Morgunblaðið - 26.06.1983, Page 40
88
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
■ inc Uniwmi fnn Sindtcit._____________UL
» Hém« stendur \po&! Ekk't mó. opna vyélino-
mcíSan cí. v/irtdun sfcendur."
Ást er ...
... að annast vorhrein-
gemingamar saman.
TM Reg U.S. Pat Ott -all rlghts resarved
®1983 Los ^ngetes Times Syndicate
Þetta verður engin bió. Nýi lærl-
ingurinn er svona að ná fílingunni
á skærunum!
X'
l*að platar nú enginn mig upp í
svona fyrirbrigði.
HÖGNI HREKKVÍSI
„r IMMTÍUOGSe.* Á KLAPPMÆUMM'"
Þessir hringdu . .
Kristindómsfræðsla
inn á barnaheimilin
7279-0340 hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Er ekki hægt
að koma á einhverri kristilegri
uppfræðslu á barnaheimilum hér,
t.d. í samvinnu við guðfræðideild
Háskólans, þannig að nemendur
deildarinnar færu til starfa út á
meðal barnanna og fræddu þau
um kristna trú, einu sinni í viku
eða svo. Með breyttum þjóðfé-
lagsháttum held ég að æ algeng-
ara verði, að það farist fyrir að
bðrnin sæki sunnudagaskóla, að
það víki t.d. fyrir skíðaiðkunum.
Þennan þátt vantar þá alveg hjá
börnunum og það skapast ákveðið
tóm, sem getur orðið afdrifaríkt
fyrir þau seinna meir. Heyrst hafa
háværar raddir, sem hafa nefnt
það innrætingu að fræða bðrn um
kristna trú, þau eigi að velja sjálf.
En staðreyndin er hins vegar sú,
að við erum búin að kjósa fyrir
þau með skírninni og við erum að
bregðast börnunum að mínu mati,
ef við látum undir höfuð leggjast
að fræða þau um trúna. Mig grun-
ar að fóstrur almennt séu á móti
því að taka að sér þetta starf o’g
þess vegna beini ég því til mennta-
málayfirvalda, hvort ekki sé hægt
að fara fyrrnefnda leið að þessu
marki. Börn hafa eftir því sem ég
þekki til mikla þörf á þessu sviði.
Þau eru oft á tíðum lokuð inni all-
an daginn, koma þreytt heim á
kvöldin og fá oft lítil eða engin
tækifæri til að fræðast af foreldr-
um sínum um eitt eða neitt. Og
svo erum við undrandi, þegar
börnin vaxa úr grasi og eru svona
og svona og hugsa ekkert um
þessa hluti.
Annað í sambandi við börn. Mér
leiðist ævinlega að heyra fram-
burðinn „böddn“ þegar rætt er um
börn í útvarpi og sjónvarpi. Ég fer
aðeins fram á að r-inu sé leyft að
fljóta með.
Forsætisráðherra
komi reglulega fram
og skýri stöðu mála
Sveinn Björnsson verkfræðingur
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Eg er með hugmynd, sem
ég vildi koma á framfæri. Hún er
ósköp einföld og felst í því, að for-
sætisráðherra komi reglulega
fram í sjónvarpi og/eða útvarpi og
skýri stöðu þjóðarbúsins í það og
það skiptið, án þess að þurfa að
kljást við fréttamenn eða and-
stæðinga. Þetta þekkir maður frá
ýmsum löndum öðrum. Ég held að
þörfin fyrir slíka hefð sé ekki
minni hér hjá okkur, að „skipper-
inn“ á skútunni fái tækifæri til að
gera áhöfninni grein fyrir stöð-
unni hverju sinni á málefnalegan
hátt. Það gæti hann stuðst við
skýringarmyndir og línurit (día-
grömm) og útskýrt á myndrænan
og aðgengilegan hátt fyrir al-
menningi ástand og horfur, hvað
áunnist hefði og að hverju væri
stefnt af hálfu ríkisstjórnar hans.
Það er nauðsynlegt hverri ríkis-
stjórn, að almenningur fái skýra
mynd af því sem er að gerast og
skilji það. Að öðrum kosti er hætt
við að starfsfriðurinn sé úti.
Maður lifir sig
inn í söguefnið
Sigríður Sörensdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
hefur lengi langað að koma á
framfæri sérstöku þakklæti til
Kristínar Önnu Þórarinsdóttur,
leikkonu, fyrir lestur síðdegissög-
unnar, Gott land, eftir Pearl S.
KÍ88
A stóran hóp
aðdáenda
hér á landi
Þ.G. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
I dálkum þínum 17. júní sl.
skrifaði Bjarni Þór Jónsson um
hljómsveitina Kiss og bar fram þá
ósk, að hún yrði fengin hingað til
lands til hljómleikahalds.
Ég vil taka undir orð Bjarna,
því að þessi ágæta rokkhljómsveit
á sér stóran hóp aðdáenda hér á
landi.
Með vinsemd og virðingu."
Ingvari finnst að fúna taki flokksins viður.
Honum þykir það svo miður,
að þjóðin telur Framsókn niður.
Hákur
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Þeir heyrðu til hvors annars.
Rétt væri: Þeir heyrðu hvor til annars.
Leiðréttum börn sem flaska á þessu!