Morgunblaðið - 01.10.1983, Side 48
Tölvupappír
IMI FORMPRENT
Hverfisgotu 78. simar 25960 25566
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
Hagkaup vill breyttan afgreiðslutíma vegna samkeppnisaðstöðu:
Núverandi afgreiðslu-
tímakerfi að springa
— segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR
„MÁLIÐ er á umræðustigi og ég vil
ekki tjá mig um þaö að svo stöddu.
Hagkaupsmenn hafa verið í viðræðum
við mig og þeir hafa áhuga á að breyta
þessu,“ sagði Magnús L. Sveinsson,
formaður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, þegar hann var spurður
um viðhorf VR til hugmynda Hag-
kaups um breytingu á verslunartíma í
verslunum sínum í þá veru að opna
ekki fyrr en klukkan 10 á morgnana.
en hafa opið til 19 á kvöldinn. Starfs-
fólk Hagkaups lcitaði til VR vegna
þessara fyrirhuguðu breytinga og
verður almennur fundur með því og
Magnúsi L. Sveinssyni í dag um þetta
mál.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að það
eru ákvæði í samningum okkar um
afgreiðslutíma verslana og reglugerð
Reykjavíkurborgar hveður ótvírætt
á um hann,“ sagði Magnús ennfrem-
ur. „Núverandi afgreiðslutimakerfi
er bara allt að springa, það liggur
alveg ljóst fyrir. Þess vegna er um að
gera að menn ræðist við. Það eina
sem við höfum áhyggjur af er vinnu-
tími fólksins og vinnutími er ekki
lítill hluti af kjörum fólks. Það er
einfaldlega að koma á daginn núna,
þegar þetta er að springa, þá standa
launþegar frammi fyrir því að þurfa
að vinna fram eftir öllu á kvöldin,"
sagði Magnús.
Magnús sagði að það yrði að ræða
þessi mál í víðara samhengi en að
aðeins um eitt fyrirtæki væri að
ræða.
„Við höfðum áhuga á að breyta
opnunartímanum hjá okkur núna
um mánaðamótin, en höfum hins
vegar frestað aðgerðum um ein-
hverja daga til þess að freista þess
að ná góðri samstöðu með starfsfólk-
inu í þessu rnáli," sagði Gísli Blöndal
hjá Hagkaup. Hann sagði að fyrir-
tækið skildi það mjög vel að svona
breyting hefði röskun í för með sér
fyrir starfsfólkið og fólk þyrfti tíma
til að átta sig á hvað hún hefði í för
með sér.
Hagkaup vill hafa opið 10—19
virka daga nema föstudaga til kl. 21
og laugardaga til kl. 16.
Aðspurður hvort þessi opnunar-
tími væri ekki reglugerðarbrot sagði
Gísli að það væri spurning, þeir
hefðu reynt að fá þennan opnunar-
tíma samþykktan í tvö ár, en ýmsir
aðilar staðið á móti því. Nú þegar
ljóst væri að einn af þeirra aðal-
samkeppnisaðiljum hefði tekið sér
þennan opnunartíma og reyndar
mun lengri og það væri látið óátalið,
þá gæfi það augaleið að þeir gætu
ekki setið aðgerðarlausir í harðri
samkeppni.
„Meirihluti starfsfólksins er á
móti þessari breytingu, þar sem það
hentar fólkinu illa að hætta ekki
fyrr en kl. 7 á kvöldin," sagði Bertha
Biering, trúnaðarmaður starfsfólks í
verslun Hagkaups í Skeifunni, er
álits hennar var leitað. Sagði hún að
flest starfsfólkið væri húsmæður og
hentaði þessi opnunartími þeim illa
en einnig hefði það sjónarmið komið
fram að kvöldin og helgarnar yrðu
fólkinu ódrjúg. Þó sagði Bertha að
hugsanlegt væri að eitthvað af
starfsfólkinu væri tilbúið til að
vinna þannig vinnutíma og væru for-
ráðamenn fyrirtækisins allir af vilja
gerðir til að hliðra til þannig að
hugsanlegt væri að þetta mál leyst-
ist með samkomulagi.
rektors
NEMENDUR í Menntaskólanum
við Hamrahlíð, sem höfðu safnað
undirskriftum með áskorun til yf-
irstjórnar menntamála um að hefj-
ast þegar í stað handa við að koma
upp fyrirhugaðri hjólastólalyftu í
skólanum, hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að málið hafi ekki
strandaö „í kerfinu", heldur í
skólanum sjálfum.
Hættu nemendur því við að
afhenda menntamálaráðuneyt-
inu undirskriftalistana og færðu
Örnólfi Thorlacius rektor þá í
staðinn. Hann tekur hér við list-
anum úr hendi Eddu K. Hauks-
dóttur, einum fulltrúa nemenda
í hagsmunaráði nemenda. Sjá
nánar á miðsíðum blaðsins.
Morgunblaúid/RAX.
Nýtt landbúnaðarvöruverð:
Hækkun á mjólkurvör-
um og nautakjöti 4%
Kindakjöt mun hækka um allt að 15% á næstunni
Skákeinvígi milli Verslunarskóla íslands og Menntaskólans við Hamrahlíð var
háð á útitaflinu í Reykjavík í góðviðrinu í gær. Fylgdust hundruð skólanema og
annarra forvitinna (eða skákáhugasamra) vegfarenda með. Karl Þorsteins
tefldi fyrir Verslunarskólann en Halldór G. Einarsson, Bolvíkingur, fyrir MH.
Lyktir urðu þær, að Karl (til vinstri) mátaði Halldór við gríðarleg fagnaðarlæti
skólasystkina sinna.
NYTT verð á landbúnaðarvörum
tekur gildi í dag, en samkvæmt því
hækka mjólkurvörur um 4% í verði.
