Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
9
StoeOsít œcID
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 211. þáttur
Raun má það vera fyrir
okkur kennara, þegar lang-
skólagengnir menn tala bjagað
mál. Það er því líkast stundum
að til lítils hafi verið barist.
En kannski er skýringin eink-
um sú, að sumum verði aldrei
kennt, ef þeir hafi ekki tilfinn-
inguna og smekkinn. Annað
má kannski með góðum vilja
flokka undir fljótfærni og mis-
mæli.
Háskólagenginn forystu-
maður þjóðarinnar er að lýsa
ástandi þjóðmála í sjónvarp-
inu á dögunum. Hann er
bjartsýnn og styður mál sitt
spám þjóðhagsstofnunar um
betri hag. En hann vill vafa-
laust vera varkár og bætir því
við, að þetta séu að vísu getsak-
ir einar. Nú hrökk ég við. Ég
held að maðurinn hljóti að
hafa átt við getgátur = ágiskan-
ir, tilgátur. í orðinu getsök,
sem er nær einhaft í fleirtölu-
myndinni getsakir, er niðrandi
merking. Getsakir eru aðdrótt-
anir eða dylgjur. Ég myndi
gera manninum getsakir, ef ég
héldi því fram að hann vissi
þetta ekki, en óneitanlega
kemur þetta tal illa við mál-
næma hlustendur.
Enn verða svo blaðamenn
fyrir gagnrýni umsjónar-
manns. En ég ítreka það sem
ég áður hef sagt. Blaðamenn
tala hvorki né skrifa verra mál
en Pétur eða Páll. Hitt er ann-
að, að mál þeirra blasir við
augum og áhrif þess geta verið
mikil. Því er til mikils af þeim
ætlast.
Á forsíðu þessa blaðs mátti
sjá um daginn, að nýjar upp-
lýsingar varðandi suður-kór-
esku þotuna, sem skotin var
niður, myndu þverskallast við
það sem áður hefði fram kom-
ið. í minni málvitund þýðir
sögnin að þverskallast að þrá-
ast við, þrjóskast við, neita. En
ég held að sá, sem fréttina
skrifaði, hafi meint að hinar
nýju upplýsingar myndu koma
í bága við, ganga þvert á fyrri
upplýsingar.
Á forsíðu annars blaðs var
með stórum stöfum sagt frá
einhverjum sviðum þjóðlífsins,
þar sem sólundin væri mest.
Átti það víst að vera eyðslan
eða óþarfaeyðslan, bruðlið.
Vissulega er til sögnin að sól-
unda = eyða gegndarlaust og
vitleysislega. En ef við ætlum
okkur að mynda af henni nafn-
orð, finnst mér að það myndi
verða sólundun, en ekki þekki
ég þá orðmynd. Orðin sólund er
hins vegar til, jafnan haft í
fleirtölu, sólundir, ef það er
samnafn, og merkir þá bletti
þar sem sól skín á. Sérnafnið
Sólundir er aftur haft um eyjar
við Noreg.
Þetta var nöldrið. Hins veg-
ar ber að þakka hversu fjöl-
miðlar eru oft fljótir og fúsir
að taka ábendingum. Orðið
suður-kóreanskur heyrist
varla lengur, heldur er nú sagt
og skrifað suður-kóreskur. Ég
hef áður talað um dagvistir,
skutbíl og forvarnarstarf. Þó
er langt frá því, að orð eins og
dagvistunarstofnanir og fyrir-
byggjandi starf séu að velli
lögð.
Skal svo gera eina atlöguna
enn, því að ekki fellur tré við
fyrsta högg. Þær kröfur hljót-
um við að gera til tökuorða, að
þau lagi sig að og fari eftir
íslenskum framburðar-, beyg-
ingar- og stafsetningarreglum,
og það hafa gert orð eins og
kaleikur (kálkur), biskup, Páll,
Margrét o.s.frv.
