Morgunblaðið - 26.06.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
61
Frá aðalfundi 1982. Hluthafar bankas eru um 1.400 og er hann eitt fjölmennasta hlutafélag landsins.
mom; v
Bód
TIL nu
nokkia Kit-in.
nm kmiA.i jI
kj*»i ln.i Ainit ki
iuitiAn> n kA sk
Iiin þ.iA politi*
n-ynt n svii n
íynr hvt-ijar
kjosendum i I
<W þu t kki MÍ7t
uin Akrami,
ukkur ht'ima ei
Ijoat, hvera vi-
M'Aun <>K trr
þin«i.
Akrariea it
frematu röð i:
í’r .HKreMaluMl l»naéarbank*rH ; ,,thafnir og fr
þ.i uf ajálfu
Iðnaðarbonki tslands
I li g vaxtarskil
tekur til stnrio I doj lir
muiara aia sk
Hlutafé 6,5 milljón króna.
l.AN'DSSAMB, iAna.Vnm.mna <>K ' ufgit lAsluiMilur I^iftlt-iða á K‘»»u- | okkar bæjarf
Felag ntlrn/ku idniekt-ndu hufa i liu'd til afgrt'iftslu •»*; i kjallaia x ,fl Akuinesir
imdunfurin 5- 6 ar rartt atnfnun j ei u t\o ski ifstiifulit i tx igi i>u nunnuKir, hv<
énrAurhanka á fundmn Mnuai,' rúht|!úd KfymsluliVtlí inj{ mt .1 aft þvi nicð rá
- . «.. t.„....I. . A*% M'. .mr ... l«p..i.tl...naAl l.« ___
Frétt Morgunblaðsins 25. júní 1953 um opnun Iðnaðarbankans.
íaKf.u «ft * igu
<>K otulan ful
ti ua. sem ht fi
takandi og mj
um framfara-
Hlutfallsleg
skipting útlána
EF SKOÐIIÐ er hlutfallsleg
skipting útlána Iðnaðarbankans
undanfarin 10 ár kemur í Ijós að
mikil umskipti hafa orðið. Árið
1973 voru víxlar og yfirdráttarlán
bankans um 80% allra útlána en
á síðasta ári námu slík lán aðeins
25%. Fyrir tíu árum voru skulda-
bréfalán 15% útlánanna og
endurseld lán og innleystar
ábyrgðir voru um 5%. Á síðasta
ári voru skuldabréfalán u.þ.b.
30% útlána og endurseld lán og
innleystar ábyrgðir því sem næst
15%. Nýr lánaflokkur hefur bæst
við, en það eru verðtryggð lán
sem á síðasta ári voru um 25%
allra útlána bankans.
Ef litið er á þróun útlána
eftir lánþegum kemur í ljós að
einstaklingar fengu rúm 10%
útlána bankans fyrir 10 árum
en fengu tæp 20% á síðasta ári.
Lánastofnanir o.fl. fengu 1973
10% útlána bankans en 5% á
síðasta ári. Verslun og þjón-
usta fékk um 20% útlána árs-
ins 1973 og því sem næst 25% á
síðasta ári. Hlutdeild iðnaðar
og byggingaverktaka hefur
dregist örlítið saman, þeir
fengu rúm 55% útlána bank-
ans fyrir tíu árum en hlutur
þeirra nú er 51%.
innlám bankans 1955-1982 a verðlagl i
desember 1982
Línurit er sýnir þróun innlána bankans 1953—1982 miðað við verðlag í
desember 1982.
Stórbruninn 1967
Mesta áfall bankans frá upphafi
KINN er sá atburður, sem jafnan mun verða getið, er saga Iðnaðarbanka
íslands hf., verður rifjuð upp. Það er bruni aðalbankans í Lækjargötu
róstudaginn 10. mars 1967. Þann dag brunnu til kaldra kola timburhúsin
l^ekjargata 12A og 12B, svo og Vonarstræti 2. í eldhafinu brunnu alger-
lega að innan allar hæðir bankans að undanskilinni götuhæð og kjallara,
sem þó skemmdust stórlega af vatni.
I frásögn Morgunblaðsins,
daginn eftir brunann, laugar-
daginn 11. mars 1967, segir, að
kona sem bjó á neðri hæð húss-
ins að Lækjargötu 12 hafi
manna fyrst orðið vör við brun-
ann. Hún vaknaði fyrir tilviljun
kl. fimm aðfaranótt föstudagsins
og varð þess áskynja að eldur
var kominn upp í herbergi henn-
ar. Tókst henni með naumindum
að vekja son sinn 12 ára gamlan
og 10 ára dreng, sem var einn
heima á efri hæð hússins, og
koma þeim út á nærklæðum ein-
um fata, auk þess sem hún gerði
lögreglu viðvart.
Eldurinn blossaði upp og þeg-
ar lögregla og slökkvilið kom á
staðinn stóðu húsin í björtu báli.
