Morgunblaðið - 30.07.1983, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JtJLÍ 1983
+ Eiginmaður minn, KRISTINN K. ALBERTSSON, bakarameistari, Byggöarenda 9, Reykjavrk, andaðist í Landspítalanum að morgni fimmtudagsins 28. júlí. Fyrir hönd vandamanna, Dýr|ojf Jón8dóltjr.
+ Eiginmaöur minn, MAGNÚS PÉTURSSON, hljóófæraleikari, varö bráðkvaddur þann 28. júlí. Ragnheiöur Hannesdóttir.
+ ANNA LOVÍSA PÉTURSDÓTTIR, Túngötu 16, Reykjavík, lést á heimili sínu 28. júlí. Fyrir hönd vandamanna, Anton Ármannsson
+ Eiginmaöur minn, faöir okkar og fósturfaðir, JÓN SVEINN GÍSLASON, Tunguheiöi 8, Kópavogi, verður jarösunginn frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 2. ágúst kl. 10 30 Anna K. Kristensen, Siguröur Jónsson, Gísli S. Jónsson, Anna Jóna Árnadóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Eiginmaður minn og faöir okkar, TRYGGVI GUNNARSSON, Tjarnarlundi 11E, Akureyri, j andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aöfaranótt 27. júlí. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 2. ágúst kl. 13.30. , Ólöf Ragnheiöur Helgadóttir, börn og tengdabörn.
+ Eiginkona mín og móöir, JÓRUNN BJÖRNSDÓTTIR, Lindargötu 10, Reykjavík, andaöist 26. júlí sl. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju miö- vikudaginn 3. ágúst kl. 10.30. Sigurjón Híldibrandsson, Þorbjörg Jóna Sigurjónsdóttir.
+ Útför móöur okkar, ÞORGBJARGAR BLANDON, fer fram frá Kópavogskirkju miövikudaginn 3. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er góöfúslega bent á hjúkrunar- f heimiliö Sunnuhlíö í Kópavogi. Ingibjörg Blandon, Valgeröur Blandon, Þorgerður Blandon, Erla Blandon.
+ Maðurinn minn og faðir okkar, ÓLAFURJÓHANNSSON, trésmíöameistari, Engihlíö 12, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 3. ágúst kl. 4. Ingunn Eir ksdóttir, Svanhildur Ólafsdóttir, Guörún Ólafsdóttir, Guömundur J. Ólafsson.
+ Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRÚN PÁLINA VILHJÁLMSDÓTTIR, andaöist að heimili sínu, Móabaröi 8, Hafnarfirði, þriöjudaginn 26. júlí. Útförin fer fram frá Hafnarfjaröarkirkju miövikudaginn 3. ágúst kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir, en þeir, sem vilja minnast hennar, láti Styrktarfélag vangefinna njóta þess. Sigmar Björnsson, Guðlaug Sigmarsdóttir, Tryggvi Jóhannsson, Hörður V. Sigmarsson, Sigurbjörg E. Guömundsdóttir, Björn Sigmarsson, Vilhjálmur Jónsson, og barnabörn.
Minning:
Guðrún Hrefna
Guðjónsdóttir
Fædd 12. febrúar 1943
Dáin 22. júlí 1983
Það var einu sinni lítil stúlka.
Þessi stúlka var vinkona mín. Hún
átti foreldra, sem elskuðu hana og
í skjóli þeirra óx þessi litla stúlka
og dafnaði. Hún gekk í skóla og
þegar hún var orðin „stór“ fór hún
í Kennaraskólann og varð kennari.
Hún kenndi síðan börnum í 20 ár
og börnin elskuðu hana og hún
þau.
Um það leyti, sem hún lauk
námi, gifti hún sig og eignaðist tvö
börn, stúlku og dreng. Þau urðu
bæði sólargeislar mömmu sinnar
og voru henni ljúf og góð eins og
hún þeim.
En því miður er lífið ekki bara
ævintýri, þar sem allir elska alla
átakalaust.
Vinkona mín, Guðrún Hefna
Guðjónsdóttir, fæddist ásamt tví-
burabróður sínum, Þorbirni, í
þennan heim 12. febrúar 1943.
