Morgunblaðið - 01.10.1983, Síða 21

Morgunblaðið - 01.10.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 21 Akureyrarpistill Guðmundur Heiðar Frímannsson „Listasagan er eins og boðhlaup“ Guðmundur Heiðar Frímannsson rabbar við Kristján Steingrím Jónsson myndlistarmann Það er oft erfitt að átta sig á því hvað er að gerast í listaheim- inum. Sérstaklega á þetta við um myndlistina. Það er eins og ægi öllu saman. Það sem mörgum finnst oft erfiðast að átta sig á er myndlist ungu mannanna. Það hendir oft þá sem eldri eru að örvænta um unga fólkið, hver er nýjasta firran hjá því. Til að skilja ögn betur hvað unga fólkið er að fara í myndlistinni um þessar mundir og fræðast um viðhorf ungra málara fékk ég einn þeirra til að koma á minn fund. Við Kristján Steingrímur Jónsson tókum tal saman eitt síðdegi í september. Hann er ungur málari héðan frá Akur- eyri og er nú við Hochschule fúr bildende Kunst í Hamborg. Hann hélt sýningu í Rauða hús- inu í vetur og nú hélt hann ásamt þremur öðrum ungum myndlistarmönnum fyrstu sýn- inguna sem haldin var í fþrótta- höllinni. Allir sýndu þeir myndir sem falla undir það sem nefnt er „nýja málverkið". Við fengum okkur kaffi. Krist- ján sagði að það væri sér- kennilegt hvað menntun í mynd- list væri áfátt hér á landi. Fjöldi manns hefði skoðanir og áhuga á myndlist og vildi fræðast en færi á mis við það. Skólar á íslandi hefðu brugðist í þessu efni. Þótt kennd væri teikning eða mynd- mennt í öllum grunnskólum landsins fengju menn aldrei bakgrunn að því sem þeir væru að gera, fræddust ekki um myndlistarsögu. En þekking á sögunni væri nauðsynleg til að geta myndað sér skynsamlegar skoðanir á stefnum, hræringum og myndum sem verið væri að sýna þessi árin. Langflesta skorti slíka þekkingu. Ég spurði Kristján hvað átt væri við þegar talað væri um „nýtt málverk". „Það er svolítið erfitt að gera grein fyrir því,“ sagði Kristján. „Það sem gerðist áður á heilu ári gerist nú á nokkrum vikum eða mánuðum. Hjólið snýst hraðar núna. Þetta „nýja málverk" er óhjákvæmilegt uppgjör við eldri stefnur. Við erum að mála fyrir tímann sem nú líður og þess vegna þurfum við að finna okkur tjáningarmáta. Hann er hvorki betri né verri en það sem áður hefur verið. Hann hæfir bara okkur og okkar tíma. Við höfðum áður konsept-list og afstrakt. í afstraktinu var ekkert nýtt lengur og konseptið snérist allt í kringum einn hugmyndafræðilegan punkt. En í dag stefnir myndlistin í allar áttir. „Nýja málverkið" er ekki ein samræmd heild heldur hafa listamennirnir hver sín sér- kenni. En stefnur koma og fara. Tíminn sker úr um gildi þeirra." Við ræddum áfram um kon- sept-listina en margir ungir myndistarmenn hafa unnið und- ir merkjum hennar sl. tíu til fimmtán ár. Það sem átt er við er mjög margbrotið. Það er ekki nein ein aðferð við að gera myndir. En hún sker sig þannig frá öðrum greinum myndlista að megináherslan er ævinlega á hugmyndinni að baki verkinu en minni áhersla á tæknina við úr- vinnsluna. Þetta er í andstöðu við allt hefðbundið mat á því hvað er gott og hvað er slæmt í myndlist jafnt sem öðrum list- um. „Það er erfitt að ræða „nýja málverkið“,“ sagði Kristján þeg- ar ég innti hann frekar eftir þessu. „Þótt málverkið hafi lifn- að verulega við þá má ekki alveg leggja það sem við erum að gera að jöfnu við það sem á undan er komið. Fígúran sem finna má í mörgum þessara verka þarf ekki að vera af neinu sérstöku. Mynd- in er nánast hlutur. Þess vegna er þetta „nýja málverk" mitt á milli afstraktsins og fígúratívra verka. En „nýja málverkið" tengist eldri stefnum. Frumkvöðlar þess hafa jafnframt unnið annars konar myndir. Helgi Þorgils Friðjónsson, sem er einn af guð- feðrum „nýja málverksins" hér á landi, hefur unnið að konsept- list jafnframt því sem hann hef- ur málað. Það hefur reyndar ver- ið svo með þá íslensku listamenn sem hafa unnið að konsept-list, menn