Morgunblaðið - 30.07.1983, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
mumm
«■ IMZ Unlmm rrm i
3} komdu, Í-Ubbi. Ti'mi til kominn có <9efo.
S*g d pionóiS. "
ásí er...
TM Reg U.S. Pat. Off.-all ríghls reservsd
®1983 t-o» Ang^«s Timers Syndicate
Ef þú segir iitla bróður að þetta
spaghetti sé regnormar þá borðar
hann allt á svipstundu!
Væna mín. — Kaffið og ristaða
brauðið hefur verið í heldur kald-
ara lagi síðustu daga?
HÖGNI HREKKVÍSI
„Bráðum færast árin yfir mig“
Fyrirspurn um
kvæði og lag
Bjami Ólafsson, Kópavogi,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Eg ætlaði að vita hvort
þú gætir hjálpað mér við að rifja
upp kvæði, sem byrjar svona:
„Bráðum færast árin yfir mig ...“
Síðan kann ég áframhaldið slitr-
ótt, en kvæðið endar eitthvað á
þessa leið: „Ég bið fyrir þér, litli
vin, að blessist þér allt, litli vin.
Þegar fer ég þér frá, þegar fölnar
mín brá, skaltu minnast mín þá,
litli vin.“ Mig langar til að fylla
upp í eyðurnar og fá að vita, hver
orti kvæðið og hvað það heitir og
af hvaða tilefni það var ort. Eins
er til ákaflega fallegt lag við
kvæðið. Eftir hvern er það?
•
Velvakandi leitaði til Indriða
Bogasonar á tónlistardeild Ríkis-
útvarpsins og varð hann góðfús-
lega við því að svara spurningum
Bjarna.
Indriði sagði:
„Þetta er úr kvæðinu „Litli vin“
(Little Pal), úr kvikmyndinni „Say
It With Song“, sem hér mun hafa
hlotið nafnið „Segðu mér í söng“
og hefur líklega verið sýnd hér ár-
ið 1930.
Guðmundur Gíslason, Kópavogi,
skrifar:
„Velvakandi!
Ég vil þakka þér fyrir að birta
fyrirspum mína ásamt svonefndu
svari frá orðuritara, svo að það fer
ekkert á milli mála, að orðuritari
og forsetaritari er ekki að svara
mér.
Er það eitthvert feimnismál hjá
orðuritara, hve margar orður hver
forseti hefur veitt og á hvað löng-
um tíma? Ef svo er, verð ég að
taka þessa krossaskýrslu frá hátt-
Höfundar eru A1 Jolson,
DeSylva, Brown og Henderson,
þeir hinir sömu er sömdu lagið
„Sonny Boy“ í kvikmyndinni „The
Singing Fool“.
Þetta hafa verið með þeim
fyrstu ef ekki fyrstu tal- og
söngvamyndirnar sem hér voru
sýndar.
Helgi Hallgrímsson (faðir dr.
Hallgríms og þeirra systkina) sem
á þessum árum rak nótna- og
hljóðfæraverslun gaf lag þetta út
1930 með þýðingu Freysteins
Gunnarssonar á ljóðinu sem hann
nefndi „Litli vin“.
Sigurður Ólafsson hefur sungið
þetta inn á hljómplötu sem Is-
lenskir tónar gáfu út 1978.“
Litli vin
i.
Bráðum færast árin yfir mig,
einhvern tfma skil ég senn við þig.
Mundu þá að rata réttan veg,
reyndu’ að verða betri’ og meiri’ en ég,
það er eina óskin mín til þin,
að þú hljótir forlög betri’ en mín.
Þótt mér brygðist margt, litli vin,
og mistækist flest, litli vin,
ég treysti þér best til að bæta það allt
og bjarga þvi við, sem er fátækt og valt.
Ég bið fyrir þér, litli vin,
að blessist þér allt, litli vin.
Þegar ég fer þér frá, þegar annar þig á,
viltu minnast mín þá, litli vin?
virtum orðuritara frá 21. júlí sem
svar.