Nú dynur yfir okkur kvöld
eftir kvöld auglýsing um júró-
kard krcditkort, þar sem „júró“
er framburðarmynd fyrir
„euro“. Þetta er enskur fram-
burður, ekki íslenskur. Lág-
markskrafa í þessu sambandi
er að euro sé borðið fram evró,
eins og í Evrópu. Annars ætt-
um við að fara tala ensku og
segja Júrópa.
Þá vil ég enn leggja til, og ég
er ekki einn um það, að í stað
orðsins kreditkort verði notað
krítarkort. Úlfur Hjörvar í
Reykjavík hringdi til mín fyrir
nokkru og sagðist hafa notað
þessa orðmynd i leikritsþýð-
ingu og á Amtsbókasafninu á
Akureyri var ég í sumar í
„ljósritunarreikningi" sem var
dags daglega nefndur krítar-
kortið mitt. Ég fékk þessa
þjónustu upp á krít, að láni.
Rósa Guðmundsdóttir
(1795—1855), kennd við skáld-
skap, Vatnsenda og Natan, var
meðal albestu alþýðuskálda
okkar á öldinni sem leið.
Frægar eru bestu stökur henn-
ar og yfirleitt léttar og auð-
skýrðar. Mesta verk hennar er
bréf í ljóðum (ferskeytt) það
sem hún orti Natani Ketils-
syni, er hann hafði brugðið við
hana ástartryggðum. Á köflum
er þetta bréf listaverk fyrir
skaphita, andríki og mælsku.
Upphaf einnar vísu í þessu
bréfi hefur valdið mér vand-
ræðum og þrálátum heila-
brotum. Ég sný mér því til les-
enda og bið ykkur að aðstoða
mig og segja mér hvað merkir
nákvæmlega og orð fyrir orð
upphafsbraglínan í eftirfar-
andi vísu. Farið er eftir text-
anum í bók dr. Guðrúnar P.
Helgadóttur, Skáldkonur fyrri
alda:
Kynni una anda grund,
áður fyrri betra var,
að ég hefði elskað hund
eymda frí við þjáningar.
Orðið alþýðuskáld er oftast,
held ég, skilið svo, að það
merki skáld sem lítt eða ekki
hefur gengið í skóla, fólk eins
og Vatnsenda-Rósa, Bólu-
Hjálmar og Stephan G. Steph-
ansson. Það er enn umhugsun-
arefni, að ég veit ekki aðra
betri skilgreiningu á menntun
en þá sem hinn síðast taldi
setti fram í ljóðabréfi sem
gengur undir nafninu eftir-
köst. Meðal annars ógleyman-
legs efnis í því ljóðabréfi er
vísan:
Þitt er menntað afl og önd,
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd,
hjartað sanna og góða.
Fasteignasala — Bankastrœti
SÍMAR 29680 — 29455 — 3 LÍNUR
Opiö í dag 1—4
Stærri eignir
Vesturberg
Parhús ca. 130 fm og fokheidur bílskúr.
íbúöin er stofur og 3 svefnherb. og
eldhús meö þvottahúsi innaf. Vinsæl og
hentug stærö. Verö 2,5—2,6 millj.
Miövangur Hf.
Endaraöhús á 2. hæöum, ca. 166 fm
ásamt bilskúr. Nlörl eru stofur, eldhus
og þvottahus Uppl 4 svefnherb. og gott
baðherb. Teppl á stofum. Parket á hlnu.
Innangengt í bílskúr. Verö 3—3,1 mlllj.
Vallarbraut
Góö ca. 150 fm efri sérhæö ásamt
bílskúr. Mikil og góö eign. Ekkert óhvíl-
andi. Ákv. sala. Verö 2,5—2,7 millj.
Skaftahlíö
Ca. 115 fm íbúö á 3. hæö í góöri blokk.
Mjög stórar stofur og 3 svefnherb.
Hægt aö taka viöbótarherb. af stofu.
Mjög góö sameign. Akv. sala.
Neshagi
Ca. 125 fm sérhæö á 1. hæö í þríbýli.
Samliggjandi stofur og 2 herb. Suöur-
svalir. Ákv. sala. Verö 2—2,1 millj.
