Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 22 Erl. stuttfréttir Náðu bátsfarmi af hassi Brest, 30. oeptember. AP. Franskir tollverðir tóku fastan bát, sem sigldi undir fána Panama, og gerði upptæk „fleiri tonn af hassi". Ostað- festar fregnir hermdu að um borð í bátnum hefðu verið a.m.k. fimm tonn af hassi, sem tekið var um borð í Marokkó. Skírður í höfuðið á skútu Melbourne, 30. september. AP. Dianne og Jim Forbes voru svo yfir sig hrifin af frammi- stöðu áströlsku siglaranna í Ameríkubikarnum að þau létu skíra vikugamlan son sinn í höfuðið á skútunni, skipstjóra hennar og hönnuði. Heitir pilturinn þannig Charles Ástralía II John Bertrand Ben Lexcen Forbes. Öldrun eykst í Bandaríkjunum Wmshington, 30. september. AP. Eftir hálfa öld verður fimmti hver Bandaríkjamaður „aldraður" og innan þriggja áratuga verða Bandaríkin öldrunarþjóðfélag, samkvæmt opinberri skýrslu, sem birt var í dag. Þar er því spáð að fjöldi þjóðfélagsþegna 65 ára og eldri muni tvöfaldast fyrir ár- ið 2020. Nú hækkar sú tala ör- ar en sem fjölgun þjóðarinnar nemur. Árið 1980 voru 11,3% þjóðarinnar, eða 25,5 milljón- ir, 65 ára og eldri. Sú tala verður komin í 14% 2010 og 21% árið 2020. Siðbætur í Kína Peking, 30. september. AP. Skrifstofumönnum og kon- um í höfuðborg Kína hefur verið skipað að hressa upp á útlit sitt, svo það samræmist siðareglum kommúnista- flokksins. Verða karlmenn að láta skera hár sitt og yfirvar- arskegg og konur, sem eru með axlarsítt hár eða Iengra verða að binda það eða hnýta, það má ekki vera slegið. Að sama skapi hafa verið gefin út fyrirmæli um klæða- burð í anda flokkslaganna, og launþegum hefur verið gert að temja sér iðni og kurteisi, auk þess sem þeim hefur verið bannað að skyrpa á almanna- færi. Reagan stendur sig verr New York, 30. september. AP. Skoðanakönnun á vegum New York Times og CBS-sjón- varpsstöðvarinnar sýnir að meirihluti Bandaríkjamanna er óánægður með aðgerðir Ronald Reagans forseta á sviði utanríkismála, í fyrsta sinn frá því hann tók við af Jimmy Carter í Hvíta húsinu. Samkvæmt könnuninni voru 47% óánægðir með stefnu forsetans miðað við 36% í júní og 40% fyrr í þess- um mánuði. Ánægðir með störf forsetans nú voru 38% aðspurðra. Tveir þriðju að- spurðra óttuðust að Banda- ríkjamenn myndu dragast frekar inn í átökin í Líbanon og sögðu að líkja mætti þátt- töku þeirra í átökunum nú við það hvernig þeir urðu aðilar að bardögunum í Víetnam. Dyrnar opnuðust óvænt Fokker F-28 farþegaþota Vestur-Ástralíuflugfélagsins varð að nauðlenda á flugvellinum í Perth, þar sem framdymar opnuðust óvænt og fyrirvaralaust skömmu eftir flugtak þar á dögunum. Áður en þotan gat lent varð hún að hringsóla yfir Perth í hálfa þriðju klukkustund til að eyða eldsneyti. Farþegar um borð voru 58. í lendingunni myndaðist mikið neistaflug þegar trappan nam við flugbrautina, en engan sakaði. Með öllu er óljóst hvað olli því að dyrnar hrukku upp, þar sem víst þykir að þeim hafi verið læst á venjulegan hátt fyrir flugtak, og ljósmerki þar að lútandi birtist í stjórnborði þotunnar. Sprengjuherferð IRA á N-írlandi Dungannon, 30. Meptember. AP. Morðum og glæpum í Englandi fjölgar London, 30. september. AP. MORÐTILFELLI voru fleiri í Knglandi og Wales á síðasta ári en næstu tíu ár þar á undan, sam- kvæmt opinberum skýrslum. Samtals voru framin 576 morð árið 1982 í Englandi og Wales, eða 25 fleiri en 1980, sem var metár áttunda áratugsins. Hryðjuverkamenn myrtu 11 og sex hinna myrtu í fyrra voru lög- regluþjónar. Samkvæmt sömu skýrslu voru framin 2.600 vopnuð rán í Eng- landi og Wales í fyrra, en það er um einn tíundi allra rána, sem þar voru framin. Fjölgaði vopn- uðum ránum í fyrra um 700 frá 1981. Alvarlegum glæpum, þar sem skotvopn voru notuð, fjölgaði um fjóra hundraðshluta frá 1981 í 8.400 árið 1982. Samtals var til- kynnt um 3,25 milljónir glæpa- verka til lögreglu í fyrra. Talið er að aðeins sé tilkynnt um helming innbrota og þjófnaða í Englandi og Wales á ári hverju. Þá er talið að tilkynnt sé að- eins um fjórðung allra líkams- árása og tólftapart allra líkams- meiðinga. í ljósi þessara upplýs- inga er við því búist að hart verði lagt að Leon Brittan innanríkis- ráðherra á þingi íhaldsflokksins, sem hefst 10. október nk., að grípa til hertra aðgerða á sviði löggæzlu. Tveir bræður fcllu, faðir þeirra og þriðji bróðirinn særðust alvarlega í skotbardaga við lögreglu í nótt. Tveir lögreglumenn liggja einnig