Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 25 Þýskt stórfyrirtæki í húsgagnaiðnaði: Hefur hafið fram- leiðslu á klappstól íslensks arkitekts EITT AF stærri fyrirtækjum í húsgagnaiönaði í Vestur-Þýska- landi, Krusch-verksmiöjurnar, hefur gert samning viö Valdimar Harðarson arkitekt um framleiðslu á klappstól sem byggir á nýjum hugmyndum. Fyrirtækið leggur greinilega mikla áherslu á þennan stól og hefur sótt um heimseinkaleyfi á framleiðslunni og hefur þegar fengið slíkt leyfi á Þýskalandsmarkaði. Á hinni þekktu húsgagnasýn- ingu, sem haldin er í Köln í janúar ár hvert, verður stóll Valdimars aðalsýningargripur þessa fyrir- tækis ás næstu sýningu. Krusch fyrirtækið hefur 400 manns í vinnu og selur framleiðslu sína um allan heim. Auk Mið-Evrópu er fyrirtækið sterkt í Bandaríkj- unum og Japan. Fyrirtækið er meðal hinna 10 stærstu í sinni grein í Þýskalandi og sérhæfir sig í framleiðslu húsgagna fyrir opinberar stofnanir. Krusch-fyrirtækið hefur á síð- ustu 15 árum nær eingöngu keypt hönnun af tveimur dönskum arki- tektum. Fyrir utan Valdimar Harðarson hefur aðeins einn ann- ar arkitekt komist að hjá fyrir- tækinu á þessu tímabili. Fyrirtæk- ið hefur engan fastráðinn arkitekt í sinni þjónustu. Stóll Valdimars er úr stálgrind með formbeygðu baki. Hann má á auðveldan hátt fella saman þann- ig að hann verði aðeins 5 cm á þykkt. Fellibúnaðurinn þykir ein- faldur og öruggur og hefur ýmsa eiginleika fram yfir þá klappstóla sem eru á markaðinum. Stóllinn er nýtískulegur, jafnvel framúr- stefnulegur, og ætlaður til notk- unar jafnt úti sem inni. Hann þyk- ir vel fallinn til notkunar á veitingastöðum, mötuneytum, söfnum og einnig á heimilum eða hvar sem þörf kann skyndilega að vera á viðbótarstólum. Valdimar Harðarson hefur staðið í viðræðum við ráðamenn þýska fyrirtækisins frá því í janú- ar á þessu ári. í gær kom hann heim frá Þýskalandi, en á fundi á mánudaginn voru línurnar end- anlega lagðar um framleiðslu á stólunum. Valdimar rekur teikni- stofu í Reykjavík og meðal verk- efna sem hann vinnur nú að eru ýmsar breytingar á Hótel Sögu, meðal annars á Mímisbar. Á síð- astliðnu ári hannaði hann endur- bætur á húsnæði Samvinnuferða við Austurstræti. Morgunbladið/RAX. Benedikt Stefánsson, forseti nemendafélags MH, ræðir við Örnólf Thorlacius, rektor, á nemendafundinum í gær, þar sem undirskriftalistarnir voru afhentir. Nemendur MH krefjast aðgerða í lyftumálum fatlaðra: Málið er strand anum — ekki Valdimar Harðarson arkitekt NEMENDUR Menntaskólans við Hamrahlíð hafa skorað á skólayfir- völd þar að hefja nú þegar fram- kvæmdir við hjólastólalyftu í skólan- um og gagnrýnt sömu yfirvöld fyrir aðgerðarleysi í þvf máli. Segja nem- endur, að það hafi ekki verið fyrir tregðu í „kerfinu“ sem dregist hafi úr hömlu að koma upp lyftu fyrir fatlaða nemendur skólans, heldur sé það sök skólastjórnarinnar, sem hafi fengið aukafjárveitingu fyrir lyft- unni sl. vor. I samtali við Morgun- blaðið nýlega sagði Örnólfur Thor- lacius, rektor MH, að lyftumálið væri týnt í kerfinu og að sú væri ástæðan fyrir því, að framkvæmdir við uppsetningu lyftunnar væru ekki hafnar. Frásögn Mbl. af