Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 1
48 SIÐUR OG LESBOK
224. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Megum ekki bregðast
þótt reyni á þolrifin
Margaret Thatcher, for-
sætisráðherra Bret-
lands, og Konald Reag-
an, Bandaríkjaforseti, á
fundi þeirra í fyrra-
kvöld.
Símamynd AP.
— sagði Margaret Thatcher við
fréttamenn í Washington
Washington, 30. september. AP.
MARGARET Thatcher, forsætisrádherra Breta, lýsti yfir eindregnum stuðn-
ingi sínum við varnarmálastefnu Bandaríkjamanna í ræðu, sem hún flutti f
gærkvöldi. Hún sagði þá m.a.: „Þolrif okkar eru nú reynd til hins ýtrasta, við
megum ekki bregðast nú.“
Er Thatcher drap á það, sem
henni og Reagan fór á milli á
tveggja stunda viðræðufundi
þeirra, ítrekaði hún, að hún væri
hlynnt takmörkun kjarnorku-
vopna, en sagði jafnframt: „Það
þarf tvo til að ná samningum."
Sagði hún Reagan itrekað hafa
lagt fram nýjar tiliögur og það
sýndi öðru fremur vilja vestrænna
ríkja til samninga.
Þá lagði Thatcher á það ríka
áherslu, að kjarnorkuvopn Breta
og Frakka yrðu ekki tekin með í
reikninginn í samningaviðræðum
stórveldanna um takmörkun
kjarnorkuvopna. Kjarnorkuvopn
þessara tveggja þjóða næmu enda
aðeins 2,5% allra kjarnorkuvopna
Sovétmanna. Hins vegar kvað
háttsettur bandarískur embættis-
maður hana hafa sagt Breta reiðu-
búna til að endurskoða þá afstöðu
sína ef í ljós kæmi, að Sovétmenn
féllust á verulega fækkun
kjarnorkuvopna.
„Þótt ekki náist samkomulag
áður en fyrirhuguð staðsetning
flauganna hefst er ekki þar með
sagt, að ekki sé hægt að ná samn-
ingum. Ég vona og það er einlæg
trú mín að samningaviðræðurnar
haldi áfram, þannig að hægt verði
að komast að samkomulagi um
fækkun kjarnorkuvopna, að því
gefnu að Sovétmenn séu reiðubún-
ir til viðræðna um fullkomið jafn-
vægi,“ sagði Thatcher.
Að sögn beggja leiðtoganna
komu þau víða við í tveggja stunda
viðræðum sínum. Auk vígbúnað-
arkapphlaupsins ræddu þau m.a.
ástandið í Miðausturlöndum svo
og stöðu mála í Mið-Ameríku.
„Nú sitjum við
laglega í þvíu
New York, London ojj Tókýó, 30. september. AP.
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin CBS skýrði frá því í fyrrakvöld, að
Sovétmenn hafi allan tímann vitað, að kóreska flugvélin, sem þeir
skutu niður við Sakhalin-eyju 1. þessa mánaðar hafi verið farþegafíug-
vél.
Að sögn varnarmálafréttarit-
ara stöðvarinnar náðist eftirfar-
andi tilkynning frá fjarskipta-
stöð á Sakhalin-eyju: „Nú sitjum
við laglega í því. Flugmaðurinn
var að tilkynna að hann hefði
skotið niður farþegavél." Frétta-
maður CBS hafði eftir sama
heimildarmanni sínum innan
varnarmálaráðuneytisins
bandaríska, að úr því flugmaður-
inn hefði vitað nokkrum klukku-
stundum síðar, að hann hafði
skotið niður farþegavél, hlyti
hann að hafa gert sér grein fyrir
því á sama augnabliki og hann
hleypti af. Alls fórust 269 manns
með vélinni.
Yfirvöld í Japan tilkynntu í
dag, að þau hefðu hætt leit sinni
að braki úr vélinni við strendur
Hokkaido. Hins vegar yrði hald-
ið áfram að svipast um eftir
braki í Japanshafi undan
strandlengju Sakhalin.
Alþjóðasamtök flugmanna
hvöttu í morgun til þess, að þeg-
ar í stað yrði bundinn endi bann
það er flugmenn nokkurra landa
ákváðu og fól í sér niðurfellingu
áætlunarflugs til Moskvu í 60
daga. Hvöttu samtökin til þess
að banninu yrði aflétt frá og með
miðnætti á sunnudag. Tólf
NATO-ríkjanna 16 samþykktu
jafnframt í kjölfar árásarinnar
að meina flugvélum Aeroflot,
flugfélagsins sovéska, lendingar
í tvær vikur.
