Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 t Eiginmaöur minn og faöir okkar, BJÖRN HILDIMUNDARSON, Tangagötu 9, Stykkishólmi, andaöist í sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 29. september. Elísabet Magnúsdóttir og börn. t Elskuleg dóttir okkar og systir, JÓNA HELGADÓTTIR, Sogavegi 24, Reykjavík, lóst í Borgarspítalanum, fimmtudaginn 29. september. Helgi Guómundsson, Katrín Gunnarsdóttir, Margrét Helgadóttir, Guöný Helgadóttir. t Faöir okkar. ÞORLEIFUR JÓNSSON, fyrrv. sveitarstjóri é Eskifiröi, lést í Landspítalanum fimmtudaginn 29. september. Börnin. t Móöursystir mín, SIGRÍÐUR R. JÓNSDÓTTIR frá Svínafelli í örœfum, Austurbrún 6, andaöist í Borgarspitalanum aö kvöldi 29. september. Fyrir hönd vandamanna, Ragnar Þórhallsson. t Eiginmaöur minn, HILMAR KRISTJÁNSSON, Ljósheimum 16, lést í Landakotsspítala 30. september. Anna Ólafsdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir, ADALSTEINN JOCHUMSSON, Meistaravöllum 29, veröur jarösettur þriðjudaginn 4. október. Anna Ólafía Árnadóttir, Grétar Aóalsteinsaon. t Innilegar þakkir færum viö öllum sem vottuöu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför systur okkar, STEINUNNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Borgarbraut 47, Borgarnesi. Systkinin t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför bróöur okkar, GUNNARS E. GUDMUNDSSONAR, málara, Bræöraborgarstíg 53. Systkini hins látna. Brœöraminning: Þórður og Sigfús Markússynir frá Eyrarbakka Þórður Fæddur 29. nóvember 1953 Dáinn 7. september 1983. Sigfús Fæddur 2. ágúst 1958 Dáinn 7. september 1983 Miðvikudaginn 7. september sl. bárust þær sorgarfréttir út, að vb. Bakkavík ÁR 100 hefði orðið fyrir áfalli í innsiglingunni til hafnar á Eyrarbakka. Tveir ungir menn, bræður, þeir Þórður og Sigfús Markússynir, hefðu farist og þriðji bróðirinn og þeirra yngstur, Vigfús, hefði bjargast eftir mikla þrekraun í nærri klukkustundar baráttu við öfl Ægis konungs. Þegar þessi harmafregn náði eyrum mínum stóð ég magnþrota. Var mér þá hugsað til foreldra drengjanna þeirra Aðalheiðar Sig- fúsdóttur og Ása Markúsar Þórð- arsonar. Undir slíkum kringum- stæðum sannast orð Ritningarinn- ar — „Líði nokkrum yðar á meðal illa, þá biðji hann.“ Þá er bænin það eina er svalar og gefur okkur samband við Hinn Alvalda, sem gefur og tekur. „Eru ekki tveir spörvar seldir fyrir smápening? Og ekki fellur einn þeirra tii jarð- ar án vitundar Föður yðar. Á yður eru jafnvel höfuðhárin talin.“ Jes- ús Kristur í Matt. 10. 29. Hver getur deilt við Guð? Ást- vinamissir og sorgardauði eru og líka í hendi hins Alvalda. Þegar Hann tekur sitt, þá er lífsins æðsta kúnst að geta samþykkt það og tekið undir með Job: „Lofað veri nafnið Drottins.