eins og Magnús Pálsson, Kristján og Sigurð Guðmunds- syni og Hrein Friðfinnsson, að þeir hafa fremur gert ljóðrænar, hugmyndafræðilegar stemmur en mjög hörð konseptverk." En hvenær kom þetta „nýja málverk" fram? „Það var á sýningu í London sem var þar 1981, að því er mig minnir, og nefndist Zeitgeist. Þessi sýning var mikill viðburð- ur í listaheiminum og kom róti á marga. Af þeim sem þar komu fram má nefna Þjóðverjana Hödige og B. Köperlink, en ég ætla einmitt að nema hjá honum í Hamborg næstu árin. „En „nýja málverkið" á rætur að rekja til þýska expressjón- ismans og einnig til myndlistar á ítalú. Það sem helst einkennir það er hröð vinnsla og gróf áferð. Myndefnin og myndmálið er mun persónulegra en til dæm- is í konsept-list. En okkar mál- verk eru máluð fyrir nútímann, núið. Þau eru svolítið hrá. Það er nokkuð stór hópur sem segja má að falli undir þessa stefnu. Hann er innbyrðis ólíkur og mun ólík- ari en virðist oft utanfrá. Það er jafnvel svo að sumir nálgast hefðbundna list með áherslu á vinnubrögð og umhugsun við gerð verkanna. Kristján var í Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskólans. Hann ber deildinni gott orð. Hún hafi verið stofnuð til að vera opin deild. Þegar hún byrjaði var konseptið efst á baugi og ein- kenndi að sjálfsögðu deildina. „Nýja málverkið" hefur komið í gegnum hana líka. Kristján dró enga dul á að Nýlistadeildin hefði verið um- deild. En hann vildi hafa það til marks um að hún hefði heppnast að nemendur úr henni hefðu skilað sér vel í hóp listamanna. „Deildin á fullan rétt á sér. Hún hefur orðið að berjast fyrir til- veru sinni, sem er kannski ekki óeðlilegt. En hún hefur sannað gildi sitt,“ sagði Kristján. „Akureyri er með betri bæjum í Evrópu til að halda málverka- sýningar þegar til alls er tekið," sagði Kristján þegar ég spurði hann hvernig væri að sýna hér. „Maður hleypur ekki inn hvar og hvenær sem er erlendis. Það ræðst af galleríeigendum, hvort maður fær að sýna. Það er engin ástæða til að kvarta hér og það hefur verið alveg þokkalegur áhugi á þessari sýningu. Það vildi raunar svo til hér fyrir okkur að húsnæðið hér í íþróttahöllinni hentar okkur al- veg sérstaklega vel. Ég var einn af þeim sem tóku þátt í Gull- ströndinni sl. vetur í Reykjavík. Þá kom í ljós, eins og hefur kom- ið á daginn hér, að það er mjög gott að búa til umhverfi fyrir þessar myndir. Þær henta líka ágætlega grófu, óunnu umhverfi eins og er í íþróttahöllinni. Ég get ekki betur séð en að sýn- ingaraðstaðan hér sé góð. Það sem vantar hins vegar tilfinn- anlega hér í bæinn er listasafn. Listir eru eins og gróður: þær veita mönnum skjól til að rækta gott mannlíf." Við ræddum lengi um listir, stefnur, listasögu, hlutverk lista- manna; og drukkum kaffi. Þá sagði hann: „Stefnur deyja aldr- ei, þær ganga bara úr sér. Lista- sagan er eins og boðhlaup. Hver kynslóð hleypur með keflið til þeirrar næstu. En þetta er alltaf sama keflið." Það var tekið að rökkva þegar við slitum talið. September var enn þá hlýr þegar hann hvarf á braut. ALLTAF Á SUNNUDÖGUM CT/CpDA O Inlrvnn OG EFNISMEIRA BLAÐ! FLJÚGANDI VÍKINGUR Um flugferö Ahrenbergs til íslands ELISABETH PRINSESSA AF TOTO Amín snýst gegn utanríkis- ráöherra sínum í FÖR MEÐ BÍL 13 HUNDAR BASHEVIS SINGER Nóbelsskáldiö í viötali LEOPOLD III BELGÍUKONUNGUR ÁSTAÐA MÉR FANNST MIG VERA AÐ DREYMA Um för Shady Owens meö popphljómsveitinni Police UNDIR HAUSTHIMNI Hafliöi Jónsson ritar um garöyrkju KÖLLUM SOVÉT- STJÓRNINA TIL ÁBYRGÐAR Rætt viö Max Kampelman SPRENGISANDUR YTZAK SHAMIR — svipmynd á sunnudegi ÞAÐ ER VEL FYRIR ÖLLU SÉÐ Spjallað viö Jón Sigurgeirsson í Hafnarfiröi MILLJÓNAMÆRINGUR- INN MARCH RICH POTTARÍM REYKJAVÍKURBRÉF Á FÖRNUM VEGI VELVAKANDI Á DROTTINS DEGI ÚTVARP SJÓNVARP MYNDASÖGUR STJÖRNUSPÁ Sunnudagurinn byrjar á sídum Moggans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.