Morgunblaðið - 27.08.1983, Page 13

Morgunblaðið - 27.08.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1983 13 Kaupgjald, kaupmátt- ur launa og lífekjör — eftir Ólaf Bjömsson Málefni þau, sem hér eru greind hafa eðlilega mjög verið til um- ræðu undanfarnar vikur og mán- uði, ekki sízt vegna hinna róttæku efnhagsaðgerða, er framkvæmdar voru í kjölfar myndunar núver- andi ríkisstjórnar í lok maí sl. Engan þarf að undra, að ráð- stafanir þessar hafi verið um- deildar. Bæði formælendur og andstæðingar ráðstafananna hafa þó rætt nauðsyn þess að almenn- ingur fengi sem gleggstar upplýs- ingar um rök þau er fram hafa verið færð fyrir nauðsyn ráðstaf- ananna og áhrif þeirra á afkomu einstaklinga og þjóðarheildar. Rök má og færa fyrir því, að ætla megi að skilyrði fyrir málefnalegri um- ræðu um þessar aðgerðir ættu að vera hagstæðari en oft áður, þegar gripið hefur verið til róttækra efnahagsaðgerða. Rökin eru þau, að gagnstætt því sem oft hefir verið áður, þegar sambærilegar ráðstafanir hafa verið gerðar, er nú enginn ágreiningur um þau markmið, sem að hefur verið stefnt að með ráðstöfununum. All- ir viðurkenna, að nauðsyn bar til þess að fyrirbyggja það, að verð- bólgan tæki nýtt stökk upp á við og sömuleiðis er varla ágreiningur um það, að forðast beri óhóflega erlenda skuldasöfnun. Til saman- burðar má nefna það, að þegar viðreisnarráðstafanirnar voru gerðar 1960, var einn megintil- gangur þeirra að koma á frjálsari gjaldeyrisviðskiptum, en því fór fjarri, að allir væru sammála um það, að slíkt væri almenningi til slíkra hagsbóta, að vert væri að færa verulegar fórnir til þess að ná því markmiði. Það getur varla verið ágreining- ur um það heldur, að ráðstafanir þær, sem gerðar hafa verið, eru spor í átt til þess að ná þessum markmiðum, sem allir eru sam- mála um, þótt deila megi vitan- lega um það, hvort ná mætti við- unandi árangri með minni fórn- um. En þrátt fyrir þetta er því að mínum dómi mjög áfátt, að reynt sé að upplýsa almenning um þetta mál, svo sem lofað hefir verið bæði af hálfu formælenda og and- stæðinga ráðstafananna. Er það ástæða þess, að þessar greinar eru skrifaðar. Ekki er þó svo að skilja, að ég telji mig þekkja einhverjar staðreyndir þessara mála, sem aðrir ekki þekkja eða a.m.k. hafa hvergi komið fram. Það vantar heldur ekki að flóð af tölum um áhrif þessara aðgerða og skýr- ingar á nauðsyn þeirra hafi ekki birzt almenningi í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. En þar sem litl- ar skýringar eru jafnan gefnar á því, hvernig þessar tölur eru fundnar, eða þeim forsendum sem þeim liggja til grundvallar, verður almenningur litlu fróðari þótt hann sjái eða heyri slíkar tölur. Eins og fyrirsögn þessarar greinar ber með sér, er það sam- bandið milli kaupgjalds, kaup- máttar launa og lífskjara, sem einkum verður rætt með hliðsjón af þeim aðstæðum, sem nú ríkja í íslenzku efnhagslífi. Eins og bráð- lega verður nánar skýrt er þetta samband einfalt og auðskilið ef gert er ráð fyrir stöðugu verðlagi. Ef verðbólga er hinsvegar ríkjandi verður sambandið hinsvegar flóknara og ýmsar ályktanir, sem óskorað gildi hafa, miðað við stöð- ugt verðlag, geta orðið beinlínis rangar ef gert er ráð fyrir því, að mælikvarði sá, sem notaður er á verðmætin, hvort sem hann heitir króna eða eitthvað annað, er sí- feilt að breytast. Eðlilega villir þetta fólki mjög sýn í þessum efn- um, alveg á sama hátt og það myndi rugla fólk mjög í ríminu, t.d. varðandi allar umferðarregl- ur, ef lengdareiningin hvort held- ur er metri eða kílómetri væri eitt í dag og annað á morgun. Þar sem reglur um aksturshraða ofl. mið- ast auðvitað við það, að einingin sem mælir vegalengdir sé ávallt sú sama, ætti að vera auðsætt, að það, að vera sífellt að breyta henni, getur valdið öngþveiti í um- ferð og stóraukinni