Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 Starfsmönnum Slipp- félagsins sagt upp ÖLLUM starfsmönnum Slippfclags- ins í Reykjavík hf., 77 að tölu, hefur verið sagt upp störfum og miðast uppsagnirnar við næstu áramót. f frétt frá fyrirtækinu segir, að þær séu liður í endurskipulagningu þess, ísbjöminn: Getum bætt við okkur 30 til 40 konum „SKIP okkar sigla ekki með afla sinn og við erum í hreinum vand- ræðum með fólk. Mér finnst því yfirlýsing Framsóknar út í hött. Við getum bætt hér við sjálfsagt 30 til 40 konum,“ sagði Vilhjálm- ur Ingvarsson, framkvæmdastjóri ísbjarnarins, í samtali við Morg- unblaðið. Vilhjálmur sagðist því ekki skilja þá yfirlýsingum kvenn- anna, að siglingar fiskiskip- anna stefndu atvinnuöryggi starfsfólks frystihúss ísbjarn- arins í voða. Það væri yfirdrifið að gera í fiskvinnslunni og staðan væri raunar sú, að sum- ir hefðu neyðzt til að láta skip sín sigla með aflann vegna skorts á starfsfólki í fiski- vinnslunni. Það væri líklega kjarni málsins, ekki hefði feng- izt svo glæsilegt verð fyrir afl- ann erlendis að undanförnu, að girnilegt væri að sigla með hann. en stefnt sé að því að henni verði lokið fyrir 1. desember nk. „Hinir almennu erfiðleikar í efna- hagsástandi þjóðarinnar hafa bitn- að á Slippfélaginu í Reykjavík hf., ekki síður en öðrum atvinnufyrir- tækjum í landinu, sérstaklega þeim sem tengjast sjávarútveginum. Til þess að tryggja hag Slippfé- lagsins í Reykjavík hf. og starfs- manna þess í framtíðinni hefur ver- ið ákveðið að taka rekstur og allt skipulag innan félagsins til gagn- gerrar endurskoðunar. I framhaldi af því hefur öllum starfsmönnum félagsins verið sent uppsagnarbréf, dagsett í dag, 30. september 1983, og miðast uppsagnirnar við næstu ára- mót. Stefnt er að því að endurskipu- lagningu og endurráðningum verði lokið fyrir 1. desember nk.,“ segir orðrétt í frétt fyrirtækisins. Jón Sævar Jónsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Slippfélagsins, sagði í samtali við Mbl., að gera mætti ráð fyrir, að flestallir starfsmenn fyrirtækisins yrðu endurráðnir. Breytingarnar fram- undan væru fyrst og fremst hugsað- ar til að gera fyrirtækið samkeppn- isfærara en það er í dag. Þröstur Olafsson, framkvæmda- stjóri Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, sagði í samtali við Mbl., að félaginu hefði borizt bréf í gærdag um uppsagnir starfsmanna, en Dagsbrúnarmenn eru stærsti starfshópurinn hjá Slippfélaginu. „Okkur hefur ekki gefizt ráðrúm til að ræða við okkar menn og fjalla um málið, en það er ljóst af bréfinu, að við munum óska eftir verulega frekari skýringum, þegar eftir helg- ina,“ sagði Þröstur ennfremur. Morgunblaðið/ÖI.K.M. Verkalýðsforingjar úr öllum stjórnmálaflokkum voru á ferð ura miðborg Reykjavíkur í gær og hvöttu fólk tii að taka þátt í undirskriftasöfnuninni gegn afnámi samningsréttarins. Dreifðu þeir bæklingum og undirskriftalist- um undir kjörorðunum „Tryggjum samningsrétt — Treystum lýðræðið". Hér eru þeir Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, og Bjarni Jakobsson, formaður Iðju, að verki í Austurstræti. Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra: 4% fiskverðshækkun 1. okt. kallar ekki á gengislækkun „ÉG VEIT ekki til þess að það sé nein breyting á afstöðu ríkisstjórnarinnar til afkomu sjávarútvegsfyrirtækja. Það verður ekki meiri hækkun en 4% á hinu almenna fiskverði 1. október, en það er nákvæmlega fylgst með þessu. Þjóðhagsstofnun hefur lagt fram sína útreikninga og Seðlabankinn hefur Þorleifur Jónsson fv. bæjarstjóri látinn Þorleifur Jónsson, fyrrum bæjar- stjóri á Eskifirði og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, er látinn á 88. aldursári. Þorleifur fæddist í Efra-Skála- teigi í Norðfjarðarhreppi, S-Múl., 16. nóvember 1896 og var bóndi þar eitt ár eftir skólagöngu í Flens- borg. Hann var síðan lögreglu- þjónn í Hafnarfirði 1919—1930, stundaði málflutningsstörf þar í félagi við Gunnar E. Benediktsson hrl. 1930-1939, veitti forstöðu ýms- um útgerðarfélögum frá 1934 til 1961. Hann sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 1930—1951 og stofnaði vikublaðið Hamar og rit- stýrði því um árabil. Hann rak verslun í Hafnarfirði um hríð, var einn af ábyrgðarmönnum Spari- sjóðs Hafnarfjarðar og sat lengi í stjórn sjóðsins, vara-landskjörinn þingmaður 1938, í fiskimálanefnd og síðar stjórn fiskimálasjóðs 1935—1952, þar af formaður í níu ár. Hann gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum í Hafnarfirði og síðar á Eskifirði, þar sem hann var bæjarstjóri frá 1961. Þar sat hann í hreppsnefnd 1954—1958. Þorleif- ur var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1967. Fyrri kona hans var Margrét Oddsdóttir frá Hóli í Garðahverfi. Sambýliskona hans eftir það var Hrefna Eggertsdóttir frá Hafnar- firði, sem lést 1965. einnig verið með þetta f athugun. Byggt á þeim athugunum telur ríkis- stjórnin að ekki eigi að þurfa að breyta gengi þó þessi hækkun verði 1. október nk.,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra, er Mbl. bar undir hann skrif Ólafs Gunnars- sonar framkvæmdastjóra í Neskaup- stað í Mbl. sl. miðvikudag, en þar seg- ir hann m.a. að fiskverð verði að hækka um rúmlega 21% í stað 4%, eigi útgerðinni að takast að halda nokkurn veginn í horfinu. Steingrímur sagði einnig, að í vor hefði sjávarútvegsfyrirtækjum ver- ið búin viðunandi aðstaða og sagði síðan: „Þetta er hins vegar smám saman að fjara út. Það er alveg ljóst og gerir það enn við hækkanirnar 1. október á launum og fiskverði. Mér er einnig fyllilega ljóst að skreið og saltfiskur standa stórum verr held- ur en frystingin. Ég er þeirrar skoð- unar að erfiðleikum skreiðarfram- leiðenda eigi að mæta með því, sem reyndar allir koma til með að njóta, að breyta afurðalánum í gengis- tryggð lán með lágum vöxtum og láta það ná aftur fyrir sig, til dæmis um tvo mánuði. Varðandi skrif Ólafs sagði Steingrímur einnig: „Fyrirtæki eins og Ólafs hafa átt í erfiðleikum en það er með loðnuskip, en engin loðna hefur veiðst. Ég vona, þó ég geti ekkert fullyrt um það, að loðnu- veiðar geti hafist að nýju, sem myndi náttúrlega breyta öllu hjá þeim. Þá vek ég athygli á því að sumar tegundir útgerðar hafa geng- ið mjög vel, til dæmis rækjuveiðar og hörpudisksveiðar." Steingrímur sagði í lokin að hann vonaðist til að ekki þyrfti að koma til gengislækkana í bráð vegna sjáv- arútvegsins. Það yrði eingöngu til þess að skerða lífskjörin verulega, ef ekki kæmu til launahækkanir. Skipaskagi og Haförn GK teknir í landhelgi: Innsigli á Skipaskaga olíugjöf vélar ekki til staðar INNKIGLI, sem vera átti á olíugjöf vél- ar Kkipaskaga AK 102, sem tekinn var fyrir meinta ólöglega veiði á fimmtu- dag, fannst ekki við rannsókn málsins á Akranesi í gær. Innsigli þetta átti að minnka afl vélarinnar úr 1.200 hestöfl- um í 889. Ekki var í gær Ijóst hvort um framhaldsrannsókn yrði að ræða eða hvort gefin yrði út ákæra á hcndur skipstjóra skipsins. Haförn GK 90 var einnig tekinn sama dag fyrir meinta ólöglega veiði og stendur rannsókn þess máls yfir í Keflavík. Landhelgisgæzlan færði skipin til hafnar en þau voru að veiðum skammt norður af Garðskaga. Ekki