Morgunblaðið - 22.11.1983, Side 2

Morgunblaðið - 22.11.1983, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 Morgunbladið/ólafur Rögnvaldsson. Ragnar Ben. tS fórst upp f landsteinum, eins og sést greinilega á þessari mynd. Hún var tekin af þremur áhafnarmeölimum og brakinu, sem er að veltast og brotna í spón á skerjunum. Frá vinstri: Ásgeir Þóröarson, útgeröarmaöur bátsins, og skipbrotsmennirnir Ómar Þórhallsson og Guðmundur Guðmundsson. Sjópróf í Stykkishólmi: Radar Ragnars Ben. bilaður RADAR dragnótabátsins Ragnars Ben. ÍS 210 var bilaður þegar skipið steytti á skeri við Brimnes, skammt fyrir vestan Hellissand á miðvikudag í síðustu viku. Bilunin í radarnum kom ekki fram fyrr en í róðrinum, þegar skipstjóri hugðist kveikja á honum.Þetta kom fram í sjóprófum sem fram fóru í Stykkishólmi á fimmtudag. Guðmund- ur Kristjónsson, skipstjóri á Ragnari Ben., kvaðst ekki hafa áttað sig á hversu nærri landi þeir voru fyrr en báturinn steytti á skerinu. Þá kom fram í sjóprófum, að sjálfstýring báts- ins var biluð. Klemenz Eggertsson, fulltrúi sýslu- mannsins í Stykkishólmi, var í forsæti dómsins og meðdómendur Ingólfur Ingólfsson, fyrrum stýri- maður, og Leifur Halldórsson, fyrrum skipstjóri. Nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins: Endurskoðun á launum og styrkjum til listamanna Menntamálaráöherra hefur skipaö vinnunefnd til þess aö gera úttekt á fyrirkomuiagi allra launa og styrkja til listamanna og einnig er nefndinni ætlað að gera tillögur um nýtt fyrir- komulag í þessu efni, samkvæmt upp- lýsingum sem blm. Mbl. fékk hjá Kagnhildi Helgadóttur menntamála- ráöherra. Ragnhildur sagði að tilgangur- inn með þessari ráðstöfun væri sá að það fé sem varið er af hálfu hins opinbera til þessara mála, nýtist sem best íslenskri list. Sérstaklega er nefndinni ætlað að taka afstöðu til þess, hvort það fé sem til lista- manna rennur. eigi fremur að vera Tíu um- sækjendur TÍU umsækjendur eru um stöðu póstmeistara í Reykjavík, en um- sóknarfrestur um stöðuna rann út 18. nóvember. Eftirtaldir sóttu um: Axel Sigurðsson, Ari Jóhannesson, Björn Björnsson, Árni Þór Jónsson, Gylfi H.S. Gunnarsson, Jóhann Hjálmarsson, Magnús H. Magnús- son, Rafn Júlíusson, Reynir Ár- mannsson og Sigurður Ingason. Tónlistin stytt- ir símabiðina LJIIFIK tónar berast um símalínur og stytta mönnum biðina, hringi þeir í skrifstofur steypustööar B.M. Vallá og þurfi af einhverjum ástæöum aó bíöa í símanum eftir þeim sem spurt er eftir. Tölvutæknin ryöur sér rúms á sífelll fleiri svióum — framþróunin verður ekki stöóvuð. „Við fengum okkur nýtt símakerfi fyrir skömmu frá Siemens og þetta var einn af kostum þessa kerfis. Þetta er sama þróun og átt hefur sér stað erlendis. Eins og sakir standa höfum við aðeins eitt lag á kassettu, en fleiri má tengja við símtækið," sagði Víglundur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri B.M. Vallá. í samtali við Mbl. í formi starfslauna, eða launa fyrir unnin störf, en í formi styrkja. I nefndinni sitja þeir Halldór Blöndal alþingismaður, sem er formaður, varaformaður er Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld, formaður Bandalags íslenskra listamanna, Jón Sigurðsson skólastjóri og Bald- ur Guðlaugsson