Morgunblaðið - 18.10.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1983
27
Fullkomnun
— Einnig hin líkamlegu áföll?
„Það er erfitt að einblína á þá
spurningu. Mér gremst alltaf þeg-
ar fólk talar um ófarirnar. En þú
mátt ekki misskilja mig, það ligg-
ur í augum uppi að ég er ekki sá
sami og áður, eftir að hafa gengið
í gegnum sex uppskurði; í hnjám,
kjálka og nefi — þess munu alltaf
sjást merki. En ég fékk greidd há
laun fyrir það. Meiðsli mín eru lít-
ilfjörleg, en mikið um þau rætt.
Þau voru einn þáttur í lífsreynslu-
áhættunni, ég vissi það fyrirfram
og ég fékk vel borgað fyrir þá
áhættu."
— Hvenær nær atvinnuknatt-
spyrnumaðurinn fullkomnun í
starfi?
„Þegar liðið sigrar — þegar
árangur erfiðisins kemur í ljós. I
Hamburg settum við okkur það
takmark að vinna þrjá meistara-
sigra á árinu — það mistókst í
bikarkeppninni, en við urðum
þýskir og evrópskir meistarar.
Sameiginlega leystum við það
verk af hendi sem okkur var falið.
Þar í felst fullkomnunin — líkt og
hjá blaðamanni þegar hann skilar
frá sér góðri grein."
Hrifningin
— I því eru töfrar knattspyrn-
unnar e.t.v. fólgnir?
„Það sem mér finnst mest hríf-
andi við knattspyrnuna er samspil
einstaklingsins við heildina; en á
þessu samspili byggist knatt-
spyrnan. Það sama gildir um t.d.
körfubolta og blak, en i knatt-
spyrnunni liggur þungamiðjan á
einstaklingnum. Frammistaða
hans er ævinlega undir heildinni
komin í hverju einstaka tilviki. Ég
er þeirrar skoðunar að sé heildin
(liðið) eins og það á að vera þá
opnar hún einstaklingnum tæki-
færi — og gagnkvæmt; framlag
hvers og eins er undirstaða sam-
vinnunnar.
Þetta gagnkvæma samspil er
e.t.v. ríkari þáttur í knattspyrn-
unni en öðrum íþróttagreinum —
mér er ekki kunnugt um neinn
annan knattleik þar sem tilviljan-
ir eru jafn ríkur þáttur í leiknum
og í knattspyrnu. Besta liðið er sú
heild sem kann að færa sér þessar
tilviljanir hvað best í nyt.
Ég á ekki við fullkomna nýtingu
þó þetta geti hljómað þannig."
— Knattspyrnan er jú leikur?
„Það er rétt, en þó er ekki hægt
að sía keppnisþáttinn frá heild-
inni til að eftir standi leikur."
Uppeldið
— Þú hefur gagnrýnt knatt-
spyrnufræðsluna.
„Já, mér finnst það ekki rétt
uppeldisaðferð, sem felst í því að
ef drengirnir læra tiltekin atriði
þá geti þeir að ári leikið með 1.
deildinni.
Réttara væri að tala um ein-
hvers konar kennslu varðandi aga
og aðlögunarhæfni og láta þá sýna
viðbrögð við óvæntum og óeðli-
legum atvikum. Svipað og her-
mönnum sem er kennt hvernig
þeir eiga að bregðast við í einstöku
tilviki. Þessi samliking gengur
e.t.v. fulllangt, en mín skoðun er
sú, að börn þurfi aga, en ekki virð-
ast allir á eitt sáttir um það, þótt
undarlegt megi virðast.
Sjálfur þoli ég mótbyr — og ég
get sagt nei, enda hef ég hlotið
öðru vísi knattspyrnuleiðsögn úti
á landi.
Hjá mörgum félögum í dag eru
drengirnir vandir við slikan aga
og tamin svo mikil undirgefni að
þeir munu aldrei voga sér að segja
nei. Þeim er innrætt frá blautu
barnsbeini hvernig þeir eiga að
haga sér.
Eg las nýlega, að ungt fólk væri
farið að sækja meira i iþrótta-
greinar þar sem ekki rikja jafn
strangar agareglur. Og er það
vel.“
Keppnin
— Þú kallaðir þig áðan keppn-
ismann...
„Ég er í öllu falli ekki sú mann-
gerð sem sér hið illa í sérhverju
keppnisformi. Keppni er jú
skemmtun svo framarlega sem sá
sem ber lægri hlut haldi ekki að
nú hafi hann tapað á öllum svið-
um lífs síns. Við skulum ekki af-
nema keppnina; reynum heldur að
breyta viðhorfi fólks gagnvart
henni. Keppni er ekki spurning
um líf eða dauða, eða eins og Heg-
el sagði: „Sá sem þorir að nálgast
dauðann mest og hopar ekki, hann
sigrar."
í keppni er list að kunna að tapa
og ósigurinn má ekki verða til þess
að draga úr sjálfstrausti einstakl-
inganna. Þó þú hafir tapað á
grasvellinum hefur þú ekki tapað í
öðrum þáttum lífsins.
Ég skil ekki af hverju er verið
að kvarta yfir því að keppnisform-
ið leiði af sér einstaklinga sem
tapa — við erum jú öll einstakl-
ingar og að sjálfsögðu hrífumst
við á einn eða annan hátt af
keppnisforminu. Það er viður-
kennd dyggð að standa sig vel og
þar er komin ein tegund af keppni.
