn
með sinfóníuhljómsveitinni i
Boston undir stjórn Seji Ozawa
og söng í Ödipus Rex eftir Strav-
inski.
Glenda Maurice er gædd frá-
bærri og víðfeðmri rödd frá nátt-
úrunnar hendi ásamt túlkunar-
gáfu, sem ristir jafndjúpt og hún
er eðlileg. Glenda Maurice hefur
komið fram um gjörvöll Banda-
ríkin jafnt í óperum sem á tón-
leikum. Nýverið hefur hún sung-
ið einsöngshlutverk i Missa Sol-
emnis eftir Beethoven, Requiem
eftir Verdi, Joshua eftir Hándel,
Altrapsodíu eftir Brahms auk
þess sem hún hefur tekið þátt í
flutningi á messum og passfum
Jóhannesar Sebastian Bachs.
Hvar sem Glenda Maurice hefur
komið fram sem einsöngvari með
hljómsveit hafa Wesendock-
Ijóðin eftir Richard Wagner og
ljóðaflokkar Gustav Mahlers ver-
ið ofarlega á haugi. Og á óperu-
sviðinu hefur hún getið sér sér-
stakan orðstír í óperum Richard
Glenda Manrice
Wagners en einnig í nútímaóper-
um amerískra höfunda.
Á tónleikasviðinu hefur
Glenda Maurice unnið með frá-
bærum undirleikurum á borð við
Dalton Baldwin, David Garvey
og Rudolf Jansen. Hún hefur
sungið inn á hljómplötur fyrir
CBS, meðal annars lög eftir
Mahler, Brahms og Richard
Strauss við undirleik Dalton
Baldwins. Auk þess hefur hún
hljóðritað sönglög eftir Benja-
min Britten og Samuel Barber
við undirleik David Garveys.
Hún hefur einnig tekið þátt í
hljóðritun á verkum eftir Deb-
ussy fyrir hljómsveit og söng-
raddir ásamt Jessye Norman,
Ileana Cotrubas, Dietrich
Fischer-Dieskau og Jósé Carrer-
as.
Á næstunni mun Glenda
Maurice taka þátt í tónlistarhá-
tíðinni í Dresden og syngja ein-
söngshlutverk í Mattheusar-
passíunni eftir Bach undir stjórn
Eugen Jochums á tónlistarhátíð-
inni í Múnchen. Auk þess mun
hún koma fram með National
Symphony Orchestra í Wash-
ington DC undir stjórn M.
Rostropovich og taka þátt í söng-
hátíðum í Bandaríkjunum ásamt
Elly Ameling, Gérard Souzay og
Dalton Baldwin.
Glenda Maurice hefur búsetu í
Delaware í Bandaríkjunum og
tilheyrir kennaraliði Háskólans í
Delaware þar sem hún stundar
kennslu á milli tónleikahalda eft-
ir því sem tíminn leyfir.