Morgunblaðið - 29.07.1983, Síða 11

Morgunblaðið - 29.07.1983, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1983 11 Frá merkum samtökum Bókmenntir Erlendur Jónsson Slysavarnafélag íslands. ÁRBÓK 1983. 178 bls. Rvík. 1983. Saga Slysavarnafélags íslands sýnir hvers frjáls félagasamtök eru megnug. Félagið var í fyrst- unni stofnað af brýnni nauðsyn, lífsnauðsyn. »Á þriðja áratugnum, eða rúmum þrem árum áður en SVFÍ var stofnað, hafði átakan- legt sjóslys orðið í minni heima- byggð, þar sem tíundi hver maður þorpsins hafði týnst í aftaka- veðri,« sagði Gunnar Friðriksson, fyrrverandi forseti félagsins, í kveðjuræðu. Sjóslys voru þá mun tíðari en slys í landi. Starf slysa- varnafélagsins var því skipulagt með hliðsjón af björgun úr sjávar- háska, fyrst og fremst. í árbókinni eru að venju félaga- skýrslur ýmsar, en einnig þættir um slys og björgunarafrek. Þann- ig er hér allýtarlegur þáttur um Pelagus-slysið við Vestmannaeyj- ar. Pelagus var sem kunnugt er belgískur togari. Tildrög slyssins voru þau að vél skipsins bilaði fyrir sunnan land og kom þá ann- að skip og tók Pelagus í tog áleiðis til Vestmannaeyja. Þegar undir Eyjar kom var haft samband við umboðsmann í Eyjum og fengu Belgarnir að vita að hafnsögu- maður tæki skipin ekki inn fyrr en með birtingu og skyldu þeir því halda sjó til morguns. Þeim boð- um hlýddu þeir ekki. Taugin á milli skipanna slitnaði og Pelagus rak upp í stórgrýtisurð á versta stað. Hannes Þ. Hafstein ritar hér stuttan þátt um atburð þann er báturinn Léttir fórst á Breiðafirði. Þrír voru um borð, skipstjóri og börn hans tvö, sautján ára stúlka og átján ára piltur. Bátnum hvolfdi skyndilega. »Við slysið drukknaði skipstjórinn og týndist en systkinin komust á kjöl og síð- an um borð í gúmmíbjörgunarbát- inn eftir að hafa sýnt ótrúlegt þrek, áræði og dugnað.« Og satt er það. Af frásögn þeirra að dæma mega undur heita að þau skyldu komast af. Þar voru drýgðar sannkallaðar hetjudáðir. Nú er svo komið að slys á landi eru orðin tíðari en sjóslys. Algeng- ust eru umferðarslys af ýmsu tagi. Orsakanna getur þá allt eins verið að leita til aulaskapar, kæruleysis. Ennfremur kemur fyrir að menn villast í óbyggðum. Þá er hafin leit. Frá einni slíkri segir óalfur íshólm Jónsson í þættinum Leit að slösuðum manni á afrétti Laugdæla. Tildrög slyssins voru þau að þrlr menn lögðu leið sína um afréttinn á vélsleðum. Einn þeirra ók fram af gilbarmi, lenti í grjóturð og slasaðist. Var nú hafist handa að sækja hann og færa til byggða. En þegar á staðinn kom gripu leitar- menn í tómt. Fuglinn var floginn! Allt endaði þó skaplega, sumpart vegna hagstæðra tilviljana. En um vélsleðakappana og útbúnað þeirra segir sögumaður, sem jafn- framt tók þátt í leitini: »Þeir voru illa klæddir; þeir voru matarlaus- ir; þeir voru hjálparlausir; þeir voru ókunnugir á þessum slóðum; þeir voru fyrirhyggjulausir að yfirgefa slysstað, þegar búið var að fara eftir hjálp.* Segir sög- umaður að ekki sé von á góðu þeg- ar stofnað sé til ferðalaga með slíkum hætti. Algengasta tegund slysa munu nú vera umferðarslys í þéttbýli. Hannes Þ. Hafstein Akstur er orðinn svo hversdags- legur að fólk er hætt að vanda sig og ugga að sér. Til dæmis er at- hyglisvert að mörg slys verða með þeim hætti að ekið er á ljósa- staura. Þó fyrir geti komið að ástand ökutækis eða tilfallandi óhöpp valdi mun ökumanni sjálf- um oftast um að kenna: hann gleymir sér, horfir á eitthvað ann- að en veginn framundan. Slys við ár vötn verða sjaldnar en eru þó hvergi fátíð. Slysavarna- félagið varar við — vafalaust af marggefnu tilefni — að þeir, sem hafa áfengi um hönd, leggi út á ár og vötn á bátum. Raunar gildir hið sama um hvers konar ferðalög. Þess má að lokum geta að marg- ar myndir prýða þessa greinar- góðu árbók, bæði af félögum slysa- varnafélaganna og eins af atburð- um þeim sem frá er greint í bók- inni. Erlendur Jónsson QRLRNT STATION verð kr.338.900 (Gengl 5.7.’85) Allir á völlinn Víkingur — ÍBK á Laugardalsvelli í kvöld kl. 20.00. Stepstöðin m Blónnihúóin \or Austuiveri VórcHcxtie. 4> Austurveri MKggSjgSB WmmÝSi Video Sport Miöbæ, Háaleitisbraut, Ægisíöu 123, sími 33460. HDglerborg hf fy\ OAISMRAUNI 5 - MAFNARFIROt - SlMl 53333

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.