Morgunblaðið - 26.06.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 26.06.1983, Qupperneq 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983 „Það er ekki nokkur vafi á, að með stofnun Nýlistasafnsins varð veruleg breyting til batnaðar í samskiptum þorra mynd- listarmanna. Þeir fylktu sér um ákveðna hugsjón, sem ber m.a. í sér þá von, að hægt verði á skömmum tíma að brúa það gap, sem orðið hefur í listaverkaeign þjóðarinnar. Þótt Ný- listasafnið sé sjálfseignarstofnun rekin af Félagi Nýlista- safnsins, er starfsemi þess engu að síður innlegg og framlag til menningar landsins. í Nýlistasafninu koma menn saman úr flestum ef ekki öilum myndlistarfélögunum og það segir ekki svo lítið. Safnið hefur verið miðstöð nýjustu strauma í íslenskri myndlist allt frá stofnun þess og jafnframt vettvangur lifandi umræðna og skoðanaskipta. Það ætti því öllum að vera Ijóst, að Nýlistasafniö er ekki aðsetur einangraðra hugmynda eða einstakra stefna, eða aðferða í myndlist. Hvað sem öllum vangaveltum líður, er það staðreynd, að Nýlistasafnið hefur haslað sér völl, sem frumlegt og skapandi fyrirtæki — hið eina og sanna nútímalistasafn á Islandi.“ Rabbað við Níels Hafstein, formann stjórnar Félags Nýlista- safnsins Morgunblaðið/RAX næðinu í það horf að hægt væri að nota það undir safnið þvf það hafði verið í algerri niðurníðslu áður. Nú erum við að sverma fyrir forráðamönnum bankans og biðja um aukið pláss í húsinu." — Er þá út í hött að álykta sem svo, að húsnæðisskortur standi bæði sýningum og geymslu lista- verka og heimilda fyrir þrifum? „Vissulega eru húsnæðismálin ekki eins og best yrði á kosið, en það kemur ekki niður á sýningun- um. Það er miklu fremur að söfn- unarstarfið hafi setið á hakanum vegna geymsluskorts. Safnið hefur t.d. ekki séð sér fært að taka á móti verkum í langan tíma af þessum sökum. Þá má ekki gleyma vinnuaðstöðu fyrir þá, sem hafa verkefni með höndum, það er bara eitt skrifborð en síðan verða menn að taka verkefnin með sér heim.“ Um leið og listin öðlast vin- sældir missir hún byltingaraflið Það er Níels Hafstein, formanni í stjórn Félags Nýlistasafnsins, sem svo farast orð. Rúm fimm ár eru nú liðin frá því safnið tók til starfa eftir langan aðdraganda. Vart verður því í móti mælt, að safnið hefur náð að setja mark sitt á myndlist í landinu, þótt dulúð hafi alla jafna leikið um nafnið og starfsemina innan veggja þess í augum almennings. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Níels að máli fyrir nokkru og ræddi við hann um safnið og starfsemi þess. Við hófum spjallið á því, að ég lagði fyrir hann þá spurningu fyrir hvað orðið nýlist stæði í raun og hvernig það hefði í öndverðu orðið tii. „Á tiltölulega stuttum tíma hafa komið fram margar stefnur og aðferðir í myndlist. Menn lentu fljótt í vandræðum þegar finna átti eitthvert samheiti yfir allar þessar nýjungar. Hugtakið nýlist varð til innan veggja Myndlista- og handíðaskóla Islands þegar vantaði gott nafn yfir deild, sem fram að þeim tíma hafði heitið deild í mótun. Orðið þótti vísa til frumlegrar tjáningar og tilrauna og vera þjálla í meðferð en t.d. nútímamyndlistartilraunadeild eða eitthvað annað ámóta stofn- anakennt nafn. Þegar svo var ákveðið að stofna safn er hýsa skyldi nýjungarnar þótti tilvalið að nota nýlist sem forlið og nefna það Nýlistasafnið. Hugtakið sjálft þýðir framúrstefna." — Hvar stendur nýlistin á ís- landi samanborið við önnur lönd? „Hugtakið er séríslenskt fyrir- bæri og spannar þær hræringar, sem fram spruttu t.d. í Japan, Bandaríkjunum og víðar, þegar Pop-listin var lögð á hilluna að mestu. Hvort hún er hins vegar vinsæl á meðal almennings, drott- inn minn dýri! Um leið og listin öðlast vinsældir fær hún mark- aðsstimpilinn á sig og missir gildi sitt sem byltingarafl. Um leið