Morgunblaðið - 28.10.1983, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 28.10.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1983 3 Atvinnulíf Siglfírðinga í hættu TVÍSÝN staða útgerdar- og (Iskvinnslufyrirtækisins ÞormóAs ramma hf. á Siglufirði — og þar med megin- uppistöðu atvinnulífs á staðnum — hefur verið í sviðsljósinu undanfarna daga. Fyrirtækið hefur ekki verið í föstum bankavið- skiptum síðustu vikur og þegar þetta er skrifað er allsendis óljóst hvort takast muni að greiða út laun í dag, eins og lög gera ráð fyrir. Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að setja fyrirtækinu nýja „starfsstjórn" og fjármálastjóra en Þormóður rammi hf. er að 70 hundraðshlutum í eigu ríkisins. Fram hefur komið að skuldir fyrirtækisins nema um 250 milljónum króna og eru þá meðtald- ar afurðalánaskuldir en nær helmingur ársfram- leiðslunnar bíður nú útflutnings í frystigeymslum hins nýja og glæsilega fiskvinnsluhúss Þormóðs ramma á Siglufirði. Skammtímaskuldir fyrirtæk- isins eru 50—60 milljónir króna. Lausafjárstaðan er mjög erfið — einkum vegna erfiðleika útgerðar- innar. Runólfur Birgisson, skrifstofustjóri Þor- móðs ramma, sagði blm. Morgunblaðsins frá dæmi, sem hann taldi vera lýsandi fyrir erfiðleika fyrirtækisins og fleiri útgerðarfyrirtækja í land- inu. Fyrir nokkrum vikum kom annar togari Þormóðs ramma inn með afla fyrir um 700 þúsund krónur. Olíukostnaður vegna veiðiferðarinnar var um 500 þúsund krónur, laun um 300 þúsund og þá var allur annar kostnaður eftir. Áður en búið var að skipa upp var orðið 100 þúsund króna tap á veiðiferðinni. Texti: Ómar Valdimarsson Myndir: Friðþjófur Helgason Kolbeinn Friðbjarnarson, formaður Vöku: Skrattinn sjálfur má stjórna fyrirtækinu — ef hann gerir það vel og heldur því gangandi „VANDINN er einfaldlega sá, að fjárfestingin hjá Þormóði ramma hf. er meiri en rekstur fyrirtækisins stendur undir,“ sagði Kolbeinn Frið- bjarnarson, formaður Verkalýðsfé- lagsins Vöku á Siglufirði, þegar blm. Morgunblaðsins ræddi við hann um tvísýnt ástand í atvinnumálum á staðnum. Kolbeinn sagði að stjórn verka- lýðsfélagsins hefði ekki fjallað um málið eins og það horfði nú við þótt stjórnarmönnum væri staðan kunn og því gæti hann ekki talað í nafni Vöku. „Meginmálið er hins vegar að fyrirtækið haldi óhindr- að áfram starfsemi sinni og að allt sé gert til að halda því áfram," sagði Kolbeinn. „Mér er sama þótt skipt sé um stjórn í fyrirtækinu vegna stöðu þess núna — mín vegna má skrattinn sjálfur stjórna Þormóði ramma, bara ef hann gerði það vel. Það eru aðal- eigendur fyrirtækisins, sem nú vilja skipta um stjórn í því og ég hef ekkert við það að athuga. Ég held satt að segja að fækkun stjórnarmanna úr sjö í þrjá sé frekar af hinu góða.“ Hann lagði á það áherslu, að að jafnaði teldi hann eðlilegra að stjórnendur fyrirtækisins væru búsettir á Siglufirði. „Það er mín grundvallarskoðun," sagði Kol- beinn. „Fjarstýring gengur ekki til lengdar enda hlýtur þetta að vera bráðabirgðaráðstöfun og ákvörðun fjármálaráðuneytisins hlýtur að þýða, að ákveðið hafi verið að reka fyrirtækið áfram." Þormóður rammi hf. hefur verið mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf á Siglufirði. „Hér hefur orðið mikil fólksfækkun á undanförnum ára- tugum," sagði Kolbeinn Frið- bjarnarson. „Fólksfjöldi stóð þó í stað á síðasta áratug, einmitt þeg- ar verið var að byggja upp Þormóð ramma, sem var stofnsettur um og upp úr 1970. Þá hafði fólki fækkað hér um meira en þriðjung frá því sem var á síldarárunum. Og því var þannig háttað hér, að ekkert tók við af sfldinni fyrr en þetta fyrirtæki var stofnað. Það hljóta því allir að sjá, hvort sem þeir eru hér eða í ráðuneytum suður í Reykjavík, að það gengur engan veginn að setja þetta fyrirtæki INNLENTV Kolbeinn Friðbjarnarson, formaöur VerkalýAsfélagsins Vöku: Fjarstýring gengur ekki til lengdar. undir hamarinn. Um helmingur íbúanna á Siglufirði á lífsafkomu sína beinlínis undir rekstri Þor- móðs ramma." Kolbeinn sagði að atvinnu- ástand á Siglufirði hefði verið gott að undanförnu, t.d. hefði verið meiri vinna síðari