Morgunblaðið - 18.10.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1983
3
Lögreglumenn og fleiri hjálpast að við að koma bifreiðinni á réttan kjöl eftir
að henni hafði hvolft, en hún skemmdist tiitölulega lítið. Morjpjnbiaðis/ jón S.
Drukkinn velti
stolnum bíl
ÖLVAÐUR ökumaður á stolnum bfl
lauk ökuferð sinni um Reykjavík að-
faranótt síðastliðins laugardags með
því að aka á Ijósastaur og hvolfa
bifreiðinni. Hinn drukkni ökuþór
slapp lítt eða ekki sár, og brá þegar
undir sig betri fætinum er bifreiðin
hafði staðnæmst, og hugðist hann
forða sér á hlaupum.
Það tókst þó ekki, því lögreglu-
menn voru fljótir á vettvang og
hlupu ökumanninn uppi skammt
frá þeim stað er bifreiðin valt við
Miklubraut. Okumaður slapp sem
fyrr segir lítt meiddur og bifreiðin
skemmdist tiltölulega lítið.
Aflýsti matvælasýn-
ingu vegna leyfisleysis
FYRIRHUGAÐRI matvælasýningu
hjá fyrirtækinu JL-húsið var aflýst á
laugardag, en sýningin átti að vera
þá síðdegis. Orsökin var sú að ekki
voru tilskilin leyfi fyrir hendi, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá Lofti Jónssyni, framkvæmda-
stjóra.
Sagði hann að forsvarsmenn
fyrirtækisins hefðu rætt við full-
trúa lögreglustjóra og hefði komið
i ljós að þeir hefðu ekki haft til-
skilin leyfi. Sagði Loftur að lög-
reglan hefði varað þá við sýn-
ingarhaldinu, þar sem leyfi borg-
aryfirvalda skorti, en slíkt leyfi
kvað Loftur taka vikur að fá. Ekki
sagði hann að fyrirtækið hefði í
hyggju að sækja um slíkt leyfi,
enda hefðu menn verið að vinna að
því að fá afgreiðslutíma verslana
breytt í átt til rýmkunar.
Póstránið á Hvolsvelli:
Póstpokarnir geymdir
án ábyrgðar um nætur
— nýtt fyrirkomulag á geymslu pósts í kjölfar ránsins
STARFSMENN í sláturhúsinu á Hvolsvelli sáu til tveggja manna og bfls við
verslunina Björk laust fyrir klukkan sex á róstudagsmorguninn. Þá um
nóttina — eða morguninn — var brotist inn í verslunina og stolið þaðan
tveimur póstsekkjum, sem geyradir voru yfir nóttina áður en átti að flytja þá
til Reykjavikur. Sláturhússtarfsmönnunum tveimur þótti þessar mannaferðir
grunsamlegar og ræddu s(n á milli hvort ekki væri rétt að kanna ferðir þeirra
en „það var nú svo slysalegt, að úr því varð ekkert,“ eins og Valgeir
Guðmundsson, lögreglumaður á Hvolsvelli, orðaði það ( samtali við blm.
Morgunblaðsins í gær.
Ekki var farið að birta þegar
þetta gerðist og geta því starfs-
mennirnir enga lýsingu gefið á
mönnunum, né heldur sáu þeir
hvaða litur var á bifreiðinni. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu á
sunnudag fannst stolin bifreið
stórskemmd í útjaðri Reykjavíkur
á föstudagskvöldið og í henni bréf
frá pósthúsinu á Hvolsvelli. Bréf
fundust á víðavangi frá Þjórsá allt
vestur undir Selfoss. Fram hefur
komið, að póstur frá pósthúsinu á
Hvolsvelli var geymdur í sömu
verslun næstu nótt.
Hermann Magnússon, póst-
meistari á Hvolsvelli, sagði að
þessi geymslumáti væri viðhafður
víða um land. „Það er flutningsað-
ilinn hér, Austurleið, sem geymir
póstinn yfir nóttina, en sjoppan
þarna er ( eigu sama aðila," sagði
Hermann. „Þetta hefur aldrei þótt
athugavert og talið allt eins ör-
uggt og að geyma póstinn hér í
húsinu. Það er alls staðar hægt að
brjótast inn.“
Hermann sagði það mishermi,
sem fram kom í Morgunblaðinu á
sunnudag, að á pósthúsinu væru
rammgerðar geymslur. „Ég hef
engar geymslur hér nema pen-
ingaskáp og pósturinn kemst ekki
allur í hann. Þetta fyrirkomulag,
að starfsfólk pósthússins flytur
póstpokana yfir ( sjoppuna þegar
við lokum kl. 17 á daginn, hefur
verið viðhaft hér síðan í febrúar.
