Morgunblaðið - 01.10.1983, Síða 20

Morgunblaðið - 01.10.1983, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið á hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boðiö að notfæra sér viötals- tíma þessa. Ert þú að leita að hillum í stofuna, barnaherbergið, geymsluna,Jagerinn eða verslunina? Þetta er lausnin. FURUHILLUR Hillustærðir: 30x80 og 50x80 Uppistöður: 61, 112 og 176 cm. Utsólustaðir: REYKJAVlK: Liturinn, JL-Húsið. KÓPAVOGUR: BYKO, Nýbýla- vegi 15, HAFNARFJÖRÐUR: Málmur, Reykjavikurvegi, AKRANES: Verslunin Bjarg, BORGARNES: Kaupfélag Borgfirðinga, STYKKISHÓLMUR: Húsið, PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar, BOLUNGARVlK: Jón Fr. Einarsson, (SA- FJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga, EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Verslunin Dröfn, REYÐARFJÖRÐUR: Verslunin Lykill, FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Verslunin Þór, VlK I MÝRDAL Kaupfélag Skaftfellinga, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldurog Einar, SELFOSS: Vðruhús K.Á. ptognii^liiblb MetsölaNaó ú hverjum degi! AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MAGNÚS SIGURÐSSON Shehu Shagari, forseti Nígeríu. Lífid er enn frumsUett um margt i' Nígeríu. Mynd þessi sýnir moldar- hús í borginni Kano. Tekst Shehu Shagari að skapa einingu í Nígeríu? SÁ YFIRBURÐASIGUR, sem Shehu Shagari, forseti Nígeríu, vann I kosningunum þar fyrir skömmu, hefur á áhrifaríkan hátt breytt öllu yfirbragði stjórnmála þar í landi. Shagari var fyrst kosinn forseti 1979 og tók þá við völdum af herstjórn, sem verið hafði við lýði I Nígeríu 113 ár og einkennzt af glundroða og spillingu. Herinn steypti fyrstu borgaralegu stjórn landsins 1966, sex árum eftir að það hlaut sjálfstreði frá Bretum. Þá hafði misferli stjórnmálamanna og embættismanna í kosningum kom- ið af stað miklum óeirðum, svo að úti var um lög og reglu í Nígeríu, einkum á meðal Yoruba-manna, sem búa í suðvesturhluta landsins. Fáir hafa orðið til þess að vefengja kjör Shagaris nú, en hann hafði um 4 millj. at- kvæða fram yfir næsta keppi- naut sinn. Þá var sigur hans enn meir sannfærandi sökum þess, hve mikið fylgi hann hlaut á meðal þeirra ættflokka, sem tveir af helztu keppinautum hans tilheyra. Kosningaúrslitin sýna glöggt vilja Nígeríumanna til þess að halda uppi borgara- legu lýðræði. Kosningarnar fóru samt ekki fram, án þess að ofbeldi, svik og falsanir settu sitt mark á þær. Það hvílir því vissulega skuggi yfir þessum kosningum, sem voru enn mik- ilvægari fyrir þá sök, að þar var ekki aðeins kosið um forseta landsins heldur líka til beggja deilda þjóðþingsins og þar að auki til héraðsþinga og um hér- aðstjóra í hinum einstöku héruð- um landsins. Alls voru kosn- ingarnar fimm og fóru fram á tímabilinu frá 6. ágúst til 3. september. Fjölmennasta ríki Afríku Það hefur ekki skort á harðar ásakanir í garð Shagaris og flokks hans, Þjóðarflokks Níg- eríu, um að hafa misnotað stjórnaraðstöðu sina i kosning- unum. En fáir efast um, að Shagari og fiokkur hans myndu samt hafa sigrað í kosningunum en þó sennilega ekki með jafn miklum yfirburðum og raunin varð. Sökum þess að Nígería er fjölmennasta ríki