Morgunblaðið - 01.10.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
Fjörutíu farast í eld-
flaugaárásum íraka
Nikósíu, Kýpur, 30. september. AP.
FJÖRUTfU manns létu lífið og 255 særðust seint í gærkvöldi er írakar gerðu
eldflaugaárás á tvær íranskar borgir, að því er opinbera íranska fréttastofan
IRNA skýrði frá.
Að sögn fréttastofunnar höfn-
uðu fjórar flauganna í íbúðar-
hverfum í borgunum Dezful og
Andimeshk skammt frá landa-
mærunum með fyrrgreindum af-
leiðingum. Sextíu hús voru ger-
samlega jöfnuð við jörðu í síðar-
nefndu borginni og 120 skemmd-
ust.
Skammt er á milli borganna
tveggja og hafa þær áður orðið
fyrir eldflaugaárásum íraka.
Árásin nú kom í kjölfar harð-
orðaðrar viðvörunar Iraka um að
árásum frana á bæi og borgir hinu
megin landamæranna yrði svarað
af hörku.
Styrjöld þjóðanna hefur nú
geisað í rúm þrjú ár. Samkvæmt
upplýsingum ísraelskra hernað-
arsérfræðinga hafa 175.000 manns
úr röðum herja þjóðanna fallið í
styrjöldinni, þar af hafa íranir
misst 125.000 menn.
Tyrkjum hótað brott-
vísun úr Evrópuráðinu
Stra.sbourg, 30. sept. AP.
EVRÓPUÞINGIÐ í Strasbourg sam-
þykkti í dag ályktun, þar sem skorað
er á herstjórnina í Tyrklandi, undir
forystu Kenans Evrens forseta, að
söðla um í mannréttindamálum, en
eiga yfir höföi sér brottvísun úr Evr-
ópuráðinu ella. í áskoruninni er
tyrknesku stjórninni gefinn frestur
til að koma málum í manneskjulegt
horf fram til janúarmánaðar.
f ályktuninni sagði sömuleiðis
að þingið, sem á að kjósa í Tyrk-
landi þann 6. nóvember, muni ekki
endurspegla lýðræðislegan vilja
tyrknesku þjóðarinnar vegna
ákvæða sem stjórnin setti varð-
andi framkvæmd kosninganna.
Lögð hafði verið fram ályktun þar
sem Tyrkjum var vísað strax úr
ráðinu, en hún var felld og hin
ofangreinda samþykkt gerð.
Evrópuþingið hefur staðið fyrir
allmörgum samþykktum að und-
anförnu, þar sem látin er í ljósi
gremja vegna mannreítindabrota
í Tyrklandi og gagnrýnd meðferð
á pólitískum föngum.
f fréttum frá Ankara í dag var
sagt frá því að Suleyman Demirel,
fyrrverandi forsætisráðherra
landsins, sem var í því embætti
þegar valdarán hersins var gert í
september 1980, hafi verið leystur
úr stofufangelsi. Fimmtán aðrir
sem höfðu sætt ámóta meðferð
voru einnig leystir úr haldi eða
leyft að snúa heim úr útlegð. Dem-
irel fær hins vegar ekki að beita
sér í þingkosningunum í nóvem-
ber, eins og áður hefur verið sagt
frá.
23
Kjölurinn leyndardómsfulli
Eftir sigurinn í Ameríkubikarnum voru áströlsku siglararnir á skútinni
„Ástralía 11“ ekki að fela kjölinn dularfulla lengur, en mikil leynd
hvfidi yfir þessum útbúnaði skútunnar og engum gefinn kostur á að
virða hann fyrir sér þar til sigur var í höfn. Áhöfn bandarísku skútunnar
Liberty reyndi um tíma að fá skútuna dæmda úr leik vegna hins
byltingarkennda kjalar, sem er með perulagi og tveimur uggum. Hermt
er að kjölurinn hafi aukið hæfni skútunnar, en öðrum hefur þótt
athyglin beinast um of að kilinum og frá miklum sjómennskuhæfileik-
um skipverja. Myndin er tekin aftur undir skútuna.
Veður
víða um heim
Akureyri 0 skýjaó
Amsterdam 23 skýjað
Aþena 28 heiðskírt
Berlin 16 heiðskírt
Brússel 18 þoka
Dytlinni 18 rigning
Feneyjar 21 þokumóöa
Frankfurt 24 heiðskírt
Færeyjar 7 alskýjað
Qenf 21 heiðskírt
Helsínki 10 heiðskírt
Hong Kong 25 rigning
Jerúsalem 26 heiðskírt
Jóhannesarborg 31 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Kairó 30 heiðskírt
Las Palmas 25 lóttskýjað
London 18 skýjað
Los Angeles 24 rígning
Madríd 27 skýjað
Mallorka 25 skýjaö
Miami 28 skýjað
Moskva 8 skýjað
Nýja Oelhí 35 heiskirt
New York 21 skýjað
Osló 11 heiðskírt
París 27 Iteiðskírt
Peking 28 heíðskirt
Perth 22 heiðskírt
Reykjavík 7 alskýjað
Rio de Janeiro 26 rigning
Róm 21 heiðskírt
San Fransisco 18 skýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Sydney 19 heiðskirt
Tel Aviv 27 heiðskirt
Tókýó 21 skýjað
Vancouver 14 skýjað
Vínarborg 20 heiðskirt
HA6KAUP
Skeifunni 15
Reykjavík