Morgunblaðið - 27.08.1983, Side 40
^^^skriftar-
síminn er 830 33
^Aug'ýsinga-
síminn er 2 24 80
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1983
Þorsteinn Gíslason, forstjóri Coldwater Seafood Corporation:
Engin áform um verð-
lækkun á þorskflökum
10 senta verðlækkun nauðsynleg vegna minnkandi mark-
aðshlutdeildar, segir framkvæmdastjóri Iceland Seafood
„ÞAÐ ERIJ ekki að svo stöddu uppi
nein áform um verðlækkun á þorsk-
flökum hjá okkur þrátt fyrir að SÍS
hafi tekið ákvörðun um 10 senta
lækkun, úr 1,80 dollurum í 1,70 á
pundið. Það er dýr fórn, sem ekki
skilar árangri og getur leitt til frekari
verðlækkana á íslenzkum fiski í
Bandaríkjunum," segir Þorsteinn
Gíslason, forstjóri Coldwater Seafood
Corporation, í samtali við Morgun-
blaðið. Aðspurður um það, hvort
birgðaaukning fyrirtækisins hafi
valdið greiðsluörðugleikum sagðist
Þorsteinn ekki vilja tjá sig um það.
Iceland Seafood Corporation hef-
ur nú tekið ákvörðun um áður-
nefnda verðlækkun og segir Guðjón
B. Ólafssom, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, að það sé nauðsyn-
legt vegna lækkandi markaðshlut-
deildar íslendinga í sölu þorskflaka
á Bandaríkjamarkaði og aukinnar
birgðasöfnunar. Segir hann mark-
aðshlutdeild íslendinga hafa lækk-
að um tæp 40% síðustu fimm ár á
meðan heildarsala þorskflaka hef-
Bjarg-
ráða-
sjóður
tómur
BJARGRÁÐASJÓÐUR er ekki í sUkk
búinn til að Uka á sig aðstoð við
bændur vegna uppskerubrests á kart-
öflum og öðrum garðávöxtum sem út-
lit er fyrir að verði á Suðurlandi í
haust og ekki heldur vegna heybrests
af völdum óþurrkanna á Suður- og
Vesturlandi, að sögn Magnúsar E.
Guðjónssonar, framkvæmdastjóra
Bjargráðasjóðs.
Magnús sagði, að samkvæmt lög-
um Bjargráðasjóðs væri stjórn
sjóðsins heimilt að aðstoða bændur
vegna uppskerubrests garðávaxta,
það hefði síðast verið gert 1979 þeg-
ar uppskerubrestur á kartöflum
varð í Eyjafirði og víðar, og einnig
væri heimilt að aðstoða bændur sem
verða fyrir heybresti. Það færi síðan
eftir ráðstöfunarfé búnaðardeildar
sjóðsins hvað mögulegt væri að gera
en eins og er hefði hann mjög tak-
markað fé til að taka á sig slík stór-
áföll. Sagði Magnús að það væri
ekkert nýtt að sjóðurinn væri van-
megnugur til aðstoðar af eigin fé,
sjóðurinn hefði þurft að taka verð-
tryggð lán á undanförnum árum til
að veita óverðtryggð lán með lágum
vöxtum og óafturkræfa styrki og
hefði það gengið á höfuðstól hans.
Magnús sagði að aðstoð vegna
þessara áfalla núna, sem þó væri
ekki enn vitað hvað yrðu mikil,
hefðu ekki verið rædd í stjórn sjóðs-
ins, en í slíkum tilfellum hefði að-
stoðin oft verið veitt í formi óverð-
tryggðra lána með lágum vöxtum.
ur vaxið um 29% og hlutdeild
Kanadamanna á þeim markaði
rúmlega tvöfaldast. Þá segir Guð-
jón, að birgðaaukning hafi valdið
því að greiðslum til framleiðenda
hér heima hafi seinkað.
Verð á íslenzkum þorskflökum í
fimm punda pakkningum hefur
verið 1,80 dollarar um langt skeið
og verð á þorskblokk lækkaði ný-
LÁNSKJARAVÍSITALA mun hækka
um 8,1% hinn 1. september næstkom-
andi. Vilji ríkisstjórnarinnar var að
ný reikningsaðferö vísitölunnar hefði
þegar komið til framkvæmda um
mánaðamótin, en það hefði þýtt 5,1%
hækkun lánskjaravísitölunnar 1.
september. Ef sú leið hefði verið farin
er talið að a.m.k. eigendur spariskír-
teina rtkissjóðs hefðu getað fengið
lega úr 1,18 dollurum í 1,16. Meðal-
verð Kanadamanna á þorskflökum
er nú á milli 1,20 og 1,30 dollarar.
Jón Sigurðsson, forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar, segir í samtali
við Morgunblaðið, að verði 10 senta
heildarlækkun á verði þorskflaka í
Bandaríkjunum gæti það þýtt um
100 til 150 milljóna króna tap fyrir
frystihús i landinu.
sér dæmda leiðréttingu hjá dómstól-
um og því var horfið frá því að taka
upp nýja lánskjaravísitölu um þessi
mánaðamót.