erfiðleikum fatl- aðra nemenda við að komast leiðar sinnar í skólanum og seinagangi í að koma upp hjólastólalyftu varð til þess, að nemendafélagið gekkst fyrir undirskriftasöfnun í skólan- um, þar sem skorað var á yfirvöld að hefja þegar í stað uppsetningu hjólastólalyftunnar. Á fundi nem- enda í skólanum í gær skýrði Bene- dikt Stefánsson, forseti nemenda- félagsins, frá því að þegar fulltrúar nemenda hefðu ætlað að afhenda 1 Undirskriftalist- ar ætlaðir mennta- málaráðuneytinu höfnuðu hjá rektor undirskriftalistana í mennta- málaráðuneytinu, hefði komið í ljós að það stæði á engum í þessu máli nema skólayfirvöldum sjálfum. „Við söfnuðum undirskriftunum með fullri vitund allra hér í skólan- um, bæði uppi og niðri, og bjuggum okkur undir það að taka strætis- vagn niður í ráðuneyti með þessa snepla undir höndum og hugðumst afhenda þá þar með kröfu um að lyftan yrði sem skjótast losuð út úr kerfinu," sagði Benedikt á nem- endafundinum í gær. „En gott er að hafa varann á og því fóru fulltrúar okkar af örkinni til að leita ná- kvæmari upplýsinga um það hvar í hinu illræmda kerfi sæti möppudýr með heila hjólastólalyftu falda í skrifborðsskúffunni. Það voru sneyptir menn, sem sneru aftur úr þeirri frægðarför. Allir, sem talað var við, vissu mætavel um þessa Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: í skól- kerflnu Gerði það sem ég taldi réttast og m.a. hagkvæmt ÍVrir ríkissjóð umræddu lyftu, enda Morgunblaðið víða lesið, en hinsvegar var frásögn ráðuneytismanna nokkuð frá- brugðin því, sem við bjuggumst við. Aukafjárveitingin hafði verið lögð inn á rekstrarreikning Mennta- skólans við Hamrahlíð og þarmeð var málið afgreitt af þeirra hálfu og komið inn á skrifborð skóla- stjóra og aðstoðarmanna hans. En lyftan hafði aldrei verið pöntuð og ekkert um hana spurt," sagði Bene- dikt. Harin sagði að nú hefðu nemend- ur ákveðið að leita ekki langt yfir skammt heldur leggja traust sitt á yfirvöld skólans og afhenda rektor undirskriftalistana með áskorun um að framkvæmdir við hjólastóla- lyftu í MH verði hafnar þegar í stað. Benedikt sagðist hafa upplýs- ingar um að í skólanum væru nú til um 650 þúsund krónur í reiðufé, þ.e. aukafjárveitingin og um tvö hundruð þúsund krónur, sem nem- endur öldungadeildar hefððu safn- að á sínum tíma. Örnólfur Thorlacius, rektor, tók við undirskriftalistunum og kvaðst vilja koma á framfæri við nemend- ur skýringum sínum. „Erindi um lyftuna var sent frá skólanum í ráðuneytið, eins og lögformlega er rétt,“ sagði hann. „Það var óskað eftir að ákveðin lyfta yrði pöntuð og því kemur það mér mjög á óvart nú að þessi svör skuli gefin af hálfu byggingadeildar menntamálaráðu- neytisins. Nú er okkur skyndilega sagt að við eigum að panta lyftuna sjálfir, um það höfum við aldrei fengið neitt að vita. En ef það reyn- ist rétt, að okkur hér í skólanum sé ætlað að panta lyftuna og annast þetta mál alfarið, þá munum við að sjálfsögðu gera það,“ sagði Örnólf- ur Thorlacius. MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá forsætisr- áðherra, Steingrími Hermannssyni: „Með tilvísun til síendurtek- inna árása Þjóðviljans vegna bif- reiðakaupa minna