Allt slökkvilið borgarinnar var
kallað út ásamt varaliði og
liðsstyrk frá Reykjavíkurflug-
velli. Töluverður vindstrekking-
ur var af austri og magnaðist
eldurinn geysifljótt og barst í
húsið nr. 12B sem áfast var við
Lækjargötu 12A. Skipti engum
togum að húsin urðu alelda á 15
mínútum. í strekkingnum mynd-
uðust hvirfilstrókar við framhlið
húsanna sem soguðu logatung-
urnar upp með gafli Iðnaðar-
bankans og molnaði múrhúðun á
gaflinum og féll á götuna. Máttu
slökkviliðsmenn gæta sín á að
verða eigi fyrir. Náðu eldtung-
urnar stundum hátt upp fyrir
þakskegg Iðnaðarbankans.
Á gafli bankans voru glugga-
raðir þétt upp við hin brennandi
hús. Brotnuðu glerin í gluggun-
um af hitanum og eldurinn sog-
aðist er húsið opnaðist og súgur í
því myndaðist, inn á allar hæðir.
Skömmu síðar var eldurinn
kominn í húsið nr. 2 við Von-
arstræti og magnaðist hratt í því
húsi. Vegna vindstrekkingsins
átti slökkviliðið fullt í fangi með
að verja gamla Iðnskólann og
Iðnó sem standa handan Vonar-
strætis.
Þegar klukkan nálgaðist sjö
um morguninn fóru húsin að
hrynja hvert af öðru og var þá
sem blásið væri í glæður, því að
eldurinn magnaðist um helming
— neistaflugið stóð í allar áttir
og barst yfir í Iðnó, en slökkvi-
liðsmönnum tókst að verja húsið
og einnig hús Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur i Vonar-
stræti 4. Um klukkan átta voru
öll húsin fallin nema bakhús við
Lækjargötu 12A og vesturgafl
Vonarstrætis 2 og var þá eldur-
inn tekinn að dvína. Enn logaði
þá í bankanum. Slökkvistarfi var
að mestu lokið um klukkan hálf-
tíu en sprautað var yfir rústirn-
ar fram yfir hádegið.
Alls misstu 17 manns heimili
sitt í þessum bruna. Aldraðri
konu var með naumindum bjarg-
að fyrir harðfylgi og hugrekki
björgunarmanna. Þetta er einn
mesti eldsvoði í Reykjavík á síð-
ari árum. Eignatjón var talið
nema tugmilljónum króna í
beinhörðum peningum, fyrir
utan verðmæti sem eigi verða
metin til fjár, s.s. heimili séra
Bjarna heitins Jónssonar,
vígslubiskups, heimili Sigurðar
Kristjánssonar, fyrrum alþing-
ismanns og heimili Ólafs Jóns-
sonar, forstjóra. Þannig eyði-
lögðust allar ræður séra Bjarna
og dagbók sem hann hafði haldið
frá því hann hóf prestskap.
Á fundi með fréttamönnum
daginn eftir brunann sagði
Sveinn Valfells, formaður
bankaráðs Iðnaðarbankans, að
öll skjöl hefðu verið geymd á
þann hátt að þau hefðu sloppið
óskemmd. Gagnvart rekstri og
öllum viðskiptamönnum bank-
ans væru því öll skjöl og skilríki
i lagi. Afgreiðsla í sal bankans
hófst þegar á mánudeginum eft-
ir brunann, en sú starfsemi sem
fram fór á efri hæðunum var
komið fyrir til bráðabirgða í
húsnæði vélsmiðjunnar Héðins
og í Grensásútibúi bankans.
Viðskiptavinir urðu ekki fyrir
neinu tjóni af völdum eldsvoð-
ans. Húsið sjálft skemmdist ekki
en smíða þurfti allar innrétt-
ingar að nýju. Á hinn bóginn
varð Ríkisendurskoðun, sem var
á þriðju hæð hússins, fyrir tjóni
á skjalasafni sínu. Þar voru
geymdir reikningar ýmissa
stofnana og bréf sem stofnunin
hafði fengið send. Lítið brann af
reikningum fyrirtækjanna, en
hins vegar brann allt bréfasafn-
ið og varð af þeim sökum nokkur
röskun á starfseminni.
Endurbygging bankans hófst
þegar eftir brunann og lauk því
verki árið eftir. Tjón hans var
geysilegt, þó verðbréf og önnur
verðmæti björguðust, þar sem
þau voru geymd í eldtraustum
geymslum. Á hinn bóginn
brunnu öll áhöld, tæki og inn-
anstokksmunir ásamt öðrum
verðmætum. Einnig urðu sam-
tök iðnaðarins fyrir miklu tjóni,
þar sem húsnæði þeirra á fjórðu
hæð varð eldinum að bráð.
llnnið að slökkvistörfum í Iðnaðarbankanum að
morgni föstudagsins 10. mars 1967.
Eldsvoðinn i Lækjargötu 1967. Alls brunnu 3 timbur-
hús og Iðnaðarbankinn varð fyrir stórtjóni.