lögfræðingur. Þá mun Sólveig Ölafsdóttir, fulltrúi í lista- og safnadeild menntamála- ráðuneytisins, vinna með nefnd- inni, en hún hefur sl. ár stundað framhaldsnám í höfundarrétti. Nefndinni er ætlað að skila fyrstu skýrslu sinni um þessi efni fyrir 20. janúar næstkomandi. Hundurinn hafði betur RJÚPNAVEIÐIMENN eiga allajafna ekki í mikilli samkeppni viö hunda í rjúpnaveiðiferðum, en af einum frétti Morgunblaðiö og í því tilfelli haföi hundurinn betur. Atvik voru þau að tveir veiði- menn héldu snemma um morgun í svartamyrkri til Þingvalla ný- lega og örkuðu móðir um hlíðar Ármannsfells. Er þeim þótti full- reynt þar, héldu þeir til bíls síns og á leiðinni þangað gengu þeir fram á eina rjúpu, sem skotin var umsvifalaust. Hafði veiðihundur einn mikill, sem annar mannanna á, fundið fuglinn og héldu nú fé- lagarnir þrír til bílsins og hugð- ust flytja sig um set á svæðinu. Óku þeir um héraðið sem var krökkt af veiðimönnum, en eftir klukkutíma akstur komu menn- irnir á næsta stað. Var þá farið að huga að veiði- hundinum, sem fram að þessu hafði legið makindalega aftur í skutbíl þeirra félaga ásamt jarðneskum leifum rjúpunnar. Ver veiðihundurinn hinn fleðu- legasti og fagnaði eiganda sínum, en minna fór fyrir rjúpunni. Af henni fundust einungis nokkrar vængfjaðrir, en ekki haus, fætur, eða þá búkurínn. Þótti ljóst af verksummerkjum að hundkvik- indið hefði étið rjúpuna „með húð og hári“ og talið sig í fullum rétti til þess. Var ófagurt upplitið á veiði- mönnunum þegar þessar stað- reyndir lágu fyrir og samkvæmt heimildum blaðsins óvíst að hundurinn verði tekinn með I næstu ferð. Verzlunarráð Islands: Fundur um breyting- ar í efnahagslífínu Almennur félagsfundur hjá Verzlunar- ráði Íslands um ýmsar breytingar sem í undirbúningi eru f efnahagslífinu verður að Lækjarhvammi, Hótel >Sögu í dag og hefst fundurinn kl. 16. Fjallað verður um væntanlegar breytingar í efnahagslífinu undir heitinu: llpp- stokkun eða óbreytt ástand. Pallborðsumræður verða undir stjórn Ingva Hrafns Jónssonar, fréttamanns. Þáttakendur verða: Davíð Ólafsson, seðlabankastjóri, sem ræðir um endurskoðun gjald- eyris— og viðskiptamála, Geir H. Haarde, aðstoðarmaður fjármála- ráðherra, ræðir um sparnaði í ríkis- rekstri og sölu ríkisfyrirtækja, Ólaf- ur Nilsson, endurskoðandi, ræðir um breytingar á skattalögunum og fjár- festingar í atvinnulífinu, Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, ræðir um endurskoðun laga um banka og sparisjóði. Veiðiheimildir Færeyinga og Norðmanna: Samningum sagt upp á næstunni NORÐMENN, Færeyingar og Belgar hafa verið varaðir viö því aö íslend- ingar muni segja upp fiskveiðisamningum viö þessi ríki innan skamms, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Halldóri Ásgrímssyni sjávarút- vegsráðherra. Sagði Halldór að samningum við Noreg og Færeyjar yrði sagt upp á næstunni, en þeirra afli hér við land skiptir mestu, en veiðar Belga hafa verið tiltölulega litlar og samningur við þá er að renna út og hefur ekki verið ákveðið hvort honum verður sagt upp. Færeyingar hafa haft heimild til að veiða 17.000 tonn hér við land en Norðmenn 2.000 tonn. Það sem af er þessu ári hafa Belgar veitt um 800 tonn og útlit er fyrir minni afla á næsta