Þrír menn frá Alþjóða flug-
málastofnuninni voru í dag
sagðir væntanlegir til Japan í
næstu viku. Hlutverk þeirra er
að rannsaka árás Sovétmanna á
kóresku farþegaþotuna. Stofn-
unin ákvað á nýafstöðnum fundi
sínum í Montreal að gera eigin
úttekt á málinu.
Hvetja tíl lausnar
leiðtoganna sjö
V arsjá, 30. september. AP.
SJÖTfll leiðtogar úr hópi Samstöðu hafa hvatt pólska þingið til að láta lausa
þá 7 leiðtoga samtakanna, sem í haldi eru og eiga hugsanlega yfir höfði sér
dauðarefsingu. Segja leiðtogarnir 70, að með því stígi yfirvöld stórt skref í átt
til þjóðareiningar.
Á sama tíma staðfesti Lech
Walesa í viðtali við bandarísku
sjónvarpsstöðina ABC, að hann
ætti háar fjárupphæðir í erlend-
um bönkum. Hann bætti því jafn-
framt við að fé þetta væri ekki
einkaeign heldur sameiginleg eign
allra félaga Samstöðu. Um er að
ræða verðlaunafé, sem honum hef-
ÞJÓÐIR þriðja heimsins hafa
kvartað sáran undan seinagangi
efnaðri þjóðanna við ákvörðun um
hversu mikið þær hyggjast leggja í
lánasjóð Alþjóðabankans. Sjóður
þessi sér um lán til uppbyggingar í
vanþróaðri löndunum. Kvartanir
þjóðanna hafa verið helsta um-
ræðuefnið á sameiginlegum árleg-
um fundi Alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins og Alþjóðabankans, sem nú er
að Ijúka.
A.W. Clausen, forseti Alþjóða-
bankans, tók undir kvartanir
þróunarlandanna og líkti ástand-
inu í mörgum þeirra við tíma-
ur hlotnast úr ýmsum áttum.
Jafnframt ítrekaði Walesa þær
ásakanir sínar á hendur stjórn-
völdum, að þau hefðu falsað seg-
ulbandsupptöku, þar sem hann
var sagður fara þess á leit við
bróður sinn að hann legði milljón
dollara inn á bankareikning í
Vatíkaninu fyrir fjölskyldu sína.
sprengju. Ástandið væri alvar-
legt og tíminn naumur. Hvatti
Clausen Reagan Bandaríkjafor-
seta til þess að beita þingið
þrýstingi til að knýja fram auk-
na fjárveitingu til þróunarað-
stoðar.
Efnaðri þjóðir heims, sér í lagi
Bandarikin, segjast leggja fram
alla þá fjármuni, sem þeim sé
unnt. Álasa þau fátækari ríkjun-
um fyrir að taka ekki efnahags-
ástandið í heiminum með í reikn-
inginn þegar þau bera fram
kvartanir sínar.
Segulbandsupptaka þessi var
leikin í útvarpi fyrr í vikunni og
virðist enn einn liðurinn í ofsókn-
um stjórnvalda á hendur verka-
lýðsleiðtoganum, sem staðið hafa
yfir linnulítið að undanförnu.
Frjósamur
höggormur
Madrid. 30. september. AP.
HÓGGORMUR nokkur í dýra-
garðinu í Madrid setti heims-
met í gær, er hann eignaðist 71
afkvæmi á einu bretti.
Hér var um baneitraða teg-
und að ræða, kvikindi sem
hefur lítið fyrir að deyða
mann nái það að bíta. Venju-
lega eignast þessi dýrategund
um 20 unga í einu. Afrek
ormsins í Madrid er því með
ólíkindum.
Ungarnir vógu um 70
grömm hver við fæðingu og 63
þeirra lifðu fæðinguna. Það
tók dýrið 18 klukkustundir að
koma ungaskaranum í heim-
inn. Ungarnir dafna nú vel af
kanínuungakjöti, en móðirin
étur þó af mestu áfergjunni,
því hún bragðaði ekki matar-
örðu tvo síðustu mánuðina
fyrir fæðinguna.
Ramakvein þjóða
þriðja heimsins
W'ashington, 30. september. AP.