Morgunblaðið - 30.07.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ckninuJSr«Z-un'i) «
Gkkert nema miskunnarlaus
löggæsla og háar sektir
geta breytt þessu ástandi
OkamaAur skrifar:
.Velvakandi!
Því hefur verið haldið fram, að ein
hofuðástæða hinna mðrgu og oft
skelfilegu slysa hér í umferðinni sé
of hraður akstur. Lögregla hefur
með hefðbundnum hætti, svo sem
ratsjármælingum, verið að reyna að
stemma sigu við þessu, er, að sjálf-
sögðu með mjög litlum árangri, þar
sem þannig næst aldrei til nema
brots af þeim ökuföntum sem eru á
ferðinni.
Siðast er ég /ar á ferð í Bandaríkj-
unum, frétti ég af því hvernig eftir-
liti á þjóðvegum og í borgum a.m.k.
sumra fylkja er háttað til að fá
menn til að viröa umferðarlög. Þar
Engan skal því undra
þótt ungviðið gefi í
Ökukona að vestan skrifar:
„Kæri Velvakandi.
„Ekkert nema miskunnarlaus
lögregla og háar sektir geta breytt
þessu ástandi."
Þessi fyrirsögn í Velvakanda 17.
júlí eru orð að sönnu og tek ég
undir þau. Það er alveg undravert
hvað fólk er alltaf að flýta sér í
umferðinni.
Radarmælingar lögreglu eru
ekki nærri nógar, það sýndi sig um
daginn þegar kalla varð út aukalið
inn á Kleppsveg. Þá voru teknir
50—60 bílar á stúttum tíma.
Eitt mætti gera til að vekja öku-
glaða vegfarendur til að hugsa.
Fara með þá inn á Grensásdeild
og leyfa þeim að sjá afleiðingar af
völdum umferðarslysa. Eða hrein-
lega sýna myndir úr umferðar-
slysum þegar fólk tekur bílpróf.
Ég bý á ísafirði og ég ek til
vinnu fjögurra kílómetra leið. Það
er ekki löng leið miðað við hvað
fólk á Stór-Reykjavíkursvæðinu
þarf að aka langar leiðir. En það
eru allir að flýta sér, og á þessari
leið sem ég ek, sem tekur 8 mínút-
ur, eru ansi margir á of miklum
hraða. Oft hefur maður heyrt
þessa setningu: „Þessir árans
strákar eru alveg snaróðir, þeir
keyra eins og bandítar."
En þeir sem keyrt hafa framhjá
mér eru bæði strákar og stelpur og
á öllum aldri, allt upp í 70 ára. Og
enn vilja þeir láta kalla sig stráka,
þó að þeir séu um 60 ára og bara
aðeins komi við bensínpinnann,
svona á rennisléttum malbikuðum
veginum.
Engan skal því undra þótt ung-
viðið gefi í, það man að ekki alls
fyrir löngu sat það með afa og
ömmu í bíl og þau keyrðu á 80—90
km hraða. Því segir málsháttur-
inn: „Hvað ungur nemur gamall
temur," og einnig: „Arta má ungán
í tíma.“
En þá verðum við sem eldri er-
um a.m.k. að reyna að fara eftir
settum reglum.
Svo er það með merktu bilana
með rauðu ljósunum og óhuggu-
lega hljóðinu, það er eins og þeir
sem aka þeim haldi að þeir hafi
einhver sérréttindi á hraða á göt-
unum. En ég held að þeir eigi að
fara eftir sömu reglum og við og
þá að reyna að vera til fyrirmynd-
ar hinni ungu æsku sem er að
keyra sín fyrstu spor út í umferð-
ina.“
Eina lagið
sem ekki
var kynnt
Björn Halldórsson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að þakka fyrir tvo
frábæra útvarpsþætti, sem eru að
kveðja, Áfanga og Rispur. Þetta
hafa verið alveg einstaklega lífleg-
ir þættir, skemmtilegir og fróðleg-
ir í senn.
í síðasta þætti af Rispum var
spilað ofsalega gott lag, sem mig
langar að vita hvað heitir og hver
flutti. Þetta var fyrsta lagið í
þættinum og það byrjaði eins og
Tangerine Dream, en breyttist svo
í hálfgert óperulag eða svoleiðis,
að það var óperusöngkona sem
söng. Þetta var eina lagið í þættin-
um sem ekki var kynnt. Hin lögin
í þættinum voru líka góð, en þau
voru öll kynnt. Með kveðju."