slysahættu. En það er einmitt nokkuð þessu líkt sem hrjáir efnahagslíf þjóða, sem búa við hátt verðbólgustig. Samband kaupgjalds, kaup- máttar launa og lífskjara þegar verðlag er stöðugt Ef verðlag er stöðugt, er auð- sætt að kaupgjald, sem venjulega er mælt sem greiðsla fyrir vinnu miðað við einhverja tímaeiningu og kaupmáttur launa hljóta alltaf að breytast í sömu átt og í sömu hlutföllum. Ef kaup hækkar t.d. um 5% leiðir það af stöðugu verð- lagi, að kaupmáttur launa vex einnig um 5%. Lífskjör launafólks eru hinsveg- ar háð fleiri atriðum en kaup- mætti launa svo sem þeirri þjón- ustu er hið opinbera veitir þegnum sínum, sköttum, lengd vinnutíma, fjármagnskostnaði og hugsanleg- um tekjum af fjármagni, svo hið mikilvægasta sé nefnt. Gera má þó jafnan ráð fyrir því ef verðlag er stöðugt, að kaupgjald og lífs- kjör fylgist jafnan að, þótt ekki þurfi þetta að breytast í nákvæm- lega sömu hlutföllum, því að ólík- legt er, að kauphækkanir t.d. hafi neikvæð áhrif á aðra þætti lífs- kjaranna. Gera má því ráð fyrir því, að kauphækkanir og kjara- bætur fylgist að, a.m.k. svo fremi sem kauphækkanir draga ekki úr atvinnu. Átökin á vinnumarkaðin- um voru þannig átök um skiptingu þjóðartekna milli launa og ágóða. Til skamms tíma má líka segja, að það hafi verið ríkjandi skoðun bæði hagfræðinga og stjórnmála- manna, að hið stöðuga verðlag væri í raun hið eðlilega og æski- lega ástand. Segja má líka að nokkurn veginn stöðugt verðlag hafi verið ríkjandi í öllum þeim ríkjum, sem eitthvert mikilvægi höfðu í heimsviðskiptunum allt frá lokum Napóleonsstyrjaldanna til síðari heimsstyrjaldar. Verð- bólga var að vísu á árum fyrri heimsstyrjaldar, en hún hjaðnaði fljótt að henni lokinni og horfið var þá að fyrri stefnu í efna hagsmálum, sem hafði stöðugt verðlag að markmiði. Tæki þau sem beitt var til þess að tryggja stöðugt verðlag voru í fyrsta lagi peningamálin, þannig að útlánum var haldið í skefjum svo að aukið peningamagn leiddi ekki til verð- hækkana. í fjármálum ríkisins var stefnan sú, að tekjur og gjöld stæðust á, þannig að ekki væri halli á fjárlögum. Það studdi og að stöðugu verðlagi í utanríkisvið- skiptum var stefna frjálsrar versl- unar yfirleitt ríkjandi. Miðað við þessar aðstæður gátu atvinnurekendur yfirleitt ekki velt þeim kauphækkunum, sem um kunni að vera samið yfir í verðlag- ið, heldur urðu þeir að greiða þær af ágóða sínum. Samkeppnin er- lendis frá hindraði það, að hægt væri að hækka vöruverð þó kaup- gjald hækkaði. Peningamagn var heldur ekki látið vaxa þó að kaup hækkaði. Bankastjórar sögðu þá jafnan sem svo við atvinnurekend- ur: Það er ykkar mál að semja um hærra kaup við launþega, en þið skuluð ekki búast við þvi, að fá einum eyri meira í rekstrarlán en þið áður hafið fengið. Kauphækk- anir voru þannig tekjutilfærsla milli launþega og atvinnurekenda og ekkert annað. Á hinn bóginn veitti það launþegum aðhald um það að gera ekki óhóflegar kaup- kröfur, að þeir gerðu sér það ljóst, að jafvel þótt slíkar kröfur næðu fram að ganga, þá var hætta á því að atvinnuleysi ýrði afleiðing ef gengið yrði of nærri atvinnu- rekstrinum, því að á þeim tímum var litið svo á, að það væri á ábyrgð aðila vinnumarkaðarins, hvort næg vinna byðist á því kaupi, sem um var samið, en ríkið bæri þar enga ábyrgð. Þetta er skýring á því að hundr- aðstölur þær eða fjárhæðir, sem vinnudeilur snerust um á þeim tíma virðast e.t.v. hlægilega lágar í dag. Á íslandi var t.d. að jafnaði deilt um 5% kauphækkun eða 5—10 aura hækkun timakaups. En þá ber að hafa það hugfast, sem alltof oft sést yfir í okkar verðbólguþjóðfélagi að 2—3% kauphækkun, sem sótt er í vasa atvinnurekenda, er meiri kjarabót reiknað í raunlaunum, en 20—30% kauphækkun sem tafarlaust er sótt í vasa launþeganna sjálfra með hækkun á verði vöru eða þjónustu. Ólafur