Morgunblaðið - 27.08.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1983
19
Svona var umhorfs í Paramount-kvikmyndaverinu eftir að eldurinn hafði verið slökktur. Sviðsbúnaður nýju myndar-
innar, „Star Trek 111“ brann til kaldra kola og einnig önnur sviðsmynd, „Stræti í New York“, sem notuð hefur verið
í nærri 60 ár. AP
Hollywood:
Mikið tjón af eldi í
„draumaverksmiðju“
Hollvwood, 26. ájfúst. AP.
MIKILL eldsvoði varð í kvik-
myndaveri Paramount-kvik-
myndafyrirtækisins í gær og
hlaust af verulegt tjón, einkum á
sviðsbúnaði myndarinnar „Star
Trek III“, sem nú er verið að
taka.
Hús og byggingar á tveimur
og hálfum hektara lands gjör-
eyðilögðust, t.d. sviðsmyndin í
„Stræti í New York“, sem var
56 ára gömul, en þar voru m.a.
teknar myndir eins og „Bells
of St. Mary’s“, „Going my
Way“, „Breakfast at Tiffany’s"
og híuti af myndunum um
Guðföðurinn. Þegar eldurinn
kom upp var verið að taka
myndina „Star Trek 111“ og
eyðilagðist sviðsbúnaðurinn,
sem var rándýr, að mestu
leyti.
Eftir tveggja stunda bar-
áttu við eldinn tókst slökkvi-
liðsmönnum að ráða niðurlög-
um hans en gífurlegt reykj-
arkóf varð af honum. Ekkert
er enn vitað um eldsupptök.
Geymslubirgðir
aldrei jafn litlar
Washinjiton, 26. ágúst. AP.
KJARNORKUVOPNAGEYMSLUBIRGÐIR Bandaríkjamanna eru hinar
minnstu síöan á miðjum sjöunda áratugnum og koma til með að aukast hóflega
næstu fimmtán árin þótt viðræður um skorður viö kjarnorkuvopnum beri ekki
árangur. Upplýsingar þessar komu fram hjá bandaríska vamarmálaráðuneyt-
inu í dag.
í tilkynningu, sem beint var að
gagnrýnendum bandarískrar
kjarnorkuvopnastefnu, sagði ráðu-
neytið að ranghermt væri að „við
hefðum nú yfir fleiri kjarnorku-
vopnum að ráða en nokkru sinni"
Margir andstæðingar Reagan-
stjórnarinnar hafa ásakað stjórn-
ina um að hafa engan áhuga á að
komast að samkomulagi við Sovét-
menn um kjarnorkuvopn og segja
þeir að tillögur Bandaríkjamanna í
viðræðum við Sovétmenn miði ein-"
ungis að því að ávinna tíma til að
endurnýja og bæta við kjarnorku-
vopnabirgðirnar. í tilkynningu ráð-
uneytisins segir að Sovétmenn hafi
á hinn bóginn stöðugt aukið kjarn-
orkuvopnageymslubirgðir sínar.
Ráðuneytið nefndi þó engar tölur.
Drap sig og tvö
börn með íkveikju
Vín, 26. áyúst. AP.
FIMMTIU OG TVEGGJA ÁRA gamall maður kveikti í sjálfum sér og
brann til dauða í íbúð sinni á föstudagsmorgun í Vín. Tvö börn létust
einnig af völdum elds, sem varð af þessu uppátæki mannsins, en níu
særðust, að sögn lögreglu.
„Líkurnar eru níutíu og níu af
hundraði að um sjálfsmorð hafi
verið að ræða,“ sagði talsmaður
borgarlögreglunnar.
Eldurinn, sem brauzt út
snemma morguns læsti sig í
fjórar íbúðir sjö hæða fjölbýlis-
húss í Leopoldstadt-hverfinu.
Tíu ára gömul stúlka, Kukka
María Hofer að nafni, steypti sér
í örvæntingu út um glugga á
fimmtu hæð hússins aðeins ör-
fáum sekúndum áður en bruna-
liðsmenn komu öryggisneti fyrir
við jörðu. Þrettán ára bróðir
stúlkunnar brann hins vegar til
dauða inni í íbúðinni.