hluta þessa árs en verið hefði lengi. „Hér hefur verið aðkomufólk í vinnu og því man ég ekki eftir síðan á síldarár- unum. Ég hef trú á að þessi vandi nú verði leystur. Jafnvel þótt hér verði stöðvun í einhverja daga munum við Siglfirðingar ekki æðrast — við höfum þreyjað þorr- ann og góuna í tuttugu ár og upp- lifað atvinnuleysi, sem á sér enga hliðstæðu hérlendis. Við erum ýmsu vanir hér — og alltaf bjart- sýnir,“ sagði Kolbeinn Friðbjarn- arson. Líst ekki vel á að láta fjarstýra frá Reykjavík — segir Tryggvi Sigurjónsson, trúnaðar- maður í frystihúsi Þormóðs ramma hf. „ÉG VERÐ að segja eins og er, að mér líst ekki vel á að láta fjarstýra þessu fyrirtæki sunnan úr Reykjavík. Ég held að það væri betra að mennirnir væru hér á staðnum. Þessi yfirlýsing ráðu- neytisstjórans um nýja stjórn í fyrir- tækinu kom mér mjög á óvart, ég hafði ekkert um þetta heyrt.“ Þetta sagði Tryggvi Sigurjónsson, 33 ára starfs- maður í frystihúsi Þormóðs ramma hf. á Niglufirði, í samtali við blm. Morgun- blaðsins. Tryggvi er trúnaðarmaður verka- lýðsfélagsins Vöku í frystihúsinu og bónustrúnaðarmaður þar einnig. Auk þess hefur hann setið í stjórn Þormóðs ramma hf. sem fulltrúi al- mennra hluthafa, þar á meðal Vöku. Hann sagði að hætt væri við því að frá og með næsta fimmtudegi legðist niður vinna í frystihúsinu vegna hráefnisskorts. „Þá hlýtur að verða þröngt í búi einhvers staðar, ég tala nú ekki um ef stoppið verður langt,“ sagði Tryggvi. „Ástandið er ekki gott eins og er, það er tilfinnanlegur lausafjárskortur, eins og fram hefur komið. En í sumar hefur ástandið verið gott — að minnsta kosti hefur verið bullandi vinna. Síðasta hálfa mánuðinn hafa dottið tveir dagar úr vegna gæftaleysis." — Hvernig líst þér á að ríkisvald- ið ætli nú að setja stjórnina af og skipa embættismannastjórn i stað- inn? „Mér líst illa á það — en getur maður nokkuð sagt? Þeir hljóta að hafa tekið þessa ákvörðun að yfir- veguðu máli. En ég vildi gjarnan fá Tryggvi Nigurjónsson trúnaðarmaður: Verður þröngt í búi einhvers staðar ef eitthvert stopp verður. einhverja skýringu á þessu — maður hefur ekkert heyrt nema bara laus- lega.“ Tryggvi, sem hefur unnið hjá Þormóði ramma hf. f áratug, sagði að enginn Siglfirðingur mætti við því að hjólin hættu að snúast hjá fyrirtækinu. „Fólk gæti farið að flýja staðinn og við því megum við ekki — það hefur verið nokkuð stöð- ug fækkun hér undanfarin ár. En ætli við þraukum ekki eins lengi og hægt er.“ Dr. Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri: Teljum vaxta- tökuna fylli- lega lögmæta „ÞETTA mál hefur oft verið kannað og rætt á undanförnum árum og bankastjórn og bankaráð Seðlabank- ans hafa talið, að heimild til þessara vaxtaákvarðana væri ótvíræð," sagði dr. Jóhannes Nordal, Seðlabanka- stjóri, í samtali við Morgunblaðið, þegar hann var inntur álits á þeim ummælum Alberts Guðmundssonar, fjármálaráðherra, að Seðlabankinn bryti lög daglega með vaxtatöku af innlánsstofnunum. „í tilefni þessara umræðna nú hefur málið enn á ný verið kannað af lögfræðingum bankans, auk þess sem samband var haft við lögfræð- inga viðskiptaráðuneytisins um málið. Niðurstaða athugana lög- fræðinga bankans var eftir sem áð- ur sú, að vaxtatakan væri fyllilega lögmæt,“ sagði dr. Jóhannes Nordal ennfremur. Dr. Jóhannes Nordal sagði, að bankinn hefði óskað eftir staðfest- ingu viðskiptaráðuneytisins á þeirri skoðun, sem kemur fram í álitsgerð bankans. Var svar ráðuneytisins jákvætt. „NYJUFILM SXJORNURNAR FRÁKODAK! Nýju 35 mm litfilmurnar frá Kodak, KODACOLOR VR.skila hlutverki sinu meö sóma viö ólíkustu skilyröi litljósmyndunar, enda eiga þær ekki langt aö sækja frábæra Jithæfileika“ sína. '3S 24 24 KOOACOLOR VR 100 er sú skarpasla. mjög tinkorna og þvi einkar vel lallin til slækkunar KODACOLOR VR 200 er *ti f|ólhætasla. Hun læður jafn vel við mis- jötn birtuskilyrði sem óvæntar uppákomur. KODACOLOR VR 400 er mjög Ijósnæm og tin- korna og skilar atar lit- sterkum myndum KODACOLOR VR 1000 er su allra Ijosnæmasla - Ftlma nyrra mögu- leika. KODAK UMBOÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.