Björnsson Verðbólga sem skattheimtutæki Með seinni heimsstyrjöldinni lauk því tímabili stöðugs verðlags, sem segja mátti að ríkt hafi í rúma öld þar á undan ef undan- tekin eru ár fyrri heimsstyrjaldar. Ekki svo að skilja, að verðbólga hafi verið óþekkt fyrirbrigði fram til þess tíma. Dæmi um rýrnun verðgildis peninga finnast aftur í fornöld, samanber þátt um sögu verðbólgunnar sem fluttur var fyrir skömmu í sjónvarpi. En verðbólga var þá að jafnaði stað- bundið fyrirbrigði og átti nær allt- af rót sína að rekja til styrjalda og á það nú raunar að talsverðu leyti við enn í dag. En hvers vegna er samband milli styrjaldarrekstrar og verðbólgu? Styrjaldir kosta mikið fé, þannig að það verður eitt mesta vandamál þeirra ríkis- stjórna, er í styrjöldum lenda, að afla fjár til reksturs styrjaldar- innar. Nærtækast er þá auðvitað að leggja á nýja skatta, en þar sem um svo geysilega mikla fjáröflun- arþörf er að ræða, þykir sjaldnast framkvæmanlegt að innheimta slíkar fjárhæðir eftir venjulegum skattaleiðum. Þá er gripið til þess ráðs að yfirdraga reikning ríkisins í seðlabanka viðkomandi lands eða auka seðlaprentun sem venjulega er það sama. Ríkið keppir nú við einstaklingana um hið takmark- aða vöruframboð sem á markaðin- um er, og þar sem það verður sjaldnast aukið á styrjaldartímum hljóta vörur og þjónusta að hækka í verði. Verðhækkanirnar knýja svo borgarana á sama hátt og „Höfuðgalli vísitölubót- anna er hinsvegar sá, að þegar hraði verðbólg- unnar er kominn á ákveðið stig, þá ná þær ekki lengur þeim til- gangi sínum að tryggja kaupmátt launa, heldur hafa jafnvel neikvæð áhrif á hann. Rök má færa fyrir því að hér á landi hafi verðbólgan það sem af er þessu ári og jafnvel lengra aftur í tímann verið komin á þetta stig.“ venjuleg skattlagning til þess að minnka neyzlu sína. Viðbrögð launþega verða gjarnan þau, að krefjast hærra kaupst til þess að bæta sér þá kjaraskerðingu, sem af verðhækkunum hefur leitt. Ekki tekst launþegum þó, a.m.k. ekki þegar miðað er við styrjald- araðstæður, að koma sér undan verðbólguskattinum með þessu móti. Ríkisvaldið mætir aukinni kaupgetu launafólks með því að koma með nýjar seðlafúlgur á markaðinn, þannig að verðlagið hækkar á ný og þannig gengur koll af kolli. Hér kemur fram hið alkunna fyrirbrigði víxlhækkanir kaup- gjalds og verðlags. Sömuleiðis tafatapið sem svo hefir verið nefnt, en af því leiðir að launþegar geta þurft að sæta verulegri kjaraskerðingu jafnvel þótt þeir hafi samninga um fullar verðbæt- ur á laun, aðeins vegna þess að kauphækkanir koma á eftir verð- hækkunum. Sumir kunna að segja að úr slíku megi bæta með grunnkaupshækkunum eða því að greiða verðbætur oftar. Miðað við þær forsendur sem hér er byggt á, þ.e. að vöruframboð verði ekki aukið, er þetta þó misskilningur. Slíkt mundi aðeins auka hraða verðbólgunnar þannig að tafatap- ið yrði sízt minna en áður. Kaup- máttur launa verður aðeins auk- inn með því að auka þau raunverð- mæti, sem á boðstólum eru, ekki með því að prenta fleiri seðla eða prenta hærri tölur á þá, sem fyrir eru í umferð. Geta vísitölubætur verðtryggt laun? Gagn- rýnin á vísitölu- fyrirkomulagið Þegar tímabil stöðugrar verð- bólgu á friðartímum hófst eftir síðari heimsstyrjöld, voru það víða í löndum viðbrögð launþegasam- taka til þess að koma á veg fyrir sírýrnandi kaupmátt launa af völdum verðhækkana, að gera kröfur um sjálfvirka hækkun launa til samræmis við hækkun framfærslukostnaðar. Frá sjón- armiði atvinnurekenda gat sá kostur líka fylgt slíku fyrirkomu- lagi, að auðveldara var að semja til lengri tíma með því móti, held- ur en vera myndi ef launþegar teldu sig óvarða gegn hækkun framfærsluskostnaðar. Mjög skiptar skoðanir hafa þó lengst af verið um það, hvort vísi- tölufyrirkomulagið væri hag- kvæmt eða skynsamlegt. Annars