Morgunblaðið - 01.10.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
7
Nýtt — Nýtt
Full búö af nýjum vörum. Erum flutt aö Lauga-
vegi 40, Kúnsthúsinu.
Glugginn, Laugavegi 40.
PÓLÝFÓNKÓRINN
KÓRSKÓLI
PÓLÝFÓNKÓRSINS
Skemmtileg, auöveld og ódýr leiö til
söngnáms — tómstundastarf sem gleö-
ur og bætir líf þitt
10 vikna námskeiö hefst mánudaginn 10.
október kl. 20.00
Staðun Vöröuskóli viö Barónsstíg
Námsefni: Rétt beiting raddarinnar, rétt öndun.
Kennarar: Sigurður Björnsson, óperusöngvari
Elísabet Erlingsdóttir, óperusöngkona
Margrét Pálmadóttir, söngkona og tónlistakennari
Ingólfur Guðbrandsson, söngstjóri.
Nótnalestur, taktæfingar, almenn undirstööuatriöi
tónlistar, tónheyrn.
Kennarar: Helga Gunnarsdóttir, Phil. cand. kennari viö Kenn-
araháskóla islands.
Ingólfur Guöbrandsson, söngstjóri.
Gríptu þetta frábæra tækifæri til aö þroska og
þjálfa rödd þína og læra grundvallarartriði tón-
menntar.
Kennslugjald aðeins kr. 750 fyrir 20 stundir, greið-
ist fyrirfram.
Ath: Þeim, sem ná góöum árangri stendur til
boða aö starfa meö Pólýfónkórnum aö
námskeiðinu loknu og fá gjaldiö endur-
greitt.
Innritun í síma 26611 á skrifstofutíma og 82795,
43740 og 39382 í kvöldin og um helgina.
HREINSIVÉL
FYRIR SKELBITA
itoOfflMiiHF
Fyrirmæli
tryggingar-
ráðuneytis
Jón Ingimarsson, skrif-
stofustjóri í heilbrigðis- og
tryggingaráðuneyti, greindi
frá því í viðtali við Mbl., að
hann hefði svarað fyrir-
spurn frá Tryggingastofn-
un, eða starfsmanni þeirrar
stofnunar, á þá leið, „að
skv. 2. gr. bráðabirgðalaga
nr. 56/1983 hskki um 8%
fjárhæðir þær sem gilda
áttu frá og með 1. júm' nk.,
skv. reglugerðum um ráð-
stöfunarfé vistmanna á
dvalarstofnunum...“
Þrátt fyrir þessi fyrir-
mæli hafi 8% hækkunin
verði miðuð við „fjárhæð
sem greidd var í maí“ en
ekki við nýjan grunn í
reglugerðum.
Skrifstofustjórinn sagði
ennfremur, að ráðuneytinu
hafi ekki verið kunnugt um
þessa framkvæmd fyrr en
seint og síðar meir og þá
þegar tekið ákvörðun og
gefið fyrirmæli um tafar-
lausa leiðréttingu.
Alþýöubandalagsmaður-
inn Stefán Jónsson, sem er
í forsæti tryggingaráðs,
gerir litla tilraun til að
draga fram staðreyndir
þessa máls í viðtali við
Þjóðviljann í gær, talar
þvert á móti eins og vé-
frétt, sem teygja má í allar
áttir. Eggert G. l*orsteins-
son, forstjóri Trygginga-
stofnunar, segir hinsvegar
að „á milli Tryggingastofn-
unar og ráðuneytis heföi
verið lögfræðileg deila um
hversu víðtæk bráðabirgða-
lögin frá í vor væru .. “.
Hann segir og að „lögin
um málefni aldraðra og ör-
yrkja virðist stangast á við
núgildandi lög um al-
mannatryggingar í mörg-
um atriðum..." Hér er
sem sé ýjað að mismun-
andi lögskýringum ráðu-
neytis og Tryggingastofn-
unar í máli þessu.
Þjóðviljinn hélt því
hinsvegar fram að hér væri
N\ hlið ;i ..vasapcningamálinu”:
JIVN M»>\
iTryggingaráð sniðgekk fyrirmæli okkar i
si'XÍr hcilhriydis - í>i» trvxf’inf’drádnncytii)
M stið Irtur að I r>CKintarað hal
Rangt
scfiir
Stcfán Jónsson
\'ill Óluliir Rufinur vcriUi vurtifortnmiktr AH‘
„Venjulegt
Eiiiiert G. iMrstemsson:
Morgunblaðsrugr’l ^BeÍð eftir
nánari
r*t|w at umri.iM j V|u, AuhumluUemu rru har.