Foreldrar hennar voru ólöf
Bjarnadóttir, sem lést í apríl sl. og
Guðjón Guðmundsson, sem nú sér
á bak ástkærri dóttur.
Tvo eldri bræður átti Guðrún.
Bjarna og Halldór, og yngri syst-
ur, Jónu. Við Gunna kynntumst
um það leyti er börn byrja að átta
sig á því að þau eru ekki hluti af
móður sinni heldur sjálfstæðir
einstaklingar. Hús foreldra okkar
stóðu hlið við hlið og við lékum
okkur saman flestum stundum.
Áttum okkar leyndarmál, gleði, og
sorgarstundir, sem á þeim árum
voru af öðrum toga spunnar. Æsk-
an leið og við tóku „fullorðinsárin"
og við stofnuðum ásamt mökum
hvor sitt heimili, sem á þeim tíma
þótti hentugt að drægist ekki um
of fram yfir tvítugsaldurinn! En
við héldum áfram að vera góðir
„vinir", þó að nú yrðu samveru-
stundirnar örlítið strjálli. Guðrún
var dul í lund, svo dul að við vinir
hennar gerðum okkur áreiðanlega
aldrei fulla grein fyrir því.
Allt sem henni þótti miður fara
læsti hún niður í hirslur sálar
sinnar og gætti þess af fremsta
megni að helst enginn maður gæti
skyggnst þar inn. Því er verr hve
við mennirnir erum oft glám-
skyggnir, nærsýnir og eigingjarn-
ir. Við lifum í hörðum heimi í ísa-
köldu landi, sem sumir segja að sé
á mörkum hins byggilega heims.
Gunna mín bugaðist í næðingnum
eins og margt fallegt og viðkvæmt
blómið á undan henni. Því verður
ekki breytt, því að við fáum ekki
snúið framrás lífsins. En við get-
um hlúið að blómunum hennar,
sem hún annaðist sjálf af natni og
elsku. Að Margréti, Guðjóni Snæ
og litla ömmubarninu, Steindóri.
Á þann hátt höldum við minning-
una um hana í heiðri. öllum er
okkur tregt tungu að hræra og
þungt fyrir brjósti á sorgarstund.
En við skulum reyna að horfa
fram um veg og brosa gegnum tár-
in í trausti þess, að er Guðrún
stígur á strönd hins fyrirheitna
lands bíður hennar móðir með út-
réttan faðm, og eilífur friður.
Guð gefi ástvinum hennar öllum
styrk, von og trú.
Áslaug Benediktsdóttir.
Faðir okkar,
EINAR ANGANTÝSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 2. ágúst kl. 15.
Dœtur hins látna.
Móðir okkar og systir,
ELÍN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Höskuldsstöðum,
sem andaðist 25. júlí í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri, veröur
jarösungin frá Munkaþverárkirkju miövikudaginn 3. ágúst kl. 14.
Börn og systir hínnar látnu.
Þægilegustu vöðlur sem fram-
leiddar hafa verið.
Léttar, sterkar og teygjanlegar.
Vöðlurnar eru án sauma og ná hátt upp á brjóst,
fullkomlega vatnsþéttar. Leistinn er formaður sem
sokkur og hægt er að nota hvaða skófatnað sem er
við þær.
Latex-gúmmíið sem þær eru steyptar úr er afar
teygjanlegt þannig að vöðlurnar hefta ekki hreyfingar
þínar við veiöarnar og er ótrúlegt hvað þær þola
mikið álag.
Vöðlur í sérflokki
A
HHHIi .f
■■■ ■■■■., :
* "*’*•*■ **'£■'' i## ■
Ef óhapp veröur, má bæta vöölurnar
meö kaldri límbót.
Viögeröarkassi fylgir hverjum vöölum.
Þær vega aöeins 1,3 kg og þreytast
veiöimenn ekki á aö vera í þeim tímun-
um saman.
Fáanlegar í öllum stæröum.
JOPCO HF.
Vatnagörðum 14 —
Símar 39130 og 39140.
Box 4210 — 124 Reykjavík.