Morgunblaðið - 26.06.1983, Page 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
Gjaldkeri í afgreiðslu Iðnaðarbankans færir innlegg í sparisjóðsbók. Með því að renna bókinni í gegnum
skynjarann sér tölvan um allar færslur í bókina. Tölvan er í beinlínutengslum við Reiknistofnun bankanna og
færslurnar eru villuleitaðar um leið og þær fara fram.
ar hefur vöxtur bankans verið
slíkur að starfsemin rúmast ekki
lengur í húsnæðinu við Lækjar-
götu, en þar hafa komið til sögu
hin 7 útibú bankans sem áður var
greint frá.
Árið 1967 varð bankinn fyrir
miklu tjóni í eldsvoða og er það
mesta áfall sem bankinn hefur
orðið fyrir þessa þrjá áratugi. Frá
því er sagt á öðrum stað hér á
síðunum.
Stjórnendur bankans
Fyrsta bankaráðsins hefur verið
getið undir forsæti Páls S. Páls-
sonar, en hann var formaður í 5
ár, eða til ársins 1957. Kristján
Jóhann Kristjánsson var formað-
ur árin 1957—1962. Við tók Sveinn
B. Valfells, sem var formaður í 12
ár, eða til ársins 1974 er Gunnar J.
Friðriksson var kjörinn formaður.
Gunnar var formaður í átta ár eða
til ársins 1982, en þá tók við sæti
hans Davíð Scheving Thorsteins-
son, núverandi formaður.
í bankaráði hafa frá upphafi átt
sæti 5 menn og eru 3 þeirra kjörn-
ir á aðalfundi, en 2 eru skipaðir af
iðnaðarráðherra. f bankaráði eiga
nú sæti eftirtaldir: Af aðalfundi
eru kjörnir Davíð Scheving
Thorsteinsson, Gunnar Guð-
mundsson og Sveinn S. Valfells.
Ráðherra hefur skipað Kjartan
ólafsson og Sigurð Magnússon.
Endurskoðendur bankans eru
Haukur Björnsson, Þórleifur
Jónsson og Sveinn Jónsson.
Sem fyrr sagði gegndi Helgi
Hermann Eiríksson bankastjóra-
starfi til ársloka 1955 og við tók
Guðmundur ólafs sem gegndi
starfinu til ársins 1964. Árið 1963
höfðu Bragi Hannesson, lögfræð-
ingur, og Pétur Sæmundsen,
viðskiptafræðingur, verið ráðnir
bankastjórar. Pétur lést 5. febrúar
1982 og var í hans stað ráðinn
bankastjóri Valur Valsson, við-
skiptafræðingur, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra iðnrek-
enda, en Valur hafði áður starfað
hjá bankanum, fyrst sem for-
stöðumaður hagdeildar, en síðar
sem aðstoðarbankastjóri. Ragnar
Önundarson, viðskiptafræðingur,
var ráðinn aðstoðarbankastjóri
árið 1979.
Við stofnun bankans var ákveð-
ið að hann tæki við daglegum
rekstri Iðnlánasjóðs. Hefur sú
skipan haldist síðan. Hafa banka-
stjórar jafnframt verið fram-
Tölvuvæddar
gjaldkeraafgreiðslur
Fullkomnasta bókunarkerfið
í íslenskum banka
IÐNAÐARBANKINN er eini íslenski bankinn sem hefur tölvuvæddar
gjaldkeraafgreiðslur. Fullkomið afgreiðslu- og bókunarkerfi var tekið í
notkun í afgreiðslu bankans um mitt ár 1979, en áður þurfti að vinna
allar afgreiðslur í tölvutækt form að starfsdegi loknum.
Tölvukerfið er þannig úr garði
gert að allar inn og útborganir
eru í beinlínuvinnslu við Reikni-
stofnun bankanna og unnar um
leið og afgreiðsla fer fram. Slíkt
flýtir mjög fyrir afgreiðslu og
dregur úr villum þar sem allar
færslur eru villuleitaðar sam-
stundis. Jafnframt gerir það
gjaldkerum kleift að sjá þegar
að loknum starfsdegi hver stað-
an er, þar sem þeir hafa allar
færslur handhægar á strimli.
Gagnvart viðskiptamönnum
virkar kerfið þannig, að þeir
geta farið beint til gjaldkera, og
tekið út en þurfa ekki fyrst að
koma við í sparisjóðsdeild, eins
og í öðrum bönkum, og láta bóka
inn eða út úr bók sinni og fara
síðan til gjaldkera.
Bókunarkerfið er af gerðinni
IBM 3600 og er í notkun hjá að-
albanka og útibúum í Reykjavík,
Hafnarfirði og Garðabæ. Kerfið
hefur gert bankanum fært að
mæta síauknu færslumagni án
tilsvarandi fjölgunar starfsfólks.
