Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
11
Gísli J. Ástþórsson
Einsog mer sýnist
• • •
Japl og jaml
og kallinn
í tunglinu
Sparnaðarstefna ríkis-
stjórnarinnar er þegar far-
in aó bera ávöxt. Tveir af
þremur nefndarmönnum í
utanfararnefnd ríkisins eru
búnir aö segja af sér.
Þarsem nefndin er ólaun-
uö, sparast aö vísu aöeins
tveir stólar. En betri er
einn stóll í hendi en tveir á
þaki.
Tvímenningarnir sem
gengu af skútunni viröast
hafa hagaö sér ósköp
barnalega. Þaö er engu
líkara en þeir hafi staöiö í
þeirri trú aö þeir væru í
alvörunefnd. Utanfarar-
nefnd er ætiaö aö vera
ráögefandi um utanlands-
feröir á vegum ríkisins.
Hún er með öörum oröum
og einsog nafniö bendir til
dæmigerö „sparnaöar-
nefnd“. Þótt ótrúlegt megi
virðast, er samt einsog
þeir félagar hafi aldrei átt-
aö sig á því aö hérlendis
eru svona nefndir auövit-
aó bara í þykjustunni.
Þaö gengur meira aö
segja fjöllunum hærra aö í
forheröingu sinni hafi fyrr-
greindir menn ekki ein-
ungis tamið sér þau vinnu-
brögö aö kæra sig kollótta
um hverjum umsækjendur
um utanfararstyrk voru
venslaöir eöa tengdir,
heldur bætt gráu ofan á
svart meö því aö láta
flokksböndin einsog vind
um eyrun þjóta. Þannig
gat jafnvel listhneigöur
ráöherrabílstjóri sem vant-
aöi skitnar þrjátíu þúsund
krónur tíl þess aö skreppa
til Parísar aö mæla brosiö
á Mónu Lísu allteins átt
von á neitun.
Þaö vou þeir Baldur
Möller og Hallgrímur Dal-
berg sem höguöu sér
svona þokkalega. Báöir
eru ráöuneytisstjórar.
Baldur reyndi meira aö
segja aö réttlæta brott-
hlaupiö og lét hafa eftir
sér hér í blaöinu: „Viö
töldum aö þessi nefnd
ætti aö gegna því hlutverki
aö draga úr utanlands-
feröum ...“ Guö hjálpi
blessuöum manninum.
Þaraöauki væri kannski
ástæöa til aö spyrja hvers-
konar embættismenn þaö
séu sem ríkisstjórnin ali
viö brjóst sér.
Þá voru viöbrögö stjórn-
málamannanna ólíkt stór-
mannlegri þegar látiö var
aö því liggja í dagblaös-
frétt aö þaö væru kannski
ekki hundraö í hættunni,
„á þessum síöustu og
verstu tímum“, einsog þaö
heitir alltaf, þóaö viö
brygöum útaf venjunni og
sendum bara eina sveit af
mannvitsbrekkum á Alls-
herjarþing Sameinuöu
þjóöanna í ár auk fasta-
fulltrúanna sem svo eru
nefndir; þannig mætti
spara stórar fjárfúlgur, en
viö höfum haft þann plag-
siö í auðlegð okkar aö
hafa sveitirnar tvær frem-
ur en eina, og situr sú fyrri
af mikilli reisn á þinginu
þarna í New York í þrjár
vikur eöa svo, en þá kem-
ur næsta sveit blaöskell-
andi héöan aö heiman og
situr þær þrjár vikur sem
þá eru oftast eftir af þing-
tímanum, og af engu minni
reisn þykist ég vita.
Þetta er meö öðrum
oröum einskonar höfr-
ungahlaup þarsem far-
gjaldiö eitt kostar ríkissjóó
ríflega átján þúsund kall
pr. haus; líka mætti kalla
flakk af þessu tagi eins-
konar stórfiskaleik, þvíaö
þaö er ekkert smælki sem
velst til svona feröalaga
einsog nærri má geta, þó-
aö nöldurskjóöum og
smásálum finnist þetta
kannski hálfgeröur flott-
ræfilsháttur.
Öreigaleiötoginn Ragn-
ar Arnalds svaraöi einsog
skot þegar blaöamaöur
bar máliö undir hann, aö
þaö mætti spara á öörum
sviðum og talsmenn hinna
flokkanna voru loðnir, aö
ekki sé meira sagt. Japl
og jaml og fuður var kjör-
orö dagsins, en japlaö og
jamlað af reisn einsog gef-
ur aö skilja.
