Morgunblaðið - 01.10.1983, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
33
Þótt spennandi væri að fylgjast með keppninni þá vakti EM-blað Morgun-
blaðsins einnig athygli. Hér deila þau Gunnar og Olil með sér einu blaði.
í fljótheitum var snarað upp einni sextán hundruð og fimmtíu fermetra
skemmu svo hægt væri að halda dansleiki innanhúss. Grindin er úr áli síðan
var það klætt með þykkum segldúk.
Já, það var svo sannarlega tilefni til að gleðjast en þessi mynd er tekin eftir
fyrstu tvo sprettina í skeiði og sýnt að íslendingar myndu sigra með yfirburð-
um.
Þetta voru eftirminnilegir dagar fyrir Tómas Ragnarsson og fjölskyldu hans
því auk þess að verða tvöfaldur Evrópumeistari opinberaði hann og sú
lukkulega er Þóra Þrastardóttir. En þar með er ekki allt upp talið því
foreldrar hans, þau Ragnar Tómasson og Dagný Gísladóttir, áttu tuttugu ára
brúðkaupsafmæli og Dagný hélt einnig upp á fertugsafmæli sitt. Voru þeim
færðir blómvendir frá íslensku keppnissveitinni í grillveislu sem haldin var í
tilefni dagsins. Ljósmyndir Valdimar Kristinsaon
Þessi mynd er tekin augnabliki áður en Olil fór inn á völlinn í fjórganginn.
Sigurður liðstjóri bograr aftan við Blika og er hann greinilega að pússa
gæðinginn.
*
Operan Cavalleria Rusti-
cana hljóðrituð til útgáfu
Ljósniynd Mbl./Friiþjófur.
Hljóðupptökur á óperunni
Cavalleria Rusticana hafa að und-
anförnu staðið yfir í Háskólabíói,
en óperan var flutt í Þjóðleikhús-
inu sl. vor. Fimm einsöngvarar
taka þátt í flutningnum, en það eru
Erlingur Vigfússon, Ingveldur
Hjaltested, Halldór Vilhelmsson,
Sigríður Ella Magnúsdóttir og Sól-
veig Björling. Þá hafa Þjóðleik-
húskórinn og Sinfóníuhljómsveit
fslands einnig stóru hlutverki að
gegna.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
ópera, flutt á íslensku af íslend-
ingum hér á landi, er hljóðrituð
til útgáfu," sagði Sverrir Kjart-
ansson i samtali við Mbl. „Ein
ástæðan fyrir því að við förum
út í þetta nú, er að í ár á Þjóð-
leikhúskórinn 30 ára starfsaf-
mæli, og okkur langaði að sýna
fram á að þegar búið er að kosta
uppsetningu og sýningu á óperu
eða konsert er það ekkert stór-
fyrirtæki að hljóðrita hana og
þannig varðveita þessa list
augnabliksins. Staðreyndin er
nefnilega sú að gott úrval er til
af því sem söngvarar okkar
gerðu fyrir 1950, en eftir þann
tíma er við höfðum eignast ríkis-
sinfóníuhljómsveit og atvinnu-
leikhús, tæki og möguleika til að
geyma hljóðritanir hefur ekkert
verið gert til að varðveita dýrar
uppfærslur og óperusöng okkar
bestu söngvara. Það er mikill
skaði því þannig hefur skapast
eyða í okkar menningarsögu og
þær heimildir sem við höfum um
söng og söngvara á þessum tíma.
Til að mynda hafa aldrei verið
Frá upptöku óperunnar í Háskólabíói.
gerðar hlóðupptökur af óperu-
söng þeirra Sigurðar Björns-
sonar og Erlings Vigfússonar en
þeir hafa um áratugaskeið starf-
að við óperur erlendis.
En við höfum ákveðið að láta
þessa þrjátíu ára eyðu nægja, og
ríkir einhugur að baki þessari
framkvæmd. Útvarpið átti þessa
viku með Sinfóníuhljómsveitinni
en gaf hana lausa. Stjórnandi
sveitarinnar, Jean-Pierre Jacqu-
illiat, hætti við þrenna tónleika í
jafnmörgum löndum til að kom-
ast hingað í tæka tíð til að
stjórna. Erlingur Vigfússon fékk
sig lausan úr 10 sýningum til að
geta komið og sungið hlutverk
Turiddu og söngvararnir hér
hafa allir gefið sína vinnu.
Hljóðupptökustjóri er Sigurður
Rúnar Jónsson úr Stemmu og er
tekið upp á 22 rásum. Útvarpið
hefur lánað mikið af tækjum og
aðstoðarmann til að sjá um þau.
Og er það fyrst og fremst góð
samvinna milli allra aðila sem
gerir þetta mögulegt.
Plöturnar verða tvær og munu
kom út í lok nóvember. Upplagið
fer eftir því hversu margir ger-
ast áskrifendur, en skrifstofa
Þjóðleikhússins og þáttakendur í
flutningnum munu taka við
áskriftum fram í miðjan næsta
mánuð. Áætlað verð er 800 krón-
ur til áskrifenda og 1200 krónur
út úr verslunum.
Við vonumst til að þetta eigi
eftir að verða mörgum til
ánægju og jafnframt að hugað
verði að því framvegis að varð-
veita valdar uppsetningar og
konserta. Þjóðleikhúskórinn
ætti ekki að þurfa að sjá fyrir
því að það sé gert.“
Burstafell
er flutt...
í nýtt rúmgott húsnæði að Bíldshöfða 14.
Nú erum við í næstu nálægð við öll helstu
nýbyggingasvæði Reykjavíkur og með bættri aðstöðu
bjóðum við aukna þjónustu og vöruval.
Góð aðkeyrsla — Næg bílastæði.
Eftir 20 ára veru í Smáíbúðahverfi
þökkum við íbúum hverfisins ánægjuleg
samskipti á liðnum árum og bjóðum þá velkomna
til viðskipta á nýjum stað.
BURSTAFELL
Byggingavöruverslun Bíldshöfða 14,
Símar: Verslun 38840/Skrifstofa 85950
Opið frá 10 - 4 í dag.