Fossvogur
Fokhelt parhús á 2. hæöum ca. 210 fm
viö Ánaland. Niöri er gert ráö fyrir stof-
um, eldhús meö þvottahúsi innaf og 1.
herb. llppi eru 4 stór herb. og baö.
Arinn í stofu. Teikn. á skrifstofu. Verö
2.2 millj.
Rauöageröi
Ca. 220 fm elnbýli ó 2 hæöum ♦ ris og
btlskúr. Skilast fokhelt. Verö 2,2 millj.
Laugateigur
Mlöhæö i þríbýli, ca. 117 fm, og 30 fm
bilskúr. ibúöin er rúmgóð meö 2 svefn-
herb. og hægt aö gera 3ja svefnherb. úr
boröstofu. Góö stofa og stórt efdhús.
Tvennar svalir. Verö 1800—1850 þús.
Vesturbær
Gott einbýli úr timbri, kjallari, hæö og
rls. Grunnflötur ca. 90 fm. Húsiö stend-
ur ó stórrí lóö, sem má skipta og byggja
t.d. 2 hæöa hús, eöa einbýli á annarri
lóöinni. Til greina kæmi sem part
greiösla eign sem í væru tvær þokka-
legar íbúöir, t.d. hæð og ris eöa álíka.
Teikningar og allar uppl. á skrifstofunni.
Skólavöröustígur
Ca. 125 fm efsta hæö í steinhúsi, sam-
liggjandi stofur, tvö svefnherbergi. allar
innréttingar nýjar, viöarklætt loft, ný
teppi, nýjar lagnir, stórar svalir. Verö
2.1 millj.
3ja herb. íbúðir
Noröurbær Hf.
Glæsileg ca. 96 fm íbúö á 3. hæö. Mjög
góöar innréttingar. Þvottahús innaf eldhúsi.
Verö 1450 þús.
Framnesvegur
Ca. 75 fm íbúö á 2. hæö. 2 stofur, herb. og
baö meö sturtu. Akv. sala. Laus 1. des. Verö
1200 þús.
Öldutún Hf.
Ca. 80—85 fm íbúö ó 2. hæö í fjórbýii,
ásamt góöum bílskúr. Skammt frá öldu-
túnsskóla. Björt ibúö meö góöum innrétt-
ingum. Suöursvalir. Verö 1,5 millj.
Tjarnarból
Góö ibúö ó jaröhæö í blokk ca. 85 fm. Akv.
sala. Verö 1300—1350 þús.
Kópahraun Hafn.
Mjög góö 3ra—4ra herb. ibúö á 1. hasö i
fjórbýli ca. 95—100 fm. Góö stofa, 2—3
herb. og fallegt baöherb. á sérgangi. Stórar
svalir. Þvottahús i íbúöinni. Eftirsótt eign.
Verö 1500 þús.
Vesturbær
Ca. 90 fm góö ibúö í nýlegri blokk nálægt
Meistaravöllum Ákv. sala. Verö
1400—1450 þús.
Krummahólar
Ca. 85 fm íbúö á 4. hæö. Góö eldhúsinnrétt-
ing. Þvottaherb. ó hæöinni Verö 1350 þús.
Hörpugata
Ca. 90 fm miðhæö í þríbýli meö sérinng. 2
stofur og stór svefnherb. Akv. sala. Verö
1300—1350 þús.
Miövangur Hafn.
Ca 96 fm góö ibúö á 2. hæö. Skáli, stofa,
tvö herb. og baö á sérgangi, þvottahús og
búr innaf eldhúsi. Suöursvalir. Verö
1450—1500 þús.
Álfaskeið Hafn.
Góö ca. 67 fm á 3. hæö Parket á holl og
eldhúsi. Góö teppi á hinu. Suöursvalir.
Bílskúrssökklar. Verö 1200 þús.
Kópavogur
Ca. 55 fm íbúö á jaröhæö i nýlegu húsi viö
Kópavogsbraut. Þvottaherb. og geymsla
innaf eldhúsi. Laus fljótlega. Verö 1 —1,5
millj.