og myndlistin er orðinn þáttur í aug- lýsingaskruminu erum við komin inn á allt annað svið. Kraftbirting frumleikans er í fullu gildi hér- lendis, en það eru bara svo fáir, sem skilja og þora að taka þátt í ævintýrinu." — Nú er það algengt viðhorf hjá almenningi, að flokka megi margt innan nýlistarinnar undir föndur, sem hver og einn sé í raun fær um að leysa af hendi. Hvað er það að þínu mati, sem skilur ný- listamanninn frá hinum almenna borgara? „Eg held að mjög mikill mis- skilningur marki þessa afstöðu fólks. I rauninni er hann ósköp eðlilegur, þar sem menntakerfið gerir ekki ráð fyrir fræðslu í myndlist. í sögubókunum eru bara nefndir óiánsamir listamenn, að maður tali nú ekki um ef þeir verða svo frægir að skera af sér eyrnasnepilinn eins og Van Gogh. Þegar Pop-listin kom fram í Eng- landi og Bandaríkjunum upp úr 1960 sögðu menn að allt væri list. Magn sama og gæði, gæði sama sem auglýsing. Þetta snerist al- gerlega við þegar menn tóku upp hófsemi í efni og útfærðu afmark- aðar hugmyndir. Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir því, að oft á tíðum liggur margra vikna og jafnvel mánaða vinna að baki listaverki, sem fólki kann kannski að virðst sáraeinfalt og auðvelt, því baráttan að baki verkinu kem- ur hvergi fram. Þrátt fyrir þetta aðhyllist fólk frekar skrautleg listaverk, ofhlæðið fremur en ein- faldleikann. Það gátu allir málað abstrakt á sínum tíma, en sárafáir tóku eftir því að gluggatjöld, teppi og fleira og fleira voru mynstruð í þessum tiltekna stíl.“ — Hvað um nýja málverkið? „Þeir, sem mála hvað mest og fjörugast núna, byggja á taugab- oðunum og ertingi í sálinni í stað þeirrar heilastarfsemi, sem grundvallast á kaldri rökhyggju. Það má varpa því fram hvort mál- ið snúist ekki um eins konar til- finningalegt andsvar gegn teppa- mynstrum og þjóðfélaginu, sem byggir tilveru sína á þrælskipu- lögðu kerfi. Við skulum vona að nýja málverkið verði ekki ráðandi afl í húsgagnaiðnaðinum." — Ef við víkjum aftur að upp- hafi Nýlistasafnsins. Hvað var það öðru fremur, sem olli því að farið var út í stofnun þessa safns? „Hvatinn var tvímælalaust óánægja með þá stöðu, sem myndlistarmál þjóðarinnar voru komin í. Komið hafði verið á lagg- irnar öflugu samtryggingarkerfi; klíku listamanna og gagnrýnenda, sem réðu ferðinni. Þessir menn höfðu mikil áhrif á úthlutun listamannalauna og söfnun lista- verka, svo eitthvað sé nefnt. Okkur fannst líka ákveðin til- hneiging vera ríkjandi, kannski ómeðvituð, til að falsa listasögu þjóðarinnar. Þegar Islendingar höfðu bara eitt safn, sem heitir Listasafn íslands, var það auðvit- að skylda þess að gefa rétta mynd af þróuninni í myndlist hverju sinni. Menn ráku fljótt augun í þá staðreynd, að 10—20 ára skeið vantaði inn í listaverkaeignina. Þetta skeið fannst okkur þurfa að fylla upp í með einhverjum hætti og það strax." — Þú nefnir klíku listamanna og gagnrýnenda. Hvaða fólk er það nákvæmlega, sem þú ert að vísa til? „Það er SEPTEM-hópurinn fyrst og fremst, sem ég á við. Þetta var sprækt fólk á sínum tíma og kom ýmsu góðu til leiðar, en síðan virðist hafa orðið einhver brotalöm í hugarfarinu og upp kom valdafíkn sem leiddi til ein- stefnu. Á skömmum tíma mynd- aðist hringur, sem bókstaflega stjórnaði öllu. Þetta fólk var svo heppið að fá meðbyr blaðanna. Gagnrýnendur voru ýmist vinir þeirra eða þá svonefndir fagurker- ar er áttu ítök í ráðuneytunum." — En aftur að Nýlistasafninu sjálfu. Hvaða markmið settuð þið ykkur þegar þið fóruð af stað í upphafi? „Markmiðin tengjast öll söfnun, varðveislu, kynningu, sýningu og tilraunum í myndlist. Við lentum í nokkrum þrengingum í upphafi við að fylla upp í margnefnt ginn- ungagap, sem hafði myndast hjá Listasafni íslands, en vissum nokkurn veginn hvað vantaði og gátum gengið að ýmsum verkum. Mörg