Morgunblaðið - 26.06.1983, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.06.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983 83 VEGI Þýska sirkusfjölskyldan sem sýnir á Miklatúni f ■ Þessi mynd talar sínu máli. Flestum finnst það sjálfsagt nógu mikið afrek að standa á höndum á jafnsléttu, hvað þá í 16 metra hæð við þessar aöstæður. Morgunblaðift/KEE Sirkusfjölskyldan saman komin rétt fyrir sýningu. Frá vinstri: Peter, Sonja með son sinn, Manuela, fjölskyldu- faðirinn Bauer, Ilagmar og Pierre. Einbeitingin má aldrei hvika „Brrr ... veðrið hérna er eins og vetrarveður í Þýskalandi. Við vorum ekki lengi að fá okkur eyrna- skjól og ullarnærröt eftir fyrstu sýninguna, enda er kuldinn í háloftunum alltaf talsvert meiri en á jörðu niðri,“ sögðu systurnar Manuela og Sonja Bauer, sem hér leika háloftalistir í Tívolíinu á Miklatorgi, ásamt fleiri meðlimum Bauer-fjölskyldunnar. Þau eru fimm sem sýna, auk Manuelu og Sonju eru það bróðir þeirra, Pierre, frænkan, Dagmar, og unnusti Manuelu, Peter. Tvisvar á dag, klukkan 18 og 22, sýna þau eitt af þremur atriðum: mótorhjólaakstur á streng, fimleikaæfingar uppi á 16 metra háum sveiflumöstrum eða höfuðstöðu og aðrar kúnstir á 45 raetra háu mastri. Hárrísandi atriði öll þrjú. Fjöl- skyldufaðirinn sýnir ekki, en gætir átta mánaða gamals sonar Sonju á meðan hún stundar vinnu sína í háloftunum. „Pabbi er hættur að sýna. Hann lenti í slysi fyrir mörgum árum og lá í heilt ár á sjúkrahúsi. Hann hefur aldrei náð sér nógu vel í bakinu til að geta sýnt aftur, en hann þjálfar okkur og hannar atriðin. Hann hefur samið mörg einstæð atriði og er meðal annars hugsuðurinn á bak við sýning- una á sveiflumöstrunum." Bauer-systkinin eru sjöundi ættliður sirkus- fólks af Bauer-ættinni. Móðir þeirra er einnig af frægri sirkusfjölskyldu, svo það þarf engan að undra þótt systkinin segi að sirkuslífið sé þeim í blóð borið. En þetta líf er ekki alltaf dans á rósum og sorgin hefur knúið dyra oftar en einu sinni. Þau misstu bróður sinn fyrir þremur árum, þegar stöng hans brotnaði í miðju atriði. Frændi þeirra einn fórst einnig þegar hann féll úr sveiflumastri. Sannkallað hættulíf. En hvernig er að búa við slíka hættu? Eru þau aldrei hrædd um að detta? „Við hugsum aldrei um það. Það þýðir ekki. Hræðsla, eða efi um að atriðið takist má aldrei komast að. Við bítum á jaxlinn og vinnum okkar verk. Einbeitingin má ekki hvika eitt andartak. En þetta er dásamlegt líf, þrátt fyrir hættuna. Tilfinningin að koma niður eftir velheppnað at- riði er ólýsanleg. Auk þess fylgir starfinu mikil ferðalög, við þeytumst heimshornanna á milli og kynnumst ólíkum löndum og þjóðum. Það er óneitanlega mjög spennandi." Víst er um það að Bauer-fjölskyldan ferðast víða. Þau eru hingað komin frá Saudi-Arabíu og fara síðan héðan til ísrael. En hér á landi sýnir fjölskyldan til 3. júlí, tvisvar á dag, eins og áður segir, ef veður leyfir. En versti óvinur þeirra er rigningin, aðeins nokkrir regndropar gera ál- möstrin sleip og þá er of áhættusamt að sýna. Góðir kumpánar Þeir eru gamlir og góóir kumpánar þessir tveir, sem kannski er engin furða, eiga það báðir sameiginlegt að slá meira á léttari strengi en aðra og hafa viðurværi sitt af sama hlutnum, þótt með ólíkum hætti sé. Guðmundur Árnason, málverka- og rammasali, og Örlygur Sigurðsson listmálari. Myndina tók ólafur K. Magnússon ljósmyndari Mbl. á Bergstaða- stræti þann 17. júní, en þar er innrömmunarverkstæði og gallerí Guðmundar til húsa. Að baki þeirra félaga er tólf ára gamli Volvóinn hans Örlygs, sem eitt sinn gegndi viðameira hlutverki en því einu að koma mönnum frá einum stað til annars: var í senn skrifstofa og lager útgáfufyrirtækis Örlygs, Geðbótar, sem eingöngu gaf út bækur eftir útgefandann. Örlygur er þjóðfrægur fyrir hnyttnar og hittnar afmælisgreinar um kunningja sína og vini, og því er ekki úr vegi að rifja upp lítið brot úr einni slíkri hér, sem hann skrifaði um Guðmund Árnason fimmtugan í Morgunblaðið árið 1960: „Hann er hvorki metnaðargjarn, ágjarn, valdafíkinn, ráðskgefinn, öfundsjúkur né hatursfullur eins og svo margir. Honum finnst hann sjálfsagt hafa nóg á sinni könnu með sjálfan sig og eigin vandamál. Væri óskandi að fleiri hefðu þann heilbrigða hugsunarhátt, þá væri meiri friður á jarðríki og allir væru ekki alltaf að kássast i öllum. Hann er með allra notalegustu mönnum að gægjast með í glas og þá er karl í essinu sínu og lætur móðan mása og kærkomið umræðuefni eru jafnan konur, að einni undanskilinni þó, kelli gömlu Elli, sem nú hefir komist langleiðina með að klóra, rífa og reyta af karli hárið, þessar skrautfjaðrir sköpunarverksins, þennan stássramma sjálfrar ásjónunnar. Því eru það, ef til vill, ekki ástæðulausar uppbætur, að hann hefir gert innrömmun að ævistarfi, lífsbaráttubusiness og brauðstriti og eygir réttilega, hvað góður og smekklegur rammi er þýðingarmikill, bæði fyrir lélega og góða mynd.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.