Morgunblaðið - 18.10.1983, Side 24
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1983
Hið nýja hús Tónlistarskóla A-Húnvetninga.
Blönduós:
Tónlistarskólinn
fær húseign að gjöf
LALGARDAGINN 24. september sl.
var Tóniistarfélagi Austur-Húnvetn-
inga afhent húseignin að Húnabraut
26, Biönduósi, til eignar og afnota fyrir
Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga.
Þetta er tveggja hæða steinhús, og
var það eign hjónanna Jónasar
Tryggvasonar og Þorbjargar Berg-
þórsdóttur. Þau hjónin voru miklir
unnendur tónlistar og höfðu for-
göngu um stofnun tónlistarfélags og
tóniistarskóla í Austur-Húnavatns-
sýslu. Erfingjar þeirra hjóna af-
hentu húsið með þeim óskum að það
mætti verða til að efla starfsemi
tónlistar i sýslunni i anda þeirra
hjóna.
Húseign þessi er stórkostleg lyfti-
stöng fyrir Tónlistarskólann.
Hingað til hefur hann ekki haft fast
aðsetur. Kennsla hefur farið fram á
ýmsum stöðum á Blönduósi, Skaga-
strönd og í Húnavallaskóla. I sept-
ember sl. hófst kennsla i þessari
nýju húseign og nýráðinn tónlistar-
kennari hefur þegar flutt i íbúðina.
f vetur verða yfir hundrað nem-
endur í Tónlistarskóla A-Húnvetn-
inga. Fastir kennarar eru tveir, auk
skólastjóra, og stundakennarar eru
tveir.
Skagafjörður:
Nautgripir á fóðr-
um bíða slátrunar
Bc á MöfðaHtrönd, 17. október.
í DAG, 17. október, er bjart veður, en
undanfarna þrjá daga hefur verið
nokkur stormur og snjókoma. f útsveit-
um í Skagafirði eru jafnvel komnir
nokkrir skafiar í skjólum.
Ekki er farið að lóga nautpeningi
ennþá, og er það mjög bagalegt, þar
sem allt þarf að hýsa og gefa fóður.
En næstum á hverjum bæ er alið
upp ungviði, sem lógað er á hausti.
Mjólk í samlag hefur nú snar-
minnkað, eins og venja er til þegar
kýr koma á hús að hausti.
Björn í Bie.
Málverkauppboð Klausturhóla:
Kjarval og Scheving slegn-
ir á 148 þúsund krónur
— Grindavíkurkaupstaður keypti Grinda-
víkurmynd Gunnlaugs Scheving
MÁLVERK eftir þá Gunnlaug
Scheving og Jóhannes S. Kjarval
voru dýrustu verkin, sem slegin voru
á málverkauppboði Klausturhóla
fyrr í vikunni. Hvort verkið um sig
fór á rösklega 148 þúsund krónur að
meðtöldum söluskatti, að sögn Hall-
dórs Runólfssonar verslunarstjóra
Klausturhóla.
Mynd eftir Jón Stefánsson var
slegin á 142 þúsund krónur, Kjar-
valsmyndir á 105 og 37 þúsund
krónur, olía og vatnslitir, olíumál-
verk eftir Scheving, I fjósinu, seld-
ist á tæplega 93 þúsund krónur,
verk eftir Snorra Arinbjarnar á 38
þúsund, málverk eftir Eyjólf Ey-
fells á 62 þúsund og málverk eftir
Svein Þórarinsson á rösk 49 þús-
und. Alls voru slegin 83 málverk,
og fékkst yfirleitt gott verð að
sögn Halldórs.
Athygli vakti á uppboðinu hve
myndir Gunnlaugs Scheving fóru
á háu verði, en verk eftir hann
hafa lítið verið í sölu að undan-
förnu. Það var Grindarvíkurkaup-
staður sem keypti málverkið á 148
þúsund krónur, en það var olíu-
málverk frá Grindavík, málað á
striga.
Mikið gekk á að vanda, þegar busar við Menntaskólann á Akureyri voru teknir í „fullorðinna manna tölu“ við
hefðbundna busavígslu á föstudag, þar sem bæði var tollerað og slett skyri. Ljósm.: Gunnar Berg.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Keflavík —
laust starf
Laus er staöa skrifstofumanns í þinglýs-
ingardeild embættisins frá 1. desember
1983. Vélritunarkunnátta æskileg. Laun sam-
kvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar undirrituöum fyrir
1. nóvember nk.
Keflavík 11.10 1983.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík
og Njaróvík.
Sýslumaöurinn í Gullbringusýslu.
Starf ferskfisk-
matsmanns í
Grindavík
Starf ferskfiskmatsmanns í Grindavík frá nk.
áramótum er laust til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Framleiöslu-
eftirliti sjávarafuröa, Nóatúni 17, 105 Reykja-
vík fyrir 15. nóv. nk.
Aöstoö óskast
á tannlæknastofu allan daginn.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Aðstoö — 0406“.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Kona
oskar eftir ráöskonustööu i sveit
eöa kaupstaö, helst á Suöur-
landi
Uppl. í sima 16341.
I.O.O.F. Rb 4 = 13310188'A—
Sk.kv.
□ Hamar 598310177—1Frl.
Atkv.
I.O.O.F. OB-IP = 16510188'/i =
□ Edda 598310187—1 Frl.Atkv.
□ HELGAFELL 598310187 VI-2
I.O.O.F. 8 = 16510198% = E
Systrafélag Fíladelfíu
Systrafundur veröur mlövlku-
daginn 19. október kl. 20.30 aö
Hátúni 2. Margrét Hróbjartsdótt-
ir, kristniboöi kemur á fundinn.
Mun hún sýna skuggamyndit frá
Konsó og flytja hugleiölngu.
Kaffiveitingar.
Allar konur hjartanlega vel-
komnar Stjórnln.
ÚTIVISTARFERÐIR
Óbyggöaferö um veturnsatur:
Helgarferö 21.—23. okt.
Vetri heilsaö viö Veiölvötn. Qlst í
húsi. Fararstj. Kristján M. Bald-
ursson. Uppl. og fars. á skrifst.
Lækjarg. 6a, s. 14606 (simsvari).
Sjáumst.
AO KFUK
Amtmannsstíg 2B
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Sú ein ar ban í brjóati mér,
ég batur kunni þjóna þér.
Fundur í umsjá basarnefndar,
kaffi. Allar konur velkomnar.
Sólargeislínn
er sjóöur til hjálpar gömlum
blindum mönnum. Tekiö á móti
gjöfum og áheitum í sjóöinn aö
Ingólfsstræti 16.
Blindravinafélag Islands.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Fyrsti sýnikennslufundur vetrar-
ins veröur þriöjudaginn 18.
október kl. 8.30 í félagsheimilinu
aö Baldursgötu 9. Matreiöslu-
maöur sýnir úrbelningu á kjöti
o.fl. Konur fjölmennið!
Fíladelfía
Almennur biblíulestur kl. 20.30.
Ræöumaöur Elnar J. Gíslason.
I handmenntaskólinn
l 91 - 2 76 44
, FáW KYHHIHGARWIT SKÚLASS SEWT HEIM |
Biblíuleshrlngur í kvöld kl. 20.30.
Lögg. skjalaþýö. og dómtúlkur.
Hafnarstræti 11, sími 14824.
Víxlar og skuldabréf
i umboössölu.
Fyrirgraiöslustofan,
Vasturgötu 18, aimi 16223.
borlaifur Quömundsaon,
heima 12469.
Trésmióurinn
sími 40379
Ýmlss konar aöstoö. Kvöld- og
helgarvinna.