Sumum mun þó finnast
sem enn sé þaö gamla
sagan. Þóaö þú og ég og
kallinn í tunglinu eigum
alltaf aó vera reiöubúin aö
heröa sultarólina þegar
boöin berast ofanúr turn-
inum, þá er einsog þessi
blessaöa ól sé aldrei til-
tæk þegar einhver leyfir
sér aö ympra á því hvort
ekki sé orðið tímabært aö
bregóa henni á einhvern
turnbúann, svona til til-
breytingar þóaö aldrei
væri annað.
Mogens Glistrup hinn
danski sagöi eitt sinn í
þingræöu aö hann gæti
komiö hernaöarútgjöldum
Dana niörí eina krónu
einsog aö drekka vatn.
Krónan átti aö vera til taks
í upphafi atómstríös og
áöur en dauöanum tæki
aö rigna yfir Danaveldi. Þá
átti forsætisráðherrann
sem þá væri aö þrífa hana
og þjóta einsog kólfi væri
skotiö útí næsta almenn-
ingssíma, og þar átti hann
aö hringja í ofboöi í sov-
éska sendiherrann og
orga af öllum Itfs- og sál-
arkröftum í tóliö: „Viö gef-
umst upp.“
Svona einfalt var þaö
nú. Kannski viö ættum aö
fá Glistrup lánaöan hingaö
heim að kíkja á allar
sparnaöarnefndirnar okk-
ar. Hann situr aö vísu í _
Steininum í svipinn, en ég
er viss um aó þessi gamli
bragöarefur ynni sér ekki
léttara verk en aö stööva
þetta endemisrennirí vest-
ur um haf í hvert sinn sem
Allsherjarþingiö rumskar;
og hringsól af þessu tagi
með gistingu og uppihaldi
er ekki gefiö — „á þessum
síðustu og verstu tímum"
aö minnsta kosti.
Auk þess er hálfgert
bananabragö aö svona
þeytingi. Alvöruþjóðir líta
áreiöanlega ekki á Alls-
herjarþingiö sem eins-
konar Disneyland. Þaraö-
auki veröa stjórnmála-
garparnir okkar aö fara aö
sýna lit ef allt þetta sparn-
aöargjálfur og allt þetta
söngl um fórnir og þraut-
seigju á bara ekki aö gera
okkur þegnana þvera og
kaldhæóna.
Menn gætu jafnvel fariö
aö spyrja sem svo hvort
þaó geti virkilega veriö aö
engar sparnaöarleiöir séu
til í kerfinu aörar en þær
sem liggja í gegnum
þvottahús Ríkisspítalanna.
Ef ég næ í skottiö á
Steingrími í nýja blasern-
um hans ætla ég svo
sannarlega aö spyrja hann
hvort hann sé mér ekki
sammála.
Menningarmiðstöðin
Gerðubergi:
NYOG BETRI
List á
laugardegi
í DAG, 1. október, verður
dagskrá í menningarmiðstöð-
inni við Gerðuberg í Bre%
holti undir heitinu LIST Á
LAUGARDEGI.
Þeir sem koma fram eru:
Páll Pálsson rithöfundur, sem
les úr nýrri bók sinni um
Hlemm-æskuna, Símon ívars-
son leikur á gítar, Elísabet
Þorgeirsdóttir les frumort ljóð,
Ólafur Haukur Símonarson
rithöfundur les úr nýrri
skáldsögu sinni Vík milli vina
og Sigrún V. Gestsdóttir
söngkona syngur við undirleik
Hrefnu Eggertsdóttur. Kynnir
verður Vernharður Linnet.
Dagskráin, sem hefst kl.
15.00, er opin öllum. Aðgangs-
eyrir verður 20,00 kr. fyrir full-
orðna en frítt fyrir börn og
unglinga.
Dagskráin LIST Á LAUG-
ARDEGI er undirbúin af
Breiðholtsdeild Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans!
OPNARIDAG
AÐ HÖPÐABAKKA9
Til sýnis em nýir lrílar. Þýsku gflæsivag'iíari íi r
OPEL REKORD og OPEL ASCONA.
JapönsEu höAutólin ISUZU TROOPER og
ISUZU PICK-UR
OPIÐ KL. 10-17
BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
BÍLASALA HÖFÐABAKKA 9-SÍMI 86750