Morgunblaðið - 27.08.1983, Síða 16

Morgunblaðið - 27.08.1983, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1983 Öllum þeim sem heiðruðu mig og glöddu með heimsókn- um, góðum gjöfum, blómum og heillaóskaskeytum í til- efni 90 ára afmœlis míns 20. þessa mánaðar, þakka ég af heilum hug og býð ykkur blessunar Guðs. Krístjón Ólafsson. Þakka öllum þeim sem glöddu mig á áttrœðisafmœli mínu 15. ágúst með heimsóknum, gjöfum, skeytum og blómum. Guð blessi ykkur ölL Sveinn Pálsson, Dalbraut 25, Reykjavík. Embætti aualýst laus tU umsÓKnar Auglýst eru laus til umsóknar neðangreind tvö embætti: 1) Embætti forstöðumanns Byggingarsjóðs ríkisins. 2) Embætti forstöðumanns Byggingarsjóðs verkamanna. Æskilegt er, að umsækjendur hafi viðskipta- eða hagfræðimenntun. Launakjör eru samkvæmt samningum fjármála- ráðuneytisins við samtök ríkisstarfsmanna. Umsóknir ber að senda til framkvæmda- stjóra stofnunarinnar eigi síðar en föstudaginn 16. september n.k. Reykjavík, 24. ágúst 1983, L§=>Húsnæðisstofnun ríkisins Bflasala Eggerts v/Höfðabakka Mazda 919 2000 Ht. 1983 Mazda 626 2000 1982 Volvo 244 GL 1982 Volvo 244 GL 1981 Honda Accord EX m/öllu 1982 Honda Quintet 1981 SAAB 99 GLI 1981 BMW316 1981 Mazda RX-7 1980 Mazda 323 1980 Bílasala Eggerts Símar 28488 og 28255 3R*fgmi((afrtfr Metsölubhd á hverjum degi! AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MICHAEL GOLDSMITH Leiðtogarnir tveir, sem nú etja kappi í Chad, voru áður samherjar gegn leppstjórnum Frakka í höfuðborg lands- ins, N’djamena. Hissene Habre, fjörutíu og eins árs, er nú sjálfskipaður kyndilberi vestrænna öryggishagsmuna í Afríku. Hann var áður foringi skæruliðahreyfíngar, sem barðist fyrir uppræt- ingu „franskrar heimsvaldastefnu“ frá bækistöðvum í norðlægum eyðimörkum landsins. Habre er af hjarð- mannaættbálki Toubou-manna („manna norðursins“), sem beitt hafa geitum sínum og kameldýrum á hrjóstrug- um auðnum meðfram landamærum Chad og Líbýu í þús- undir ára. Goukouni Oueddei, þrjátfu og fjögurra ára að aldri, er arfborinn höfðingi Toubou- ættbálki, þrátt fyrir að hann hafi aldrei færzt í búning ætt- bálkshöfðingja formlega. Faðir Goukounis, sem var síðasti höfðingi ættbálksins, andaðist fyrir nokkrum árum í eyði- merkurbæ í Suður-Líbýu. Á síðustu árum æfi sinnar hvatti höfðinginn Moammar Khadafy til að útvíkka landamæri Líbýu í suðurátt og sameina þannig beitilönd Toubou-manna. Stein- ristur og klettamálverk, sem fundizt hafa í Tibesti-fjöllun- Pierre Galopin, majór, í samn- ingaerindum til herbúða Habres 1975. Þar sem Galopin hafði lausnargjaldið ekki með- ferðis lét Habre færa hann fyrir rétt sakaðan um njósnir og lét síðan taka hann af lífi. Dauði Galopins og fangelsun Claustres olli mikilli reiði al- mennings í Frakklandi og voru á döfinni áform um að senda fallhlifaherdeild til að gera út af við uppreisnarmenn. Goukouni tókst hins vegar að sannfæra ættbálk sinn á fyrri hluta ársins 1977 að varðhalds- vist ungfrúrinnar þjónaði ekki skamms tíma með embætti for- seta, en Habre varð varnar- málaráðherra. Fylgismenn beggja voru þó þegar á þessum tíma farnir að skipa sér í tvær fylkingar og mátti sjá þá með alvæpni augliti til auglitis fyrir utan forsetahöllina. Á endanum kom að því að upp úr sauð með fylkingunum tveimur. Goukouni bauð Khad- afy að nema Chad herskildi í desember 