Sömu sögu er að segja af nautakjöti,
en hins vegar mun hækkun á kinda-
kjöti, sem koma mun fram á næstu
dögum, verða nokkru meiri, eða allt
að 15%, samkvæmt upplýsingum
Mbl. Hækkunin til bænda verður
um 4%.
Hvalsnesskriður:
Töldu manninn drukk-
inn og óku af slysstað
llöfn í llornafírdi, 30. september.
Fiskflutningabifreið ók út af veg-
inum í Hvalsnesskriðum á miöviku-
dagskvöldið, og hafnaði um 80 metr-
um fyrir neðan veginn. Ökumaður,
Lúðvík Jónsson, verkstjóri, var einn
í bílnum og kastaðist hann út úr
bifreiðinni og staðnæmdist loks um
60 metrum neöan vegarins. Hann
marðist illa og skrámaðist talsvert,
en líðan hans er nú eftir atvikum
góð.
Lúðvík hafði verið á leiðinni til
Fáskrúðsfjarðar með fisk, en
óhappið varð sem fyrr segir í
Hvalsnesskriðum milli Breiða-
dalsvíkur og Stöðvarfjarðar. Lúð-
vík hafði haft öryggisbelti bifreið-
arinnar spennt, en af einhverjum
ástæðum spennti hann þau ekki
aftur er hann hafði tekið elds-
neyti á bifreiðina á Breiðdalsvík.
Telur hann það hafa bjargað sér,
að hann kastaðist út úr bílnum,
því hann er mikið skemmdur.
Lúðvík tókst að komast af
sjálfsdáðum upp á veginn, og þar
reyndi hann að stöðvá bifreið
skömmu síðar er leið átti hjá.
Ökumaður bifreiðarinnar stöðv-
aði bifreiðina um stund, en ók síð-
an á brott á ný án þess að tala við
Lúðvík. — Síðar kom í ljós, að
tvær stúlkur, sem í bílnum voru,
þorðu ekki að taka manninn upp í
bílinn, þar sem þær töldu hann
drukkinn.
Lúðvík tókst síðan að komast af
eigin rammleik á næsta bæ, um
tvo kílómetra frá, og þaðan var
honum ekið af lögreglu frá Breið-
dalsvík á Djúpavog, og sóttur
þangað af sjúkrabíl frá Höfn. Má
því segja að Lúðvík hafi verið
heppinn er allt kom til alls, þrátt
fyrir óhappið og það að fá ekki far
með stúlkunum, og biður hann
fyrir þakklæti til allra þeirra er
veittu honum aðstoð og umönnun
eftir slysið.
— Fréttaritari.
Ríkisstjórnin kom saman til
fundar í gærmorgun, þar sem tek-
in var ákvörðun um að greiða
landbúnaðarvöruverð niður um 23
milljónir króna. Um 18,3 milljónir
króna fara til að greiða niður
hækkun á áburði og 4,7 milljónir
fara aðallega til að greiða niður
mjólkurvörur.
Sem dæmi um hækkunina á
mjólkurvörum má nefna, að lítra-
ferna af mjólk hækkar í dag úr
16,60 krónum í 17,25 krónur. Þá
hækkar V* lítra ferna af rjóma úr
26,70 krónum í 27,80 krónur. Kíló
af skyri hækkar úr 25,95 krónum í
27,00 krónur.
Þá hækkar smjörkílóið úr 192,70
krónum í 212,00 krónur. Ostur,
45%, hækkar úr 165,95 krónum
hvert kíló í 172,60 krónur. Ef um
30% ost er að ræða hækkar hvert
kíló úr 138,05 krónum í 143,60
krónur.
Ef litið er á dæmi um hækkanir
á nautakjöti, þá hækkar hvert kíló
af nautakjöti í heilum eða hálfum
skrokkum úr 133,05 krónum í
138,40 krónur, ef um 1. flokk er að
ræða.
Eins og áður sagði hefur ekki
verið gengið frá nýju kindakjöts-
verði, en samkvæmt upplýsingum
Mbl. má gera ráð fyrir að hækkun-
in verði allt að 15%. Það hefur í
för með sér, að kílóið af súpukjöti
hækkar úr 106,25 krónum í liðlega
122 krónur. Læri og hryggur
hækka úr 127,30 krónum kílóið í
liðlega 146 krónur. Þá hækka heil-
ir skrokkar úr 101,20 krónum
hvert kíló í um 117 krónur.
Borgin vatnslaus
tæpan sólarhring
VATNSLAUST verður í stórum hluta
Reykjavíkur næstu nótt og eitthvað
fram eftir sunnudegi vegna viðgerða á
aðalæð inn ( borgina. Vegna þess verð-
ur að loka fyrir og hleypa vatni af kerf-
inu en vonir standa til að viðgerðin
gangi fljótt og vel, svo vatn komist aft-
ur á síðdegis á morgun.
Vatn verður þó í nokkrum fjöl-
mennustu hverfum borgarinnar, svo
sem Árbæjarhverfi, Breiðholti,
Fossvogshverfi, Háaleiti og hluta
Hlíðanna. Svo og verður vatn í öðr-
um bæjarhlutum eftir því sem vatn
á kerfinu endist. Áætlað er að lokað
verði fyrir vatnið um kl. 02 í nótt og
að viðgerð geti hafist i birtingu.
Sjálf viðgerðin tekur að minnsta
kosti fjóra tíma en talsverðan tíma
tekur að hleypa vatni af kerfinu og á
það aftur og að ná upp þrýstingi.
Vegna viðgerðarinnar verða sund-
laugarnar í Laugardal lokaðar á
morgun og sömuleiðis Sundhöllin og
Sundlaug Vesturbæjar.