Á hinn bóginn hefur ríkisstjórn-
in ákveðið að ganga til móts við
húsnæðisbyggjendur og námsmenn
með þeim hætti að nýja lánskjara-
vísistalan taki þegar gildi gagnvart
þeim. Jafnframt mun ríkisstjórnin
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Morgunblaðsins, hafa tvö af
þeim kanadísku fyrirtækjum, sem
selja fisk til Long John Silvers,
Caribou og Fisheries Products, í
gær verið sett undir forráð opin-
berra skiptaráðenda. Mun það vera
vegna vanskila í fjármálum og er
fyrsta stig gjaldþrotsmeðferðar.
Ovíst er hvaða áhrif þetta hefur á
samkeppni Kanadamanna við Is-
lendinga.
beina þeim tilmælum til lífeyris-
sjóða að þeir hafi sama hátt á hús-
næðislánum sínum.
Þá hefur ríkisstjórnin óskað eftir ,
því við Seðlabankann að vextir og
lánskjör verði nú endurskoðuð með
hliðsjón af hjaðnandi verðbólgu. í
frétt frá Seðlabanka Islands um
þetta mál segir m.a.: „Bankastjórn
Seðlabankans er þeirrar skoðunar,
LJósm. Mbl./ KÖE.
Huga þarf vel að undirbúningi dúfn-
anna fyrir flugið, eins og sést á
myndinni.
Bréfdúfur
yfir landið
endilangt
Ekki skal menn undra þótt
dúfnaeigendur tvístígi og stari upp í
himinhvolfin þegar líða tekur á
kvöldið, í morgun hófst nefnilega
íslandsmót í bréfdúfnaflugi, svo
framarlega sem veðurguðirnir hafa
ekki tekið í taumana. Þeir dúfna-
eigendur sem eiga dúfur í keppn-
inni bíða því spenntir eftir aö fá
þær heim.
Um 20 bréfdúfur taka þátt í
keppninni og var flogið með þær
til Egilsstaða í gærkvöld. Þar tóku
bréfdúfnaeigendur frá Húsavík á
móti þeim, gist var hjá bréfdúfna-
eiganda á Eskifirði og í morgun
var haldið til Norðfjarðar, þaðan
sem dúfurnar fljúga sjálfar til
síns heima. Nokkuð misjanft er
hversu langt keppendur þurfa að
fljúga, því dúfurnar eru frá ýms-
um stöðum á landinu, en sú bréf-
dúfa ber sigur úr býtum, sem best-
um meðaltíma nær.
„Mesti spenningurinn verður að
sjá hvort dúfunum nægir sá tími
sem bjart er til að komast heim,"
sagði Jón Guðmundsson, formað-
ur félags bréfdúfueigenda í
Reykjavík, þegar Mbl. spjallaði
við hann í gær. „Ef þær komast
þetta ekki á einum degi, fljúga
þær á leiðarenda á sunnudag." Að-
spurður um hvort dúfurnar skil-
uðu sér alltaf sagði Jón: „I flestum
tilfellum gera þær það, enda
tamdar þannig að áfangastaður er
alltaf hjá eiganda. Að vísu hefur
það komið fyrir að bréfdúfur hafa
týnst, en ekki oft. Dúfurnar í þess-
um hópi eru allt frá þriggja mán-
aða aldri og almennt vel tamdar."
að rétt sé að aðlaga vaxtakerfið
breyttri verðlagsþróun í áföngum
næstu mánuði, og er fyrirhugað að
fyrsta skrefið til vaxtalækkunar
verði tekið snemma í næsta mán-
uði.“
Samkvæmt áætlunum mun láns-
kjaravísitalan hækka um 2,4% í
október, 2,7% í nóvember og 1,2% í
desember. Sú áætlun hvílir á verð-
bólguspá Þjóðhagsstofnunar og
samkvæmt hækkun vísitölunnar í
desember má gera ráð fyrir að
verðbólguhraðinn miðað við heilt
ár verði þá kominn niður í um 30%.
Sjá nánar á bls. 18.
Sjá nánar á miðopnu
blaðsins í dag.
Lögreglumenn leita að vopnum á öðrum piltanna.
Morgunbladid/ Júlíus.
Ógnuðu fólki með hnífum
TVEIR piltar vel við skál voru hand-
teknir fyrir framan Laugardalshöll-
ina í Reykjavík síðdegis í gær. Þeir
ógnuðu hvor öðrum með hnífum og
létu dólgslega — hótuðu nærstöddu
fólki öllu illu. Þeir ógnuðu starfs-
manni Iðnsýningarinnar þegar hann
hafði afskipti af þeim.
Því var brugðið á það ráð að
kaila til lögreglu. Lögreglumaður
á vélhjóli kom fyrstur á vettvang,
handknattleikskappinn kunni úr
Víkingi, Steinar Birgisson. Pilt-
arnir sýndu mótþróa en Steinar
afvopnaði þá eins og sönnum Is-
landsmeistara sæmir. Skömmu
síðar komu fleiri lögreglumenn á
staðinn. Piltarnir voru fluttir í
fangageymslur lögreglunnar og
látnir sofa úr sér vímuna.
Seðlabanki Islands:
Vextir verði lækk-
aðir í næsta mánuði
Lánskjaravísitala hækkar um 8,1% 1. september
nk. og verður reiknuð út mánaðarlega hér eftir