Morgunblaðið - 01.10.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 01.10.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 5 Líftryggingafélag Sjóvá: Sigurjón Pétursson framkvæmdastjóri ífTJÓRN Sjóvártryggingafélags ís- lands ákvað á síðasta fundi sínum að ráða Sigurjón Pétursson, fram- kvKmdastjóra Líftryggingafélags Sjóvá hf., frá og með næstu áramót- um. Sigurjón verður einnig aðstoðar- framkvæmdastjóri Sjóvártryggingafé- Sigurjón Pétursson lags íslands hf., frá sama tíma, en eins og frá hefur verið skýrt í Morg- unblaðinu hcfur Einar Sveinsson ver- ið ráðinn framkvæmdastjóri þess fé- lags, einnig frá áramótum, en þá læt- ur Sigurður Jónsson, núverandi fram- kvæmdastjóri beggja félaganna, af störfum. Sigurjón Pétursson er fæddur 22. júní 1950, sonur hjónanna Péturs Guðjónssonar, framkvæmdastjóra, og Báru Sigurjónsdóttur, kaupkonu. Hann varð stúdent frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1970 og lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla íslands 1974. Stundaði framhaldsnám í rekstrarhagfræði við Graduate School for Business Administration við New York University og lauk þaðan MBA-prófi árið 1977. Sigurjón hóf störf hjá Sjóvá árið 1973, en hefur unnið þar samfellt sem starfsmanna- og skipulags- stjóri frá því hann kom frá námi 1977. Sigurjón er formaður Skýrslu- tæknifélags íslands. Sigurjón er kvæntur Þóru Hrönn Njálsdóttur og eiga þau tvo syni. Ríkisreksturinn á Nýfundnalandi: Of snemmt að spá um áhrif Eramkvæmdastjórar Coldwater og Ireland Seafood, íslenzku fisksölu- fyrirtækjanna í Bandaríkjunum, töldu í samtali við Morgunblaðið of snemmt að spá nokkru um áhrif ríkisrekstrar fyrirtækja í sjávarútvegi á Nýfundna- landi á samkeppni Kanadamanna og okkar á fiskmörkuðum í Bandaríkjun- um. Sögðu þeir Þorsteinn Gíslason og Guðjón B. Ólafsson, að enn væri ekki ljóst hverjir yrðu stjórnendur þessa samsteypufyrirtækis, rekstur þess væri ekki hafinn og óljóst með hvaða hætti hann yrði. Þá væri ekk- ert hægt að segja til um áhrif þessa á samkeppnisstöðu íslendinga og Kanadamanna á fiskmörkuðum í Bandaríkjunum. Hugsanlega yrðu þau einhver, en langt væri þangað til að þau yrðu ljós. Ljósm. MM./KÖK. Aðstandendur Pólýfónkórsins. Frá vinstri: Sigurjón Jónsson, Guðmundur Guðbrandsson, Edda Magnúsdóttir, Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi kórsins, Ólöf Magnúsdóttir, Friðrik Eiríksson og Tryggvi Eiríksson. Tvö verk frumflutt á starfsári Pólýfónkórsins: Stabat Mater Rossinis og jólaóratoría Siitzs „EETIR umfangsmikið starf 1982 má segja að kórinn hafi tekið lífinu með ró, en nú erum við komin á fullan skrið og hyggjum á öflugt söngstarf í vetur,“ sagði Ingólfur Guðbrand.sson, stjórnandi Pólý- fónkórsins, á blaðamannafundi ný- lega. Vetrarstarf Pólýfónkórsins og Kórskólans er senn að hefjast og eru skráðir félagar innan kórsins nú um 100. I ráði er að flytja jólaóratoríu Heinrichs Sciitzs í desember og Stabat Mater, eftir Rossini, með hljómsveit og einsöngvurum næsta vor. Verður í báðum tilfell- um um frumflutning á Islandi að ræða. Þá hefur Pólýfónkórinn leit- að eftir aðild að Listahátíð '84, en svar listahátíðarnefndar varðandi það hefur ekki borist. Kórinn hef- ur fengið tilmæli um þátttöku í tónlistarhátíðinni í Granada 1984, en þar söng kórinn á tónlistarhá- tíð i fyrra. Fyrirsjáanlegt þykir þó að ekki geti orðið af ferðinni vegna fjárskorts. Hins vegar er stefnt að flutningi H-moll-messu Bachs, bæði á íslandi og á Ítalíu, árið 1985, en Evrópuráðið hefur ákveð- ið að gera það að evrópsku tónlist- arári í tilefni 300 ára fæðingar- afmælis Bachs. Kórskólinn verður að vanda starfræktur í vetur og hefst kennsla 10. október. Frá honum koma flestir söngkraftar Pólý- fónkórsins og hefur svo verið þau tíu ár sem skólinn hefur starfað. Fimm kennarar verða við Kór- skólann í vetur og kenna þar rétta öndun og raddbeitingu, nótnalest- ur, taktþjálfun, tónheyrnaræf- ingar og tilsögn í undirstöðuatrið- um tónmennta. Verður bæði um byrjendakennslu að ræða og fram- haldsflokk, en á undanförnum ár- um hafa um 100 manns árlega lagt stund á tónlistarnám við skólann. Kennt verður í tíu vikur á mánu- dagskvöldum og er þátttökugjald kr. 750 fyrir þann tíma. BÍLASÝNING Mazda 1984 Laugardag og sunnudag frá kl. 1 - B Sýndar verða 1984 árgerðirnar af verð- launabílunum MAZDA 626 og MAZDA 323 og MAZDA T 3000 vörubíll. Ennfremur glæsilegt úrval af notuðum MAZDA bílum í 1. flokks ástandi með 6 mánaða ábyrgð. mazoa BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.