Morgunblaðið - 29.07.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1983
15
SÆRÐIST í ÁRÁS — Einn þeirra 33, sem slösudust i árás grímu-
klæddra manna á arabíska háskólann í Hebron á vesturbakka Jórdan-
ár, sést hér fluttur á milli sjúkrahúsa í fyrradag. (Sim»mjnd ap.)
Hundruð tyrkn-
eskra fanga í
hugursvelti
í tyrkneskum fangelsum. Benda
lögfræðingar á, að hvergi sé
stafkrók að finna í tyrkneskum
lögum, þar sem leyfð er harð-
neskjuleg meðferð fanga.
Mikil örtröð hefur verið í
tyrkneskum fangelsum undan-
farna mánuði og eru þau flest
yfirfull. Hafa yfirvöld í landinu
lýst yfir áhyggjum sínum vegna
þessa ástands. Eru dæmi þess,
að fangar hafi orðið að hírast
innan rimlanna í átta mánuði
áður en mál þeirra hafa verið
tekin fyrir.
Norðmenn
kvænast
til fjár
Osló, 28. júlí. Frá Rolf Lövström,
frétUriUra Morgunbladsins.
NORÐMENN ganga í síauknum
mæli í hjónaband með útlendingum,
gegn greiðslu, að því er Carl Hugo-
Lund, yfirmaður norska útlendinga-
eftirlitsins segir í viðtali við Aften-
posten.
Venjulega er tilgangurinn sá
einn með giftingunum, að koma
viðkomandi útlendingi inn í land-
ið, þannig að hann fái dvalar- og
atvinnuleyfi í Noregi. Margir yrðu
annars að snúa frá vegna tak-
markana á innflutningsleyfum.
IsUnbúl, 28. júlí. AP.
MÖRG hundruð fanga bættust í
dag í hóp 150 vinstrisinna, sem
eru í haldi, og hófu hungurverkfall
til þess að mótmæla einangrun og
barsmíðum, sem sumir fanganna
hafa sætt. Það voru aðstandendur
fanganna og lögfræðingar þeirra,
sem skýrðu frá þessu í dag. -
Að sögn þeirra var talið, að
fjöldi mótmælendanna næmi
um 1.800 í hinum ýmsu fangels-
um landsins. Var jafnframt frá
því skýrt, að flytja hefði orðið
fjölda fanga á hersjúkrahús
vegna veikinda í tengslum við
sult.
Þessi óvæntu og áður óþekktu
mótmæli fanganna miða einkum
að því að afnema með öllu ein-
angrun fanga, sem tíðkast hefur
Blóðugar erjur Tamila
og Sinhala á Sri Lanka
Colombo, Sri Lanka, 28. júlí. AP.
SAUTJÁN fangar af ættflokki Tam-
ila voru myrtir í Welikada-fangels-
inu í Colombo í vikunni, að þvi er
yfirvöld hafa staðfest. Þetta er í ann-
að sinn á þessari viku að fjöldi Tam-
ila er drepinn innan fangelsisveggja.
Talið er fullvíst, að ódæðismennirnir
hafl verið úr röðum Kinhalesa í bæði
skiptin.
hefði verið brenndur til bana í
ólátum 130 sjómanna í hafnar-
borginni Trincomalee. Því var loks
bætt við, að tveir hefðu látist í
lestarslysi á leiðinni Kandy-Col-
ombo snemma í morgun. Upplýs-
ingar þessar voru veittar af innan-
ríkisráðuneytinu.
AIls hafa því 71 látist á Sri
Lanka að undanförnu í óeirða-
bylgju, sem hófst sl. laugardag er
skæruliðar Tamila sátu fyrir 13
stjórnarhermönnum og drápu þá.
Tala látinna er af sumum talin
vera um 100, auk þess sem mörg
hundruð manns eru sögð hafa
slasast. Opinber yfirvöld hafa ekki
vilja staðfesta þessar fregnir.
Tveir Tamilar særðust ennfrem-
ur í átökunum í fangelsinu. Gengu
árásarmennirnir svo vasklega
fram í aðgerðum sínum, að beita
varð táragasi til þess að hrekja þá
aftur í klefa sína. Voru 36 fangar
færðir á milli fangelsa eftir átök-
in.
Fyrstu fregnir hermdu, að átök-
in hefðu ekki átt sér stað innan
fangelsisveggjanna heldur á öðr-
um ótilgreindum stað.
Þá voru þrír fangar drepnir í
uppþoti í fangelsi í borginni
Jaffna á norðurhluta Sri Lanka í
gær. Var staðfest, að þar hefðu
Tamilar verið á ferð og banað
þremu. Sinhalesum. Jafnframt
bárust af því fregnir, að maður
Afturreka
Osló, 28. júlí. Frá Rolf Lövström,
fréttariUra Mbl.
UÓSMYNDARA frá Ósióarskrif-
stofu TASS-fréttastofunnar sovézku
var í dag meinað aó koma til Sví-
þjóðar þrátt fyrir hótanir hans við
landamæraverði um hefndir af hálfu
sovézkra yfirvalda.
Ljósmyndarinn hugðist fara til
móts við hjólreiðamenn, sem eru í
friðarför frá Moskvu til Washing-
ton. Hann var ekki með vegabréfs-
áritun í lagi og var því snúið við.