Friörik Slefánsson
viöskiptafræðingur.
/Egir Breiðfjörö eölustj.
84433
EINGIHLÍÐ
HÆD OG RIS
Á hæöinni eru 2 stofur, 2 svefnherbergi,
endurnýjaö eldhús og nýstandsett
baöherbergi i risi eru 4 rúmgóö svefn-
herbergi meö kvistum og snyrtingu.
Verö 2,5 millj.
KÓPAVOGUR
SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR
Á besta staö í vesturbænum, 145 fm
efri haaö i 2-býtishúsi. M.a. stofur, 3
svefnherbergi meö skápum, eldhús
meö nýjum innréttingum, nýflísalagt
baöherbergi. Góö teppi og parket.
Þvottahús og geymsla á hæðinni. Allt
sér.
LINDARBRAUT
SÉRHÆÐ
5 herbergja ca. 120 fm ibúö á 1. hæö i
3-býlishúsi M.a. 2 stofur, 3 svefnher-
bergi. Allt nýtt og baöi. Endurnýjaö eld-
hús. Sér inng. Sér hiti.
EINBÝLISHÚS
KÓPAVOGUR
Til sölu í vesturbænum í Kópavogi ein-
bylishus úr steini á einni hæö, alls um
145 fm ásamt bilskúr Húsiö er m.a.
stofa, boröstofa, 4 svefnherb. Vandaö-
ar innréttingar. Ákv. sala
EINBÝLISHÚS
Til sölu myndarlegt einbýlishús ó einni
hæö meö stórri lóö á besta staö viö
Vallarbraut ó Seltjarnarnesí. Húsiö er
um 140 fm auk 40 fm bilskúrs. í húsinu
er m.a. rúmgóö stofa, 4 svefnherbergi á
sérgangi, eldhús og baöherb. Ekkert
áhvílandi. Laust innan skamms.
RAÐHÚS
BREIÐHOLTI
Nýtt glæsilegt raöhús á tveimur hæöum
á fögrum útsýnisstaö. Eignin er alls ca.
200 fm aö gólffleti meö innbyggöum
bílskúr. Eignin er ekki alveg fullbúin en
allt sem komiö er er af vönduöustu
gerö. Verö 2,8 millj.
HAFNARFJÖRÐUR
SUNNUVEGUR
Vönduö 4ra herbergja 2. hæö í tvíbýl-
ishúsi. Grunnflötur ibúöarinnar er alls
um 115 fm. íbúöin skiptíst m.a. í 2 stof-
ur og 2 svefnherbergi. Vandaöar inn-
réttingar. Viöbyggingarréttur Verö
1950 þús.
KRUMMAHÓLAR
2JA HERBERGJA
Falleg. ca. 55 fm íbúö á 3. hæö i lyftu-
húsi meö fullfrógengnu bilskýli. ibúöin
sem er meö góöum innréttingum og
nýjum teppum, er meö noröursvölum.
MIÐLEITI
STÓR 2JA HERB. M. BÍLSK.
Ca. 85 fm íbúö á 2. hæö i fjölbýlishúsi i
nýja miöbænum. Til afhendingar tilb.
undir tréverk i nóvember.
ÓSKAST
I SKIPTUM
Höfum góöan kaupanda aö einbýlis-
húei í Skjólunum, t.d. fokheldu eöa til-
búnu undir tréverk. A mótl er boöiö í
skiptum, afar glæsileg 5 herbergja hæö
viö Hjaröarhaga.
ÓSKAST
Höfum kaupanda aö góöri 4ra—5 her-
bergja hæð í Veaturborginni, meö eöa
án bilskúrs. ibúöin veröur borguö út.
Atll Vajjnswon löf(fr.