1980, og bar því við að hann þyrfti á aðstoð að halda í baráttunni gegn „sam- særi heimsvaldasinna". Líbýsk- ar hersveitir höfðu höfuðborg landsins á valdi sínu i eitt ár. Tilkynnt var um samruna Líb- ýu og Chad og haldnar bóka- brennur á aðaltorginu í N’djamena, þar sem biflíum og bænakverum á frönsku og ensku var varpað á bálköstinn. Múhammeðstrú var gerð að ríkistrú og arabíska lögleitt sem eina opinbera tungumálið þrátt fyrir að minna en helm- ingur fimm milljón íbúa væru Múhammeðstrúar eða töluðu arabísku. Khadafy kallaði hersveitir Bardagabrædur frá gam- alli tíð berjast nú í Chad Hissene Habre um í Norður-Chad og tilheyra forfeðrum Toubou-manna, eru taldar vera tíu þúsund ára gamlar. Goukouni gekk á unga árum til liðs við Toubou-skæruliða Habres í Oqbesti-eyðimörkinni og gerðist trúar- og ættbálks- leiðtogi hreyfingarinnar. Habre var hins vegar óum- deildur hernaðarforingi. Þann 21. ápríl 1974 leiddi Habre skæruliðahóp, er réðist á herbækistöð Frakka í Bardai, á afskekktum stað í hjarta Tib- esti-eyðimerkur. Um tuttugu Frakkar, hermenn og óbreyttir borgarar, voru drepnir og nokkrir borgarar, þ.á m. franski fornleifafræðingurinn Francois Claustre, numdir á brott. Habre lét síðar alla gísl- ana lausa að einum undanskild- um, ungfrú Claustre, sem Habre reyndi næstu þrjú árin að nota til að kúga lausnargjald út úr Frökkum. Gjaldið, sem Habre setti upp: hergögn að jafnvirði tvö hundruð og sjötíu milljóna íslenzkra króna til að nota gegn Frökkum. Stjórnvöld í París sendu Moammar Khadafy tilgangi sínum. Habre neitaði að fallast á sjónarmið Gouk- ounis og voru þá gerðar ráð- stafanir til að víkja honum úr starfi skæruliðaforingja. Gouk- ouni flaug þegar í stað með fornleifafræðinginn til höfuð- borgar Líbýu, Tipólí, og sleppti henni eftir að hafa látið ljós- mynda sig ásamt Khadafy og ungfrú Claustre í miðið. Habre fyrirgaf Goukouni aldrei að hafa sært stolt hans með þess- um hætti. Flýði hann fljótlega úr landi ásamt fáeinum áhang- endum, en Goukouni snéri aft- ur og gerðist foringi skæruliða. ^orseti Chad, Felix Malloum, studdur af Frökkum, bauð Habre síðar að gerast forsæt- isráðherra landsins í von um að skæruliðaforinginn fyrrverandi kynni tökin á Goukouni. Úfar risu á vinskap Malloums og Habres og var hinum fyrr- nefnda steypt af stóli 1979. í ringulreið þeirri, sem fylgdi í kjölfarið, fór Goukouni til Goukouni Oueddei sínar aftur á seinni hluta árs- ins 1981 og vó þar þyngst á metunum þrýstingur annarra Afríkuríkja. Habre, sem hrökklaðist til Súdan undan innrás Líbýumanna, náði höf- uðborginn aftur á sitt vald nokkru síðar en Goukouni stökk í útlegð í júní 1982. Goukouni skaut aftur upp kollinum í Bardai og héldu Líb- ýumenn yfir honum hlífiskildi. Lýsti hann þegar yfir stofnun nýs lýðeldis Múhammeðstrú- armanna til höfuðs stjórn Habres, sem hann nefndi „ný- lendustjórn í nýrri mynd". Orðrómur hefur nýlega verið á kreiki um að Goukouni kunni að hafa horfið af sjónarsviðinu eða jafnvel týnt lífi í átökum í Chad nýlega. Ekkert hefur enn komið fram sem hafa mætti til vitnis um afdrif foringjans. Baráttá skæruliða gegn stjórn- inni er að minnsta kosti enn í fullum gangi og óttast menn mest að styrjöldin magnist út fyrir landamæri Chad. Mirhael Goldsmith er frétta- maður AP-fréttastofunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.