Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 48
BILLINN
BlLASALA SIMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KORAVCX1
munk) trulofunarhringa
litmvndalistann ffflb
#ull & á^tlfui
Laugavegi 35
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
Hækkun á heitu vatni 1. ágúst:
11 kr. á Akranesi en
3,66 kr í Reykjavík
GJALDSKRÁ hitaveitu Reykjavíkur
hækkar um 3,66 kr. hvert tonn frá
og með 1. ágúst, en frá sama tíma
hækkar gjaldskrá hitaveitu Akra-
ness og Borgarness um 11 kr. hvert
tonn — hækkunin í Reykjavík nem-
ur þó 43,9%, en ekki „nema“ 17%
hjá hitaveitu Akraness og Borgar-
ness. Eftir hækkun kostar hvert
tonn 12 kr. í Reykjavík, en 51,60 kr.
á Akranesi eða í Borgarnesi.
Svipuð dæmi og þetta er unnt að
nefna frá hitaveitu annars staðar
á landinu, en verð fyrir heitt vatn
miðast við kostnaðinn við öflun
þess og er því mismunandi eftir
aðstæðum á hverjum stað. Auk
þess er það einungis gjaldskrá
hitaveitunnar í Reykjavík, sem
kemur til álita þegar framfærslu-
vísitalan er mæld og í „vísitölu-
leik“ undanfarinna ára, hefur
verði á heitu vatni verið haldið
markvisst niðri í Reykjavík af
verðlagsyfirvöldum, enda stendur
fjárskortur starfsemi hitaveitu
Reykjavíkur fyrir þrifum.
Morgunblaðið birtir hér töflu
sem sýnir verð á heitu vatni hjá
einstökum hitaveitum fyrir og eft-
ir hækkunina 1. ágúst, auk þess
sem í síðasta dálki er greint frá
hækkuninni í krónutölu. Miðað er
við verð í krónum fyrir hvert tonn.
Fyrir 1/8 ’83 Eftir 1/8 '83 Hækkun
Kr. Kr. Kr.
Hitaveita Akraness og Borgarness 40,60 51,60 11,00
Hitaveita Siglufjaröar 36,40 43,70 7,30
Hitaveita Akureyrar 42,90 50,10 7,20
Hitaveita Vestmannaeyja 26,10 30,50 4,40
Hitaveita Suðurnesja 25,20 29,50 4,30
Hitaveita Reykjavíkur 8,34 12,00 3,66
„Ráðuneytið hefur
algjörlega brugðist“
— segir Ólafur E. Stefánsson um ræktun Galloway-stofnsins í landi
„Landbúnaðarráðuneytið hefur al-
gjörlega brugðist í þessu máli. Að-
staða í landi til ræktunar á Gallo-
way-holdastofninum hefði þurft að
vera til árið 1979 og síðan 1977 hef-
ur verið á þetta bent og farið fram á
fjárframlög en ekkert hefur gerst,“
sagði Olafur E. Stefánsson, naut-
griparæktarráðunautur Búnaðarfé-
lags íslands, í samtali við Mbl. er
hann var inntur eftir því hvernig
ræktun Galloway-holdanautastofns-
ins gengi.
Ólafur sagði einnig; „Uppbygg-
ing slíkrar aðstöðu væri sáraódýr
ef ríkisbúin og sú aðstaða sem þar
er fyrir yrði nýtt, en hér eiga
hvorki hross né sauðfé í hlut
þannig að til þessa hefur verið tal-
að fyrir þessu máli fyrir daufum
eyrum yfirvalda. Þetta aðstöðu-
leysi stendur ræktuninni í landi
fyrir þrifum og getur verið stór-
hættulegt ef nauðsynlegt reyndist
að fella stofninn í Hrísey vegna
sjúkdóma eða annars. Fólk vill
nautakjöt og við verðum að verða
við þessum óskum þess.
Það er síðan annað mál hvað
einstakir bændur hafa gert. Núna
eru í uppeldi sláturgripir sem eru
37,5% Galloway, þeir eru undan
íslenskum mjólkurkúm sem sædd-
ar hafa verið með sæði úr 75%
Galloway-nautum í Hrísey. Kjöt
af þessum gripum ætti að koma á
markaðinn í haust. Það er útilok-
að fjárhagslega fyrir einstaka
bændur að stefna að hreinræktun
því aðeins fæst einn kálfur undan
hverri kú á ári og borgar það sig
því fyrir bændurna að sæða ís-
lenskar mjólkurkýr með Gallo-
way-sæði og þó þeir fái heldur
minna kjöt af kálfunum þá fá þeir
þó mjólkina úr kúnni allt árið,“
sagði Ólafur E. Stefánsson.
I sóttvarnarstöðinni í Hrísey
eru fyrstu 87,5% Galloway-blend-
ingarnir (3. ættliður) í uppeldi, en
V - • ,• ' - *■> ' ■ .