ári. Samning- um verður sagt upp á næstunni, en uppsagnarfrestur er 6 mánuðir. Framlag í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn: Úr Seðlabanka, ekki ríkissjóði ALBERT Guðmundsson fjármálaráðherra lýsti því yfir á Alþingi í gær, að framlag íslands til kvótahækkunar í Alþjóöagjaideyrissjóðnum komi í greiösluhiut Seðlabanka íslands, en ekki ríkissjóðs, eins og hann heföi áöur talið. Vitnaði Albert í bréf frá Seðlabanka íslands þessa efnis, en þar kemur fram að enginn kostnaöur mun falla á ríkissjóð nú eða síðar af þeirri aukningu kvóta fslands sem nú er fyrirhuguð. Svar sitt gaf Albert vegna fyrir- spurnar Svavars Gestssonar þess efnis að spurst hefði að fjármála- ráðherra væri andvígur efni áð- urgreinds frumvarps, en Mbl. skýrði frá því sl. föstudag, að Al- bert hefði lýst sig andvígan inni- haldi þess þar sem hann teldi það kalla á aukin útgjöld ríkissjóðs. Þá kom mál þetta einnig til um- fjöllunar við þriðju umræðu frum- varps um norræna fjárfestingar- bankann. Fyrirspurn var einnig beint til Matthíasar Á. Mathiesen við- skipta- og bankamálaráðherra. Hann benti í svari sínu á gjaldalið í frumvarpi til fjárlaga 1984, sem mæta ætti hækkunarhlut íslands í norræna fjárfestingarbankanum. Seðlabanki íslands fer hinsvegar með hlut okkar hjá Alþjóðagjald- eyrisvarasjóðnum, sagði ráðherr- ann, og leggur bankinn fram það sem til þarf vegna ráðgerðrar kvótahækkunar. Samkvæmt heimildum Mbl. mun ágreiningur meðal ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins um þetta mál vera úr sögunni. Sjá nánar frétt á þingsíðu. Stjórn Námsgagnastofnunar: Helgi Jónasson skipaður formaður Menntamálaráðherra hefur skip- aö Helga Jónasson formann stjórnar Námsgagnastofnunar, en Helgi er fræöslustjóri Reykjanesumdæmis. Þá hefur Þuríður Kristjánsdótt- ir prófessor verið skipuð varafor- maður stjórnarinnar. Formennsku í stjórn Náms- gagnastofnunar gegndi áður Hörður Lárusson, deildarstjóri Skólarannsóknadeildar. Reiner Kunze á Kjarvalsstöðum REINER Kunze, þýska skáldiö, les úr verkum sínum á þýsku bókasýn- ingunni á Kjarvalsstööum kl. 20.30 rimmtudaginn 24. nóvember næst- komandi. Reiner Kunze fæddist 1933 í Oelsnitz sem nú er í Austur- Þýskalandi. Hann hefur hlotið margs konar bókmenntalega við- urkenningu og verk hans eru nú gefin út á fjölmörgum þjóðtung- um. í fréttatilkynningu vestur- þýska sendiráðsins Reykjavík um komu Kunze hingað til lands segir, að hann sé í hópi fremstu þýskra rithöfunda samtímans. Bækur Kunze hafa verið bannað- ar í Austur-Þýskalandi síðan 1%8, að hann mótmælti ásamt fleiri listamönnum innrásinni í Tékkóslóvakíu. Síðan hafa þær einungis verið gefnar út vestan múrsins þar sem Kunze hefur verið búsettur síðan 197' Á síðasta ári gaf Almenna bókafélagið út eina af þekktustu bókum Reiner Kunze, Árin dá- samlegu, í þýðingu Björns Bjarnasonar, blaðamanns. I bók- inni er lýst lifi æskufólks í Austur-Þýskalandi og dregnar upp smámyndir af því hverng er að búa í kommúnísku stjórn- kerfi. „Bók mín er ekki pólitískt Reiner Kunze plagg," hefur Kunze sagt um þetta verk. „Hún er ekki hugsuð sem árás á einn eða neinn. Ég er ekki óvinur Alþýðulýðveldisins. Ég er óvinur lyginnar."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.