Morgunblaðið - 26.06.1983, Qupperneq 32
80
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNl 1983
*
T
Píll Sveinsson í áburðarfluginu á
Reykjanesi. Undan búknum, aftan
lendingahjólanna, streymir áburðurinn
út úr flugvélinni, og í glugganum grillir
í Eric Tómasson flugmann.
LAIVDG RÆÐSLAIV
MorgunblmAiA/KrÍNtján Kinarxnon.
„Flugvélin heftir sál“
Páll Sveinsson reynist vel á fimmtugsaldri
„Það er sál í flugvélinni og hefur verið frá upphafi," sagði Björn Guðmunds-
son Flugleiðaflugstjóri að afloknu áburðarflugi á Páli Sveinssyni, flugvél Land-
græðslunnar, á miðvikudag. Morgunblaðsmenn brugðu sér þá í flug með Birni
og aðstoðarmanni hans, Eric Tómassyni Flugleiðaflugmanni, er þeir dreifðu
áburði á Keilissvæðið á Reykjanesi á öðrum dreifingardegi Páls á þessu ári.
í fluginu vildi það til að þrýsti-
vökvarör sprakk með þeim afleið-
ingum að vökvinn fór út um alla vél
og í léttu spjalli að flugi loknu var
því slegið fram að Páll Sveinsson
þyldi ekki fréttamenn, hann vildi fá
að vinna verk sitt í friði fyrir þeim.
Rifjuð voru upp ýms atvik af þessu
tagi sem hent höfðu er fjölmiðla-
fólk var með í ferðinni, og reyndar
ýms önnur, sem skjóta stoðum und-
ir þá kenningu Björns og annarra,
að sál sé í flugvélinni.
„Við klárum á Reykjanesinu í dag
eða morgun og förum síðan í Gunn-
arsholt," sagði Stefán H. Sigfússon
hjá Landgræðslunni eftir flugið.
Stefán hefur haft yfirumsjón með
áburðarfluginu á Páli Sveinssyni,
sem hófst fyrir 10 árum.
Stefán sagði góðan árangur hafa
orðið af áburðardreifingu á Reykja-
nesinu, nema á Keilissvæðinu. Þar
væri áberandi lítill árangur, rétt
vottaði fyrir nokkrum rákum.
Gróðurinn næði sér líklega ekki upp
af beitarálagi. Þarna væri afréttur
Reyknesinga austan landgræðslu-
girðingarinnar sem liggur úr Voga-
víkinni yfir að Grindavík. Sauðfé
væri hins vegar ekki á lausagangi
vestan girðingarinnar og þar væri
áberandi mikill árangur af áburð-
ardreifingunni, á Stapanum, við
Garð, í tveimur hólfum við Sand-
gerði, við Hafnir og Grindavík.
Að sögn Stefáns átti að þessu
sinni að dreifa 84 tonnum af áburði
og grasfræi á Reykjanesi, en í
hverri ferð dreifir Páll Sveinsson
fjórum tonnum. Flugmennirnir
fljúga í 200 feta hæð yfir jörð til að
dreifingin verði sem heppilegust og
losunarbúnaðurinn er þannig stillt-
ur að vélin tæmir sig á einni og
hálfri mínútu, en að jafnaði þýðir
það að áburðarlínan verður fimm
til sex kílómetra löng.
Flugið tók ekki nema um 25 mín-
útur. Björn og Eric flugu út undir
Grindavík og sneru þar við og
opnuðu síðan lestarlúgurnar undir
Fagradalsfjalli og dreifðu til norð-
austurs í átt að Keili. Sveitarfélögin
á Suðurnesjum bera hluta kostnað-
ar við áburðarflugið á Reykjanesi,
og Keflavíkurverktakar hafa lagt fé
í áburðardreifingu á Keilissvæðinu
að sögn Stefáns.
Minna magn
Að sögn Stefáns H. Sigfússonar
mun Páll Sveinsson dreifa minna
magni af áburði en áður. Meðan
þjóðargjafarinnar naut við hefði
hann dreift rúmlega 2.000 tonnum á
ári, en undanfarin tvö ár hefði 1.200
tonnum verið dreift, og nú sæju
þeir Landgræðslumenn fram á að
fjármagn það sem skammtað væri í
landgræðsluáætlun tvö dygði ekki
nema til að dreifa um 900 tonnum.
Hins vegar væri vonast til að
hægt yrði að dreifa talsvert meira
magni á næsta ári, þegar greidd
yrði út verðtrygging þjóðargjafar
tvö, sem Stefán svo nefndi, ef ekki
yrðu áframhaldandi hækkanir á
áburði. Framlag til Landgræðsl-
unnar hækkaði um 40% milli ára
meðan áburðurinn hækkaði um
70%, en hann er einna stærsti út-
gjaldaliðurinn hjá Landgræðslunni.