■
Alíslensk mjólkurkýr ásamt kálfi sínum undan hreinu Galloway-nauti. Svip-
aðir þessum kálfi verða kálfar íslensku mjólkurkúnna sem sæddar verða
með sæöi úr Galloway-nautunum þegar búið verður að hreinrækta þau.
eingöngu fæddust kvígur í fyrra
en á þessu ári er von til að fæðist
naut af þessum ættlið. Til hrein-
ræktunar er talið að þurfi 5 ætt-
liði.
Fjölmenni á útisamkomum
Búist er við miklum mannfjölda um helgina á útisamkomurnar í Atla-
vík, Þjórsárdal og á þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum, en útisamkomur
eru haldnar víðs vegar um land um þessa verslunarmannahelgi eins og
venja er. í Atlavk höfðu um eitt þúsund manns slegið niður tjöldum
sínum í gærmorgun. Tjaldlífið heillar greinilega marga og ekki er
annað að sjá en félagarnir þrír í tjaldinu á myndinni séu ánægðir með
lífið Og tilveruna. MorgunbladiA/ Ólafur
600 þúsund króna tjón í minkabúinu á Höfn:
750 hvolpar drápust við
lágflug varnarliðsvéla
MIKIÐ TJÓN varð í minkabúinu á Höfn í Hornafirði í vor, þegar 750 minka-
hvolpar drápust, að þvi talið er vegna þess að herþotur frá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli flugu lágt yfir búið. Samkvæmt heimildum Mbl. er tjón
eigenda búsins talið nema rúmum 600 þús. krónum.
Eigendur búsins, sem staðsett er um þrjá kílómetra frá flugvellinum við Höfn,
stofnuðu minkabúið í vor með kaupum á 500 minkalæðum frá Danmörku. Um
mánuði eftir að læðurnar komu frá Danmörku voru þær nýgotnar. Tóku þá
flugvélarnar sig á loft frá flugvellinum, flugu lágt yfir búið og klifruðu bratt upp.
Óvenjulegt mun vera að flugvélar beri sig svona að þegar þær fara frá Hafnar-
flugvelli, en við þetta lék minkabúið á reiðiskjálfi og eigendurnir, sem staddir
voru inni í því, forðuðu sér út.
Við hávaðann munu læðurnar
hafa orðið hræddar og drápust ailir
hvolparnir undan 40% læðanna sem
gotið höfðu. Að sögn Sigurjóns Blá-
felds, loðdýraræktarráðunauts Bún-
aðarfélags íslands, eru minkalæður
ákaflega viðkvæmar fyrir nýjum
óþekktum hávaða, sérstaklega á að-
al gottímanum. Taka þær þá gjarn-
an upp á því að bera hvolpana fram
úr hreiðurkössunum og skilja þá þar
eftir. Þar kólna þeir og drepast á
stuttum tíma, en einnig eiga læð-
urnar til að drepa hvolpana eftir að
þær verða fyrir svona truflun.
Eftir þetta áfall verða 1100
Selveiðar í Norðurá
SELUR sást í Norðurá fyrir
fáum dögum og er þetta í annað
skiptið á stuttum tíma að selur
sést í einni af bergvatnsám
Borgarfjarðar. Það voru veiði-
menn sem urðu selsins varir í
Stekknum svokallaða, hann
synti þar um og var á laxveiðum.
Var fenginn byssumaður, en er
til kom sást dýrið hvergi.
Óvenjulega mikið hefur borið á
selum í laxveiðiám hérlendis í
sumar,
Sjá nánar: „Eru þeir að fá
’ann?“ á blaðsíðu 3.
minkahvolpar á þessu ári eftir þess-
ar 500 læður, sem eru 2,2 hvolpar á
hverja ásetta læður og er það
minnsta frjósemi í landinu. Ef
hvolparnir 750 hefðu hinsvegar ekki
drepist hefði minkabúið við Höfn
verið með ágæta frjósemi, 3,7
hvolpa á læðu, sem er vel yfir með-
allagi. Aðspurður um hvort stað-
setning minkabúsins væri rétt mið-
að við þessa fjarlægð frá flugvellin-
um, sagði Sigurjón að sér virtist
þetta ekki slæm staðsetning. Stað-
reyndin væri sú að alls ekki væri
gott að staðsetja minkabú afskekkt.
Morgunblaðinu er kunnugt um að
eigendur minkabúsins, sem eru tveir
ungir menn, hafa rætt við fulltrúa
varnarmáladeildar utanríkisráðu-
neytisins um bætur vegna þessa
tjóns, en er ekki kunnugt um niður-
stöður.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudaginn 3. ág-
úst. Vegna verslunarmanna-
helgarinnar fór blaðið óvenju
snemma í prentun í gær-
kvöldi.