vil ég taka fram eftirfarandi: Samkvæmt lögum og reglu- gerðum greiðir ríkissjóður rekstrarkostnað af bifreið vegna ráðherra. Tvær leiðir eru heimil- ar til slíkra bifreiðakaupa. Annars vegar er heimilt að ríkissjóður eigi bifreiðina og greiði þá að sjálfsögðu innflutn- ingsverð hennar (verð án að- flutningsgjalda). Bifreiðin er hins vegar ásamt bifreiðastjóra til allra þeirra afnota sem ráð- herra þarf og reyndar vegna eig- inkonu hans einnig. Hins vegar er heimilt að ráð- herra eigi bifreiðina sjálfur og greiði þá innflutningsverð. Sú heimild gildir í 10 mánuði eftir að ráðherra lætur af störfum. Slík heimild hefur oftast verið nýtt, annað hvort í upphafi ráð- herrastarfs eða að því loknu. Ég hygg að þessar tvær leiðir hafi verið farnar nokkuð jöfnum höndum. Upplýst er að um fjöru- tíu sinnum að minnsta kosti síð- an 1970 hafa ráðherrar fest kaup á bifreið sjálfir og þá ekki greitt aðflutningsgjöld, og sumir oftar en einu sinni. Það eru ráðherrar úr öllum þeim flokkum sem setið hafa í ríkisstjórn undanfarin 12 ár. M.a. hafa þegar fimm ráðherrar úr síðustu ríkisstjórn keypt bif- reið með þessum hætti, þar af fjórir eftir að þeir létu af störf- um. Ég er ekki í nokkrum vafa um, að það er rétt sem fjármálaráð- herra segir í Morgunblaðinu í dag, 30. þ.m., að það er stórum kostnaðarminna fyrir ríkissjóð að ráðherra eigi bifreiðina sjálf- ur. Staðreyndin er einnig sú, að flestar þær ráðherrabifreiðir sem hafa og eru í eigu ríkissjóðs hafa ekki verið seljanlegar nema fyrir lítið verð enda mikið eknar og margar farnar að láta á sjá. Mér þótti rétt, fyrst og fremst til sparnaðar í rekstri, að losa mig við þá stóru bifreið sem ég ók áður en fá í staðinn aðra, sem væri minni og sparneytnari. Á meðan ríkissjóður rekur bifreið- ina er það að sjálfsögðu hann sem hagnast á því. Fullyrðingar Þjóðviljans þess efnis, að ég muni fá afskriftir af fullu verði bifreiðarinnar eru varla svaraverðar. Mér hefur aldrei dottið slíkt í hug. Að sjálfsögðu verða ekki aðflutn- ingsgjöld sem ég hef ekki greitt, afskrifuð. Meðjiví getur Þjóðvilj- inn fylgst ef hann óskar. Að um sé að ræða einhverja sérstaka „lúxus“-bifreið vísa ég á bug. Þetta er lítill og sparneytinn jeppi. Sem slíkur hefur hann þann kostinn umfram þá stóru en jafnframt ýmsa ókosti eins og hverjum manni má vera ljóst. 1 þessum bifreiðaskiptum hef ég gert það sem ég hef talið rétt- ast og m.a. hagkvæmt fyrir ríkis- sjóð. Með þau hef ég ekki farið í neinar felur enda engu að leyna. Ég hef í öllu farið að þeim lögum og reglum sem gilda, og mun gera það áfram." Ökumaður- inn náðist ÖKUMAÐURINN sem Búöi af slysstað á horni Njálsgötu og Frakkastígs í fyrrakvöld náðist í gærmorgun á heimili sínu. Grunur leikur á að hann hafi verið ölvaður þegar slysið varð. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn virti ekki stöðvun- arskyldu á horni Frakkastígs og Njálsgötu, ók þar á bíl og kastaði honum á þriðja bílinn, hélt áfram og endaði á grindverki. Allir þrír bílarnir enduðu upp á gangstétt á Frakkastígnum neðan við Njáls- götu. Talsvert tjón varð á eignum, en engin slys á mönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.