Morgunblaðið - 01.10.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
13
Helgi Hálfdanarson:
Lauf og barr
Aldrei get ég komizt nógu
oft á Þingvöll. Sá staður kem-
ur sí og æ á óvart með undar-
legri fegurð sinni, svo maður
er alltaf að koma þangað í
fyrsta sinn.
Þó að við íslendingar séum
einatt hirðulausir í sambúð-
inni við land okkar, megum við
þó eiga það, að við látum okkur
annt um Þingvöll. Þrátt fyrir
mikla mannaferð, hygg ég að
umgengni þar sé okkur á eng-
an hátt til vansa. En náttúra
Þingvalla er með þeim hætti,
að lítið má út af bera, svo ekki
verði spjöll að. Og þeim svip
staðarins, sem markast af lit-
ríku kjarri og lyngi í sælli
sambúð við andstæðu sína,
hraun og berg, má ekkert
spilla.
Nokkuð hefur komið til álita
gróðursetning barrviðar innan
þjóðgarðsins. Aldrei hef ég
nennt að hneykslast á því lít-
ilræði, sem þar var stungið
niður á sínum tíma. En grenið
og furan eru steigurlátir
þjarkar, sem gera sig breiða og
láta mikið á sér bera, þar sem
þeim vegnar vel á annað borð;
og er þá hætt við að metnað-
arlítill laufviður, eins og ís-
lenzkt birki og víðir, lúti nokk-
uð í lægra haldi.
Ekki veit ég hvort í ráði er
að auka við þennan barrgróður
á Þingvöllum; en það held ég
væri mjög varhugavert. Jafn-
vel einangraðir reitir, þar sem
tré þessi fá að vaxa í mikla
hæð, verða sem stílbrot og
stinga óþægilega í stúf við um-
hverfi sitt með annarlegu
formi og megnum óboðnum lit.
Og naumast hefði Jakob Smári
heyrt sinnar „þjóðar þúsund
ár“ sem þyt í barri á Þingvöll-
um.
Við Reykvíkingar erum svo
bráðheppnir að eiga í grennd
við okkur aðra eins gersemi og
Heiðmörk. Þangað þykist ég
eiga erindi helzt nokkrum
sinnum á sumri. Að þessu
sinni leið þó hjá, að ég kæmi
þar fyrr en nokkuð var tekið að
hausta, en þá er hún einmitt
að jafnaði hvað fegurst. Á
liðnum árum hefur mér ekki
staðið verulegur stuggur af
greninu og furunni í Heið-
mörk; en nú leizt mér satt að
segja ekki á blikuna. Þessum
gróðri er farið að fleygja mjög
ört fram frá ári til árs; og þá
kemur það æ betur í ljós, að
þarna hefur barrviði verið
plantað allt of víða og allt of
þétt, svo að til verulegra lýta
er orðið á mörgum fegurstu
stöðunum.
Það er ekki laust við að stát-
in grenitré hafi táldregið Is-
lendinga, sem ganga með trjá-
leysis-geðhnútinn á heilanum.
En öllum er bezt að fá hlut-
verk við hæfi, einnig trjá-
gróðri. Grenið eigum við að
rækta til nytja, og til þess
skortir ekki landrýmið. En við
skyldum planta því með gát
innan um þann gróður, sem
gert hefur ýmsa fegurstu staði
landsins að Paradís á jörðu.
Greniskógur er tilkomumikill
á sinn hátt, alltannan hátt en
íslenzkt birkikjarr. Og það
tvennt á ekki skap saman.
Birkið laðar og býður skjól, en
barrviður hrindir frá sér með
þótta. Vist geta vel vaxin
grenitré verið skemmtileg á
sínum stað í skipulögðum
heimagörðum; en það er önnur
saga.
Þar sem birki, víðir og lyng í
mosavöxnu hrauni ráða yfir-
bragði landsins, verður dýrð
haustsins umfram allt hríf-
andi fyrir það, hve litirnir í
þessum gróðri eru kurteislega
samstilltir. Þó að fjölbreytnin
sé endalaus, er þar fullkomin
sátt og samlyndi; hvergi gætir
ósamræmis í neinu. En barr-
viður, sem ryðst inn í þetta
prúða samfélag og fer að slá
um sig með sínum glannalega
frekjulit, er eins og hjáróma
bylmingsrödd upp úr fínlega
samstilltum kór.
