Morgunblaðið - 22.11.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
13
Ölfusvegur
heflaður
Mveragerði, 20. nóvember.
HÉR austan fjalls bánist út þau
óvsntu en kærkomnu tíðindi, rétt
fyrir síðustu helgi, að Vegagerð
ríkisins hefði tekið á sig rögg og
látið hefla vegarkaflann frá
Þrengslavegamótum að Hveragerði,
en þessi 12 km spotti er oft mjög
illfær eins og meðfylgjandi mynd
sýnir glögglega. Kunnugir menn
telja að þetta muni vera í 4. eða 5.
skiptið sem þessi vegur er heflaður á
þessu ári, sem senn er á enda.
Ekki kemur fólki saman um
hver ástæðan sé fyrir þessu fram-
taki Vegagerðarinnar, en sumir
geta þess til að einhver af ráða-
mönnum þar hafi neyðst til að
leggja leið sína um Olfusveg og
sannfærst um að kvartanir honum
viðvíkjandi væru ekki alveg út í
bláinn. En víst er að þeir sem dag
hvern þurfa að aka þennan veg,
sumir oft á dag, eru hverjum þeim
úrbótum fegnir sem þarna eru
gerðar, en ánægðastir yrðu þeir
þó, ef lagt yrði bundið slitlag á
hann eins og aðra vegi allt um
kring. En til þess að það verði,
yrðu líklega landsfeður okkar allir
að fá reisupassa „austur fyrir
fjall". Veit ég að margir sunn-
lendingar mundu fúsir til að flytja
þá frítt svo þeir þyrftu ekki að
misbjóða fínu tollfrjálsu bílunum
sinum, ef þeir bara þyldu að
hlusta á skröltið í lausa púströr-
inu, hljóðdunknum og ónýtu
höggdeyfunum.
En líklega er ekki von á þeim,
því þeir hafa sent okkur þau boð
að þessi vegur sé á 4. vegaáætlun
og verði því svona að vera fram-
undir aldamótin.
— Sigrún
Albert Alfreð
Guðmundsson Þorsteinsson
Fundur um
sölu ríkis-
fyrirtækja
Nk. fimmtudag verður haldinn
fundur um sölu ríkisfyrirtækja.
Verða frummælendur Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra
og Alfreð Þorsteinsson, forstjóri
Sölu varnarliðseigna.
Fundurinn er haldinn á veg-
um Framsóknarfélags Reykja-
víkur og er öllum opinn. Verð-
ur hann haldinn í Hótel Heklu,
Rauðarárstíg 18, og hefst
klukkan 20.30. Fundarstjóri
verður Indriði G. Þorsteinsson.
Eftir að framsöguræður
hafa verið fluttar, verða opnar
umræður, þar sem frummæl-
endur munu svara spurning-
(Fréttatilkynning.)
Barnafataverslunin Dúlla:
Skiptimarkaöur
með barnaföt
Ný barnafataverslun, Dúlla, hefur
tekið til starfa á Laugavegi 20 (
Reykjavík. Dúlla er rekin með nokk-
uð öðru sniði en aðrar barnafata-
verslanir. Þar er hægt að kaupa og
selja eða skipta á barnafötum, bleyj-
um og leikföngum.
í Dúllu eru einnig seld ný og
heimasaumuð föt, svo og prjónuð
barnaföt og sængurgjafir.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
fSLENSKAR VÖRUR
Á ERLENDAN /VIARKAÐ
íslensk þjóð byggir lífsviðurværi sitt
á útflutningi. Ekki aðeins á afla
fiskiskipanna, heldur einnig á
útflutningi annars konar afla -
afrakstri verkmenningar alls
þjóðfélagsins - allt frá heimaprjón-
uðum lopapeysum til háþróaðs
stóriðjuvarnings.
Við hjá Eimskip vitum að ekkert svið
íslensks atvinnulífs er óháð
útflutningi. í áratugi höfum við lagt
okkur fram við að þjóna atvinnuveg-
unum sem best, með því að fylgjast
náið með framförum og tileinka
okkur jákvæðar nýjungar í
flutningum.
Nú flytur Eimskip íslenskan afla um
allan heim - niðursuðuvörur til
Sovétríkjanna, freðfisk til Bandaríkj-
anna, lopavörur til Evrópuhafna,
skreið til Nígeríu, stóriðjuafurðir til
Bretlands - og svona mætti lengi
telja. Sérþekking og reynsla
Eimskips í flutningum nýtist öllum
greinum íslensks atvinnulífs.
ry.K