Morgunblaðið - 27.08.1983, Side 3

Morgunblaðið - 27.08.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1983 8 skip seldu afla erlendis 1 SÍÐUSTU viku scldu 7 íslensk skip landi. Markaðsverð er nú fremur lígt i verð fyrir afla skipanna. Kftirfarandi skip seldu afla er- lendis í vikunni: 22. ágúst seldi Bjarnarey VE 73,3 tonn í Hull. Heildarverð var 1.094.500 kr., meðalverð 14.92 kr. 23. ágúst seldi Ásey VE 59,3 tonn í Hull. Heildar- verð var 1.119.800 kr., meðalverð 18.86 kr. Sama dag seldi Oddgeir ÞH 49,2 tonn í Hull. Heildarverð var 1.125.400 kr., meðalverð 22.86 kr. 24. ágúst seldi Börkur NK 140,1 tonn í Grimsby. Heildarverð 3.348.000 kr., meðalverð 23.90 kr. Sama dag seldi Hrafn GK í Hull 72,8 tonn. Heildarverð 1.253.200 afla sinn í Englandi og eitt í Þýska- í fiski í Englandi og fékkst sæmilegt kr., meðalverð 17.21 kr. Sigurður Þorleifsson seldi í Hull 25. ágúst 58,5 tonn. Heildarverð var 1.325.500 kr., meðalverð 22.68 kr. Sama dag seldi Sólborg SU i Grimsby 49,1 tonn. Heildarverð var 1.055.400 kr., en meðalverð 21.50 kr. í gær seldi svo Húnaröst ÁR í Hull 85,7 tonn. Heildarverð- mætið var 2.006.100 kr., meðalverð 23.41 kr. Kópur GK seldi 23. ágúst í Cuxhaven í Þýskalandi 95,5 tonn af grálúðu. Heildarverð var 1.503.400 kr., meðalverð 15.74 kr. Aöalfundur Skógræktarfélags íslands: Ahersla lögð á rækt- un nýrra trjátegunda AÐALFUNDUR Skógræktarfélags íslands hófst kl. 10 í gærmorgun í Laugaskóla í Dalasýslu. Formaður félagsins, Hulda Valtýsdóttir, setti fundinn og bauð fundarmenn, sem eru um 60 talsins, og aðra gesti velkomna. Síðan flutti land- búnaðarráðherra, Jón Helgason, ávarp. Að því loknu var skipað í nefndir og skýrsla stjórnar Skógræktarfélagsins lögð fram ásamt reikningum. Eftir hádegi fóru fram umræður og síðdegis flutti Uorsteinn Tómasson framsöguerindi um kyn- bætur birkis. Þá var gróðursetning, en eftir kvöldverð hófust nefndarstörf. Að sögn Stefáns Jasonarsonar, formanns fjölmiðlanefndar fund- arins, var starf Skógræktarfélags- ins með hefðbundnum hætti á síð- asta ári, en ávallt væri þó sótt fram á veginn og nýmæli tekin upp. „Nefna má til dæmis að stofnaður var vinnuflokkur, sem hefur ferðast milli skógræktarfé- laganna á Vesturlandi og Vest- fjörðum í sumar, og aðstoðað við grisjun og umhirðu í skógræktar- girðingum og fleira. Er í ráði að halda áfram þessari starfsemi í öðrum landshlutum á næsta ári og í framtíðinni," sagði Stefán. Hann sagði ennfremur, að starfsemi hinna ýmsu skógræktarfélaga landsins hefði verið fjölþætt á síð- asta ári, enda væri greinilegt að almenningur veitti skógrækt vax- andi athygli. M.a. hefðu verið gróðursettar á vegum skógræktar- félaga um þrjú hundruð þúsund trjáplöntur á síðasta ári. Aðspurður um aðalmál fundar- ins, svaraði Stefán því til að til- greina mætti bændaskógana, sem hafist var handa við að rækta á Austurlandi fyrir tíu árum. Nú væru Eyfirðingar og Árnesingar að undirbúa ræktun bændaskóga og fleiri héraðskógræktarfélög hefðu sýnt þessu máli áhuga. Stef- án bætti því við, að fundarmenn legðu áherslu á að efla gróðursetn- ingu nýrra trjátegunda og auka rannsóknir á ýmsum sviðum trjáræktar. Hér væri einkum um að ræða aukna fjárveitingu til Rannsókna- stöðvar Skógræktar ríkisins að Mógilsá. í dag verður fram haldið aöal- fundi Skógræktarfélagsins og fara fundarmenn þá til Reykhóla til að skoða m.a. þörungaverksmiðjuna, en í kvöld verður kvöldvaka og snæddur kvöldverður í boði sýslu- nefndar Dalasýslu og fleiri aðilja. Á sunnudag verður afgreiðsla mála og stjórnarkjör og fundarslit síðdegis. Annar dans Frumsýnd var í Regnboganum í gærkvöldi kvikmyndin Andra Dansen eða Annar dans, eftir Lárus Ými Óskarsson. Ljós- myndari Morgunblaðsins, Kristján Einarsson, tók þessa mvnd á frumsýningunni en á henni má sjá leikstjórann, Lárus Ymi Oskarsson, Jón Ragnarsson, eiganda kvikmyndahússins, og frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands. Þú gerir ekki betri bflakaup í dag Frá kr. 255.000 (og þú greiðir þaö verð, sem við auglýsum) Við eigum eftir örfáa Charmant gæöabíla á þessu verði. Viöurkennd gæöi og þjónusta gera Daihatsu nr. 1 í endursölu. Daihatsu-umboöið Ármúla 23, s. 85870 — 81733.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.