Suöurlandsbraut 18
84433 82110
l 7
esió
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
S-aziíi Opiö 1—4 Sérhæð í Hlíöunum 160 fm 7 herb. glæsileg sérhæö. Arinn i stofu. Bilskúr. Verö 3,1 millj. Við Hjallasel Vandaö 300 fm fullfrágengiö raöhús. Bílskur Gott útsýni. Verö 3,5 millj. í skiptum — Sólheimar Gott raöhús viö Sólheima Fæst i skipt- um fyrir 4ra herb. ibúö í lyftuhúsl viö Sólheima eóa Ljósheima. Glæsilegt einbýlishús viö Barrholt 140 fm 6 herb. nýlegt einbýlishús m. 40 fm bílskúr Faliegur blóma- og trjágarö- ur. Hæó vió Kvisthaga Skipti 5 herb. 130 fm 1. hæö m. bilskúr viö Kvisthaga Fæst i skiptum fyrir 3ja—4ra herb. íbúö í Vesturborginni eöa viö Espigeröi Glæsilegt íbúó v/Krummahóla 6 herb. vönduö 160 fm íbúö á 6. og 7. hæö. Svalir i noröur og suöur. Bilskýti. Stórkostlegt útsýni. Verö 2,5 mlllj. Viö Bauganes 5 herb. 110 fm góö efri hæö Glæsilegt útsýni. Verö 1600—1650 þús. Viö Jörfabakka 4ra—5 herb. göð 120 (m íbúö á 2. hœö. V#rð 1600 þúa. Viö Ljósheima 4ra herb. 90 fm ibúö á 7. hæö í lyftu- húsi. Verö 1450 þús. Viö Hringbraut Hafn. m/bílsúr 4ra herb. miöhæö í þríbýlishúsi. 40 fm bilskúr. Verö 1,7 millj. Við Barmahlíö 4ra herb. íbúö ó efri haaö. Verö 1950 þús. Viö Drápuhlíö 4ra herb. 115 fm efri sérhæö ásamt bílskur Akveðin sala. Verö 1,9—2 millj. Viö Langholtsveg 4ra herb. 116 fm góö íbúö á 1. hæö i þribylishusi. Verö 150Q_þús. Við Háaleitisbraut 4ra herb. 110 (m jaröhæö. Sérlnng. Verð 1400—1450 þúa. Við Æsufell 4ra herb. 105 fm góö ibúö á 4. hæö Stór glæsilegt útsýni. Suóursvalir. Verö 1450—1500 þút. í Miöbænum 3ja herb. risibuö m. svöium. Verö 1 mWj. Við Arnarhraun 3ja herb. góö ibúö á jaröhæö (gengió beint inn). Verö 1350 þús. Viö Engihjalla 3ja herb. 90 fm ibúó i toppstandi á 8. hasö Stórglæsiiegt útsýni. Verö 1400 þúa. Viö Furugrund 3ja herb. ibúö ásamt einstaklingsibúö i kjallara. Möguleiki er aö sameina ibúö- Irnar. Viö Birkimel 3ja herb. góö ibúö á 4. hæö ásamt auka herb. i risi. Góö sameign Verö 1450 þús. Viö Einarsnes 3ja herb. 75 fm íbúö á 2.hasö. Verö 850 þús. Vantar Einbýiishús í sunnanveröum Kópavogi Traustur kaupandi. Vantar Höfum kaupanda af 4ra herb. ibúö i Kópavogi t.d Fannborg Vantar 3ja herb. ibúó i Fossvogi eöa Espigeröi Góö utborgun, jafnvei staögreiösla i boöi. Vantar 4ra herb. ibúö í Fossvogi eöa Espigeröi. Hó útborgun i boöi. Vantar Raóhús i Fossvogi eöa Hvassaleiti. Há utborgun i boði Vantar Einbýlishus í Breiöholtinu Há útborgun i boöi 25JtöiAmffiwnin XOETlír ÞINGMOLTSSTRÆTI 3 SIMI 27711 Sðluatjóri Svwrlr Kristlnsaon PorMtur Guðmundsson sðlumsður Unnstoinn Bock hrl., siml 12320 MróHur Halldðrsaon Iðgfr. Kvöldsími sölumanns 30483.
A
_/\iiglýsinga- síminn er 2 24 80