vegar er það sjónarmið, sem all- miklu fylgi hefir jafnan átt að fagna innan launþegasamtakanna, að vísitölubætur séu „verðtrygg- ing launa" eins og það hefir verið orðað, þannig að með því sé tryggt, svo sem bezt má verða, að verðhækkanir rýri ekki kaupmátt launa. Hinsvegar er svo það sjónarmið, að það sé sjálfsblekking ein að vísitölubætur tryggi kaupmátt launa. Hinsvegar séu þær mikill verðbólguhvati og verði þær þann- ig til þess að draga úr framleiðslu- afköstum, en það bitni svo bæði á launþegum og atvinnurekstrinum. Oftast mun sannleikurinn þó liggja einhvers staðar á milli þess- ara öfga. Miklu máli skiptir þó fyrir mörkun skynsamlegrar launamálastefnu að gera sér grein fyrir því, hver staðan er í þessu efni á hverjum tíma og verður það tekið til meðferðar í framhalds- grein. Miðað verður þá við aðstæð- ur í íslenzku efnahagslífi frá lok- um síðari heimsstyrjaldar, en höf- uðáherzla verður þó lögð á við- horfin eins og þau eru í dag. En áður en lengra er haldið, er rétt að minnast á þá gagnrýni á vísitölu- fyrirkomulagið, sem mjög ofar- lega hefir verið á baugi hér á landi að undanförnu og er í því fólgin að vísitölubætur á laun auki launa- mismun þess sem þær hygli, sér- stakiega hálaunamanna, saman- borið við þá, sem lægri laun hafa. Þessi gagnrýni er þó vanhugsuð. Þetta sýndi Björn Arnórsson hagfræðingur BSRB á skýran hátt fram á í grein í Tímanum þ. 28. júní sl. Eins og dæmi hans um bræðurna Gísla, Eirík og Helga sýndu, blanda þeir, sem halda því fram að hálaunamenn græði sér- staklega á vísitölubótum, sem eru hlutfallslega þær sömu á öll laun, saman breytingum á magni raun- verðmæta og mælikvarðanum, sem notaður er á verðmætin. Ég ræð þeim er mynda vilja sér rétta skoðun á þessu máli til þess að lesa grein Björns. Sjálfur hefi ég alloft að undan- förnu í einkasamtölum tekið mjög einfalt dæmi til þess að skýra þetta. Hugsum okkur, að mánað- arkaup háseta á fiskiskipi hafi fyrir tveimur árum verið 10 þús. kr. en kaup skipstjóra á sama skipi 20 þús. kr. Segjum að í dag sé bæði kaupgjald og verðlag tvöfalt á við það, sem þá var. Kaup háseta er því 20 þús. kr. en skipstjóra 40 þús. Þeir sem halda því fram, að hálaunamenn græði á hlutfalls- legum vísitölubótum, segja nú, að fyrir tveimur árum hafi munað 10 þús. kr. á kaupi háseta og skip- stjóra en nú muni 20 þús. kr., svo að auðsætt sé að skipstjórinn hafi grætt á vísitölubótunum borið saman við hásetann. Það sem sést hér yfir er það að hver króna er á seinni tímabilinu nákvæmlega helmingi minni en var á fyrri tímabilinu. Hlutföllin milli raun- launa þessara tveggja manna hafa þá ekkert breytzt. Þeir standa ná- kvæmlega í sömu sporum og áður. Við fáum hærri tölur ef við mæl- um vegalengdina til Þingvalla í metrum fremur en kílómetrum, en öllum ætti að vera ljóst, að vega- lengdin er sú sama, hvern mæli- kvarðann sem við notum. Ef við erum þeirrar skoðunar, að rétt sé að launahlutföll ákveð- ist í samningum launþega og at- vinnurekenda, er það einmitt kost- ur við launabreytingar í mynd vísitölubóta, að þær raska ekki þessum hlutföllum. Höfuðgalli vísitölubótanna er hinsvegar sá, að þegar hraði verð- bólgunnar er kominn á ákveðið stig, þá ná þær ekki lengur þeim tilgangi sínum að tryggja kaup- mátt launa, heldur hafa jafnvel neikvæð áhrif á hann. Rök má færa fyrir því að hér á landi hafi verðbólgan það sem af er þessu ári og jafnvel lengra aftur í tímann verið komin á þetta stig. En það verður tekið til nánari meðferðar í framhaldsgrein. Olafur Björnt&on er prófessor rið riöskiptafriedideild Háskóla ís- lands. Hann rar um langt árabil alþingismaður fyrir Sjálfstaeðis- flokkinn í Keykjarík og einn helzti talsmaður flokksins í efnahagsmál- um sro og ráðunautur ríkisstjórnar um áratugaskeið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.