Morgunblaðið - 27.08.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.1983, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK 194. tbl. 70. árg. _______________________________LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1983________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Yuri Andropov: Eldflaugar eyðilagoar Moskvu, 26. áfDÍst. AP. YURI ANDROPOV, forseti Sovétríkjanna hefur boðizt til þess að láta „eyði- leggja" þær meðaldrægar eldflaugar, sem Rússar myndu flytja burt frá löndum sínum í Evrópu, ef samkomulag næðist með stórveldunum um fækkun slíkra eldflauga. Er þetta í fyrsta sinn, sem Andropov hefur borið slíkt tilboð fram opinberlega, en það hefur einmitt verið helzta hindrunin í Genfarviðræðunum um fækkun slíkra kjarnorkuvopna, að ekkert var vitað um, hvað gert yrði við þær eldflaugar, sem Rússar flyttu brott. Tilboð Andropovs kemur fram í / n í Vestur-Evrópu í vetur. viðtali, sem birtist á morgun, laug- / Andropov itrekaði jafnframt þá ardag, í Pravda, málgagni sovézka / fstöðu Sovétríkjanna, að þau kommúnistaflokksins. Tilboðið er / nyndu ekki fækka meðaldrægum samt háð því skilyrði, að af hálfu / ddflaugum sínum niður fyrir 162, NATO verði fallið frá þeim áætlun- / sn það er sá eldflaugafjöldi, sem um að koma fyrir nýjum eldflaug- / Bretar og Frakkar ráða nú yfir. Vaxandi umsvif Frakka í Chad Franskur hervagn ekur inn í bæinn Masakori um 120 km fyrir norðan höfuðborgina N’djemena. Um 3.000 franskir hermenn eru nú komnir til Chad. Holland: 12 mílna fiskveiði- landhelgi llaag, 26. ágúst. AP. HOLLENDINGAR hyggjast taka upp 12 mflna fiskveiðilandhelgi 1. október nk. Skýrði hollenzka sjvarútvegsráðuneytið frá þessu í dag. Aðeins hollenzkum og belgísk- um fiskiskipum verður leyft að veiða allar tegundir af fiski innan þessara nýju fiskveiðitakmarka, en öðrum skipum frá löndum Efnahagsbanda- lags Evrópu verður bannað að veiða þar sfld og makrfl. Ákvörðun þessi kemur í kjölfar samkomulags, sem gert var innan EBE, þar sem aðildarlöndum bandalagsins var heimilað að taka upp slíka fiskveiðilandhelgi. Heimild Belgíumanna til hvers konar fiskveiða innan þessarar nýju landhelgi byggist á Benelux- samningnum milli Hollands og Belgíu, sem gerður var 1948 og Lúxemborg á einnig aðild að. Úrhelli á Spáni Vitoria, Spáni, 26. á|(úst. AP. ÍJRHELLISRIGNING á Norður Spáni í dag kom í veg fyrir ferða- lag þúsunda ferðamanna og olli jafnframt rafmagnsleysi, leirskrið- um og vatnsflóðum. Þrjár járnbrautarlestir með 2.500 landbúnaðarverkamenn frá Portúgal á leið til Frakk- lands tepptust í borginni Vitoria í Baskahéraðum Spánar og sök- um fjölda verkamannanna var ókleift að flytja þá með lang- ferðabílum til Frakklands. Mikil rigning varð einnig á sólskinseynni Mallorca og olli hún flóðum sums staðar í Palma og við San Juan-flugvöllinn. Ekki var þó vitað um nein slys af völdum rigningarinnar. Frjáls úr höndum hermdarverka manna Elízabeth Kirkpatrick, sem í gær fannst heil á húfi, eftir að hafa verið gísl írskra hermdarverkamanna í 15 vikur, sést hér ásamt föður sínum í Belfast. Maður hennar afplánar nú lífstíðarfangelsi fyrir morð og fleiri hermdarverk, en hann hefur heitið því að bera vitni gegn fyrri félögum sínum á meðal hermdarverkamanna. Þeir höfðu hins vegar hótað því að