Arni Óskarsson, annar stjórn-
enda þáttarins, tjáði okkur, að
þarna mundi vera átt við lagið
„The Dividing Line“ og flytjendur
þess væru breska hljómsveitin Art
Bears og þýska söngkonan (ekki
óperusöngkona) Dagmar Krause.
Lagið er á plötunni Hopes and
Fears, sem þessir aðilar hafa gefið
út. Dagmar Krause hefur m.a.
unnið með Henry Cow og hljóm-
sveit.
('hris (’utlcr, trommu
leikari Art Bears.
Til leigu
skrifstofuhúsnæði
í Húsi Verzlunarinnar
Skrifstofuhúsnæöiö er á 9. hæö. Þaö leigist fullgert
og tilbúiö til notkunar. Stæröin er um þaö bil 100 fm.
Tilboöum skal skilaö á skrifstofu Verzlunarmannafé-
lagsins í Reykjavík í síöasta lagi þann 10. ágúst nk.
Upþl. veittar á skrifstofunni.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Sýnishorn af
matseöli kvöldsins
Forréttur
Léttreyktur áll með eggjahræru og rúgbrauði.
Aðalréttur
Pottsteiktar grísalundir í sherry-bœttri camembert-sósu eða
pönnusteiktur regnbogasilungur með hnetum og rœkjum.
Eftirréttur
Heslihnetukaka með kiwi-ávexti og karamellusósu.
Hvíldarstaöur í hádeginu
Höll aö kvöldi
Velkomin
ARTiARHÓLL
Á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu.
Boröapantanir í sima 18833.
-------------------HiiSi
Viðkvæm
dýr
Ingvar Agnarsson skrifar:
„í Morgunblaðinu 9. júní sl.
er sagt frá því, að laxamaðkar
hafi hækkað í verði allt að
100% frá því í fyrra. Þess er
einnig getið, að hver laxveiði-
maður þurfi um 300 maðka í
hverja veiðiferð, sem standi í
þrjá daga.
Hvað ræður því eiginlega,
að menn skuli endilega vilja
hafa maðk í beitu, þótt þess sé
alls engin þörf? Því laxaflugur
má einnig nota með jafngóð-
um árangri og það gera sumir
sem betur fera.
Ég vil eindregið hvetja
sportveiðimenn til að hætta
nú þegar að nota ánamaðka til
beitu, því að þeir eru viðkvæm
dýr með næma tilfinningu, og
skyldi enginn maður kvelja þá
að þarflausu, eins og hér er
um að ræða.
Notkun ánamaðka til beitu
er eitt af því, sem gerir sport-
veiðar andstyggilegar. í þessu
athæfi birtist vel hið álgjöra
tilfinningaleysi sumra þeirra,
sem við sportveiðar fást, fyrir
því lífi, sem þeir eru að
granda, sjálfum sér til ánægju
eingöngu, en ekki af neinni
brýnni þörf.“
« korhr á rftto d
i StókkhAtai f
dgraM Bokkr* bnts *j*tkaaura brlma
„Þetta var sannkaU-
aður draumadagur
_ L'ooir L'inn. ( rtm* vnnn rtlatcilorfan ^
— segir Einar Vilhjálmsson sem í gær vann glæsilegan
sigur í íþróttakeppni Bandaríkjanna og Norðurlanda
j ..MCTTA VAR
dtaumadáfur, oj t| n feynlefa
I í fyraU aiaa yflr *0 melra. f*a M.M
j m. og er kaaa aé f Mpi Ifa beatu
j ^jótkaatara beimnaa á þeani ári.
Kinar saitði aálrænu hliftini
■■■HÍHÍHMÍ
| iþróttamenn i Stokkhólmi i gæt
i arangur þeirra var ekki ein
„ Vftur og búist var vift Oddur varft ■
siðastur i ainum riftli. 400 metra ■
' hlaupi. og Öskar Jakobsson varft I
j fimmti i kdluvarpi og kastafti I
I hann mun styttra en hann hefur |
Vísa vikunnar
Mikið gleður gamla Hák,
sem gengur stirðum fótum,
að eiga hlut í stæltum strák,
er stendur sig á mótum.
Hákur
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Menn komu hvaðanæva að af landinu.
Rétt væri: Menn komu hvaðanæva af landinu.