“ í sorg og harmi gefur sú trú huggun og von. Ása Markús Þórðarson hefi ég þekkt síðan á barnsárunum í Vest- mannaeyjum. Hinn 1. mars árið 1942 fórst faðir hans, Þórður Þórðarson, með skipi sínu Ófeigi í aftakaveðri við suðurströnd ís- lands með áhöfn sinni aðeins 49 ára gamall. Maður sem var gegn borgari og ein af stoðum síns byggðarlags. Hann hafði lifibrauð sitt af sjónum og var skipstjóri um árabil í Eyjum. Þegar drengirnir hans höfðu aldur til fóru þeir einnig til sjós. Sjómennsku og útgerð hefir Ási stundað nær alla sína starfsævi. Drengirnir hans þrír voru ekki gamlir er sjórinn fangaði huga þeirra, fyrst við leik í fjörunni á Eyrarbakka. Sigfús var aðeins fjögurra ára er hann fór með föð- ur sínum austur í bugtir. Bestu menntunar og réttinda til ábyrgð- arstarfa á skipi öfluðu bræðurnir sér allir, til skipstjórnar eða vél- stjórnar. Auk sérhæfingar í froskköfun, sem kom sér vel fyrir Vigfús á örlagaríkri stund. Vel var haldið um stjórnvölinn á Bakkavík og hvorki skipi né bún- aði um kennt að svo fór sem fór. Fyrir nokkrum árum, þegar vb. Ver fórst voru bræðurnir einnig á sjó og komu austan að. í nátt- myrkri sáu þeir lítið ljós. Vakandi hugur þeirra beindist þangað og stefna tekin á ljósið. Þar var þá gúmbátur frá Veri og björguðu þeir bræður því sem bjargað varð til lífs og færðu sjóhrakta menn til hafnar. Þar áður hafði Þórður lent í slysi, sem furðuleg björgun varð lífi hans til heilla, eftir langa legu í umsjá færustu lækna. Það var ekki gefist upp heldur áfram haldið merkinu á lofti, er afi þeirra og síðar faðir þeirra hófu á loft. Nú drúpa fánar í hálfa stöng um Eyrarbakka og Árnesþing. Hetjur af þjóðinni eru fallnar. Við frá- hvarf þeirra drúpir sorg í bæ og byggð. En hvergi meira en hjá fjölskyldunni í Ásgarði á Eyrar- bakka. Þangað eru sendar innileg- ustu bænir og samúð um bræð- urna tvo, er í bióma lífsins voru kvaddir á Herrans fund með hreinan skjöld. Með innilegustu samúð. Einar J. Gíslason í dag fer fram frá Eyrarbakka- kirkju jarðarför og minningarat- höfn um bræðurna Þórð Markús- son skipstjóra og Sigfús Markús- son vélstjóra, sem fórust er bát þeirra mb. Bakkavík ÁR 100 hvolfdi í innsiglingunni á Eyrar- bakka miðvikudaginn 7. septem- ber sl. Foreldrar þeirra bræðra eru hjónin í Ásgarði á Eyrarbakka, þau Aðalheiður Sigfúsdóttir og Ási Markús Þórðarson. Bræðurnir voru fæddir og upp- aldir á Eyrarbakka. Þeir dvöldu báðir í foreldrahúsum og voru ókvæntir og barnlausir, Þórður fæddur 29. nóvember 1953 en Sig- fús 2. ágúst 1958. Ég varð harmi lostinn er ég hlustaði á kvöldfréttir í útvarpinu miðvikudaginn 7. september og heyrði að mb. Bakkavík, skip þeirra bræðra, hefði hvolft með þeim hörmulegu afleiðingum að bræðurnir Þórður og Sigfús fór- ust, en jafnframt barst sú góða frétt, að þriðja bróðurnum, Vig- fúsi, hefði verið bjargað. Mín fyrstu viðbrögð voru bæn um að bræðurnir sem fórust fengju góða heimkomu tii nýrra heimkynna og jafnframt þakkaði ég almættinu fyrir líf bróðursins sem bjargaðist. Þessi sorglegi atburður sannar okkur enn á ný að við öll ráðum litlu um það hve lengi við dveljum hér á jörð meðal ástvina og sam- ferðamanna. Þótt við mennirnir vitum harla lítið fyrirfram hver örlög bíða okkar á langri eða skammri lífsgöngu, þá er okkur öllum ljóst að dauðinn er í raun og veru sá eini þáttur í tilveru okkar sem er öruggur og viss. Þrátt fyrir þá staðreynd kemur dauðinn okkur oftast nístandi á óvart, ekki síst þegar við heyrum um andlát ungs fólks í blóma lífs- ins. Á slíkum örlagastundum skortir okkur oft hugmyndir um tilgang lífsins. Hví er ungt fólk sem svo miklu á ólokið kvatt á brott á sama tíma og hinir öldnu og þjáðu, sem þrá oft hvíldina fá