myrða konu hans, ef hann tæki framburð sinn ekki aftur. Þessar hótanir höfðu engin áhrif á hann, sem varð til þess að hermdarverka- mennirnir létu konu hans lausa að lokum. til Nicaragua Washington, 26. ágúst AP. ÖFLUGUR bandarískur herskipafloti, sem í eru 7 skip undir forystu herskips- ins New Jersey, tók sér í dag stödu á hafinu fyrir vestan Nicaragua i því skyni aö byrja þar heræfingar. New Jersey er 57.000 tonn að stærö. Annar bandarískur floti, sem í eru fimm skip undir forystu flugmóður- skipsins Coral Sea, hefur fyrir nokkru tekið sér stöðu fyrir utan strönd Nicaragua við Caribahaf. Þessi nýi floti er enn einn þátturinn í flotaæfingum Bandaríkjamanna, sem ætlað er að sýna stuðning þeirra við vinsamlegar rík- isstjórnir í Mið-Ameríku, sem eiga undir högg að sækja vegna uppreisna Sovézk tilraun með árásargervihnött Frankfurt, 26. ágúst. AP. RÚSSAR gerðu tilraun með árásargervihnött yfir Bæjaralandi sumarið 1982 og þóttust með því sýna yfirburði sína yfir Bandaríkjamönnum á sviði vopnabúnaðar úti í geimnum. Skýrði vestur-þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung frá þessu í dag, en það er borgaralegt blað, sem nýtur almennrar virðingar. Segir blaðið, að tilraun Rússa hafí verið gerð í júní í fyrra og verið þáttur í umfangsmiklum heræfíngum þeirra. „í þessum heræfingum var árás- argervihnetti beitt gegn öðrum gervihnetti, sem notaður var sem skotmark og sendur hafði verið á loft áður í þeim tilgangi. Aðgerðir þessar fóru fram yfir svæðinu í kringum Miinchen". Blaðið heldur því fram, að tilraun þessi hafi ekki heppnast fullkomlega, en tel- ur þó, að gervihnöttur sá, sem hafður var að skotmarki, hafi ver- ið eyðilagður. „Markmið tilraun- arinnar var að geta grandað vest- rænum gervihnetti utan sovésks landsvæöis. Nú er ljóst, að Rúss- um er þetta kleift," segir blaðið ennfremur. Frankfurter Allgemeine Zeit- ung hefur fréttina eftir áreiðan- vinstri sinna, en banda- ríska stjórnin heldur því fram, að þeir njóti stuðn- ings frá Nicaragua, Kúbu og Sovétríkjunum. legum heimildum í Vestur-Þýska- landi og hafi henni verið haldið leyndri sem lengst en hún hafi borist út í gær. Blaðið heldur því fram, að Rússar séu eina þjóðin í heimi, sem ráði yfir árásargervi- hnetti, enda þótt Bandaríkjamenn hafi einnig gert tilraunir með geimvopn. Segir blaðið ennfremur, að það hljóti að verða mönnum á Vesturlöndum áhyggjuefni, ef síð- ustu tillögur sovéskra stjórnvalda um bann við geimvopnum verða samþykktar, þar sem slíkt geti tryggt Sovétríkjunum yfirburði á sviði geimvopna. Þeódórakis endurskoðar þjóðsönginn Aþenu, Crikklandi, 26. ájpíst. AP. KONSTANTÍN Karamanlis, for- seti Grikklands, hefur beðiö tón- skáldið Mikis Þeodórakis um ráðleggingar um hvernig leika skuli gríska þjóðsönginn. „Forsetinn er þeirrar skoð- unar að þjóðsöngurinn sé leik- inn of hratt," sagði talsmaður forsetans í dag. Forsetinn, sem er sjötíu og sex ára að aldri, mun hafa far- ið þess á leit við nefnd grískra tónskálda að hún gerði tillögur um réttan spilahraða. í nefnd- inni er auk Þeódórakis tón- skáldið Manos Hadzidakis, sem m.a. hefur samið lög við kvikmyndir. Gríski þjóðsöngurinn var saminn á nítjándu öld af tónskáldinu Nikos Halikopoul- Þeódórakis Herskipafloti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.