Morgunblaðið - 27.08.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1983
5
Ördeyða ofan Glanna
Það hefur vakið mikla athygli laxveiði-
manna og veiðiréttareigenda við Norðurá í
sumar, að það hefur verið að heita má ördeyða
á svæðinu fyrir ofan Glanna. Um er að ræða
svæði sem gefur yfirleitt nokkur hundruð laxa
á hverju sumri og þegar líður á veiðitímann er
það að öllu jöfnu besta veiðisvæði árinnar,
auk veiðistaða „milli fossa", sem kallað er. En
í sumar hafa aðeins 6 laxar veiðst á þessu
svæði og veiði lýkur í Norðurá um þessi mán-
aðamót.
Mikill lax er í Norðurá, en hefur tekið treg-
lega að undanförnu, þannig náði sfðasta „holl“
aðeins 10 löxum á 12 stangir á þremur dögum.
Að sögn veiðivarðar, virðist svo sem laxinn
ráði ekki við Glanna og hafi ekki gert í sumar,
hvort um sé að kenna mjög miklu vatnsmagni
eða einhverju öðru. Mikill lax er alls staðar
neðar í ánni. Athygli vakti, að nokkrir lax-
anna tíu sem síðasti flokkur veiddi, voru ný-
gengnir með og Mbl. hefur það eftir góðum
heimildum, að nýgengnir laxar hafi fengist f
netalagnirnar i Hvitá fram á siðasta dag, 20.
ágúst.
Veiðin hefur farið stigminnkandi í Norðurá,
hópurinn á undan þeim síðasta fékk 30 laxa og
þar á undan veiddust 60 laxar. Stærsti laxinn
í sumar var 19 pund, hann veiddi Helgi Eyj-
ólfsson á maðk i Myrkhylsrennum. Jakob
Hafstein dró snemma i sumar stærsta flugu-
laxinn, 18 punda fisk í Munaðarnesi. Allur
obbinn af laxinum hefur þó verið smár, þetta
4—6 pund yfirleitt. Alls voru komnir úr Norð-
urá í gær um 1600 laxar.
Stokkhylur í Norðurí.
Grímsá að dofna
„Það eru komnir um 1150 laxar á land úr
Grímsá í sumar og er það svona nokkurn veg-
inn meðalveiði sé miðað við siðustu tíu árin,“
sagði Sturla í Fossatúni, veiðivörður, um veið-
ina í Grfmsá f sumar.
Sturla sagði að þetta væri miklu betri veiði
en á sama tíma f fyrra, en heldur hefði dregið
úr veiðinni, „það er nóg af laxi í ánni, en hann
tekur orðið fremur illa, sfðasti hópur veiddi þó
26 laxa á tveimur dögum, en veitt er á 10
stangir," bætti hann við.
Stærsti laxinn í sumar veiddist á flugu í
síðasta mánuði, eins og greint hefur verið frá,
22 punda tröll, en í fyrradag veiddist sá næst
stærsti. Var það 19 punda lax sem veiddist á
maðk f veiðistað • sem heitir Bugur. Sagði
Sturla að sá fiskur hefði verið nýlega genginn
og nokkuð hefði reyst upp af nýrunnum laxi
síðustu dagana. „En laxinn er yfirleitt frekar
smár, hann var mjög vænn framan af, en enn
veiðast annað slagið 10—15 punda fiskar,"
sagði Sturla að lokum.
Elliðaárnar gefa sig ekki
Jöfn og góð veiði hefur verið í Elliðaánum
og fyrr i vikunni voru komnir vel á tólfta
hundrað laxar úr ánni. Um nokkurra daga
skeið höfðu þá veiðst að jafnaði 11 til 29 laxar
á dag. Mikill lax er upp um alla á og hreinlega
mergð á neðri svæðunum eftir því sem tíð-
indamenn hafa tjáð Mbl. Fyrir nokkrum dög-
um voru menn enn að kasta fyrir lúsuga ný-
renninga á neðstu veiðistöðunum, ekki sérlega
algeng sjón svo seint á veiðitíma.
Leirvogsá stórfín
Loks má geta Leirvogsár, sem oft hefur ver-
ið getið í sumar. Hún hefur gefið afar vel í
sumar og verið mikill vinur vina sinna. Hún
hefur þegar gefið vel á fimmta hundrað laxa
og veiðitíminn er til 20 .september. Miklir
möguleikar á metveiði, hver veit? Um Leir-
vogsá hafa ýmsir sagt að laxinn taki illa flugu
og þykjast margir hafa sannreynt það. Nægir
að líta á skýrslurnar til að sjá að rúmlega
bróðurparturinn af aflanum veiðist þar á
maðk. Einn af fengsælli veiðimönnum þessa
lands fór eitt sinn í á þessa og var hún full af
fiski. Hann hefur sagt svo frá, að hann hafi
sveiflað flugu 80 prósent af veiðitímanum, en
rennt maðki þess á milli. Hann veiddi 18 laxa
þennan dag, en engan á flugu!
„Uppsker-
an óskap-
lega Iéleg“
segir Óli Valur Hansson
gardyrkjuráðunautur
„NEI, ÞETTA er óbreytt allt saman.
Uppskeran er óskaplega léleg og
kemur manni satt að segja á óvart
því sumt af þessu er ræktað á heitu
landi eins og til dæmis austur í
Hrunamannahreppi," sagði Óli Val-
ur Hansson garðyrkjuráðunautur
Búnaðarfélags Islands í samtali við
Mbl. er hann var inntur eftir því
hvort uppskeruhorfur á útiræktuðu
grænmeti hefðu eitthvað lagast að
undanförnu.
Óli Valur sagði einnigf „Þetta
gæti þó lagast dálítið ef það
breytti til með veður fljótlega, ef
það færi þá ekki að frjósa. Maður
óttast það þegar þessi tími er
kominn að ef léttir til þá fari jafn-
framt að kólna að nóttunni og þá
líst mér nú ekki á það.“
Aðspurður um hvort ástandið
væri svipað eftir tegundum græn-
metis sagði Óli Valur: „Blómkálið
hefur komið best út og hefur
eitthvað borist af því í Sölufélagið
og hefur verðið lækkað á því.
Einnig hefur það litla sem menn
hafa verið með af spergilkáli eða
broccoly komið sæmilega út því
það er býsna nægjusamt. Hvítkál-
ið hefur aftur á móti komið illa út
og allt annað kálmeti svo og gul-
rætur, í þeim hefur ekki verið
neinn teljandi vöxtur.“
Ásgrímur Þorgrímsson, Borg, Mikla-
holtshreppi.
Asgrímur
Þorgríms-
son Borg
er látinn
ÁSGRÍMUR Gunnar Þorgrímsson
fyrrv. bóndi á Borg í Miklaholts-
hreppi lést á Sjúkrahúsi Akraness
fimmtudaginn 25. ágúst síðastliðinn,
87 ára að aldri.
Ásgrímur var fæddur 16. sept-
ember 1895 á Kóngsbakka i Helga-
fellssveit. Hann fluttist að Borg í
Miklaholtshreppi árið 1916. Árið
1917 kvæntist hann önnu Stef-
ánsdóttur frá Borg þar sem þau
hófu búskap. Ásgrímur átti heima
á Borg til dauðadags, Anna lést
árið 1967. Þau Ásgrímur og Anna
eignuðust 7 börn sem öll komust
upp en eitt þeirra er nú látið.
VZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
: Símar
RósW
syni
19
rósasVn'n^ar‘
Tatóö Ipatt'sko _ rósahafiö-
B\óm
SÝn
in.ðiB,ómav8«u"’
heiginao9*í®,a
■»