hefur í rannsókn málanna komið fram ágreiningur um staðarákvörð- un skipanna heldur er hér um að ræða hvort viðkomandi skip teljast togarar eða ekki. í þeirri viðmiðun er meðal annars ákvæði um vélar- stærð og lengd. Vélarstærð skal vera undir 1.000 hestöflum og lengd undir 39 metrum, eigi skipið ekki að teljast togari. Sé svo er skipinu leyfilegt að stunda veiðar inn að 4 mílum frá landi en togarar mega ekki stunda veiðar innan 12 mílna. Bæði þessi skip eru undir 39 metrum en ágrein- ingurinn er um vélarstærðina. Sam- kvæmt skrá Siglingamálastofnunar eru bæði skipin með 1.200 hestafla vélar, en eigendur þeirra telja þær minni en 1.000 hestöfl. Hefur verið dregið úr afli vélanna með innsigli á olíugjöf, en eins og áður sagði finnst ekki slíkt innsigli á vél Skipaskaga. Því er hér um að ræða svipuð mál og áður hafa komið upp er skipin Sjóli og Einar Benediktsson voru tekin fyrir meintar ólöglegar veiðar, en sýknuð af ákæru. Valt með fullfermi af möl IIRÁTTARBÍLL með malartengi- vagn valt á horni Grjótháls og Hálsa- brautar um miðjan dag í gær meó fullfermi af möl. Tildrög óhappsins voru þau að bíliinn var á leið norður Hálsa- braut, þegar ökumaður varð þess var að bifreiðin var hemlalaus. Þarna háttar svo til að það er talsvert brött brekka niður að gatnamótum Grjótháls og Hálsa- brautar og jók bifreiðin jafnt og þétt ferðina niður að gatnamótun- um. Ökumaður tók það til bragðs að reyna að beygja bifreiðinni til vinstri inn á Grjóthálsinn. Við það lagðist allur þunginn á hægri hlið bifreiðarinnar enda bifreiðin á um það bil 50 km ferð þegar hér var komið sögu að þvf er talið er og sprakk annað hjólið á aftari hás- ingu hennar og fjaðrir brotnuðu vinstra megin á sömu hásingu með MorgunblaAið/Júlíus. þeim afleiðingum að bíllinn valt. Ökumaður slapp ómeiddur og ekki er talið að miklar skemmdir hafi orðið á bílnum. Ekki var kunnugt um það í gær hvað olli bilun hemtabúnaðar bifreiðarinnar. Skaftárhlaup í hámarki í dag SKAFTARHLAIJP, sem hófst f gær- morgun, mun Ifklega ná hámarki seinnipartinn í dag eöa með kvöldinu, að sögn Kigurjóns Rist, vatnamælinga- manns. Kagðist hann giska á, að hlaup- ið næði 700—800 teningsmetra rennsli á sekúndu, en það væri nokkuð al- gengt í Skaftárhlaupum. Það væri held- ur meira en væri í Þjórsá að sumarlagi. Böðvar Kristjánsson, bóndi í Skaftárdal, sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gærkvöld, að vatnsmagnið í ánni væri eins og meðal sumarvatn en þess bæri að gæta, að mjög lítið vatn hefði verið í ánni fyrir. „Það hefur vaxið nokkuð í dag,“ sagði Böðvar, „og er æði dökk- leitt og talsverð brennisteinsfýla af því. En þetta er ekki orðið mikið ennþá og ekki farið að fara yfir veg- inn.“ Sigurjón Rist sagði að þetta hlaup ætti ekki að koma á óvart, Skaftá hlypi nokkuð reglulega á tæplega tveggja ára fresti og síðasta hlaup hefði verið í janúar 1982, fyrir 21 mánuði. „Þetta vatn kemur úr ketil- sigum norðvestur af Grímsvötnum en þar eru mikil sig í jöklinum og hiti undir. Það er svo sem engin hætta á ferðum en þó gæti komið til þess að brýr yrðu fyrir skakkaföll- um. Einkum þarf að huga vel að brúnni á Ásakelduvatni rétt austan við Eystri-Ása,“ sagði Sigurjón. Hann kvaðst hafa verið við Skaftá sl. miðvikudag og þá hefði áin ekkert verið farin að yggla sig. „Annars er þetta ágætt tækifæri fyrir þá Suðurlínumenn, sem eru að byrja á undirstöðum fyrir staurana skammt ofan við Skaftárdal, til að skoða umrótið, sem þarf að taka til- lit til við þær framkvæmdir," sagði Sigurjón Rist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.