”■** . IHufur K«U.| l.r«~. !«•»
ssr sr:
r. . M.ðvim um mrinl. ifllrvM.n h.nv
'* * * ,-flir \.r.lnrim-nnvku i Vlþ'ðu-
IðfUVIHIIM J|g|| MC6 M. 5
VTZZTZj ■-8. I ,>|Mwl að iHaumþrlfanthrr
700.000 kr. fnöindJj
Þjóðviljinn staðinn að ósannindum
Þjóðviljinn hefur verið staðinn að ósannindum varöandi
framkvæmd reglugerðar- og ráöuneytisfyrirmæla um
vasapeninga aldraðs fólks á vistheimilum. í stað þess aö
biöjast afsökunar á ranghermi sínu klórar blaðið enn í
bakkann. Hér hefur enn einu sinni sannast aö fréttaflutn-
ingur Þjóöviljans af málum, sem snerta stjórnvaldsákvarð-
anir og gjöröir, er markleysa.
um að ræða pólitíska til-
raun til að hafa fjármuni af
öldruðum. Blaðið ætti að
biðja lesendur sína, við-
komandi tryggingaþega og
umfjöllunarmenn í stjórn-
sýslu afsökunar á fieipri
sínu og flumbruhætti.
Þjóðviljinn ætti og að rýna
í gamalt máltæki, svohljóð-
andi, „að Ijúga að öðrum
er Ijótur vani, en Ijúga að
sjálfum sér hvers manns
bani“.
Ólafur Ragnar,
Þjóðviljinn
og Alþýðu-
bandalagið
„Það er margt skrítið í
| kýrhausnum". I fréttum
Þjóðviljans í gær má líta
undarlegu klausu:
„Hinar dramatísku frá-
sagnir Morgunblaðsins um
eftirsókn mína eftir veg-
tyllum og varaformennsku
í Alþýðubandalaginu eru
bara venjulegt Morgun-
blaðsrugl."
Það er Olafur Kagnar
Grímsson sem talar. Og
Þjóðviljinn setur þessa yf-
irlýsingu svo upp, að ekki
fari fram hjá neinum.
Þar með liggur fyrir yfir-
lýsing frá Olafi Kagnari
Grímssyni þess efnis að
hann sé ekki í kjöri til
varaformanns í Alþýðu-
bandalaginu.
Tilgangur þessarar
óvæntu yfirlýsingar, sem
kemur eins og þruma úr
heiðskíru lofti, sýnist vera
að róa einhver öfi, innan-
búðar í Abl, sem finnst nóg
um pólitísk fjörbrot Ólafs
Ragnars i flokknum og á
blaðinu, eftir að hann féll í
síðustu þingkosningum.
Eftir sem áður hafa
flokkshræringar í Alþýðu-
bandalaginu sinn gang.
Fréttir sem af þeim berast
herma, að Ólafi Kagnari
Grímssyni sé alls ekki eins
leitt og hann lætur þegar
hann er nefndur til vara-
formanns í flokknum. Þær
herma einnig að Hjörleifur
Guttormsson, hönnuður ál-
axarskafts, rói öllum árum
í þessa sömu höfn. Hitt
segir og sína sögu að Þjóð-
viljinn slær því upp sem
meiriháttar fengisfrétt,
þegar menn viðhafa láta-
læti um ekki-áhuga á því
varaformannssæti sem
Kjartan Ólafsson, ritstjóri
blaðsins skipar á líðandi
stund.
■ ■
HLJOMPLOTUR - KASSETTUR
Stórkostleg rýmlngarsala
Nú setjum viö á útsölu hverja einustu stóra piötu og kassettu sem viö
höfum gefið út allt fram á þetta ár — og enn er fáanlegt. Þessar plötur
og kassettur veröur alls ekki framar að finna í verslunum. Aðeíns
fáein eintök eru til af sumum plötum og þasr veröa ekki endurútgefn-
ar.
EITT VERÐ Á ÖLLU:
PLATA EÐA KASSETTA A AÐEINS KR. 70-
ÖHLtSf
gamanefni
kóRsöngorHABMON"CUmús* UÖ°'kl'
ÞJÓDLÖG e\NSÖNGOR k Var
POPMÚSIK BIMNAKVEÐSKAPOB
*GUn
OPIO í DAG KL. 9—18
SG-HLJÓMPLÖTUR, ÁRMÚLA 38