Við getum ekki útilokað keppn-
isformið, en við getum breytt
viðhorfum fólks til þess, við getum
spornað gegn því að keppnin gangi
of langt."
Þýtt.
• Leikmenn Hamborg SV fagna stærsta sigrinum, meistaratitli í Evrópukeppni meistaraliða.
Hamborg sigraöi ítalska liöið Juventus í úrslitaleik 1—0. Bastrup varð aö fara útaf í leiknum eftir
aö ítalski varnarmaöurinn Centile haföi kjálkabrotiö hann í leiknum. Á myndinni eru þaö Rolf og
Kaltz sem fara á undan félögum sínum meö bikarinn eftirsótta í leikslok.
• Littbarski skoraöi síðar mark FC Köln er liöiö sigraöi Bayern
MUnchen 2—0. Mark Littbarski, sem sést til vinstri á myndinni,
var stórglæsilegt og kosið mark vikunnar í V-Þýskalandi.
Kölnar-lið'ö sýndi mjög góöan leik á heimavelli sínum fyrir
framan 55 þúsund áhorfendur.
Hamborg er nú
í efsta sæti
- FC Köln sigraði Bayern 2—0
Frá Jóhanni Inga Gunnareeyni,
fréttamanni Morgunblaöeine í Þýekalandi.
1. FC KÖLN sigraöi Bayern
MUnchen 2:0 í frábærum leik á
laugardaginn I Bundesligunni.
55.000 áhorfendur sáu bæöi liö
leika sóknarknattspyrnu eins og
hún gerist best allan tímann.
Steiner skoraöi fyrra markiö á 49.
mín. eftir mjög góðan undirbún-
ing Klaus Allofs, og síðara markiö
geröi Pierre Littbarski. Þaö var
stórglæsilegt og talaö um þaö
sem mark mánaöarins. Eftir að
hafa fengið boltann úr innkasti
lék Littbarski á varnarmenn og
komst inn á vítateigshorniö. Þaö-
an þrumaöi hann boltanum efst i
nærhorniö meö vinstra fæti.
Júrgen Milewski skoraöi sigur-
mark Hamburger SV á nýliöum
Mannheim, og viö sigurinn er HSV
eitt á toppnum. Sigurinn var langt
frá því aö vera sanngjarn, því
Mannheim sótti linnulítiö allan tím-
ann, en færin nýttust ekki. Uli
Stein kom í veg fyrir þaö meö frá-
bærri markvörslu.
Stuttgart geröi markalaust jafn-
tefli gegn Bielefeld á heimavelli.
Áhorfendur, sem voru 17.000,
uröu vitni aö mjög slökum leik. Ás-
geir Sigurvinsson fékk 4 í einkunn
fyrir leikinn. Dómarinn var talinn
besti maöur vallarins í leiknum í
Bielefeld. Atli Eövaldsson fékk
einnig 4 í einkunn eftir leik Dúss-
eldorf og Leverkusen. Gestirnir
komust 2:0 yfir með mörkum Rud-
olf Wojtowicz á 10. mín. og Ulrich
Bittorf á 41. mín. en Gunter Thiele
bjargaöi stigi fyrir Dússeldorf meö
því aö skora tvívegis. Áhorfendur
voru 15.500.
Uwe Bracht og Uwe Reinders
skoruöu fyrir Bremen á föstudag-
inn er liöiö vann Dortmund. Mein-
olf Koch geröi mark Dortmund.
STAÐAIN
Staóan í daitdinni:
Hamborg SV 10 7 2 1 22.-9 16
Bayarn MUnchan 10 6 2 2 22:11 14
VFB Stuttgart 10 4 5 1 1S:10 13
Bor. Mönchangladb. 10 5 2 3 21:15 12
Wordor Bremon 10 4 4 2 14:11 12
Fortuna DUeeeldorl 10 4 3 3 22:17 11
Bayor Uerdingon 10 5 1 4 24:21 11
Bayor Levorkueon 10 3 4 3 1S:14 10
Arminia Bielofeld 10 4 2 4 12:14 10
1. FC Köln 10 4 1 5 1S:1S 9
VFL Bochum 10 4 1 5 19:25 9
SV Waldorf Mannhoim 10 3 3 4 13:19 9
1. FC NUrnberg 10 4 0 6 19:17 S
Eintr. Braunechweig 10 4 0 e 19:23 e
Borueeia Dortmund 10 3 2 5 15:24 e
Kickore Offenbach 10 4 0 e 15:27 6
1. FC Kaieerelautern 10 2 3 5 22:25 7
Eintracht Frankfurt 10 1 3 e 16:24 5
Urslit leikja
í V-Þýskalandi
ÚRSLIT leikja í V-Þýskalandi um síöustu helgi uröu þessi: Innan
sviga eru hálfleikstölur.
Eintracht Braunschweig 4 — FC Kaiserslautern 1 (0—0)
Fortuna DUsseldorf 2 — Bayern Leverkusen 2 (0—2)
Armenia Bielefeld 0 — VFB Stuttgart 0 (0—0)
1. FC Köln 2 — Bayern MUnchen 0 (0—0)
Borussia Mönchengladbach 2 — NUrnberg 0 (2—0)
VFL Bochum 4 — Eintracht Frankfurt 1 (1—0)
Waldorf Mannheim 0 — Hamburger SV 1 (0—0)
Kickers Offenbach 3 — Bayern Uerdingen 2 (1—2)
Werder Bremen 2 — Borussia Dortmund 1 (1—0)