Illa brunnið lík fannst á fjórðu
hæð hússins og telur lögregla að
það hafi verið líkamsleifar Hugo
Bleids, fimmtíu og tveggja ára,
sem nágrannar segja að hafi
verið drykkfelldur. Að sögn
rannsóknarlögreglu hellti mað-
urinn eldsneyti yfir sjálfan sig
og íbúðina og bar síðan eld að.
Allt er á huldu um ástæður til-
tækisins.
Lögreglumenn sögðu að hér
hefði verið um að ræða eitthvert
alvarlegasta brunaslys í Vín síð-
an 1979, en fórust þá tuttugu og
fimm í hótelbruna.
McGovern kynni
aö fara í framboð
.Na.shua, New llampshire, 25. áfpíst. AP.
GEORGE Mcgovern, bandaríski
öldungadeildarþingmaðurinn
fyrrverandi, sem tapaði fyrir Rich-
ard Nixon í forsetakosningunum
1972, sagðist í dag vera að hugsa
um að berjast fyrir útnefningu
demókrataflokksins fyrir forseta-
kosningarnar 1984.
„Sex góðir menn berjast nú
fyrir útnefningu," sagði hann, „en
fjöldi fólks hefur enn ekki gert
upp hug sinn og styður engan enn
sem komið er.“
McGovern sagði: „Ég hef i sí-
auknum mæli haft á tilfinning-
unni að ef ég hagaði framboði
mínu á réttan hátt gæti ég fengið
til liðs við mig stóran hluta þess
fólks, sem enn er óráðið. En auð-
vitað geri ég það ekki meðan ég er
óráðinn sjálfur."
Öldungadeildarþingmaðurinn
fyrrverandi lét orð þessi falla í
símviðtali við fréttastofu AP frá
Tennessee, en hann dvelur nú þar
í sumarleyfi. „Ég verð að taka
ákvörðun á einn eða annan veg
fyrir miðjan september,“ sagði
hann.
McGovern var öldungadeildar-
þingmaður fyrir Suður-Dakóta í
átján ár, en fór halloka í þing-
kosningunum 1980. Hann býr nú í
Washington.
Alþjóðlega skákmótið í Niksic:
Kasparov efstur
Niksic, Júj'óslavíu, 26. ágúst. AP.
GARRI KASPAROV frá Sovétríkjunum vann í dag landa sinn Tigran
Petrosjan í annarri umferð alþjóðlega skákmótsins í Niksic í Júgó-
slavíu og er nú einn um forystuna.
Kasparov hefur unnið báðar
skákir sínar en hann er nú talinn
standa engum að baki í íþrótt-
inni nema Karpov heimsmeist-
ara. Eins og alkunna er hefur
hann misst af voninni um að fá
að tefla við Karpov um heims-
meistaratitilinn þar sem sovéska
skáksambandið neitaði að senda
hann til Pasadena þar sem
Korchnoi beið hans. Ekki eru þó
öll kurl komin til grafar enn í
því máli.
Tony Miles frá Englandi vann
Ljubomir Ljubojevic frá Júgó-
slavíu en aðrar skákir fóru
þannig: Skák Bent Larsens og
Nikolic, Júgóslavíu, fór í bið; Tal
gerði jafntefli við Ivanovic,
Júgóslavíu; Ulf Anderson gerði
jafntefli við Portisch; Timman
og Sax gerðu jafntefli og Gligor-
ic og Seirawan sömuleiðis. Boris
Spassky sat hjá.
HIJOM’HEIMILIS'SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103 SIMI 25999
1933
1983
ar
á SERTILBOÐI
AFE268 — ísskápur, 340 lítra meö 33
lítra trystihólfi.
H. 144 cm B. 60 cm D. 64 cm
Verö kr. 14.460-
AFE523 — Frystiskápur, 140 lítra meö
sérstökum hraðfrysti.
H. 85 cm B. 55 cm D. 60 cm
Verö kr. 14.280-
HLJOM8ÆR