Það voru tvö svör frá Halldóri
Reynissyni forsetaritara og orðu-
ritara frá 21. júlí, en það vantaði
svar frá honum við fyrirspurn frá
tveimur nafngreindum konum,
sem endurtekin var af mér, fyrir
ári eða svo, um það, hvort núver-
andi forseti hefði óskað eftir við
stjórn og þing að mega greiða
skatta sem aðrir þegnar þessa
lands og hvert svar hefði orðið."
2.
Síðan fyrst ég sá þig, litli vin,
sólin hefur veitt mér fegra skin.
Auðlegð mín er ástin mfn til þfn,
yndi mitt er bjarta vonin mín,
vonin sú, að gæfan gefi þér
gleði’ og lán og allt sem fegurst er.
Þótt mér brygðist margt, litli vin,
og mistækist flest, litli vin,
ég vil að þú gleðjist og leikir þér létt
og lærir að elska hvað gott er og rétt.
Ég bið fyrir þér, litli vin,
að blessist þér allt, litli vin.
Þó ég fari þér frá, þegar fölnar mín brá,
viltu minnast mfn þá, litli vin?
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þætt-
inum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til
— eða hringja milli kl.
11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og
orðaskipti, fyrirspurnir
og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrit-
uð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að
fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir
ástæða til að beina því
til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins,
að þeir láti sinn hlut
ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Vantaði svar við árs-
gamalli fyrirspurn
Þessir hringdu . . .
Að fleira
að hyggja
— Maður verður stundum al-
veg undrandi, þegar maður heyr-
ir tóninn í fólkinu í kring. Það
deilir á stjórnina fyrir að lækka
verð á vörum, sem það kveðst
ekkert hafa með að gera, enda
vantar ekki, að tónninn sé gefinn
með látlausum áróðri verka-
lýðsrekendanna. En það er að
fleiru að hyggja. Mig langar til
að spyrja verkafólk, hvort það
hvarfli aldrei að því að gera þá
kröfu til verkalýðsrekendanna,
að þeir sjái fólki fyrir vinnu,
með þeim réttindum og launum,
sem þeir eru alltaf að gera kröf-
ur um til atvinnurekenda.
Slysagildra
hjá Valhöll
Ólöf Björg Karlsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Mig langar til að koma
smáathugasemd á framfæri. Ég
var hjá tannlækni nýlega, sem
ekki er nú í frásögur færandi, en
sá hefur aðsetur í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1. Meðan ég beið eftir
því að verða sótt þangað varð
mér gengið með litlu stelpurnar
mínar í kringum húsið og rakst
þá á slysagildru sunnan undir
húsinu, algerlega óbyrgða. Ég
þakka lukkunni að þær duttu
ekki ofan í hana. Þarna er
tröppugangur niður og ekkert
handrið eða neitt sem varnað
getur því, að börn detti þarna
niður. Og það yrði hættulega
hátt fall. Ég bendi forráða-
mönnum hússins vinsamlegast á
að athuga þetta.
Gaman að eiga
viðskipti við
svona aðila
Valdís Samúelsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Við megum ekki gleyma að
geta þess sem vel er gert, en vera
svo alltaf að kvarta, þegar okkur
líka miður. Þannig er mál með
vexti, að ég var að gifta dóttur
mína sl. laugardag og pantaði
snittubrauð hjá Nesti. Mikið var
ég þakklát því ágæta fyrirtæki
fyrir það, hvað þetta var allt vel
af hendi leyst og ég þakka inni-
lega fyrir framlag þess til þessa
hátíðlega tækifæris. Það er gam-
an að eiga viðskipti við svona að-
ila.
Coombay Daaee Band
Ofsalega góð
hljómsveit
Gunnar Þór Möller, bráðum tiu
ára gamall, hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Ég vil fá
Goombay Dance Band á lista-
hátíðina 9184. Það er ofsalega
góð hljómsveit.