Morgunblaðið - 26.06.1983, Blaðsíða 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
Trésmiðjan Víðir gerir tveggja milljón dollara samning um útflutning á húsgögnum
Úr íslenska sýningarbásnum í Bella Center í Kaupmannahöfn. Kojurnar, sem vöktu hvað mesta athygli af íslensku framleiðslunni.
„Árangur míkillar vinnu
og samstarfe margra manna“
— segir Reimar Charlesson, framkvæmdastjóri Víðis
milli Víðis og Westnova USA Inc.
Fyrir tilstilli og einstakan áhuga
Paul Sveinbjörn Johnson, forseta
Westnova og konsúls íslands í
Chicago og þeirrar þróunarvinnu,
sem varaforseti Westnova, Jan
Rassmussen, hefur unnið ásamt
tæknimönnum Víðis stöndum við í
þessum sporum í dag. í upphafi
töldum við óvarlegt að áætla að
við kæmust inn á erlendan mark-
að á styttri tíma en 3 árum, svo
við megum vel við una.
Það eru ýmis vandkvæði sem
fylgja því að framleiða vöru fyrir
erlendan markað í verðbólguþjóð-
félagi, auk þeirra sem fylgja því
að framleiða fyrir innlendan
markað við þær aðstæður. En
þessir samningar eru í dollurum
og miðast við fob-verð hér í
Reykjavík, svo við getum ekki ver-
ið betur settir hvað það varðar.
Þegar menn verðleggja vöru hér
heima, verða þeir að gera ráð fyrir
að liggja með vöruna í 2—3 mán-
uði og lána síðan vöruna í aðra tvo
mánuði. í okkar tilfelli er opnuð
„ÞEIR SAMNINGAR sem við höfum gert við þetta fyrirtæki
í Florida eru samtals að upphæð 2 milljónir dollara nú,“ sagði
Reimar Charlesson framkvæmdastjóri trésmiðjunnar Víðis í
samtali við Morgunblaðið um daginn, en eins og kunnugt er
hefur trésmiðjan Víðir gert stærsta samning um útflutning á
húsgögnum, sem íslenskt fyrirtæki í húsgagnaiðnaði hefur
gert við erlendan aðila. Morgunblaðið fékk að heimsækja
verksmiðjuna og kynnast framleiðslunni, jafnframt því sem
Reimar skýrði hvað um væri að ræða.
Reimar Charlesson, framkvæmdastjóri Víðis.
Morgunblaðið/ KEE
bankaábyrgð hér um leið og pönt-
unin er staðfest," sagði Reimar.
Þreföldun húsgagna-
framleiðslunnar
Hvað þýðir þessi pöntun fyrir
fyrirtækið?
„Milljón dollara samningurinn
sem við gerðum í upphafi þýddi
tvöföldun á húsgagnaframleiðslu
okkar og þessi milljón dollara
samningur til viðbótar mun þýða
þreföldun sölunnar síðastliðið ár.
Framleiðsla Víðis er þríþætt, í
fyrsta lagi sala og framleiðsla
húsgagna. í öðru lagi framleiðsla
innréttinga samkvæmt útboðum
og í þriðja lagi umboðssala hús-
gagna fyrir aðra innlenda aðila og
það lætur nærri að þessi samning-
ur nemi þreföldun á húsgagna-
framleiðsiunni.
Verksmiðjan er fullkomlega fær
um að taka við þreföldu þessu
magni, án verulegra breytinga.
Það þarf að sjálfsögðu að fjölga
starfsfólki eitthvað en hvað það
verður mikið er ekki ennþá útséð
um. Við erum líka tilbúnir til að
taka við ennþá stærri pöntunum,
því við eigum grunn hér við hlið-
ina, sem er 2000 fermetrar og
verður tilbúinn til byggingar nú í
haust.
Fjárhagsvandi iðn-
fyrirtækja mikill
Hitt er aftur annað mál að fjár-
hagsvandi iðnfyrirtækja er yfir-
þyrmandi og þar er Víðir engin
undantekning. Dæmið stendur
þannig í dag, að að óbreyttu
ástandi verður erfitt að standa við
Búnir að selja alla
fyrstu sendinguna.
„Þetta fyrirtæki keypti af okkur
húsgögn fyrir 50 þúsund dollara
og tryggði sér jafnframt húsgögn
fyrir upphæð allt að 1 milljón
dollara, frá og með afhendingu
fyrstu sendingar. Þessi upphæð
var hins vegar tvöfölduð og þeir
tryggðu sér framleiðslu að upp-
hæð 2 milljónir dollara, nú fyrir
nokkrum dögum, þegar ljóst var
að þeir voru búnir að selja alla
fyrstu sendinguna áður en þeir
höfðu fengið nokkuð af henni í
hendur. Ef vel gengur er engin
ástæða til að ætla annað en að um
áframhaldandi viðskipti verði að
ræða, því að þetta fyrirtæki þjón-
ustar um 500 verslanir, sem versla
með barnahúsgögn um öll Banda-
ríkin.
En þetta er einungis mikilvæg-
asti árangurinn af sýningunni í
Bella Center í Kaupmannahöfn,
sem er upphafið að þessum samn-
ing. Við sömdum einnig um sölu á
húsgögnum til viðskiptavina
Westnova USA Inc. í Chicago að
upphæð 50 þúsund dollarar og það
má segja að fleiri pantanir séu í
bígerð, því að ýmsir aðilar, sem
töluðu við okkur og þá á sýning-
unni, eru alvarlega að íhuga kaup.
nú er árangurinn farinn að sýna
sig. Við höfum endurskipulagt
framleiðsluna með hjálp erlendra
aðila á þessum tíma, meðal annars
tekið upp einstaklingsbónus. Þá
höfum við gefið út auglýsinga-
bæklinga og framleitt kynningar á
myndböndum* og við reynum að
gera eins vel og það sem við best
þekkjum annars staðar frá hvað
það snertir.
Þetta er árangur mikillar vinnu
og náins samstarfs margra
manna. Þó tel ég tvímælalaust að
lykillinn að þessum markaði hafi
verið afhentur okkur með þeim
samstarfssamningi sem náðist
Beiðni um tilboð frá
40 aðilum í 17 löndum.
í þriðja lagi tókum við við
beiðnum um tilboð frá um 40 aðil-
um í 17 löndum og nokkrir þeirra
hafa fylgt beiðnunum eftir með
símhringingum.
Við erum búnir að vinna mikið
og skipulega að þessu í tvö ár og
Séð yfir hluta verksmiðjunnar.