Vera má, að barrgróður á
Þingvöllum verði ekki til stór-
lýta næstu árin; en í Heiðmörk
er hann þegar orðinn eins og
risavaxið illgresi, sem mjög er
tímabært að gjalda varhuga
við.
NI5SAN MÍCfíA
sem s/egid hi&fuir öll m&t f>ótt ung
Viö ætlum ekki aö demba yfir ykkur stöðluðum auglýsingaförsum um NISSAN MÍCRA, þaö er MÍCRA ekki samboöiö.
Viö látum okkur nægja aö vitna í stærstu tímarit heims. Viö viljum bara taka fram, aö bensíneyðsla í sparakstri og
raunbensíneyðsla er sitt hvaö. Bensíneyöslu í sparakstri er einungis náö meö ótöldum töfrabrögöum og sérstöku
aksturslagi.
Þær tölur um bensíneyöslu, sem tilvitnuö tímarit gefa upp, eru raunbensíneyðsla, án nokkurs útbúnaöar, eöa sérstaks
akstursmáta, bensíneyösla sem þú getur sjálfur náö og veriö stoltur af.
AUTO MOTOR SPORT:
-Að meöaltali eyöir NISSAN MÍCRA aöeins 5,4 I. á hundraði.
Enginn annar bíll nálgast MÍCRA í bensínsparnaöi.“
MOTOR:
„MÍCRA er eyöslugrennri, en nokkur annar bfll, sem Motor
hefur reynsluekiö og þaö er þeim mun lofsveröara aö MÍCRA
kemst mjög hratt og er þess vegna bensíneyðsla bílsins mæld
á meiri hraöa en venja er til."
QUICK:
„Bensíneyösla er aöeins 4,2 I á hundraöi á 90 km hraöa og 5,9
I á hundraði í borgarakstri.1'
BÍLAR, MOTOR OG SPORT:
Stór fyrirsögn á grein er fjallaöi um reynsluakstur á NISSAN
MÍCRA var svona: „Nýtt bensínmet — 19,2 km á líterinn, „Þaö
jafngildir 5,208 á hundraði. í greininni segir m.a. „MÍCRA er
lang sparneytnasti bíll sem viö höfum nokkurn tíma reynsluek-
iö. Bersýnilega vita NISSAN framleiöendur hvaö bensínsparn-
aður er, því sá sem kemst næst NISSAN MÍCRA er NISSAN
SUNNY 1,6 meö 17,2 á líterinn." Þaö jafngildir 5,813 á hundr-
aði.
AUTO ZEITUNG:
Eftir mikiö lof á NISSAN MÍCRO segir svo: „En einnig hiö mikla
innanrými á lof skiliö. MÍCRA býöur ekki bara ökumanni og
farþega í framsæti upp á frábært sætarými, heldur gildir þaö
sama um þá sem í aftursæti sitja."
STORKOSTLEG
SÝNING Á
NISSAN MÍCRA
í fyrsta skipti á íslandi
laugardag og sunnudag kl.
2—5.
TÖKUM FLESTAR GERÐIR ELDRI
BÍLA UPP í NÝJA.
Afturhurö opnast niöur aö stuö-
ara og gerir þaö alla hleöslu eins
þægilega og hagkvæma og hægt
er. Bíllinn er hannaöur meö ör-
yggi og notagildi í huga. Spar-
neytni en þó snerpu og góö
viöbrögö.
MÍCRA er byggö til aö endast og
endast, jafnvel á íslandi þar sem
slæmir vegir og selta leggjast á
eitt aö granda bílum okkar.
NISSAN MÍCRA er klædd Zink-
kromíum stáli og hiö sterka
stálbúr (styrktarstoðir bílsins)
nánast einsdæmi aö rammleik í
bíl af þessari stærö.
H/F.
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI S33560