Brást ljósmyndarinn hinn versti
við og gerðist mjög hrokafullur og
hótaði ýmsu í nafni sovézkra yfir-
valda.
Allir Sovétmenn, sem ætla til
Svíþjóðar, verða að hafa fengið
vegabréfsáritun. Ljósmyndarinn
hafði fengið áritun til að fara frá
Osló til Stokkhólms, en leyfið
rann út 15. júlí sl.
■ ■■
\V/
ERLENT
Nauölending í Gimli
Boeing-767 flugvél frá Air Canada flugfélaginu varð að nauðlenda á laugardag vegna bilunar og nærtækast var
að lenda á flugvelli við Gimli í Manitóba, á íslendingaslóðum, en þar var þessi mynd tekin. Flugvöllurinn er
ekki lengur notaður til flugumferðar, en kappakstursmenn hafa lagt hann undir sig.
Undirheimaforingi
veginn á götu í París
París, 28. júlí. AP.
ÓÞEKKTUR morðingi skaut
snemma í morgun þekktan undir-
heimaforingja, Gilbert Zemmour, til
bana. Zemmour var fjórði bróðirinn
í hinni þekktu „Z“-klíku gyðinga,
sem var allsráðandi í undirheimum
l'arísarborgar um tveggja áratuga
skeið.
Að sögn lögreglu var Zemmour
skotinn um 50 metra frá íbúð
sinni, þar sem hann var á gangi
með fjóra hunda sína um kl. 5.30 í
morgun. Fundust sex kúlur í líki
Zemmour við rannsókn slyssins.
Nokkrar klukkustundir liðu áð-
ur en líks Zemmour fannst. Það
voru starfsmenn borgarinar, sem
komu auga á það, þar sem það lá í
blóðpolli.
Gilbert Zammour hafði orð á
sér fyrir að vera löghlýðnastur
fimm bræðra. Hann var sagður
hafa skilið við félagsskap bræðr-
anna fyrir nokkrum árum og hóf
þá hótelrekstur á eigin spýtur.
Gilbert er annar Zammour-
bræðranna, sem lætur lífið á
þessu ári. Leiðtogi bræðranna,
Eddie, var skotinn í Miami í
febrúar.
AMERÍKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
City of Hartlepoo! 2. ágúst
Bakkafoss 12. ágúst
City of Hartlepool 23. ágúst
Bakkafoss 2. sept.
NEW YORK
City of Hartlepool 1. ágúst
Bakkafoss 11. ágúst
City of Hartlepool 22. ágúst
Bakkafoss 1. sept.
HALIFAX
City of Hartlepool 4. ágúst
City of Hartlepool 25. ágúst
BRETLAND/
MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 31. júlí
Eyrarfoss 14. ágúst
Álafoss 21. ágúst
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 1. ágúst
Álafoss 8. ágúst
Eyrarfoss 15. ágúst
Álafoss 22. ágúst
ANTWERPEN
Eyrarfoss 2. ágúst
Álafoss 9. ágúst
Eyrarfoss 16. ágúst
Álafoss 23. ágúst
ROTTERDAM
Eyrarfoss 3. ágúst
Álafoss 10. ágúst
Eyrarfoss 17. ágúst
L Álafoss 24. ágúst
HAMBORG
' Eyrarfoss 4. ágúst
■ Álafoss 11. ágúst
Eyrarfoss 18. ágúst
Álafoss 25. ágúst
WESTON POINT
Helgey 2. ágúst
Helgey 17. ágúst
LEIXOES
Skeiðsfoss 5. ágúst
Skeiðsfoss 7. sept.
BILBAO
Skeiðsfoss 4. ágúst
Skeiðsfoss 5. sept.
I NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Manafoss 29. júlí
Dettifoss 5 ágúst
Mánafoss 12. ágúst
Dettifoss 19. ágúst
KRISTIANSAND
Mánafoss 1. ágúst
Dettifoss 8. ágúst
Mánafoss 15. ágúst
Dettifoss 22. ágúst
MOSS
Mánafoss 2. ágúst
Dettifoss 5. ágúst
Mánafoss 16. ágúst
Dettifoss 19. ágúst
HORSENS
Dettifoss 10. ágúst
Dettifoss 24. ágúst
GAUTABORG
Mánafoss 3. ágúst
Dettifoss 10. ágúst
Mánafoss 17. ágúst
Dettifoss 24. ágúst
KAUPMANNAHÖFN
Mánafoss 4. ágúst
I Dettifoss 11. ágúst
f Mánafoss 18. ágúst
| Dettifoss 25. ágúst
HELSINGJABORG
Mánafoss 5. ágúst
Dettifoss 12. ágúst
f Mánafoss 19. ágúst
I Dettifoss 26. ágúst
HELSINKI
| irafoss 25. júli
■j irafoss 15. ágúst
GDYNIA
a irafoss 18. ágúst
ÞÓRSHÖFN
Jt Dettifoss 20. ágúst
f m ^
VIKULEGAR
STRAND5IGLINGAR
-framogtilbaka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá Í5AFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
allafimmtudaga
EIMSKIP
■f.