Afríku með um 100 millj. íbúa og stærsti olíuútflytjandi álfunnar, þá hafa allir meiri háttar atburðir þar áhrif á það, sem gerist annars staðar í Afríku. Fjórði hver Af- ríkumaður býr í Nígeríu. Sú við- leitni í átt til fjölflokkakerfis, sem nú hefur staðið yfir í land- inu í fjögur ár, kann því að hafa mikil áhrif að lokum á stjórnar- far annarra Afríkuríkja, sem flest búa ýmist við einræði eins flokks eða hersins. Saga Nígeríu, frá því að landið fékk sjálfstæði, hefur ekki verið saga farsælla stjórnarhátta. Fyrsta valdarán hersins 1966 leiddi til annars valdaráns og síðan til hörmulegrar borgara- styrjaldar, sem stóð í tvö og hálft ár. Eftir það átti sér stað enn eitt valdaránið í Nígeríu auk blóðugrar valdaránstilraunar, áður en landið tók að nýju upp lýðræðislega stjórnarhætti. Shagari er nú 58 ára gamall og persónulega enn vinsælli en flokkur hans, Þjóðarflokkur Níg- eríu. Margir af frambjóðendum flokksins — hvort heldur til þjóðþingsins eða héraðs- þinganna — nutu góðs af, er stórsigur Shagaris í forsetakosn- ingunum var orðinn ljós. Að kosningunum loknum hefur Þjóðarflokkurinn hreinan meiri- hluta í báðum deildum þjóð- þingsins en var áður í minni hluta í báðum þeirra. Þá ræður Þjóðarflokkurinn nú yfir emb- ætti héraðsstjóra í 11 af 19 hér- uðum landsins í stað 7 áður. Naut stuðnings Ojukwu Odumegwu Ojukwu, fyrrum leiðtogi Biafra, sneri heim úr út- legð fyrir einu ári, eftir að hafa verið náðaður af forsetanum. Ojukwu kann að eiga mestan þátt í því, hve mikið fylgi Shag- ari fékk á meðal ættflokks hans, því að hann gekk í lið með Þjóð- arflokki Shagaris og bauð sig fram fyrir hann til öldunga- deildar þjóðþingsins, en náði ekki kjöri. Kjósendur hafa greinilega kunnað að meta þá hógværð, sem þótt hefur einkenna stjórn- arhætti Shagaris. Frambjóðend- ur í forsetakosningunum voru ekki færri en sex og því hefði mátt búast við, að atkvæði ættu eftir að dreifast nokkuð. Shagari hlaut samt 12 millj. af 25,8 millj. atkvæða eða 48%. Næsti keppi- nautur hans, Awollowo, fékk 7,8 millj. atkvæða og flest þeirra komu frá hinum þéttbýlu héruð- um Yoruba-manna. Samanlagt ná ættflokkar Hausa-Fulani, Yoruba og Iboa yfir 60% Nígeríumanna. Aðrir landsmenn tilheyra ekki færri en 250 ættflokkum, sem sumir eru fámennir og ala með sér stöðugan ótta við yfirráð stóru ættflokkanna. Sigur Þjóðar- flokksins í nýafstöðnum kosn- ingum og mikil fjölgun þing- manna hans á þjóðþinginu og héraðsþingunum er augljós vitn- isburður um, hve víðtækt fylgi flokkurinn hefur nú. Það verður þess vegna ekki framar litið á flokkinn sérstaklega sem mál- svara Hausa-Fulani, eins og gert var við stofnun flokksins 1978. Shagari er því í ólíkt betri að- stöðu nú en áður til þess að koma fram sem sannur þjóðar- leiðtogi fyrir hönd Nígeríu- manna. Það getur samt reynzt honum örðugt að gera hinum mörgu og ólíku ættflokkum landsins til hæfis, ekki hvað sízt á tímum efnahagserfiðleika og lækkandi olíuverðs. Hvernig til tekst, verður framtíðin að skera úr um. (HeimiMir: International Herald Tribune og New Yorlt Timea.) Magnús Sigurösson er bladamaður á Morgunblaðinu og skrifar um erlend málefni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.