al- varlega særðir eftir bardagann, sem talinn er hafa brotist út fyrir mis- skilning, og er öðrum þeirra ekki hugað líf. Hryðjuverkamenn hins ólöglega írska lýðveldishers (IRA) eyðilögðu verzlanir, benzínstöðvar, skrifstofu- húsnæði og bjórstofur er þeir sprengdu hverja sprengjuna af ann- arri í nótt, að sögn lögreglu. lögreglumennina óeinkennis- klæddu vera óvini sína. Þar sem ekki hefur verið unnt að yfirheyra feðgana særðu liggur ekki fyrir hvers vegna þeir hófu skothríð á lögreglumennina. Fjölskyldan hefur aldrei átt í útistöðum við lögregluna eða komið við sögu hennar. Engan sakaði í árásinni en tjón- ið er verulegt, m.a. eyðilögðust ull- arvöruverzlun, tvær benzínstöðv- ar, stórmarkaður og birgða- geymsla skóverksmiðju er sex sprengjur sprungu um miðnætti í féllu Bræðurnir sem féllu voru 19 og 20 ára, sá særði 17 ára og faðirinn fertugur. Hann á nýlenduvöru- verslun í Augsburg. Fjölskyldu- faðirinn er ítalskur ríkisborgari en kvæntur þýskri konu, sem flutt var á sjúkrahús vegna taugaáfalls, sem hún fékk er henni voru færð- ar fregnirnar um skotbardagann. bænum Dungannon, 60 km vestur af Belfast. Mikið tjón var unnið á annarri stórverzlun í nágrannaborginni Cabragh. Þá var unnið talsvert tjón á sýsluskrifstofubyggingu í borginni Strabane við írsku landa- mærin í nótt, en íbúar borgarinn- ar eru langflestir kaþólskir. Þrír lögreglumenn slösuðust I hverfi kaþólskra í Londonderry er um 100 manna skríll réðst á þá. Vandræðin upphófust er lögreglu- mennirnir reyndu að loka bjór- stofu, sem full var af hávaðasöm- um drykkjumönnum klukkan tvö að nóttu, þremur stundum eftir lokunartíma. Tókst lögreglumönn- unum að komast undan með því að skjóta af byssum sínum í rúmlega höfuðhæð yfir skrílinn. Tvær bjórstofur í Londonderry, önnur eign kaþólikka en hin mót- mælanda, brunnu til kaldra kola eftir að skemmdarverkamenn helltu benzíni inn um bréflúgur þeirra og báru eld að. Tveir bræður í skotbardaga Augsburg, 30, september. AP. Skotbardaginn braust út um miðnættið er óeinkennisklæddir lögregluþjónar í ómerktri lög- reglubifreið stöðvuðu bifreið, sem þeim fannst grunsamleg vegna falsaðra númeraspjalda. Er þeir hugðust kanna skilríki fjórmenn- inganna, sem í bílnum voru, vissu þeir ekki fyrr en hafin var á þá skothríð úr bílnum. Lögreglumennirnir særðust en tókst að gera viðvart gegnum talstöð og er tvær lögreglubifreið- ir, önnur ómerkt, komu úr næsta nágrenni héldu fjórmenningarnir áfram skothríðinni. Var skothríð- inni svarað og lágu tveir bræðr- anna fljótt í valnum og faðirinn og þriðji bróðirinn óvígir vegna skot- sára. Talið er að feðgarnir hafi verið á leið til að gera upp ágreining við mann í Augsburg er lögreglan stöðvaði bifreið þeirra. Einn bræðranna lenti í slagsmálum fyrr um daginn, og er talið að feðgarnir hafi í misgripum talið ■ ■■ \f/ ERLENT, Marcos skipar nýjan rann- sóknarnefndarformann — óeirðir víða um Manillaborg í gær Manilla 30. sept. AP. FERDINAND Marcos, forseti Filippseyja, skipaði í dag Arturo Tolentino, fyrrv. öldungadeildarforseta, formann nefndarinnar sem á að rannsaka morðið á Benigno Aquino. Hann kunngerði einnig að hann hefði veitt Enrique Fernando, hæstaréttardómara, formlega lausn frá því starfi. Fernando hafði fyrir fáeinum dög- um lýst því yfir að hann myndi ekki taka við útnefningu vegna gagnrýni sem fram var sett og meðal annars vegna tengsla hans við forsetaembættið. í AP-frétt segir, að nefndin sem í bili er óstarfhæf vegna veikinda a.m.k. tveggja fulltrúa, muni koma saman til fundar þann 10. október. Síðasta sólarhring hefur víða dregið til tíðinda á Filippseyjum, þar sem menn láta í ljós óánægju með stjórn Marcosar, og hefur filippeyska lögreglan staðfest að allmargir hafi verið handteknir. 1 Mak- ati í Manilla réðust nokkur hundruð verkamenn inn í stór- verzlun, og stöðvuðu þar öll viðskipti með gauragangi og látum að sögn lögreglu. Óeirða-lögreglumenn mættu á staðinn og sigu þá saman fylk- ingar með þeim afleiðingum að allmargir voru handteknir. Lögreglan er sögð hafa beitt táragasi og kylfum, en allt kom lengi vel fyrir ekki og í næsta nágrenni safnaðist sam- an hópur manna og lét ófrið- lega. Samtímis því héldu stúd- entar mótmælafund fyrir Marcos framan aðalpósthúsið í Man- illa og héldu á spjöldum þar sem fordæmd er harðræðis- stjórn Marcosar og víða voru einnig áletranir sem beindust gegn Bandaríkjamönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.