eru illa farin, önnur eru týnd og tröllum gefin því fátækir og misskildir listamenn mála yfir málverk sín og rífa sundur skúlpt- úra til að gera aðra úr efninu." — Hvar hóf Nýlistasafnið starfsemi sína? „Við leigðum geymslu í Mjöln- isholti til að byrja með, en núver- andi húsnæði fengum við í árs- byrjun 1980 fyrir einstaka velvild Stefáns Gunnarssonar, banka- stjóra Alþýðubankans. Það tók okkur níu mánuði að koma hús- — Hvað heldurðu að safnið eigi mörg verk í fórum sínum? „Það er dálítið erfitt að svara þessu. Þar kemur tvennt til; ann- ars vegar sú staðreynd, að skrá- setningu er ábótavant af óviðráð- anlegum ástæðum og svo hitt, að oft eru áhöld um hvort meta eigi sum verkanna sem einstaka heild eða röð, að maður tali nú ekki um ef listamaðurinn er ekki innan seilingar. Ég held ég megi þó segja, að verk safnsins séu nú orð- in hátt á annað þúsund talsins." — Nú hefur Nýlistasafnið átt samstarf við ýmsa aðila, jafnt er- lenda sem innlenda, í tengslum við sýningar og jafnvel tónleikahald. Hvað geturðu sagt mér um þann hluta starfseminnar? „Nú væri gaman að telja upp afreksverkin. Ég ætla að nefna þrjú atriði, sem Árni Ingólfsson, þáverandi sýningarstjóri, stóð fyrir ásamt aðstoðarfólki sínu. Þar er fyrst að nefna hátíð með gjörningum í febrúar 1981, þar sem mikill mannfjöldi kom fram með spennandi atriði. Þessi hátíð heppnaðist ákaflega vel og vakti athygli um land allt. Orðið gjörn- ingur féll inn í málið; yrði mönnum gengið fram á skurð- bakka til að spyrjast fyrir hvað menn væru að bralla þar niðri var svarið á þá leið að menn væru að fremja gjörning. Þá má nefna samvinnu við De Apple í Amster- dam um kynningu á myndböndum eftir myndlistamenn og síðan al- þjóðlega kvikmyndaviku. Hvorir tveggja voru þetta afbragðs við- burðir." — Þið eruð með eitthvað í gangi, sem þið nefnið „stop-over- programme". Geturðu sagt mér eitthvað nánar frá því? Bridge Arnór Ragnarsson Metþátttaka í sumarbridge Metþátttaka var í sumar- bridge sl. fimmtudag í Domus. Alls mættu 64 pör til leiks og var spilað í 5 riðlum. Úrslit urðu þessi: A-riðill: Steinunn Snorradóttir — Þorgerður Eyjólfsd. 252 Valgerður Eiríksdóttir — Hrafnhildur Jónsd. 247 Árni Magnússon — Jón Stefánsson 238 Alda Hansen — Stefán Guðmundsson 234 B-riðill: Esther Jakobsdóttir — Guðmundur Pétursson 194 Högni Torfason — Steingrímur Jónasson 189 Jón Björnsson — Ingólfur Lillendal 174 Þetta er unglingalandsliðið i bridge aem spilar þeaaa dagana á Norðurlandamðti unglinga aem fram fer í Þrándheimi í Noregi. Talið frá vinstri: Stefán Pálsson, Bragi Hauksson, Hróðmar Sigurbjörnsson, Karl Logason, Sigurður Sverrisson fyrirliði án spilamennsku, Aðalsteinn Jörgensen og Sigríður Sóley Kristjánsdóttir. Mótið stendur til 30. júní. Bjarki Bragason — Bragi Jónsson C-riðill: Ragnar Ragnarsson — Stefán Oddsson 173 204 Jónatan Líndal — Vilhjálmur Vilhjálmsson 189 Páll Valdimarsson -- Valgarð Blöndal 185 Jón Steinar Gunnlaugss. — Guðjón Sigurðsson 167 D-riðill: Hallgrímur Hallgrímsson — Sigmundur Stefánss. 132 Hrólfur Hjaltason — Jónas P. Erlingsson 122 Ragnar Magnússon — Svavar Björnsson 121 E-riðill: Friðrik Guðmundsson — Hreinn Hreinsson 149 Jón Páll Sigurjónss. — Sigfús ö. Árnason 132 Matthías Kjeld — ólafur Jóhannesson 119 Meðalskor í A 210, í B og C 156 og í D og E 108. Alls hafa nú 416 manns mætt á spilakvöld í sumarbridge (4 kvöld) eða að meðaltali 52 pör á kvöldi. Sigtryggur Sigurðsson er enn efstur i sumarbridge, með 8,5 stig en síðan koma 9 spilarar með 6 stig. Gefin eru 3 stig fyrir efsta sætið í riðli á kvöldi, 2 stig fyrir 2. sætið og 1 stig fyrir 3. sætið (auk meistarastiga Bridge- sambandsins). Spilað verður að venju nk. fimmtudag og hefst spila- mennska í síðasta lagi kl. 19.30. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.