Þess má geta að færslumagnið
hefur fimmfaldast á síðustu
fimm árum. Bókunarkerfið nær
til sparisjóðsreikninga, ávísana-
og hlaupareikninga, og aðal-
bókhalds.
kvæmdastjórar sjóðsins, og dag-
legur rekstur og afgreiðsla í hönd-
um starfsmanna bankans. Reikn-
ingar sjóðsins hafa einnig verið
lagðir fram á aðalfundum bank-
ans.
Aukning innlána
í ársskýrslu Iðnaðarbankans
fyrir síðasta ár kemur fram að
mikil aukning innlána hefur átt
sér stað í bankanum á síðustu ár-
um. í skýrslunni segir að ekki sé
unnt að benda á neina eina
ákveðna ástæðu þessa, umfram
meðaltal innlánsstofnana í land-
inu, en getum að því leitt að til-
koma hinna svonefndu IB-lána á
árinu 1978 hafi orðið bankanum
til framdráttar. Þess má geta að
aukning innlána á árinu 1982 mið-
að við árið áður var 67% en inn-
lánsaukning allra viðskiptabank-
anna varð hins vegar 60,6%.
í ársskýrslunni segir um þessa
þróun: „Aukin innlán og bætt af-
koma bankans undanfarin ár hafa
gefið tækifæri til bættrar þjón-
ustu bankans við viðskiptamenn
sína með tvennum hætti. Aukin
innlán hafa leitt til samsvarandi
aukningar útlánagetu, en einnig
hefur efling bankans og fjölgun
starfsfólks leitt til betri og fjöl-
breyttari þjónustu við viðskipta-
mennina. I annan stað hefur bætt
afkoma bankans undanfarin ár
gert mögulegt að ráðast í ýmsar
fjárfestingar, bæði í fasteignum
og tækjum, sem nauðsynlegar
hafa verið vegna aukinna við-
skipta."
Stofnfimdur
Iðnaðarbankans 1952
Stofnfundur Iðnaðarbanka íslands hf. var haldinn laugardaginn 18.
október 1952. Á fjóröa hundrað hluthafa mættu, margir hverjir utan
af landsbyggðinni, enda hófst Iðnþing íslendinga þessa sömu helgi.
Mikill hugur var í fundarmönnum að sögn Morgunblaðsins 19.
október 1952, og töldu menn að stigið væri mikið framfaraspor fyrir
íslenskan iðnað og iðnaðarmenn.
Fundarstjóri á stofnfundinum var Helgi Hermann Eiríksson, sem þá
var skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík. Á fundinum var kjörinn
bráðabirgðastjórn er gegndi störfum til framhaldsaðalfundar, sem
haldinn var viku síðar. Sá frestur var notaöur svo menn gætu kynnt
sér uppkast að reglugerð og samþykktum fyrir bankann. Þær voru
samþykktar viku síðar.
Myndirnar sem hér birtast frá stofnfundinum tók Ijósmyndari
Morgunblaðsins Ólafur K. Magnússon.
Fundarstjóraboröið. Ræðumaður er Páll S. Pálsson lögmaður, fyrsti formaöur bankaráðsins.
Fundarritari, lengst til vinstri, er HJ. Hólmjárn. Fundarstjóri, fyrir miðju, er Helgi Hermann
Eiríksson, fyrsti bankastjóri Iðnaðarbanka íslands hf., fundarritari, lengst til hægri, er Stefán
Jónsson ur Hafnarfirði.
Myndin er tekin yfir fundarsalinn í Tjarnarcafé, þar sem hundruð íslenskra iönaðarmanna komu
saman laugardaginn 18. október 1952 og stofnuöu Iðnaöarbanka íslands hf., en hann tók síðan til
starfa 25. júní 1953. Á myndinni þekkjast m.a. Stefán Jónsson, í horninu neðst til vinstri Sigurður
Hólmsteinn Jónsson, annar maður frá Stefáni aö baki Sigurðar er Björgvin Fredriksen, Halldór
Björnsson múrari situr við borðið andspænis Sigurði (með svört gleraugu), Þór Sandholt, síðar
skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík, er á myndinni (til hægri með yfirvaraskegg). Maðurinn sem
stendur aftast í salnum til hægri er Pétur Sæmundsen, síðar bankastjóri. Þá má sjá Sigurð
Kristinsson, formann Landssambands iðnaðarmanna, lengst til vinstri fyrir miðri mynd og í
salnum má greina andlit Gísla Ólafssonar bakara, Ólafs Jónssonar útvarpsvirkja og fleiri mætra
manna.
Frá stofnfundi Iðnaðarbankans í Tjarnarcafé. Ungi maðurinn fyrir miðri mynd er Árni Grétar
Finnsson lögmaður, að baki hans til hægri er Hjörtur Jónsson í Ólympíu, og maðurinn sem
stendur lengst til hægri er Kristján Jóhann Kristjánsson í Kassagerð Reykjavíkur.