Þá breyttist afgreiðslutiminn á
pósthúsinu og símstöðinni hér
með tilkomu sjálfvirka kerfisins.
Nú er opið frá nfu á morgnana til
fimm á daginn, en áður var opið
frá átta á morgnana til níu á
kvöldin. Rúturnar fara héðan
klukkan níu á morgnana og ef við
hefðum viljað koma póstinum á
rútuna hefði þurft að vera maður
hér ekki seinna en hálf níu. Það
verður enda gert framvegis, ég hef
fengið tilmæli um það frá Pósti og
síma, en ég vil taka fram, að þessi
háttur hefur var tekinn upp í fullu
samráði við umdæmisstjórann,
Kristján Helgason."
Póstmeistarinn á Hvolsvelli
sagði að pósturinn hefði verið
ábyrgðarlaus i versluninni Björk
yfir nóttina enda hefði flutnings-
aðili ekki viljað taka ábyrgð m.a.
vegna innbrotshættu. Ekki hefur
verið kvittað fyrir móttöku pósts-
ins fyrr en sekkirnir hafa verið
settir um borð í rútu á morgnana.
Framvegis verður pósturinn
geymdur í pósthúsinu yfir nótt og
á ábyrgð póstmeistara.
Um ástæðu þess að sekkirnir
hefðu verið geymdir án ábyrgðar í
versluninni nóttina eftir innbrotið
sagði Hermann Magnússon: „Það
var á mína ábyrgð og samkvæmt
minni ákvörðun. Þetta var síður
en svo á glámbekk og ég taldi það
síst hættulegt daginn eftir að
geyma póstinn þarna."
Hann sagði að megnið af týndu
bréfunum hefði komist til skila. I
sekkjunum hefðu verið fjórar
ábyrgðarsendingar og væru tvær
þeirra fundnar. Um verðmæti í
þessum sendingum hefði ekki ver-
ið að ræða nema í einu tilviki, það
hefðu verið rúmar eitt þúsund
krónur í peningum. Flest bréfin
hefðu verið frá sýslumannsemb-
ættinu, kaupfélaginu og bankan-
um og hefðu fulltrúar þessara
stofnana fengið tækifæri til að
kynna sér hvað hefði fundist og
hvað ekki.
Valgeir Guðmundsson, lögreglu-
maður, sagði í gær að þjófarnir
væru enn ófundnir, trúlegast væru
þeir á höfuðborgarsvæðinu.
UPPMEÐ SÓUGLERAUGUN
Það getur vel verið að verslanirnar við
Laugaveginn séu búnar að taka niður
fulla sólgleraugnastandana eftir rigningar-
sumarið og setja þá bakvið. En þú skalt
setja upp sólgleraugun og ganga í Kanarí-
klúbb Flugleiða, Útsýnar, Úrvals og
Samvinnuferða/Landsýnar!
Við fljúgum til Las Palmas á Gran Canaría
f beinu leiguflugi á þriggja vikna fresti
frá og með 14. desember og vikulega frá
2. nóvember í áætlunarflugi um London
þar sem hægt er að hafa viðdvöl í
bakaleiðinni.
Við bjóðum úrval frábærra
gististaða: hótelíbúðir með 1 eða 2
svefnherbergjum, hótelherbergi og smáhýsi
með 1 eða 2 svefnherbergjum.
Við bjóðum dvöl f: 1,2,3,4, 6,9 eða jafnvel
24 vikur!
Við bjóðum hagstætt verð: Frá 19.460.- kr.
í eina viku og frá 22.155.- kr. í þrjár vikur, miðað
við 2 í hótelíbúð. 21 vika á Broncémar miðað
við 2 í (búð kostar aðeins 78.000.- kr.
Þú kemur heim 9. maí!
Þú sérð Kanarfeyjar í réttu Ijósi
f gegnum gleraugun!
URVAL ÚTSÝN Samvinnuferdir Landsýn FLUGLEIDIR