ekki að deyja. í gegnum tíðina hefur Ægir konungur krafist mikilla fórna af föðurætt þeirra bræðra. Hvers vegna? spyrjum við ráðþrota, en við þeirri lífsgátu kunnum við engin svör. Það er alkunna að ástvinir þeirra sem falla í hina votu gröf Ægis eiga þær síðustu óskir um harmabót að lík ástvina megi reka á land og finnast, þannig að þeim gefist kostur á að búa hinar jarð- nesku leifar til hinstu hvíldar og að hlúa að leiðum ástvina. Öllum þeim fjölmörgu, sem fórnað hafa kröftum sínum og lagt fram búnað í hinni umfangsmiklu leit að jarðneskum leifum þeirra bræðra eru færðar alúðarþakkir. Sú dýrmæta hjálp hefur létt ást- vinunum sorg þeirra. Leitin hefur borið þann árangur, að lík Þórðar hefur fundist og enn er haldið áfram að leita að jarðneskum leif- um Sigfúsar. Við höfum beðið þeirrar bænar, að bræðurnir sem aldrei skildu í leik né starfi megi hvíla hlið við hlið að leikslokum. Bræðurnir í Ásgarði ólust upp í hinu aðlaðandi umhverfi iandbún- aðar- og sjávarþorpsins á Eyrar- bakka í skjóli ástríkra foreldra, móðurafa og föðurömmu, auk fjölda frændsystkina og vina. Æskuárin liðu í leik og starfi. Þeir tóku snemma þátt í störfum með foreldrum sínum og hjálpuðu afa sínum, Sigfúsi Árnasyni, við bú- skapinn. Nokkru eftir fermingu hófu þeir ævistarf sitt, sjó- mennskuna. Það sem einkenndi fjölskylduna í Ásgarði var mikil, einlæg vinátta og samheldni sem ríkti á milli sona og foreldra. Vegna þess hve kærleiksríkt samband var á milli þeirra allra verður minningin um góða drengi kærari og söknuður- inn enn sárari. Þótt sjávarguðinn eigi sjálfsagt enn eftir að krefjast nýrra fórna úr fylkingu íslenskra sjómanna þá munu nýir menn, hraustir og hugdjarfir, lyfta merki þeirra sem féllu, lyfta merki stéttarinnar í sigursælli baráttu fyrir sér og sín- um og til almennra framtíðar- heilla. Orð eru til lítils í dýpstu sorg, þá er það trúin ein sem gefur styrk. í þeirri trú kveð ég frændur mína og bið góðan Guð að styrkja ástvini í sorg þeirra. Eyþór Þórðarson í dag, laugardaginn 1. október 1983, verður gerð útför Þórðar Markússonar frá Eyrarbakka- kirkju. Þá fer einnig fram minn- ingarathöfn um bróður hans, Sig- fús Markússon. Minning: • • Steingrímur Orn Björnsson skipstjóri Fæddur 1. febrúar 1913 Dáinn 17. september 1983 Steini frændi lést þann 17. sept- ember eftir stutta sjúkrahúslegu en langt veikindastríð. Hann var sonur hjónanna Björns Þ. Finnbogasonar og Láru K. Guðjónsdóttur, sem iifir son sinn 97 ára gömul. Steini var ókvæntur og barnlaus og bjó alla tíð á Kirkjulandi með foreldrum sínum meðan bæði lifðu og síðan með ömmu eftir að afi dó, til árs- ins '73 er eldgosið braust út í Eyj- um. Síðan bjó hann þar einn til dauðadags. Frá 1937 var hann skipstjóri, fyrst á Emmu VE 219, til 1941. Éftir það var hann með Jökul sem hann átti með Ársæli Sveinssyni o.fl. Síðan eignaðist hann ásamt bræðrum sinum o.fl. Hugrúnu og Sigrúnu og var formaður með Sig- rúnu í nokkrar vertíðir. Eignaðist síðan Gnoðann og var með þann bát til 1968. Við viljum gjarnan minnast Steina eins og við mundum hann sem ungan djarfan sjómann, elskulegan frænda og vin. Þann sem gerði við og gaf leikföng, þann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.