Að afloknu áburðarflugi á
Reykjanesi, sem er m.a. notað til
endurþjálfunar flugmanna og því
nokkuð um aukahringi og lend-
ingar, verður haldið til Gunnars-
holts til dreifingar á landinu sunn-
anverðu og í afréttum þar. Síðan
verður skroppið norður í Aðaldal til
dreifingar í Þingeyjarsýslum.
Sál í Páli
„Það hefur aldrei vantað flug-
menn til að fljúga Páli, framlag
Flugleiðamanna er alveg einstakt,
en það er um 40 manna lið frá
Flugleiðum sem stendur á bak við
þessa dreifingu. Það er sérstaklega
ánægjulegt að vinna með þessum
mönnum. Þeir þekkja flugvélina og
hún þá, og það er engin spurning að
hún hefur sál og þarf stundum að
sýna sig,“ sagði Stefán.
Björn Guðmundsson þekkir Pál
Sveinsson vel, hefur tekið þátt í
áburðarfluginu frá upphafi, árinu
1973, og flaug flugvélinni áður hjá
Flugfélagi íslands, þar sem hann
byrjaði flugmannsstörf 1949, og því
með fleiri þúsund flugtíma að baki
á „þristum". Hann getur því nefnt
margt er styrkir þá kenningu að sál
sé í Páli.
Eitt sumar var hann að dreifa við
Þorlákshöfn, og á leiðinni frá
Gunnarsholti flaug hann yfir hóp
Lionsmanna, sem var að handdreifa
áburði þar um slóðir. Þá gerði Páll
sér lítið fyrir og opnaði lestina upp
á gátt svo allt hlassið, fjögur tonn,
datt niður í eina hrúgu við fæturna
á Lionsmönnunum.
Þá stóð eitt sinn til að dreifa á
Páli á Geldinganesi, og flugið sér-
staklega auglýst svo fólk gæti
fylgst með. Þegar stundin rann upp
hafði fjöldi fólks safnast saman á
Geldinganesi, en í fyrstu atrennu
var eins og Páli fyndist fátt um til-
standið, því hann neitaði að opna
áburðarlestina. Var því snúið til
baka til að athuga hvað amaði að,
og þegar flugvélin var að renna í
hlað hjá Flugfélaginu, sem þá var,
gerði Páll sér lítið fyrir og losaði
hlassið á stæðið.
Þeir Björn og Stefán kunnu einn-
ig margar sögur þar sem eitthvað
hafði farið úrskeiðis er fjölmiðla-
fólk var með, og töldu því víst að
Páll þyldi ekki fréttamenn. í flug-
, inu á miðvikudag fór allt vel að lok-
um, þeim Birni og Eric tókst að
skjóta niður lendingarhjólunum áð-
ur en allur vökvinn fór til spillis.
Vængbörðin fóru hins vegar ekki
niður í aðfluginu, en það virtist lítil
áhrif hafa á Eric, sem lenti Páli vel
þrátt fyrir það. Eric er ungur flug-
maður og hóf störf hjá Flugleiðum
fyrir tveimur árum.
Flugvél á
fimmtugsaldri
„Hún sýnir engin ellimerki, er í
toppstandi þótt komin sé á fimm-
tugsaldur," sagði Björn Guð-
mundsson um áburðarflugvélina.
Flugvélin var smíðuð 1942 og er því
41 árs. Hún kom hingað til lands
sem hervél Bandaríkjamanna, en
síðan eignaðist Flugfélagið hana.
Hún fór út af akbraut á Keflavíkur-
flugvelli 1948 og laskaðist, var síðan
dregin eftir gamla Keflavíkurvegin-
um til Reykjavíkur, þar sem dundað
var við að gera hana upp og flaug
hún aftur 1954. Flugfélagið gaf
hana síðan Landgræðslunni er
Fokker-flugvélarnar leystu þrist-
ana af hólmi á innanlandsleiðum.
Og það segja fróðir menn, að þótt
Páll Sveinsson sé nú kominn á
fimmtugsaldur eigi hann eftir að
duga lengi enn, þar sem á honum
séu engin ellimerki.
— ágás.
Stefán H. Sigfússon útskýrir áburóar-
dreifinguna á Reykjanesi. Er hann
með kort af sværtinu fyrir framan sig,
en kortirt er útatart í þrýstivökva, sem
fór út um allt í flugvélinni er rör
sprakk f fluginu.
Páll Sveinsson lestartur áburrti og grasfræi fyrir næsta flug. í hverri ferrt dreifir flugvélin fjórum tonnum.
Augljós árangur áburðarflugsins á Reykjanesi. Þessar rákir eru á Stapanum, mertfram Keflavíkurveginum,
og sézt árangurinn hvað bezt úr lofti.
Björn Gurtmundsson (t.v.) og Eric Tómasson fyrir fram-
an Pál Sveinsson.